Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAOIÍR feí ÍVtAJ 2000 MORGUNBLÁDH) HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Frímínútur í Hamraskóla Skipulagsstofnun metur umhverfísáhrif lagningar Hallsvegar Nýr vegur í Grafarvogi Grafarvogur SKÓLAÁRINU fer brátt að ljúka og þá tekur sumarfrí- ið við hjá nemendum og vafalaust hafa einhverjir þessara nemenda í Hamra- skóla í Grafarvogi, sem voru úti í frímínútum, verið að hugsa um sumarið og sólina. Nemendurnir eru þó ekki alveg lausir úr prisundinni strax því þótt elstu nemend- urnir hafí þegar lokið sam- ræmdum prófum eiga hinir yngri eftir að taka öll sín próf, en þangað til er allt í lagi að láta sig dreyma. Grafarvogur SKIPULAGSSTOFNUN hef- ur hafið athugun á umhverfis- áhrifum lagningar Hallsvegar í Grafarvogi frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi. Um er að ræða 2 akreina veg og er áætlað að framkvæmdir hefjist í sumar og ljúki síðar á árinu, en fyi'sti hluti Hallsvegar frá Strand- vegi að Fjallkonuvegi var lagður árið 1989. I skýrslu, sem unnin var af Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf. (VST) kemur fram að tilgangur fram- kvæmdarinnar sé að bæta samgöngur til og frá Grafar- vogshverfum, létta á umferð um Gagnveg í gegnum íbúða- hverfi og koma í veg fyrir óþarfa gegnumakstur með til- heyrandi slysahættu. Samkvæmt umferðai’spám er gert ráð fyrir að umferð verði 12.000 bílar á dag árið 2008 og 16.000 bílar á dag árið 2027. Fram kemur í skýrsl- unni að verði ekki af lagningu Hallsvgar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi muni umferð um hluta Gagnvegar aukast um 2.000 til 3.000 bíla á sólarhring frá árinu 1999 til ársins 2008 en minnka um 1.000 bíla á sól- arhring á sama tíma verði veg- urinn lagður. Samkvæmt um- ferðarspám er ekki talin þörf á breikkun Hallsvegar í fjórar akreinar fyrr en í fyrsta lagi eftir árið 2025. Samkvæmt frumma- tsskýrslu er leyfilegur hámai-- kshraði á Hallsvegi 50 km/klst en forsendur útreikninga mið- ast við að hann geti orðið 60 km/klst. Gerð verða þrenn gatnamót í tengslum við fram- kvæmdina, þ.e. Ijósastýrð gatnamót við Víkurveg, T- gatnamót við aðkomu inn í Gufuneskirkjugarð um Þver- veg og hringtorg á mótum Hallsvegar og Fjallkonuvegar, en þar verða líklega ljósastýrð gatnamót ef og þegar vegur- inn verður breikkaður í 4 ak- reinar. Þvei-vegur milli Halls- vegar og Gagnvegar verður aflagður og fyrirhugað er að færa undirgöng austur fyrir gatnamót Fjallkonuvegar og Hallsvegar með tilheyrandi breytingum á göngustígakerfi. Hljóðmengun Samkvæmt frummats- skýrslu eru jákvæð áhrif fram- kvæmdarinnar bættar sam- göngur fyrir akandi og gangandi vegfarendur, sér- staklega hvað varðar minni umferð um íbúðarhverfi. Helstu neikvæðu áhrif framkvæmdarinnar er hljóð- mengun. Hávaði mun aukast í næsta nágrenni vegarins en verðm- haldið innan marka mengunarvarnareglugerðar og er fyrirhugað að gera hljóð- mön úr jarðvegi framan við Garðhús 1-15 vegna þessa. Samkvæmt frummats- skýrslu mun umferð um Halls- veg milli Strandvegar og Fjall- konuvegar aukast óverulega með tilkomu Hallsvegar frá Fjallkonuvegi að Víkurvegi og ekki valda merkjanlega aukn- um umferðarhávaða. Mengun vegna útblásturs bifreiða verður innan marka mengun- arvarnareglugerðar. Á fram- kvæmdatíma verður umferð malarflutningabíla um Gagn- veg