Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samningur um stofnun Samfylkingarinnar samþykktur á 50. flokksþingi Alþýðuflokksins Höfum fram- selt okkar vald til nýs stj órnmálaafls SAMÞYKKT var á flokksþingi Al- þýðuflokksins - Jafnaðarmanna- flokks íslands í gærkvöldi að stað- festa „samning Alþýðuflokksins, Alþýðubandalagsins og Samtaka um kvennalista um stofnun Sam- fylkingarinnar með þeim réttind- um og skyldum sem því fylgir og fram kemur í fyrrgreindum samn- ingi og fylgiskjölum hans“. Með þessari samþykkt var Alþýðuflokk- urinn þó ekki formlega lagður nið- ur, en pólitískt vald hans var fram- selt til Samfylkingarinnar og sagði Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, að hér með rétti hann kyndilinn næstu kynslóð. Flokksþingið hófst á Grand Hót- eli í Reykjavík upp úr klukkan átta í gærkvöldi og var slitið fyrir klukkan tíu, en tveggja daga stofnfundur Samfylkingarinnar hefst í dag. Sighvatur rifjaði upp að fyrir tveimur árum hefði forustu flokks- ins verið veitt umboð til að ganga til samninga við aðra stjórnmála- flokka um stofnun stjómmála- flokks jafnaðarmanna og félags- hyggjufólks. Það hefði ekki verið í fyrsta sinn sem slíkt umboð hefði verið veitt, en aldrei borið árangur fyrr en nú. Lagði til endurkjör sjálfs sín Önnur tillaga var samþykkt á þinginu og verður hún að teljast nokkuð óvenjuleg: „Nú ætla ég að gera það, sem aldrei hefur verið gert áður,“ sagði Sighvatur. „Það er að formaður Alþýðuflokksins leggur til að hann verði sjálfur endurkjörinn.“ Síðan var samþykkt með lófataki að „framlengja með einni sam- þykkt embættistíma allra kjörinna fulltrúa í öllum stjórnum, nefndum og ráðum innan flokksins um eitt kjörtímabil eða fram til reglulegs flokksþings á árinu 2002“. Sighvatur sagði að þetta væri gert vegna þess að enn þyrfti Al- þýðuflokkurinn að standa við fjár- hagslegar skuldbindingar. Því þyrfti að kjósa flokksstjórn sam- kvæmt lögum Alþýðuflokksins, þótt hún hefði ekki lengur neinu pólitísku hlutverki að gegna fyrir utan að styðja Samfylkinguna. Össur Skarphéðinsson, þingmað- ur Samfylkingar, sagði í ræðu, sem hann flutti til að þakka Sighvati fyrir störf hans, að þetta væri tímamótaflokksþing og ef til vill síðasta flokksþing hins virka Al- þýðuflokks. „Nú höfum við með samþykkt tillögu hér fyrr í kvöld í raun framselt okkar vald til nýs stjórn- málaflokks, sem verðm’ stofnaður á morgun [föstudag],“ sagði Össur, sem er í framboði til formanns Samfylkingarinnar ásamt Tryggva Harðarsyni, sem reyndar var einn- ig staddur á flokksþinginu í gær- Morgunblaðið/Krisíinn Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, flytur skýrslu for- manns á 50. þingi flokksins í gærkvöldi. Sighvatur var endurkjörinn formaður í gærkvöldi en flokkurinn afsalaði sér hins vegar pólitískum völdum til Samfylkingarinnar, sem heldur stofnfund í dag og á morgun. kvöldi þótt ekki tæki hann til máls. Sighvatur sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar flokkurinn hefði staðið við allar sínar skuld- bindingar væri ekkert í vegi fyrir því að leggja hann niður. Hann ætti ekki von á því að þetta yrði síðasta flokksþing Alþýðuflokks- ins, en alls ekki væri víst að sér- stakt flokksþing yrði haldið til að leggja hann niður. Sighvatur rifj- aði upp að franski sósíalistaflokk- urinn hefði verið stofnaður með sama hætti og Samfylkingin eða sem regnhlíf yflr marga litla stjórnmálaflokka, sem áður voru til og í tímans rás væri svo komið að þeir væru ekkert nema nafnið. Ákveðið hefði verið að stofna Sam- fylkinguna með þessum hætti vegna þess að til þess að leggja flokkana niður hefði þurft að halda aðalfund í hverju einasta flokksfé- lagi þar sem þau væru sjálfstæð og hefðu mismunandi lög og gera hefði