Morgunblaðið - 05.05.2000, Side 50
50 FÖSTliDAGUR 5, MAÍ -2000
MORGUIÍBIyAÖIÐ
MINNINGAR
ARNAR
SIG URÐSSON
'mL Arnar Sigurðs-
I son, Laugar-
braut 12, Akranesi,
fæddist á Fæðingar-
heimili Reykjavíkur
6. maí 1979. Hann
lést fimmtudaginn
27. apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans eru
Sigurður Sigurðsson
skósmiður, f. 5.11.
1957, og Barbro E.
Glad sjúkraliði, f.
18.10. 1959, búsett á
.Akranesi. Systkini
Arnars eru Daníel, f.
2.4. 1981, nemi;
Sara, f. 12.9. 1984, nemi, og
Marianne, f. 28.5. 1989, nemi.
Foreldrar Sigurðar eru Sigurður
Sigurðsson skósmið-
ur, f. 17.12. 1930, d.
19.7. 1999, og Guð-
björg Kristjánsdótt-
ir sjúkraliði, f. 27.6.
1933, búsett í Hafn-
arfirði. Foreldrar
Barbro eru Daníel
Glad trúboði, f. 30.7.
1927, og Marianne
Glad bankastarfs-
maður, f. 28.4. 1932,
búsett í Reykjavík.
Arnar starfaði
síðustu árin á skó-
vinnustofu föður
síns.
Utfor Arnars fer fram frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Minn Guð ég bið þig, gættu mín,
ég gangi veginn heim til þín.
Svo varist alla villu slóð,
mér veittu sanna trúar glóð.
Elsku Arnar.
í fyi-stu þegar ég heyrði að þú
værir látinn þá vissi ég ekki hvernig
ég átti að vera. í minningu þinni
mun ég muna þig eins og kvöldið
sem við sátum bara tvö saman í her-
bgrginu þínu og töluðum saman um
allt og ekkert. Þér vil ég þakka fyrir
allt það sem þú hefur gefið mér og
kennt mér og ég mun minnast allra
stundanna sem við áttum saman. Ég
mun sakna þín eins og við öll eigum
eftir að gera. En ég veit að þér líður
vel þar sem þú ert núna og að hann
afi okkar mun taka vel á móti þér.
Við eigum öll eftir að hittast ein-
hvern tímann aftur. Og með þessum
orðum vil ég kveðja þig:
Af eilífðar ljósi bjarma ber,
I sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri ieiðir.
Og upphiminn fegri en angan sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
Þín systir
Sara.
Elsku Arnar.
Helgar raddir héðan burt þig kalla.
Herrann leggi þig að brjósti sér.
Vertu sæll, já sæll um eilífð alla.
Englar Drottins stöðugt fylgi þér.
Nú ert þú farinn frá mér, ég sem
ætlaði að sýna þér leikinn sem ég
fann til að finna eggið. Ég fann líka
cííigatal í leiknum með öllum árun-
um og myndaalbúm. Það er meira
að segja hægt að prenta þær út, en
til þess þarf lítinn prentara. Ég
sakna þín mjög mikið, mér finnst
leiðinlegt að þú ert farinn. Ég passa
bangsann þinn fyrir þig og ég skírði
hann Arnar. Núna er ég að hlusta á
uppáhaldslagið þitt. Mig langar svo
til þess að fá þig aftur en ég veit að
það er ekki hægt. Þú varst svo góð-
ur við alla og sagðir svo margt fynd-
ið og skemmtilegt. Ég gleymi þér
aldrei.
Þín systir
Marianne.
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður
og heldur ósjálfbjarga því er verr.
Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður
verðabetrienég er.
Eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður alltof fljótt.
(Vilhjálmur Vilhjálmsson.)
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró-og greiðslukortaþjónusta
1
Það verður að teljast skammt
stórra högga á milli þegar sá sem
öllu ræður tekur til sín tvo unga
menn úr litlu bæjarfélagi með að-
eins rúmra tveggja vikna millibili.
Jafnaldra, bekkjarbræður og vini.