takmörkuð eins og kostur er. Almenningi gefast 5 vikur til að kynna sér framkvæmd- ina og gera athugasemdir. Morgunblaðið/RAX Óvissa rflrir um starfsemi Byrgisins í kjölfar þess að rýma þurfti meðferðarheimili þess Hafnarfjörður BYRGIÐ, kristilegt líknarfé- lag, á í viðræðum við Eimskip um hugsanleg kaup eða áfram- haldandi leigu á húsnæði þess við Vesturgötu 18 - 24 í Hafn- arfirði, en húsið var rýmt fyrir rúmri viku síðan vegna ófull- nægjandi brunavama. Guð- mundur Jónsson, forstöðu- maður Byrgisins, sagði í samtali við Morgunblaðið að þessar aðgerðir bæjaryfir- valda, að láta rýma húsið, hefðu haft mjög slæmar afleið- ingar fyrir starfsemi Byrgis- ins. Af 21 vistmanni hefðu 5 lent á götunni og leiðst aftur út í neyslu fíkniefna á ný. „Rekstur Byrgisins er kom- inn niður í 30 til 40% og biðlist- inn stækkar bara,“ sagði Guð- mundur. .Auðvitað er þetta mjög slæmt ástand.“ Að sögn Guðmundar gat hann ekki látið húsið við Vest- urgötu standa autt, þar sem í því voru eigur fólks. Hann sagði að vegna umfjöllunar um málið í fjölmiðlum hefðu óp- rúttnir menn haft vitneskju um það að enginn væri í húsinu og því átt auðvelt með að brjót- ast inn í það og stela verðmæt- um ef þeir hefðu haft áhuga á því. Vegna þessa sagðist Guð- mundur hafa tekið ákvörðun um það að fara með nokkra vistmenn aftur í húsið. Enn eru 9 vistmenn í húsinu „Síðar um kvöldið, sama dag og við rýmdum húsið, tók ég ákvörðun um það að fara með 9 vistmenn þama inn aftur. Lögreglan var ekki búin að innsigla húsið og ég lét hana vita af ráðagerðum mínum, enda hefur samstarf Byrgisins við lögreglu alltaf verið mjög gott og ég ætlaði ekki að eyði- Rætt við Eimskip um kaup eða leigu Morgunblaðið/Jim Smart Guðmundur Jónsson, forstöðumaður Byrgisins, segir að enn séu 9 vistmenn á meðferðarheimilinu á Vesturgötu í Hafnarfirði. leggja það,“ sagði Guðmundur. „Fólkið fór inn í skjóli þess að það væri að taka saman eigur okkar, einhvem tíma þurftum við hvort sem er að sækja þær. Þar sem við höfum fengið upp- lýsingar um að kannski verði ekki frekar aðhafst neitt í mál- inu þá er fólkið enn í húsinu.“ Guðmundur sagði að nokk- ur óvissa ríkti um framtíð Byrgisins í Hafnarfirði en þó væm nokkrar blikur á lofti í þeim málum. „Við höfum verið að ræða við lögmann Eimskips varð- andi áframhaldandi vem í hús- inu, en þeir eiga húsið. Um- ræðumar standa yfír núna og hafa þær verið mjög jákvæð- ar.“ Að sögn Guðmundar mun verkfræðistofa taka húsið út á næstu dögum og eftir það verður ljóst hvað þarf að bæta. Hann sagði, að á sínum tíma hefði hann beðið slökkvilið- sstjóra og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðarbæjar um upp- lýsingar um það hvað þyrfti að gera til að bæta ástand hússins og þó að þeim hefði verið skylt að koma með ábendingar um úrbætur hefðu þeir ekki gert það og því hefði nú verið leitað til verkfræðistofunnar. „Það em miklar líkur á því að við verðum áfram í húsinu, annars væmm við ekki að láta kanna hvað þyrfti að bæta þar. Ég reikna með því að við þurf- um að leggja svona 1,5 til 2 milljónir í endurbætur á hús- inu, en annars er að mínu viti ekki mikið að þessu húsi, enda höfum við nú þegar lagt rúm- lega 3 milljónir í viðgerðir og uppbyggingu hér innanhúss. Áður en við leggjum út í frek- ari framkvæmdir þurfum við þó að fá vitneskju um það frá bæjaryfirvöldum hvort húsið eigi að standa eða hvort það sé ráðgert að rífa það.