þurft gríðarlegt fjárhagslegt uppgjör, sem hefði tekið óhemju tíma. Besta gjöf sem stjórnmála- flokkur getur gefið sér Mikið var klappað í lok þingsins og bað Sighvatur menn að spara lófana því mikið þyrfti að klappa í dag og ekki borgaði sig að mæta með sára lófa á stofnfund Samfylk- ingarinnar: „Alþýðuflokkurinn hef- ur nú lokið sínu 50. flokksþingi og hann gaf sjálfum sér í tilefni af þvf bestu gjöf, sem nokkur stjórn- málaflokkur getur gefið sjálfum sér. Hvaða gjöf er það? Það er að láta stærsta drauminn rætast." Fjármál flokkanna sem standa að Samfylkingunni rædd á flokksþinginu RÍKISSTYRKIR til þeirra stjóm- málaflokka, sem standa að Samfylk- ingunni verða notaðir til að greiða niður skuldir þeirra, þótt þær sé mis- miklar eftir flokkum, samkvæmt því, sem kom fram á flokksþingi Alþýðu- flokksins í gærkvöldi, þar sem sam- þykktur var samningur flokkanna þriggja um stofnun Samfylkingarinn- ar. Magnús M. Norðdahl, formaður framkvæmdastjómar Alþýðuflokks- ins, gerði grein fyrir samningnum um stofnun Samfylkingarinnar á flokks- þinginu og sagði að gmndvallaryfír- lýsing hans væri að hinn nýi flokkur tæki við hinum pólitísku réttindum, framboðsréttindum og öðru slíku, úr höndum gömlu flokkanna. Greiddu allar gömlu skuldirnar Sighvatur Björgvinsson, formaður Alþýðuflokksins, sagði að þegar ákveðið var að fara að vinna að sam- einingu flokkanna á vinstri vængnum á flokksþingi Alþýðuflokksins árið 1996 hefðu bókfærðar skuldir flokks- ins verið á fjórða tug milljóna og fjölmargir flokksmenn í persónuleg- um ábyrgðum fyrir þeim. Ákveðið hefði verið að gera þyrfti Alþýðu- flokkinn hæfan til að geta tekið þátt í stofnun nýs stjómmálaflokks, en það hefði hann ekki verið. Nú væm allar gamlar skuldir flokksins greiddar og enginn einstaklingur í þessari stöðu. Það hefði aldrei áður gerst í sögu Skuldir greidd- ar með styrkjum ílokksins svo hann vissi til. Sighvatur sagði í samtali við Morg- unblaðið að talsverð umræða hefði verið um fjármálin meðan verið var að ganga frá samfylkingarmálum og þau hefðu verið eitt af mörgum vandamálum, sem þurfti að leysa: „En niðurstaðan varð bara sú að það yrði hver að leysa sitt og ekki flytja þann vanda með sér inn í Samfylk- inguna.“ Lofuðu að taka engar nýjar fjárskuldbindingar á sig Magnús sagði að gömlu flokkamir lofuðu að taka engar nýjar fjár- skuldbindingar á sig. „Þótt við værum lausir úr persónu- legum ábyrgðum lá alveg ljóst fyrir að það vom ekki allir í sömu spor- um,“ sagði Magnús. „Við urðum til að tryggja Samfylkingunni trúverðug- leika og tryggja að enginn yrði skil- inn eftir úti í kuldanum með ábyrgðir á bakinu." Hann sagði að því hefði verið gerð- ur bindandi samningur um ráðstöfun opinbers flokksstyrkjar þannig að hann færi til þess að standa við skuld- bindingar, en gengi að öðm leyti í sameiginlegar þarfír. „Þau framlög úr ríkissjóði, sem renna til samstarfsaðilanna á kjör- tímabilinu skulu afhent og greidd til sameiginlegrar ráðstöfunar,“ sagði Magnús og vitnaði í samkomulag flokkanna. „Þaðan er þeim fyrst varið til greiðslu afborgana og vaxta þeirra skulda samstarfsaðila, sem tilgreind era á fylgiskjali c - óþarfi að leggja það fram hér, það er trúnaðarmál á milli aðila - og þannig er tryggt að þessir aðilar geti allir staðið við sitt.“ Ákvæði ef upp úr slitnar Magnús sagði að einnig væri ákvæði um það hvað skyldi gert ef upp úr slitnaði: „Það er mismunandi staða milli flokkanna. Það er alveg ljóst. Sumir þurfa meira en aðrir. Þar af leiðandi fer stór hluti af þessum flokksstyrk ekki í hendumar á Alþýðuflokknum heldur til sameiginlegra þarfa meðan aðrir leggja ekki jafn mikið fram. Það er enginn hjúskapur stofnaður þann- ig að þú getir ekki gert ráð fyrir því að eitthvað springi í loft upp. Annað væri óskynsamlegt. Þannig að við geram ráð fyrir því að ef upp úr slitn- ar - sem við að sjálfsögðu vonum og trúum að verði ekki - fer fram upp- gjör milli aðila.