Nú þegar við erum nýbúin að missa
Kalla hverfur Arnar sömuleiðis á
sviplegan hátt.Þvílíkt óréttlæti, því-
líkur harmur. I sama mánuði hverfa
tveir úr bekknum okkar. Hversu
mikið er hægt að leggja á fólk og
hvers vegna? En örlög okkar eru
eitthvað sem okkur er varla ætlað
að skilja og þess vegna verðum við
að trúa því að tilgangur atburðanna
sem valda okkur svo mikilli sorg sé
æðri og meiri en okkar mannlegi
skilningur nemur.
Arnar var hraustur og hress
strákur sem ólst upp í hlýjum faðmi
yndislegrar fjölskyldu. Hann hafði
heilmikinn áhuga á íþróttum og æfði
meðal annars sund með góðum
árangri. Með öði'um orðum hafði
Arnar alltaf heilmikið til brunns að
bera. Eftir grunnskólanám tók hann
sér ýmislegt fyrir hendur og stóð sig
vel þótt síðustu árin að minnsta
kosti hafi tilveran stundum reynst
honum erfið.
Daginn áður en Arnar var kallað-
ur burt úr þessum heimi hringdi
hann í mig og við áttum saman stutt
spjall. Fyrir það verð ég alltaf þakk-
látur.
Ég geri orð Biblíunnar að mínum
þegar ég segi að vegir guðs eru
órannsakanlegir. Þau orð tel ég að
geti veitt þeim sem nú standa eftir
og horfa á eftir elskulegum ástvini
sínum mikla huggun og styrk. Trúin
að á einhvem óútskýranlegan hátt
eigi ástvinmnir okkar aðra og æðri
tilveru í vændum þegar þessari
jarðvist er lokið.
Eins og ég sagði í minningarorð-
unum mínum um Kalla óttast ég
ekki dauðann lengur og á því hefur
ekki orðið nein breyting. Að sjá
Arnar og Kalla brosa aftur er eitt-
hvað sem ég mun ávallt á minni lífs-
göngu hlakka mikið til.
Arnar var vinmargur og vinur
vina sinna sem alla tíð hafa verið
velkomnir á heimili fjölskyldunnar.
Alltaf var hann hress og opinskár
við fólk bæði sem hann þekkti og
sömuleiðis þá sem hann þekkti ekki
endilega mikið.
Ég kem alltaf til með að muna fé-
lagann sem fór sínar eigin leiðir og
lét álit samferðamanna sinna sig oft
litlu skipta. Hann gerði yfirleitt það
sem hann langaði sjálfan til og að
mörgu leyti er það til eftirbreytni.
Arnar var alltaf til í að rétta
hjálparhönd þegar eitthvað bjátaði
á og það fer ekkert á milli mála að á
bak við grímuna sem hann bar oft
var góð sál sem öllum vildi vel. Hlý-
leg og skemmtileg framkoma hans
er eitthvað sem ég mun alla tíð
muna.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Elsku Siggi, Barbro, Daníel,
Sara, Maríanne, ömmur, afi, aðrir
ættingjar og vinir, ég finn engin orð
til að lýsa tilfinningum mínum, þið
eigið alla samúð mína og minnar
fjölskyldu. En trúið mér, þrátt fyrir
sorgina og söknuðinn sem nú nístir
hverja sál munu allar góðu minning-
arnar um ykkar yndislega ástvin
með tímanum ylja ykkur um hjarta-
ræturnar og hjálpa um ókomin ár.
Elsku Arnar minn, við þessu gat
enginn búist. Ég vona að ég megi
segja að samskiptin okkar hafi iðu-
lega verið góð, enda á ég aðeins ljúf-
ar minningar um þig. Eg kveð þig
með söknuði og trega en sömuleiðis
virðingu og þakklæti fyrir allt sem
þú varst mér í gegnum tíðina.
Sorgin er ólýsanleg en von mín er
sú að fólkið þitt geti fengið styrk í
trúnni á æðri mátt sem ræður gangi
veraldarinnar sem og hvað hjá öðru
þótt svo óendanlega sárt sé að missa
þig í blóma þessa lífs.
Og þrátt fyrir allt er það huggun
harmi gegn að geta trúað því að
Kalli vinur okkar hafi tekið vel á
móti þér handan við móðuna miklu.
„Þegar þú ert sorgmæddur, skoð-
aðu þá aftur huga þinn, og þú munt
sjá, að þú grætur vegna þess, sem
var gleði þín.“ (Kahlil Gibran.)