“ Guðmundur sagðist lengi hafa haft það á tilfinningunni að bæjaryfírvöld vildu ekki hafa starfsemi Byrgisins í bænum. Guðmundur sagði að því miður væra þær hremmingar sem Byrgið væri að ganga í gegnum þessa dagana í Hafn- arfírði ekki þær einu. „Það stóð til að opna með- ferðarstöð í Rockville (fyrram ratsjárstöð varnarliðsins á Sandgerðisheiði) í september í fyrra en það hefur dregist og nú er stefnt að því að opna hana í byrjun júní. Þá getum við væntanlega opnað fyrir 60 manns, en ætlunin er að stað- urinn geti hýst um 150 manns síðar á árinu. Þarna verða íbúðarhús, mötuneyti, póst- hús, skrifstofur og fyrirlestra- salur. Fyrir rúmu ári gerðum við tveggja ára samning við ut- anríkisráðuneytið um afnot af staðnum og núna eigum við rétt um 10 mánuði eftir af þeim samningi og emm ekki einu sinni búnir að hefja starf- semi, þannig að við verðum að vona að gerður verði áfram- haldandi samningur við okkur. Staðurinn var gjörsamlega í rúst Til þess að fjármagna fram- kvæmdir á staðnum tókum við m.a. að okkur smá verkefni fyrir Islenska aðalverktaka. Við tókum að okkur að fjar- lægja raflínustaura, sem liggja frá Rockville og niður að Keflavíkurflugvelli og verður það gert í sumar. Þá peninga sem við fengum fyrir það höf- um við notað í uppbyggingu í Rockville, en við höfum alls lagt um 30 milljónir í þetta verkefni og höfum við ekki fengið neina styrki til þessa verks. Þessi staður var gjörsam- lega í rúst þegar við fengum hann til afnota. Hann var miklu verr á sig kominn heldur en talið var. Það er ekki til það rör þama upp frá sem var ekki frostsprangið. Af þessum sök- um hefur það tekið mun lengri tíma en við ætluðum að koma staðnum í stand.“ Guðmundur sagði að þó starfsemi væri að fara að hefj- ast í Rockville þyrfti Byrgið alltaf að vera með annað heim- ili á höfuðborgarsvæðinu og heimilið á Vesturgötunni væri hugsað sem slíkt. „í Rockville verður lang- tímameðferð og þar kemui' fólk til með að dvelja 6 til 12 mánuði. Þar mun það vinna gegn fíkn sinni og stunda ein- hverja vinnu á staðnum. Eftir dvölina í Rockville verður því boðið að dvelja á meðferðar- heimilinu á höfuðborgarsvæð- inu til þess að aðlagast betur, enda verður þetta mjög vemd- að umhverfi í Rockville og óf- ært að senda fólk Jraðan beint út í lífsbaráttuna. Á heimilinu á höfuðborgarsvæðinu mun fólk fá aðstoð við að leita sér að vinnuogíbúð.“ Ekki fengið neina styrki frá ríkinu Að sögn Guðmundar hefur sá hópur sem sækir í meðferð hjá Byrginu breyst mikið. „Fyrst vai- þetta fyrst og fremst götufólk og eiturlyfjan- eytendur en núna er þetta all- skonar fólk. Fólk hringir í okk- ur úr heimahúsum allsstaðar af landinu og biður um að fá að koma í meðferð. Ég segi það hiklaust að í sambandi við með- ferð eiturlyfjaneytenda þá stöndum við feti framar en Vogur.“ Guðmundur sagði að síðan Byrgið hefði hafið starfsemi í lok árs 1996 hefði það ekki fengið neina styrki frá ríkinu, þrátt fyrir það að það starf sem það hefði unnið hefði vafalaust sparað n'kinu stórpening. „Stjómvöld töluðu um að veita ætti einum milljarði í bar- áttuna gegn fíkniefnum. Við höfum ekki fengið krónu af honum, en teljum að við séum búnir spara þjóðinni þennan milljarð, þann tíma sem Byrgið hefúr verið með starfsemi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.