Morgunblaðið - 05.05.2000, Blaðsíða 57
GIGAJamOHOM
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
QOOSIAM 3 aiJOAGUTRÖ'í JdJ.
FOSTUDAGUR 5. MAI 2000 57
KIRKJUSTARF
+ Guðrún Péturs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 28. októ-
ber 1928. Hún lést á
líknardeild Land-
spítalans 22. apríl
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Dómkirkjunni 28.
apríl.
Að loknu stúdents-
prófi frá MR 1948 tók-
um við átta bekkjar-
systur þá ákvörðun að
stofna saumaklúbb,
svo góð tengsl milli
okkar gætu haldist áfram. Ein úr
þessum hópi var Guðrún Péturs-
dóttir, sem ávallt var kölluð Lillý og
nú hefur verið kvödd hinstu kveðju.
Margar góðar minningar koma upp
í hugann frá þessum árum, þegar
við komum saman ýmist á heimilum
okkar eða við hin ýmsu tækifæri.
Svo fór að þetta samband okkar
rofnaði um árabil, þar sem sumar
leituðu út fyrir landsteinana til frek-
ara náms, ýmist með mökum sínum
eða einar. En áður en leiðir skildi
héldum við allar til ljósmyndara, og
stóð Lillý fyrir þeirri ákvörðun, en
hún átti föðurbróður sem bar þann
virðulega titil að vera konunglegur
hirðljósmyndari, og þótti okkur auð-
vitað mikið til þess koma. Ég hefi
varðveitt vel þessa hálfrar aldar
gömlu stækkuðu ljósmynd og í mín-
um huga er hún í dag mikið ger-
semi. Þarna erum við allar ungar að
árum, brosmildar og sjálfsagt með
þá ósk í huga að lífið framundan
verði okkur gjöfult og gott.
Nú hefur sú fyrsta úr hópnum á
myndinni kvatt þessa
jarðvist og er hennar
sárt saknað og jafn-
framt minnst með virð-
ingu og þakklæti fyrir
góð kynni liðinna ára.
Lillý var sérstæður
persónuleiki, grandvör
til orðs og æðis,
gjörvuleg í fasi og
ávallt svo glæsileg til
fara að eftir var tekið.
Að eðlisfari var hún
dul og bar því ekki til-
finningar sínar á torg.
Sem dæmi um það var
það ósk hennar að
hljótt væri um þau veikindi sem
steðjuðu að henni og voru henni svo
þungbær að lokum. Aðeins hennar
nánustu var kunnugt um líðan henn-
ar.
Á yngri árum starfaði Lillý lengi
hjá ríkisféhirði, frænku sinni, fyrst í
sumarfríum á menntaskólaárunum
og síðar sem gjaldkeri ríkisféhirðis
og öðru hvoru staðgengill hans.
Hún giftist valinkunnum manni,
Guðmundi Rafni Guðmundssyni,
málarameistara, og eignuðust þau
þrjú mannvænleg börn, eina dóttur
og tvo syni.
Síðar á ævinni lagði hún stund á
tækniteiknun og starfaði hjá gatna-
málastjóra Reykjavíkurborgar um
nokkurra ára skeið en síðasta starf
hennar utan heimilisins var hjá lyfj-
anefnd og lyfjaeftirliti ríkisins.
Fyrir nokkrum árum tók gamli
saumaklúbburinn upp þráðinn á
nýjan leik og hittumst við stöllurnar
nú öðru hvoru. En þegar einn hlekk-
ur í keðjunni brestur snögglega ger-
ir söknuður óneitanlega vart við sig
og skilningur eykst á því, hversu
mikils virði samverustundirnar með
æskufélögum eru og hve nauðsyn-
legt sé að styrkja þau bönd sem
tengst hafa á unglingsárunum.
Með það í huga og í minningu
kærrar skólasystur vonast ég til að
við hinar ræktum vináttuna áfram á
komandi árum.
Ég sendi f.h. klúbbsins okkar eig-
inmanni, fjölskyldunni og öðrum
nánum ættingjum innilegar samúð-
arkveðjur vegna fráfalls Guðrúnar
Pétursdóttur. Blessuð sé minning
hennar.
Guðrún Kristinsdóttir.
Skilafrest-
ur minn-
ingar-
greina
EIGI minningargrein að birt-
ast á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á fostudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-, föstu-
dags- og laugardagsblað þarf
greinin að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir
að skilafrestur er útrunninn
eða eftir að útför hefur farið
fram, er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina,
enda þótt þær berist innan hins
tiltekna skilafrests.
GUÐRUN
PÉTURSDÓTTIR
Safnadarstarf
Langholtskirkja. Kyirðar- og
bænastund í kirkjunni kl. 12. Orgel-
leikur, sálmasöngui’. Fyrirbænarefn-
um má koma til sóknarpresta og
djákna. Kærleiksmáltíð, súpa, salat
og brauð eftir helgistundina.
Laugameskirkja. Morgunbænir kl.
6.45-7.05 Mömmumorgunn kl. 10.
KafSspjall íyrir mæður, góð upplifun
fyrirböm.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Ffladelfía. Unglingasamkoma kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20 gospel-
samkoma. Gospelkórinn frá Jelöy-
lýðháskólanum syngur undir stjóm
Tone Ödegaard. Aðgangur ókeypis,
allir hjartanlega velkomnir.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9.
Samkomur alla laugardaga kl. 11. All-
ir hjartanlega velkomnir. Á morgun
er Steinþór Þórðarson með prédikun
og Ragnheiður Ólafsdóttir Laufdal
með biblíufræðslu. Bama- og ungl-
ingadeildir á laugardögum. Súpa og
brauð eftir samkomuna.
Landakirkja Vestinannaeyjum.