Ég veit þú skilar kveðjum, ykkur
félögum eru ætluð hlutverk sem þið
einir skiljið nú.
Takk fyrir samfylgdina, elsku
vinurinn minn, minning þín lifir.
Drottinn blessi þig og varðveiti sem
og alla ástvini þína.
Hvíl í friði hins almáttuga föður
uns við hittumst á ný.
Þinn vinur og bekkjarbróðir,
Bjarki Þór Jónsson.
Hann hafði fallegt bros og blíð
augu, en hann átti oft erfitt með
sjálfan sig. Ég kynntist Arnari vet-
urinn þegar ég varð umsjónarkenn-
ari hans. Við vorum fjarskyld, bæði
af Knudsensættinni, sem ég minnti
hann gjarna á honum til mjög hóf-
legrar ánægju en mér til meiri.
Ekkert sérstaklega smart að vera
skyldur dönskukennaranum. í skól-
anum áttum við okkar góðu stundir
en líka hinar, eins og gengur. Hann
átti vini í bekknum sínum og góða og
yndislega foreldra, en stundum eru
góðir foreldrar ekki einu sinni nóg.
Eftir að leiðir skildi í Brekkubæj-
arskóla hittumst við af og til þegar
hann stundaði rúntinn eins og sann-
ur ungur Skagamaður eða á vinnu-
stofunni hjá pabba hans. Þá var
gjarna glaðlegt yfir honum, hress
afgreiðslumaður reiðubúinn að
þjónusta kúnnann og þá fékk ég að
sjá fallega brosið.
Lífið var leit að stað og hlutverki,
með góðum stuðningi að heiman, en
það var eitthvað svo erfitt að finna
og þreytandi að leita, jafnvel þótt
hann væri gæddur mörgum góðum
hæfileikum. Nú er kvatt með eftir-
sjá eftir ungum manni sem ekki náði
fullum blóma en kvaddi þegar að
vori. Barbró, Sigga, Daníel og Söru
sendi ég mínar innilegustu samúð-
arkveðjur nú þegar hræðileg sorg
hefur barið að dyrum.
Ingunn Anna Jónasdóttir.
Arnar, elsku besti vinur okkar.
Nú ert þú farinn frá okkur og sökn-
uðurinn er mjög mikill. Við sitjum
hérna tvær saman og hugsum um
allar góðu stundirnar sem við áttum
saman og það sem kemur efst í huga
okkar er þegar elsku besti bíllinn
þinn stoppaði á rúntinum og startar-
inn var bilaður svo við enduðum með
að ýta bflnum allan rúntinn. Þetta
var eitt af mörgum ævintýrum sem
við lentum í með þér. En nú ertu
farinn frá okkur og það eina sem við
eigum eftir eru allar góðu minning-
arnar um þig. Við munum enn og
alltaf eftir mikla og fallega brosinu
þínu og þegar kom vandamál eða
þegar okkur leið illa þá leituðum við
alltaf til þín því þú varst alltaf í góðu
skapi og komst okkur alltaf til að
brosa og líta á björtu hliðarnar.
Arnar þú varst líka besti vinur sem
maður gat hugsað sér og þú varst
alltaf til í allt. Við hefðum aldrei vilj-
að neitt frekar en að kynnast þér og
enda sem bestu vinkonurnar þínar.
En nú kveðjum við þig og viljum
votta foreldrum þínum og systkin-
um okkar innilegustu samúð og biðj-
um Guð að veita þeim styrk á þess-
ari erfiðu stundu.
Þínar bestu vinkonur,
fris Ósk og Edda Ósk.
Hvað er að gerast, hvernig má
þetta vera? Spurningar sem þessar
komu þegar fram í hugann er við
fengum þessa ótrúlegu og óvæntu
fregn að annar bekkjarbróðir okkar
væri látinn. Tveir æskumenn,
bekkjarbræður okkar og vinir, látn-
ir með stuttu millibili. Utför Kalla á
miðvikudegi og Arnar látinn rúmri
viku síðar. Þannig er þó lífið, það
skiptast svo oft á skin og skuggar,
ljós og myrkur. Þannig má segja að
líf okkar kæra vinar, hans Arnars,
hafi verið. Við vorum öll saman í
glöðum hópi í barnaskólanum, allir
vinir, allt var svo bjart, áttum góða
foreldra, höfðum góða kennara, vor-
um hamingjusöm. Hvernig gat
framtíðin orðið öðruvísi?
