Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 84

Morgunblaðið - 05.05.2000, Page 84
MORGUNBLAÐW,KmNGLUNNIl, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 6691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK. Bygging 240-360 þusund tonna álvers á Reyðarfirði Stofnfundur Samfyikingarinnar Stefnt að undirritun yfír- lýsingar í þessum mánuði STEFNT er að því að ganga frá nýrri yfirlýsingu vegna byggingar álvers á Reyðarfirði í þessum mán- uði og eru nú staddir hér á landi aðilar úr framkvæmdastjórn Hydro Aluminium til undirbúnings þess, meðal annars. I yfirlýsingunni verður, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins, útlistað hvernig staðið verður að undirbúningi og ákvarðanatöku vegna byggingar 240-360 þúsund tonna álvers á Reyðarfirði í stað þess 120 þúsund tonna álvers sem stefnt var að áður að byggja, en eins og kunnugt er var horfið frá vHbyggingu þess fyrr í vor þar sem stærð þess þótti ekki nógu hag- kvæm. Vegna byggingar þess álvers var undirrituð yfirlýsing á Hall- ormsstað snemma sumars í fyrra þar sem kveðið var á um hvernig staðið yrði að undirbúningi fram- kvæmda og einstaka þættir í því ferli tímasettir. Einstaka þættir ekki tímasettir jafn nákvæmlega Sú yfirlýsing sem stefnt er að að undirrita nú í maímánuði yrði sam- bærileg nema hvað ólíklegt er að einstaka þættir í ákvörðunarferl- inu verði tímasettir jafn nákvæm- lega og var í yfirlýsingunni sem undirrituð var á Hallormsstað. í yfirlýsingunni nú yrðu tilgreindir þeir þættir sem liggja þurfa fyrir áður en ákvörðun er tekin og þeirri ákvörðun jafnframt sett tímamörk, samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins. Ljóst er að undirbúningur að byggingu stærra álvers verður mun tímafrekari en undirbúningur að byggingu 120 þúsund tonna ál- vers, þar sem ráðast þarf í virkj- anir sem senda þarf í umhverfis- mat áður en framkvæmdir við þær geta hafist og sama gildir um verksmiðjuna. Búist við deilum um aðild að E SB BÚIST er við miklum og hvössum umræðum um Evrópumál á stofn- fundi Samfylkingarinnar í dag. Ágreiningur er um ályktun sem Félag frjálsiyndra jafnaðarmanna leggur fyrir fundinn, þar sem lagt er tii að Samfylkingin taki af skarið og samþykki í stjórnmála- ályktun að ísland sæki um fulla aðild að Evrópusambandinu. Ung- ir jafnaðarmenn hafa einnig sam- þykkt tillögu um að sótt verði um aðild að ESB og ætla að fylgja henni eftir á fundinum. Nokkrir forystumenn Samfylk- ingarinnar, þ.á m. Margrét Frí- mannsdóttir, talsmaður hreyfing- arinnar, telja ekki tímabært að afgreiða tillögu af þessu tagi og vilja halda sig við það samkomu- lag sem aðildarflokkar Samfylk- ingarinnar gerðu í Evrópumálinu fyrir síðustu kosningar. „Mér finnst algerlega út í hött að ætla að þvinga svona tillögu í gegn á stofnfundi Samfylkingarinnar vegna þess að við eigum eftir mjög mikla og djúpa umræðu og kynningu á málinu,“ segir Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASI. ■ Höfum framselt/4 ■ Drög að stjórnmálaályktun/13 ■ Glenda Jackson/40 ■ Nú eða aldrei/42 Breytingar á út- hljutunarreglum LIN samþykktar *?JPPHÆÐ grunnframfærslu hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna hækkar um 6,7% í haust, frítekju- mark hækkar úr 250.000 í 265.000 krónur og skerðingarhlutfall vegna tekna umfram frítekjumark lækkar úr 50% í 40%. Þetta eru helstu breytingar sem gerðar voru á reglum sjóðsins á stjórnarfundi LIN í gær. Utgjaldaaukning vegna breytinganna nemur um 450 millj- ónum króna. Today Show sent út frá Islandi MORGUNÞÁTTURINN To- day Show sem sýndur er á bandarísku sjónvarpsstöðinni NBC verður sendur út frá ís- landi í dag. Má búast við því að um sjö milljónir manna fylgist með stjórnanda þáttarins, Matt Lauer, við Bláa lónið milli klukkan 7 og 9 að bandarískum tíma eða 11 og 13 að íslenskum. Þátturinn er einn