“ Ákváðu að líta framhjá skuldastöðu Á fundinum spurði Jakob Magnús- son tónlistarmaður hvort ætlunin væri „að upplýsa [þingið] um mis- munandi fjárhagslega aðkomu flokk- anna“ að Samfylkingunni. Magnús sagði að staða mála í þessu yæri einföld: „Við eram virki- lega þeirri hugsun brenndir að vera jafnaðarmenn og ákváðum hreinlega að líta framhjá þessari skuldastöðu og segja: Það koma allir inn í þetta dæmi með bakið beint. Það þarf eng- inn að skammast sín. Við munum tryggja að það verður enginn fyrir skakkaföllum þó að við sameinum flokkana. Nákvæm skuldastaða þeirra er ekki til umræðu hér.“ Harry Potter and the Prisoner of Azkaban Þriðji og nýjasti gullmolinn í sagnaflokki J.K. Rowling um gatdrastrákinn Harry Potter. Þessar spennusögur fyrir börn og futlorðin börn hafa htotið fádæma viðtökur um allan heim og unnið til fjölda viður- kenninga. Rowting hefur verið tikt við Roald Daht, Tolkien og Lewis og segir það meira en mörg orð. Harry Potter tnd the Phttosopher's Stone Htrry Pottertndthe Chtmber of Secrets Erlendar bækur daglega Búist við allt að 700 manns á stofnfund Samfylkingar Um 4.500 tóku þátt í kosningu formanns er I ymuiuissou Austurstræti 5111130’ Ktinglunnt 533 1130 » HafnarfirS 555 0045 STOFNFUNDUR Samfylkingar- innar hefst í Borgarleikhúsinu með sérstakri hátíðardagskrá kl. 10 í dag, undir yfírskriftinni: Jöfnum leikinn í sámfélaginu. Búist er við að allt að 700 fulltrúar sæki fundinn. Glenda Jackson, þingmaður breska Verkamannaflokksins, og Ole Stavad, ráðherra og varaformað- ur danska Jafnaðarmannaflokksins, flytja ávarp við setningarathöfnina, sem verður sýnd í beinni sjónvarps- útsendingu á Stöð 2. Ails bárast um 4.500 atkvæðaseðl- ar í póstatkvæðagreiðslu um for- mann Samfylkingarinnar. Kjör- stjóm hóf talningu atkvæða í formannskosningum í nótt og er gert ráð fyrir að úrslit í formannskjöri verði kynnt í lok setningarathafnar- innar skömmu fyrir hádegi í dag. Eftir hádegi fer fram kynning á lögum hins nýja flokks og afgreiðsla þeirra og kl. 14 hefst umræða undir yfirskriftinni: Nýjum stjórnmála- flokki fylgt úr hlaði. Þar munu þing- menn Samfylkingarinnar sitja við pallborð og fundarmenn ræða stjómmál líðandi stundar. Síðdegis hefjast umræður í tveim- ur málstofum um viðfangsefni stjórnmála framtíðarinnar. Annars vegar verður rætt um jafnaðarstefn- una við breyttar aðstæður og stétta- stjómmál nútímans og hins vegar um hnattvæðingu og stöðu íslands. Berit Andnor, þingmaður sænska Jafnaðarmannaflokksins, og Glenda Jackson verða meðal frummælenda og sérstakur gestur málstofu um jafnaðarstefnuna verður Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri. í kvöld kl. 20 hefjast svo umræður í fimm málstofum sem bera yfir- skriftina: Auðlindir og almannahags- munir; Sátt í fjölþættu samfélagi - 7.000 nýir íslendingar; Ný pólitík - ný vinnubrögð; Hvernig breytum við íslandi í þekkingarþjóðfélag? og Hvernig viljum við byggja landið? Málstofurnar eru öllum opnar en þærverða í Verslunarskólanum, Há- skóla Reykjavíkur og Sambíóunum í Kringlunni, skv. upplýsingum undir- búningsnefndar fundarins. Á morgun, laugardag, heldur fundurinn áfram kl. 10 þegar fram fara almennai- stjórnmálaumræður og umræður og afgreiðsla stjórn- málaályktunar flokksins. Kosið verður á fundinum í emb- ætti varaformanns, gjaldkera, ritara og formanns framkvæmdastjómar. Þá verða 6 fulltrúar kjörnir í fram- kvæmdastjórn og 30 manns í flokks- stjórn. Gert er ráð fyrir að lokaathöfn fundarins verði svo kl. 15-16 á morg- un.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.