Morgunblaðið - 05.05.2000, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 33
LISTIR
Leir, gler og
málmur
MYNDLIST
Stöðlakoí,
Bókhlöðust í g
LEIRLIST - HELGA
JÓHANNESDÓTTIR
Til 7. maí. Opið daglega frá kl.
15-18 nema mánudaga.
HELGA Jóhannesdóttir sýnir á
báðum hæðum Stöðlakots ýmsar teg-
undir bakka, platta, stöpla og högg-
mynda. Flest eru verk hennar njhja-
hlutir á leið úr röðum notagildis í
áttina til skrautheima. Þegar jafn
nytjatengd list og leirlistin hefur sig
upp yfir uppruna sinn verður tvennt
að gerast.
Leirlistarmeistarinn verður að
sanna að hann geti óragur róið á önnur
mið en brúksgrunnið, en hann verður
að forðast um leið allt óhófið sem því
íylgir að hleypa heimdraganum.
Helgu tekst hvorugt. Verk hennar
eni umbreyttir nytjahlutir án þess að
notagildið sé marktækt. Þá eru borin
í þau slík kynstur af misjöfnum efni-
viði, lit og mynsturgerðum að allt
formrænt inntak fer veg allra vega
og kafnar í þrúgandi ofhlæði. Þetta
er slæmt því ef það er eitthvað sem
íslenskan listheim vanhagar ekki um
þá er skrautið. Pjatt, punt, sætleiki
og prjál liggur eins og of feit mara á
listmenningu okkar, til þess eins - að
því er best verður séð - að listamenn
geti smjaðrað sem árangursríkast
fyrir smekklausum almenningi.
En Helga er ekki ein um að ganga
með barokkgerilinn í maganum.
Varla er að finna bók eða bækling,
bunustokk eða byggingu sem ekki er
að drukkna í formleysu eins og súr-
volgar kremtertur. Þörf okkar fyrir
prjál virðist vera í réttu hlutfalli við
sykurátið. Það eru ekki bara tennur
okkar sem skemmast; torgin í bæjum
okkar og borg eru mörg hver ónýt af
óþarfa íburði, pírumpári og dinglum-
dangli sem útiýmir öllu heilbrigðu
látleysi. Stundum mætti ætla að
smekkvísi okkar hefði hlotið eldskírn
sína á spilavítunum í Las Vegas.
Svo bókmenntamenn skilji hvert
ég er að fara þá má líkja stórum hiutá
Morgunblaðið/Halldór Runólfsson
Frá sýningu Helgu Jóhannesdóttur í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg.
íslenskrar mynd-, nytja- og skipu-
lagslistar - síðustu áratugina - við of-
stuðlun og óhóf í myndlíkingum.
Væru íslenskar bókmenntir betri
hefði Sfefán Hörður Grímsson tekið
framgangsmáta Bing Crosby eða
Liberace sér til fyrirmyndar? Hvað
Helgu Jóhannesdóttur áhrærir þá er
leið hennar út úr ógöngunum næsta
borðleggjandi. Hún þai’f einungis að
gera minna og hugsa meira um það
minna sem hún gerir. Hvort slíkar
ráðleggingar hitta í mark er svo ann-
að mál. En enn og aftur; hún er ekki
ein um að þurfa að fara í listrænt fitu-
sog. Þjóðin öll þarf að endurheimta
þær látlausu og hrífandi línur sem
finna má í fegurstu sveitakirkjum
okkar frá liðnum öldum. En til þess
þarf hún að ná af sér allmörgum
aukatonnum af smekkleysu og
óþarfa bruðli.
Halldór Björn Runólfsson
Vélarstærð Hestöfl ABS Loftpúðar
1800 cc 112 já 2
Breidd
Verð frá
1.589.000 kr.
Hnakkapuoar
5
Hatalarar
4
Lengd
4,60 m
1.77 m
Peugeot 406 er aðlaðandi bifreið hvernig sem á hana er litið. Sumir heillast af
frábærum aksturseiginleikum, aðrir af fágaðri útlitshönnuninni og öryggi bílsins
er í margra augum það sem skiptir mestu máli. Peugeot 406 er stór bíll á verði
smábíls, - kjörgripur á hjólum.
y " ' ' ' '
'
Gunnar Bernhard ehf.
Vatnagörðum 24 • s. 520 1100
Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bílasala Akureyrar s. 461 2533,
Vestmannaeyjar: Bilaverkstæðið Bragginn s. 481 1535, Keflavík: Bílavík ehf. s. 421 7800.
PEUGEOT