vinsælasti morgunþátturinn í bandarísku sjónvarpi og binda menn í ís- lenskri ferðaþjónustu mikiar vonir við þá miklu landkynn- ingu sem talið er að þátturinn muni skila. Eiríkur Jónsson, formaður Stú- dentaráðs og fulltrúi þess í stjórn LÍN, segir breytingarnar áfanga- sigur fyrir stúdenta og fagnar því að grunnframfærsla hafi verið hækkuð meira en gert var ráð fyrir í fyrstu tillögum stjórnarmeirihluta. „Við gagnrýndum að hækkunin færi að mestu i lækkun tekjuskerð- ingarhlutfallsins og sögðum að það kæmi fyrst og fremst þeim tekjuháu til góða. Niðurstaðan var að heildar- útlánaaukning hækkar um u.þ.b. 100 milljónir umfram fyrstu tillögur og fer þessi breyting að mestu leyti í grunnframfærsluna," segir Eiríkur. „Þetta er mikil kjarabót fyrir námsmenn og það má segja að hér njóti þeir góðærisins eins og aðrir í þjóðfélaginu," segir Gunnar Birgis- son, formaður stjórnar LÍN. „Þetta er mjög mikil hækkun, 450 milljón- ir, þannig að ljóst er að ríkisstjórnin hefur tekið mjög vel á þessu“ Morgunblaðið/Kristinn Hin heimskunna leikkona Glenda Jackson, þingmaður Verkamannaflokksins í Bretlandi, kom til landsins í gær en hún verður viðstödd stofnfund Samfylkingarinnar 'sem hefst í dag. Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokks- formaður Samfylkingarinnar, og Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður tóku á móti Glendu Jackson í Leifsstöð og færðu henni rósir. Mjólkurfræðingar undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöld Mjólk í verslanir í dag NÝR kjarasamningur milli Mjólk- urfræðingafélags Islands og Sam- taka atvinnulífsins, vegna mjólkur- fræðinga hjá afurðastöðvum, var undirritaður um klukkan níu í gærkvöldi. Þar með var verkfalli Óvissa á miðnætti í deilu farmanna og skipafélaga Maestro NTT FÉ HVAR SEM ÞU ERT mjólkurfræðinga, sem staðið hafði frá miðnætti, frestað til 30. maí og kemur það ekki til framkvæmda nema samningurinn verði felldur í atkvæðagreiðslu fyrir 24. maí. Samningurinn, sem verður kynnt- ur félagsmönnum á næstu dögum, gildir til 31. janúar 2004 og tekur mið af samningum Flóabandalags- ins, auk þeirrar hækkunar sem hlýst af lengri samningstíma. Samningafundur mjólkurfræð- inga og viðsemjenda þeirra í hús- næði ríkissáttasemjara hafði staðið yfir í meira en sólarhring þegar samningur var undirritaður, en fundurinn hófst klukkan 15 á mið- vikudag. Mjólkurfræðingar mæta til vinnu í dag og er gert ráð fyrir að mjólk verði komin í margar versl- anir þegar þær verða opnaðar. „Við ætlum að byrja að pakka mjólkinni klukkan sex,“ segir Leif- ur Örn Leifsson forstöðumaður sölu- og dreifingarsviðs Mjólkur- samsölunnar. Hann segir að tekn- ar hafi verið niður pantanir frá verslunum í gær og í fyrradag, með fyrirvara um að verkfallið myndi leysast. „Þessar pantanir eru til af- greiðslu strax og mun mjólkin byrja að streyma í verslanir milli klukkan átta og níu.“ Leifur segir að gríðarlegt álag hafi verið á Mjólkursamsölunni í allan gærdag, bæði í söludeild og afgreiðslu. Hann segist hafa orðið var við það í samtölum við verslun- areigendur að neytendur hafi verið farnir að hamstra bæði drykkjar- mjólk og aðrar mjólkurvörur í nokkrum mæli. Leifur segist gera ráð fyrir að nokkrar tafir verði á dreifingunni í dag og að álag verði áfram mikið. „Ég geri ráð fyrir að það verði einhverra klukkustunda tafir í út- keyrslunni hjá okkur, en ég tel að við ættum að geta náð þessu vel og seinni partinn ætti að vera komin mjólk í flestallar ef ekki allar verslanir," segir Leifur. Kjaradeila Sjómannafélagsins Klukkan þrjú í gærdag hófst fundur í kjaradeilu Sjómannafé- lags íslands og viðsemjenda hjá sáttasemjara. Síðdegis í gær voru taldar nokkrar líkur á að lausn fyndist í deilunni í þessari lotu, en á miðnætti var staðan talin mjög óljós.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.