Skemmtileg uppátæki voru hon-
um í blóð borin. Éitt sinn vorum við
á ferðalagi en ekkert sjónvarp var á
gistiheimilinu. Þá tók vinur okkar til
sinna ráða. Hann gekk á milli húsa
til þess að fá lánað sjónvarp. Að
sjálfsögðu tókst honum ætlunar-
verkið og kom til baka með sigur-
bros og myndbandstæki að auki.
En lífið er ekki aðeins skóli, heim-
ili og leikur. Það eru svo margar
hliðar sem lífið sýnir er heimi barns-
ins lýkur, svo margt sem breytist,
líka við sjálf. Þannig var það með vin
okkar, það breyttist svo margt. Við
skiljum ekki hvað olli því, en áfram
var þó góður drengur á ferð, ljúfur í
viðmóti, en einhver óskiljanlegur, ef
til vill ólæknanlegur sjúkdómur
varð birtunni yfirsterkari. Öll viljum
við helst ganga í birtunni og ljósun-
um og þess erum við fullviss að svo
var einnig með Arnar. Við kveðjum
þig nú kæri vinur, þökkum þér allt
gott og biðjum Guð að blessa þig og
leyfa þér að líða vel í landi ljósanna
þar sem hin eilífa birta ríkir. Hans
góðu foreldrum og systkinum send-
um við innilegar samúðarkveðjur.
Áslaug, Berglind og Guðni.
Harmur
Bláeygur dagur
með ijósgult hár
aðleik
í garði mínum
og blómin syngja
en
slysin gera ekki boð
á undan sér
og sólarlagið
hljómar dapurlega
og það er klökkvi
í lit blómanna
undir kvöld
(Ingi Steinar Gunnlaugsson.)
Það er enn drungi yfir bænum
okkar eftir sviplegt andlát ungs
manns þegar bekkjarfélagi manns
og vinur, Arnar Sigurðsson, fellur
frá, tæplega 21 árs.
Arnar var skemmtilegur nemandi
og yndislegur við kennarann sinn og
bekkjarfélaga. Hann gat oft fundið
upp á ýmsu skemmtilegu en þess á
milli var hann töluverður einfari og
var honum ekki haggað ef hann tók
þann pól í hæðina. Fannst mér lítill
strákur oft vera of áhyggjufullur út
af ýmsu sem virtist lítið mál. Honum
leist t.d. ekki á blikuna ef kennarinn
kom gangandi með blaðabunka und-
ir hendinni og spurði þá með mikl-
um áhyggjusvip: „Er próf?“ Arnar
var góður námsmaður, svo ekki
þurfti hann að óttast þau. Eftir að
unglingsárin tóku við vissi ég að
honum leið stundum illa. Þrátt fyrir
að eiga yndislega foreldra og systk-
ini sem gerðu allt fyrir hann þá fór
hann einförum en vinirnir hans gáf-
ust aldrei upp og voru honum frá-
bærlega góðir. Svo voru glaðir og
góðir tímar á milli, hann kom stund-
um í heimsókn og oft hittumst við á
förnum vegi og spjölluðum saman
og hann gerði endalaust grín að
Lödu-druslunum mínum, fannst
slíkar dósir ekki hæfa góðri vinkonu
sinni. Hann hafði heilmikinn áhuga
á bílum og sá ég hann oft á rúntin-
um, hallandi sér aðeins út í aðra
hliðina með bros á vör. Hann langaði
að eignast nýjan glæsilegan bíl og er
ég viss um að nú ekur hann um í
„Gullvagninum" í hæstu hæðum. Ég
sé hann fyrir mér með sitt ljúfa og
fallega bros og þannig ætla ég að
muna hann alltaf.
Elsku Barbro, Siggi, Sara, Daníel
og Marianne, aðrir ættingjar og vin-
ir.
Guð styrki ykkur og blessi minn-
ingu ykkar yndislega drengs.
Hrönn Eggertsdöttir.