Kl. 12.30 Litlir lærisveinar, eldri
deild. KI. 13.15 Litlir lærisveinar,
yngri deild.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli kl.
14.
Víkurprestakall í Mýrdal.
skólinn í Mýrdal er með samverur á
laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík-
urskóla.
Frelsið, kristileg miðstöð. Bæna-
stund kl. 20 og Gen X, frábær kvöld
fyrir unga fólkið kl. 21.
Sjöundadags aðventistar á fslandi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bibl-
íufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta kl.
11.15. Umsjón Líknarfélagið Alfa.
Ræðumaður Aðalbjörg Magnúsdótt-
ir.
Safhaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kL^,
10.15. Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla eftir guðsþjónustu. Ræðu-
maður Jón Hjörleifur Jónsson.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Aðventídrltjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafh-
arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíu-
fræðsla að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
Bylting
i
Fjölnota byggingaplatan
sem allir hafa beðið eftir!
VIR0C byggingaplatan er fyrir veggi, loft og gólf.
VIR0C byggingaplatan er eldþolin, vatnsþolin,
höggþolin, frostþolin og hljóðeinangrandi.
VIR0C byggingaplatan er umhverfisvæn.
VIR0C byggingaplatan er platan sem
verkfræðingurinn getur fyrirskrifað nánast blint.
Staðalstærð: 1200x3000x12 mm.
Aðrar þykktir: 8,10,16,19, 22, 25, 32 & 37 mm.
Mesta lengd: 305 cm. Mesta breidd: 125 cm
Viroc utanhússklæðning
PP
&CO
Leltið upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 S: 5S3 8640 & 568 6100
AUGLÝSIN
Hraunborgir
Orlofshús sjómannasamtakanna í Gríms-
nesi verða leigð frá og með föstudeginum
26. maí 2000.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Verðandi,
Vestmannaeyjum.
Vélstjórafélag Vestmannaeyja.
Starfsmannafélag Reykjalundar.
Sjómannafélag Reykjavíkur.
Sjómannafélag Hafnarfjarðar.
Starfsmannafélög Hrafnistu Reykjavík og
Hafnarfirði.
Happdrætti DAS.
Sjómannafélag Akraness.
Sjómanna- og verkalýðsfélag Miðnes-
hrepps.
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.
Verkalýðs- og sjómannafélag Gerðahrepps.
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur.
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Kári,
Hafnarfirði.
Til frambjóðenda í forseta-
kosningum 24. júní 2000
Yfirkjörstjórn Austurlandskjördæmis kemur
saman til fundar í sýsluskrifstofunni á Seyðis-
firði, Bjólfsgötu 7, 710 Seyðisfirði, þriðjudag-
inn 16. maí 2000 kl. 16.00 til að gefa vottorð
um meðmælendurforsetaframboða skv. 4.
gr. laga nr. 36/1945 um framboð og kjörforseta
Islands. Skila má listunum á fundinum eða
senda þá til undirritaðs.
Seyðisfirði, 3.maí 2000.
F.h. yfirkjörstjórnar,
Austurlandskjördæmis
Lárus Bjarnason,
Bjólfsgötu 7, 710 Seyðisfirði.
Til væntanlegra
frambjóðenda
í forsetakosning-
um 24. júní 2000
Yfirkjörstjórn Suðurlandskjördæmis
kemur saman til fundar í dómsal
Héraðsdóms Suðurlands, Austurvegi 4,
2. hæð, Selfossi, fimmtudaginn 18. maí
kl. 11.00 til að gefa vottorð um meðmæ-
lendur forsetaframboða, skv. 4. gr. laga
nr. 36/1945 um framboð og kjör til for-
seta (slands.
Þess er óskað að frambjóðendur, ef unnt
er, skiii meðmælendalistum með nöfn-
um meðmælenda af Suðurlandi til und-
irritaðs, sýsluskrifstofunni í Vestmanna-
eyjum, Heiðarvegi 15, Vestmannaeyjum,
mánudaginn 15. maí svo unnt sé að
undirbúa vottorðsgjöf yfirkjörstjórnar.
Vestmannaeyjum, 3. maí 2000.
F.h. yfirkjörstjórnar
Suðurlandskjördæmis,
Karl Gauti Hjaltason.
Lokun Dyrhólaeyjar
Ákveðið hefur verið að verða við óskum
ábúenda um að loka Dyrhólaey fyrir almennri
umferð vegna nytja á æðarvarpi.
Lokunin gildir á tímabilinu 1. maí til
25. júní 2000.
Náttúruvernd ríkisins
G A
TIL SOLU
Ódýrt — ódýrt
Lagerútsala
Leikföng, gjafavörur, sportskór.
Opið frá kl. 13.00—18.00 föstudaginn 5.5. og
frá kl. 11.00 — 16.00 laugardaginn 6.5.
Skútuvogi 13 (við hliðina á Bónus).
Asgrímsmálverk
Til sölu undurfagurt stemmningsmál-
verk eftir Ásgrím Jónsson.
Upplýsingar í síma 561 8155.
SMAAUGLYSINGAR
FELAGSLIF
I.O.O.F. 1 = ISIBBS'/zsg.i*
Frá Guðspeki-
félaginu
Ipgólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
Á mánudag, 8. maí, kl. 21 er
Lótusfundur. Óskar Guðmunds-
son sýnir myndband með Sig-
valda Hjálmarssyni. Starfsemi
félagsin er öllum opin.
I.O.O.F. 12 = 181558/2 = 9.0.
V'
Smidjuvegi 5, Kópavogi
Samkoma kl. 20.00.
Læknar Guð í dag?
Erna Eyjólfsdóttir prédikar.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.vegurinn.is.