Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ Glenda Jackson er þinfflnaður Verkamannaflokksins í Bretlandi, var um hríð aðstoðarráðherra og um áratuga- skeið heimsþekkt leikkona áður en hún fór út í stjórnmálin. Hún segist hafa gefíð kost á sér til þingmennsku til að leggja fram sinn skerf í baráttunni gegn Margaret Thatcher. Jackson var meðal þeirra sem vildu verða borgar- stjóraefni flokksins í London en hlaut ekki stuðning flokksforystunnar. Kristján Jónsson ræddi við Jackson. Morgunblaðið/Kristinn Glenda Jackson, þingmaður Verkamannaflokksins í Bretlandi og fyrrverandi aðstoðarráðherra. Hún segist ekki vera komin til að gefa Samfylkingunni ráð heldur fagna því að líf sé f jafnaðarstefnunni um allan heim. „Sagt að þarna ætti ég að hengja sverðið“ EGAR fyrstu skoðana- kannanir voru gerðar í fyrra í Bretlandi meðal kjósenda Verkamanna- flokksins vegna væntanlegra borg- arstjórakosninga í London varð Ken Livingstone efstur en Glenda Jackson næst. Hún fékk 16% en varð samt ekki frambjóðandi flokksins, Frank Dobson hlaut náð fyrir augum flokksforystunnar. Livingstone fór á hinn bóginn fram sem óháður og kannanir síð- ustu daga hafa bent til þess að hann vinni. Takist honum það er niðurstaðan áfall fyrir Tony Blair forsætisráðherra er beitti sér af alefli gegn Livingstone sem er einn af þekktustu liðsmönnum vinstriarms flokksins og lítt hrif- inn af markaðshyggju Blairs. Jackson er nú stödd hér á landi í boði Samfylkingarinnar og mun ávarpa fund hennar í dag. Hún var á sínum tíma heimsþekkt leikkona og er spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að yfirgefa leiklistina og gerast stjórnmálamaður. „Ég hef verið áhugasöm um stjórnmál í meira en fjóra áratugi, alveg frá því að ég var 21 árs en þá fékk ég kosningarétt. Ég hef í þeim skilningi verið lengi virk í stjórnmálum og ávallt stutt Verka- mannaflokkinn. En árið 1989 fóru flokksmenn í kjördæminu Hamp- stead and Highgate í London fram á það við mig að ég gæfi kost á mér við næstu þingkosningar. Ég sagði já vegna þess að ég var reiðubúin að gera allt sem ég gæti gert til að koma Thatcher og stjóm hennar frá völdum. Ég varð kjörinn frambjóðandi flokksins 1990. Næstu tvö árin gat ég notað til að kynna mig meðal kjósenda í kjördæminu. Eg hafði átt heima þar fyrr á árum og ég vann þingsætið 1992 en það hafði þá ekki verið í höndum flokksins í meira en 25 ár. Okkur tókst því miður ekki að ná meirihluta á þingi en það hafðist 1997.“ Agaleysi á þingi Hver er helsti munurinn á starfi og hegðun leikara og stjórnmála- manns? Þú hefur gefíð í skyn að of mikið sé um agaleysi í störfum margra stjórnmálamanna. „Ekki endilega meðal stjórn- málamanna almennt heldur í neðri deild þingsins. Starfsemin og hefð- irnar urðu til í landi sem var allt öðruvísi, allar aðstæður á 18. og 19. öld vom svo ólíkar og þá sátu t.d. engar konur á þingi og nú er margt ungra þingmanna sem á smábörn. Deilan um brjóstagjöf þingkvenna á nefndafundum er eitt dæmið um íhaldssemina, fár- ánlegt. mál en þingforsetinn hefur verið beðinn að endurskoða bann- ið. Aðstæður eru ekki miðaðar við þarfir kvenna þótt margt hafí breyst til batnaðar í þeim efnum frá því að ég fór á þing. Margt miðast við gamla tíma og þing karla þótt nú séu konurnar yfir hundrað. Allir þingmenn hafa sinn eigin, merkta fatasnaga. Hann er láréttur og úr plasti. A öðmm endanum