Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 41
 ræða samvinnu einkafyrirtækja og opinberra aðila, hinir fyrrnefndu muni nútímavæða merkjakerfið, teinana, vagnana og stöðvarnar og ef til vill gera það víðtækara. „Sumar lestirnar þyrftu að ganga allan sólarhringinn vegna þess að eins og flestar milljóna- borgir er London nú iðandi af lífi allan sólarhringinn," segir Jack- son. Hún segir að reynslan af einkavæðingu sjálfra járnbraut- anna sé svo slæm að það væri út í hött að endurtaka þann leik. Hins vegar sé sú hugmynd að þjóðnýta aftur járnbrautarkerfið ófram- kvæmanleg vegna þess að ekki væri hægt að kaupa það af núver- andi eigendum á verðinu sem þeir myndu setja upp. Hún segir flesta flokka verða að velta fyrir sér hvernig stefna þeirra muni duga í heimi sem verði sífellt minni. Möguleikarnir sem þessi breyting á aðstæðum, alþjóðavæðingin, séu ótrúlegir, til góðs og ills. „Ef ég má víkja aftur að grund- vallaratriðunum, jöfnuði og rétt- læti. Hvernig viljum við koma í veg fyrir að tilviljanakenndar að- stæður hvers og eins við fæðingu ráði örlögunum, hvernig eigum við að setja reglur sem treysta hags- muni hvers og eins, hvernig á að tryggja að neytendur séu ekki hlunnfarnir? Hægriflokkar hafa sumir hverjir einfeldningslegt svar; þeir segja að markaðurinn eigi að ráða. En markaðirnir ráða bara ekki þessum hlutum.“ Á heimasíðu þinni Icggurðu áherslu á að borgarstjóraefni verði að hafa til að bera ákveðinn „þunga“, „gravitas". Ertu þá að hnýta í Livingstone og gefa í skyn að hann sé ekki þungavigtarmaður í stjórnmálum ? „Nei alls ekki, maður bendir ekki á eigin kosti með því að hnýta í keppinautana. Það virkar ekki. A heimasíðuna setti ég fram þau sjónarmið sem ég taldi að sýndu stefnu mína og muninn á henni og annarra væntanlegra frambjóð- enda Verkamannaflokksins. En það er ljóst að stjórnandi jafn stórrar og flókinnar borgar og London er verður að hafa pólitísk- an þunga. Sá sem nær kjöri verður með fleiri atkvæði á bak við sig en nokkur annar stjórnmálaleiðtogi í Evrópu sem kjörinn er beinni kosningu. Hann mun því hafa mik- il áhrif. Stefna Livingstones er mjög skýr, á þingi áttum við oft samleið en þú verður að spyrja Living- stone um ástæðurnar fyrir miklu fylgi hans. Að nokkru leyti stafar þessi mikli stuðningur af því hvernig Verkamannaflokkurinn klúðraði framboðsmálunum, mjög margir eru á því og hafa lengi ver- ið að borgarstjóri London eigi að vera sjálfstæður og jafnvel utan flokka. Öllu skiptir að næsti borgar- stjóri geti starfað með fólki, efni ekki til árekstra, hann þarf ekki aðeins að vinna með ríkisstjórninni heldur einnig stjórnum hverfanna sem eru yfir 30, einnig einkafyrir- tækjum og frjálsum félagasamtök- um.“ Ekki komin til að veita ráð En hvernig stóð á því að Jack- son er hér íslandi þegar kosið er í London, er hún að senda einhver skilaboð með því að vera fjarri víg- stöðvunum? Er hún að lýsa óánægju með störf ráðamanna Verkamannaflokksins? „Mér fannst óhugsandi að Verkamannaflokkurinn veldi fram- bjóðanda án þess að kona gæfi kost á sér, þess vegna gerði ég það. Og hafði mjög gaman af bar- áttunni. Það var margtekið fram að við valið yrði einfaldlega notast við þá aðferð að hver fulltrúi hefði eitt atkvæði en það var svikið. Ég naut þess að berjast, er ekkert reið eða sár en þeir klúðruðu framboðsmálunum og nú er aðeins hægt að vona að það gerist ekki aftur. Ég er hér eingöngu vegna þess að ég vildi þiggja boðið, hef ekki komið til landsins fyrr. Mér fannst það heiður að vera boðið hingað og vera viðstödd fæðingu nýs jafnað- armannaflokks, sjá hvernig þrír, ólíkir flokkar hafa náð saman. Það er spennandi." Hún er spurð hvort hún muni gefa Samfylkingunni ráð í ávarpi sínu í dag en segist ekki vera kom- in hingað til þess. Það væri ósvífni af sér að gefa ráð. „En ég er kom- in hingað til að fagna því að líf er í jafnaðarstefnunni um allan heim og við erum að sjá eitt af merkjum þess hér á íslandi." FRÉTTIR Ráðið í þrjár stöður fíðlu- leikara GENGIÐ verður frá ráðningu þriggja fiðluleikara við Sinfón- íuhljómsveit Islands á næstunni. Ráðið er í stöðurnar til eins árs, en fjórir mættu til prufuspils eftir að stöðurnar voru auglýstar lausar til umsóknar, þrír frá Islandi og einn frá Armeníu. Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að stöðurnar væru auglýstar bæði hér á landi og erlendis. Miklu skipti að fá hæfileikafólk frá útlöndum ef þess væri kostur. Mikill kostnaður væri því hins vegar samfara að koma í prufu hingað til lands, bæði við flug- far og gistingu, sem umsækjendur yrðu að bera sjálfir og því kæmi iðu- lega ekki nema hluti umsækjenda í prufurnar, auk þess sem mun betri launakjör væru í boði erlendis en hér á landi. Þannig hefðu á síðasta ári komið 22 umsóknir vegna flautu- leiks, en einungis sex umsækjendur síðan komið í prufur. Þröstur sagði aðspurður að um 80 stöður hljóðfæraleikara væru við Sinfómuhljómsveitina og væru fimm hljóðfæraleikarar með erlent ríkis- fang. ---------------- Orkumála- ráðherra Ira í heimsókn JOE Jacobs, orkumálaráðherra ír- lands, kemur til landsins í dag, föstu- daginn 5. maí, til fundar við Siv Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra. Auk orkumála fer Joe Jacobs einnig með málefni geislavarna og þar með kjarnorkuendurvinnslu- stöðvarinnar í Sellafield. Fundurinn fer fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og munu ráðherrarnir ræða sameiginleg hagsmunamál er varða geislamengun frá Sellafield- endurvinnslustöðinni. B R 0 N Z E Í M A G I C SPRAY FYRIR LlKAMANN Nú eru hinar vinsælu Biotherm snyrtivörur sem margir þekkja frá Evrópu fáanlegar á íslandi. Biotherm býður upp á alhliða vörur fyrir andlit og líkama, auk sérvara fyrir herra. Viltu vera brún allan ársins hring? Bronze Magic frá Biotherm gefur húðinni fallegan gullinbrúnan lit á einni klukkustund eins og þú hafir flogið á sólarströnd. Vertu velkomin á næsta útsölustað Biotherm og fáðu sýnishorn af þessum frábæru snyrtivörum. Útsölustaðir: Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi, Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu Amaró Akureyri, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ. 'ÉðsttiÓAGuk 's’. 'ivíXí %’ób 1*1 FLUGLEIÐA HAGNYTT NAM í FERÐAÞJÓNUSTU SEM VEITIR ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNINGU Ferðaskóli Flugleiða býður upp á nám í ferðaþjónustu. Skólinn er sá fyrsti á Islandi sem fékk formlegt leyfi frá IATA (Alþjóðasambandi flugfélaga) til að kenna samkvæmt IATA-UFTAA staðli með gögnum ffá IATA. Námið veitir því alþjóðlega viðurkenningu. Námskeiðið er 560 kennslu- stundir og hefst í október 2000. Kennt verður ffá kl. 13.00 -17.00 alla virka daga. Samtals tekur það u.þ.b. 20 vikur og verður skipt í tvær 10 vikna annir. Kröfur eru gerðar um stúdentspróf eða sambærilega menntun og góða enskukunnáttu því námsefnið er á ensku, en kennt verður á íslensku. ■ Helstu námsgreinar: • Fargjaldaútreikningur • Farseðlaútgáfa • Bókunarkerfið AMADEUS • Ferðalandafræði erlend og innlend • Ferðaþjónusta á Islandi • Sölutækni og markaðsmál ■ Leiðbeinendur hafa mikla reynslu í ferðamálum og kennslu, því þeir sjá um þjálfún starfsmanna Flugleiða og ferðaskrifstofa. ■ Að loknu námi verður farið til einhvers áfangastaðar Flugleiða erlendis. ■ Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fast hjá starfsþróunar- deild Flugleiða, aðalskrifstofu Reykjavíkurflugvelh og í símum 50 50 173 og 50 50 193 milli kl. 13 - 15.Umsóknarfrestur er til 15. maí n.k. ICELANDAIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.