Þegar þessar línur eru skrifaðar
eru réttar tvær vikur síðan við
kvöddum harmi slegin fyrrum fé-
laga okkar Karl K. Kristjánsson.
Engan gnmaði að svo fljótt aftur
yrði maðurinn með ljáinn á ferðinni.
Enn erum við harmi slegin, annar
fyrrum félagi okkar, og góður vinur
Kalla, Arnar Sigurðsson hefur verið
frá okkur tekinn.
Arnar æfði og keppti fyrir félagið
í nokkur ár. Hann var góður sund-
maður og hefði eflaust getað náð
langt hefði hann haldið iðkuninni
áfram. Ai’nar var ekki stór vexti en
hann var íþróttamannslega vaxinn
og í honum bjó mikill kraftur sem
hann nýtti sér vel í sundinu. Arnar
hafði notalega nærveru, var ekki
fyrirferðarmikill en gat þó látið að
sér kveða í hinum ýmsu uppátækj-
um sem hann tók sér fyrir hendur.
Mörg þeirra lifa í minningunni og
verður talað um í mörg ár innan fé-
lagsins, eins og eitt sinn þegar hóp-
urinn var í æfingabúðum í Kópa-
vogi. Það var gist í skátaheimili, og
um kvöldið varð einhverjum að orði
að það væri nú gaman ef þarna væri
sjónvarp svo hægt væri að horfa á
myndband. Ekki vafðist þetta fyrir
Arnari, hann rölti í nærliggjandi
íbúðarhús og til baka kom hann með
sjónvarp og myndbandstæki sem
hann hafði fengið lánað. Þannig var
hann, á hljóðlátan og skemmtilegan
hátt leysti hann málin. Ai’nar hafði
mjög hlýtt viðmót, alltaf heilsaði
hann kumpánlega þegar maður hitti
hann og gaf sér tíma til að spjalla, og
alltaf þegar hann var staddur á
íþróttasvæðinu okkar kom hann inn
og spjallaði við gamla þjálfarann
sinn um lífsins gagn og nauðsynjar.
Nú hefur Arnar verið kallaður
burt úr þessum heimi, honum hefur
verið ætlað annað og meira hlutverk
hjá æðri máttarvöldum, en eftir sitj-
um við hnípin og söknum góðs vinar
og félaga til margra ára. En minn-
ingin um góðan dreng lifir og yljar
okkur um hjartarætur og þökkum
við fyrir að hafa fengið að kynnast
honum og eiga hann að í félaginu
okkar.
I spakmæla- og bænabók Maríu-
reglunnar, sem er systraregla sem
starfar í nágrannalöndum okkar,
standa þessi fallegu orð:
SegviðGuðíneyðþinni:
Faðir minn, ég skil þig ekki,
en ég treysti þér.
Og þér mun hlotnast hjálp.
Við gerum þessi orð að okkar og
beinum þeim til foreldra, systkina
og annarra ástvina Arnars og von-
um að þau veiti þeim huggun í harmi
þeirra. Við sendum þeim hugheilar
samúðarkveðjur og kveðjum góðan
dreng.
• Sundfélag Akraness.
Það eru liðin þó nokkur ár síðan
ég kynntist honum Arnari fyrst er
við gengum saman í sjö ára bekk
Brekkubæjarskóla á Akranesi. Síð-
an hefur mikið vatn runnið til sjáv-
ar, en nú er svo komið að leiðir okk-
ar hefur skyndilega skilið á svo
sorglegan hátt sem raun ber vitni.
Þó að kynni okkar nái þetta langt
aftur í tímann, þá var það ekki fyrr
en Arnar hóf síðar að iðka sund-
íþróttina að ég fór að kynnast hon-
um betur, en þá hafði ég sjálfur æft
sund í nokkur ár. Sundið er afar
tímafrek íþrótt þannig að við hitt-
umst mörgum sinnum í viku til að
sinna þessu sameiginlega áhugamáli
okkar. Með okkur tókst fljótlega
góð vinátta, bæði í sundinu og hinu
daglega lífi.
Arnar var alla tíð „vígalegur“
persónuleiki eins og sagt er á Skag-
anum. Hann var skemmtilegur,
uppátækjasamur og hafði oftar en
ekki ákveðnar skoðanir á hlutunum.
Arnar var efnilegur í sundinu og