er límbandsmerki og ég spurði til hvers það væri og var sagt að þarna ætti ég að hengja sverðið! Petta sýnir hvað allar breytingar á starfsreglum þingsins ganga hægt fyrir sig. Mér finnst margir af siðunum og reglunum ákaflega hvimleiðar og sunit af því sem fólk leyfir sér myndi alls ekki viðgangast í leik- listarheiminum. Það er ekki rétt sem margir halda að allir leikarar séu sjálfhverfir, leiklistin krefst mikillar vinnu af fólki. Imyndin sem margir tengja við leikarastétt- ina er í reynd upprunnin á því stóra og fjölbreytta sviði sem nefnt er skemmtanabransinn. Fólkið á því sviði er oft popp- stjörnur." Þú varðst aðstoðarsamgöngu- málaráðherra þegar stjórn Tonys Blairs tók við 1997 en hættir í fyrra þegar þú ákvaðst að gefa kost á þér sem frambjóðandi Verkamannaflokksins við borgar- stjórakosningarnar. Ertu sátt við árangurinn íráðherrasætinu? „Ég er ekki viss um að ég hafi gert mér miklar væntingar, að- stoðarráðherra er á lægsta valda- þrepi ríkisstjórnarinnar. John Prescott er samgönguráðherra og það er hann sem mótar stefnuna og fylgir málum eftir. En þetta var afskaplega gaman og mikil vinna.“ Hvað telur þú að þeir eigi við sem segja að þú hafí látið lítt að þér kveða í ráðherraembættinu? „Sumir segja að _ ég hafi ekki bi'osað nógu mikið! Ég veit ekki af hverju fólk segir þetta. En ég held að þegar ég upphaflega fór á þing hafi menn búist við að ég væri annaðhvort bjáni eða einhvers konar prímadonna en ég er hvor- ugt. Fyrir suma hafa þetta verið talsverð vonbrigði." Jackson hefur ávallt haft á sér orð fyrir að vera í vinstri armi flokksins en hefur stutt Blair dyggilega. Hann vill kenna flokk- inn við nýja tíma og nýja hugsun. Hún er spurð hvað sé nýtt, hvort Verkamannaflokkurinn hafi gert annað en að taka markaðshyggj- una upp á arma sína, sætt sig að fullu við hana og fleygt vinstri- áherslum manna eins Michaels Foots, flokksleiðtoga upp úr 1980. „Hvað er markaðshyggja?" spyr Jackson. „Við lifum á allt öðrum tímum og í allt öðruvísi heimi en fyrir tuttugu árum þegar Foot var við völd í flokknum. Það hafa orðið miklar breyting- ar á kjósendahópnum í Bretlandi. Verksmiðjuiðnaður er ekki lengur grundvöllur atvinnulífsins eins og hann var, heilar atvinnugreinar eru horfnar. Ég nefni kolanámurn- ar, skipaútgerð, við erum nú í Evrópusambandinu. En ég álít að við séum að hverfa frá þeirri trú að nóg sé að vitna í pólitíska hug- myndafræði til að koma á breyt- ingum í landinu. Það sem hefur ekki breyst hvað varðar flokkinn eru grundvallaratriði sem alltaf hafa mótað stefnu sósíalista og jafnaðarmanna. Þar á ég við jafn- rétti, félagslegt réttlæti, áhersla á alþjóðahyggju, þetta breytist ekki. Þú spyrð um gömlu stefnumálin eins og þjóðnýtingu en hvað ætt- um við að þjóðnýta? Stáliðnaður- inn er horfinn, engar kolanámur. Þegar íhaldsmenn réðu létu þeir fólk sigla sinn sjó þegar atvinnu- grein var búin að leggja upp laup- ana. Stefna okkar og öll afstaða er hins vegar að bjóða fólki endur- þjálfun og endurmenntun til að tryggt sé að fólk kunni það sem til þarf til að geta í reynd tekist á við breytingarnar sem eru að verða, tekist á við ný verkefni. Við leggjum áherslu á mannfólk- ið sjálft en íhaldsmenn á að vernda eignir.“ Þú og fleiri vinstrisinnar gagn- rýndu Margaret Thatcher hart í vaidatíð hennar. Var þessi gagn- rýni ávallt réttmæt? Hvað hefur Verkamannaflokkurinn fært til fyrri vegar ef við rifjum upp þau stefnumál hennar sem mestur styrinn stóð um? „Minni kynslóð var kennt að græðgi væri vond en Thatcher reyndi að sannfæra þjóðina um að græðgi væri kostur. Að sjálfselska væri ekki sjálfselska, tillitsleysi gagnvart öðru fólki væri það ekki. I þessum efnum held ég að stjórn- arár hennar hafi valdið miklum breytingum, fólk var sett út á kaldan klaka, fleygt á sorphaug- ana. Ekkert var gert til að hjálpa því á nokkurn hátt. Þannig getur maður ekki hagað sér, mesta auð- lind okkar er fólkið, sköpunargáfa þess og aðrir hæfileikar. Við höf- um ekki efni á að láta það fara for- görðum." Velferðark erfið breska er byggt á gömlum grunni. Ertu aldrei smeyk um að það geti orðið grund- völlur menningar þar sem fólk venst á að vera háð aðstoð? „Þetta var ein af röksemdum Thatchers en þetta er bull. En ég ætla ekki að fara að lýsa hér öllum flækjunum í velferðarkerfinu okk- ar, þær eru martröð og engum dettur í hug að halda öðru fram. En við verðum að vera með kerfi þar sem fólk fellur ekki útbyrðis, kerfi sem tryggir að fólk geti lifað við kjör sem hægt er að kalla inn- an velsæmismarka. Velferðarkerfið okkar stendur sig illa, það er allt of flókið og það þandist út eins og gorkúla undir stjórn íhaldsflokksins af ýmsum ástæðum. Margir festust í fátækt- argildru. Menn gátu ekki unnið og aukið þannig tekjur sínar en hald- ið greiðslum sem þeir fengu úr velferðarkerfinu. Sem dæmi nefni ég að ef fólk var undir ákveðnum tekjumörkum gat það fengið styrki til að greiða af húsnæðislánum en ef það fékk svo vinnu missti það húsið af því að launatekjurnar voru ekki nógu háar, þær dugðu ekki fyrír nauðþurftum og afborg- unum af láninu. En tekjurnar voru samt hærri en greiðslurnar frá kerfinu.“ Einkavæðing og jarðlestir Jackson hefur stutt þá stefnu Blairs að einkavæða hluta af jarð- lestakerfinu í London en leggur áherslu á að eftir sem áður verði það í opinberri eigu. Um verði að Frægðarferill leikkonu GLENDA Jackson fæddist í Birk- enhead í Norðvestur-Englandi ár- ið 1936 og er af fátækum komin en braust til mikils frama. Hún varð leikkona og þótti standa sig vel á sviðinu en það er kvik- myndaleikurinn sem gerði hana heimsfræga. Um hríð var hún meðal hæstlaunuðu leikara f heimi. Jackson er í hópi fáeinna tuga kvikmyndaleikara sem hafa hlot- ið tvenn Óskarsverðlaun, fyrst 1970 fyrir hlutverk í myndinni Women in Love og síðan 1973 fyr- ir leik sinn í gamaninyndinni A Touch of Class. Hún lók í fjöl- mörgum myndum en einnig sjón- varpsþáttum og muna þeir sem ekki eru lengur bráðungir eftir frábærri frammistöðu hennar í þáttum um Elísabetu fyrstu Eng- landsdrottningu, Meydrottning- una svonefndu. Jackson þótti takast sérstak- lega vel upp við að túlka sjálf- stæðar og oft kynþokkafullar konur. I ævisögum sem ritaðar hafa verið um hana er m.a. sagt, að hún hafi ráðið jafn vel við að sýna „eld og ís“, ólguna í skap- gerð kvenna, hún verði seint sök- uð um að vera sviplaus listamað- ur. Sjálf hefur hún ekki alltaf farið allt of virðulegum orðum um Hollywood og Óskarsverðlaunin. „Móðir mín fægir Óskarsstytturn- ar þar til málmurinn á bak við gyllinguna sést, verðlaun aka- demfunnar eru ekkert nema glys að utanverðu en þar fyrir innan ekkert nema ódýr málmur. Þokkaleg tækifærisgjöf en gerir mann ekkert betri.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.