Morgunblaðið - 04.06.2000, Side 32

Morgunblaðið - 04.06.2000, Side 32
32 SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 2000 33 PlnrgmuiMuliilí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. RÆÐA CLINTONS CLINTON Bandaríkjafor- seti flutti umhugsunar- verða ræðu í Aachen í Þýzka- landi í fyrradag, þegar honum voru veitt Karlamagnúsar- verðlaunin svonefndu. Líta má á þessa ræðu, sem eins konar kveðjuræðu Clintons til Evrópuríkja, því að óbreyttu verður þetta síðasta ferð hans til Evrópu á meðan hann gegn- ir forsetaembætti. í ræðu sinni sagði Clinton m.a. að ekki væri hægt að loka dyrum Atlantshafsbandalags- ins eða Evrópusambandsins fyrir Rússlandi og sagði, að ef nánari tengslum við Rússland yrði hafnað „mundi það leiða til skaðlegrar samkeppni milli Rússlands og Vesturlanda.“ Clinton lagði líka áherzlu á aukin tengsl Evrópusam- bandsins við ríki gömlu Júgó- slavíu og Tyrklands og bætti við: „Ég tel, að Evrópuríkin ættu að efla bandalag okkar, jafnvel þótt þau eflist sjálf.“ Bakgrunnur þessarar ræðu Clintons er sá, að Evrópu- sambandsríkin hafa vaxandi áhuga á því að efla varnar- samstarf sín í milli og skapa sér sjálfstæðari stöðu gagn- vart Bandaríkjamönnum. Kannski sprettur þessi þörf að einhverju leyti af óförum þeirra á Balkanskaga, þegar í ljós kom, að þar var ekki hægt að stilla til friðar án atbeina Bandaríkjanna, þótt það væri Evrópuríkjunum mikið áhuga- mál að ná þeim árangri án að- stoðar Bandaríkjamanna. Þá er einnig á það að líta að Bandaríkjamenn hafa í all- mörg ár hvatt Evrópuríkin og raunar gert kröfu til þeirra um að þau tækju á sig meiri fjár- hagslegar byrðar vegna örygg- is Evrópu. Um leið og Evrópu- ríkin gera sig líkleg til að taka Bandaríkjamenn á orðinu kemur hins vegar í ljós, að hin- ir síðarnefndu vilja bæði halda og sleppa. Þeir vilja að Evr- ópuríkin borgi meira en þeir vilja ekki missa þau pólitísku áhrif, sem þeir hafa haft í Evrópu í krafti þess, að megin- þungi varna Evrópu hefur hvílt á þeirra herðum. Til viðbótar koma svo sífellt nánari tengsl Rússa og Þjóð- verja. í Þýzkalandi segja áhrifamenn, að Rússar leiti stíft eftir nánu tvíhliða sam- starfi við Þýzkaland en í Moskvu segja þeir sem bezt til þekkja, að það séu Þjóðverjar sjálfir, sem sækist eftir slíku tvíhliða sambandi. Rússar hafi fyrst og fremst áhuga á nánum tengslum við Evrópuríkin í heild. Alla vega er Ijóst að það er meiri gerjun í evrópskum stjórnmálum en verið hefur um skeið. Þegar horft er á heildar- hagsmuni þessara ríkja verður að taka undir með Bandaríkja- forseta, að það skiptir máli að tengja Rússland og Evrópu- ríkin eins nánum böndum og unnt er um leið og ekki má draga úr því sterka sambandi, sem byggzt hefur upp meiri hluta aldarinnar yfir Atlants- hafið. Náin tengsl Evrópuríkja til austurs og vesturs eiga að geta tryggt frið í þessum heimshluta og Atlantshafs- bandalagið færist stöðugt nær því að verða öryggiskerfi allra Evrópuríkja. Við íslendingar búum miðja vegu á milli Evrópu og Amer- íku. Fyrir okkur hlýtur að skipta máli, að þau nánu tengsl, sem hafa verið á milli Bandaríkjanna og Evrópu haldist og að þar verði engin breyting á. Málflutningur ís- lenzkra ráðamanna, fyrst og fremst Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar á vett- vangi Atlantshafsbandalagsins og í tvíhliða viðræðum við leið- toga þeirra þjóða, sem hér eiga hlut að máli hefur hnigið í þá átt. En jafnframt skiptir veru- legu máli að við treystum tengsl okkar við ESB-ríkin og þá ekki sízt Þýzkaland. Samskipti okkar við Þjóð- verja hafa stóraukizt á undan- förnum árum. Það á ekki sízt við um samskipti æðstu ráða- manna þessara þjóða. Heim- sókn Schröders, kanslara Þýzkalands í íslenzka skálann á heimssýningunni í Hannover er táknræn fyrir þessi nánu samskipti. Kanslarinn heim- sótti einungis örfáa skála við opnun sýningarinnar. Það er engin tilviljun, að íslenzki skál- inn var meðal þeirra. I þeirri heimsókn felst ákveðin yfirlýs- ing af hálfu Þjóðverja um leið og Schröder sýnir Islending- um mikla persónulega vin- semd. Það er ekkert sjálfgefið um stöðu Islands í breyttum heimi. Við þurfum sjálfir að gera okkur grein fyrir því, hvernig við viljum tryggja hagsmuni okkar. Það verður m.a. gert með samskiptum við ráðamenn ríkjanna beggja vegna Atlantshafsins. Ágrein- ingur, sem upp kemur á milli okkar og einhverra þessara ríkja um einstök málefni er óþægilegur og ástæða til að leggja áherzlu á að ljúka slík- um ágreiningsmálum sem fyrst. Við eigum pólitískra og við- skiptalegra hagsmuna að gæta beggja vegna Atlantshafsins. Að lokum segir Gunnlaugur: Landið hefur upp á að bjóða margvísleg áhrif. Ég held, að fjöl- breytni Snæfellsness- ins sé eitt skemmtileg- asta viðfangsefni, sem völ er á fyrir málara. Ég var oftast í Stykkishólmi að sumrinu og sá út yfir Breiðafjörð. Það verður mér ógleymanlegt: hæð eða hryggur inni í bænum, þar sem ég stóð og málaði, útsýni til tveggja átta, hafs og lands, og breyttist eftir því sem á leið daginn. Sólarupprásin ógleymanleg. Einhver fölur litur yfir hafi og eyjum, sem minnti mig á dauðann, minnti mig á kvæði, sem ég hef séð í íslenzkri þýðingu og heitir Dauðinn að morgni, eftir Lorca. Þetta tvennt rann einhvem veginn í einn farveg í huga mínum. Ég hef enga óþægilega tilfinningu af þessari skírskotun til dauðans. Eg varð mjög ánægður, þegar ég hugsaði um kvæðið og birtuna yfir hafinu. Mér fannst hún falleg, eins og það væri eitthvað ósýnilegt, sem kæmi til mín utan úr fjarlægðinni, færðist nær og nær, þrengdi sér inn í mig og merði mig sundur. Og svo fann ég þama eitthvert samband við þessa sér- stæðu tilfinningu, sem maður hefur fyrir morgninum, miskunnarleysið í birtunni neðst við sjóinn. Það er ein- kennilegt, að mér hefur alltaf fundizt morgunninn minna mig á dauðann, en kvöldið á lifið. Ég veit ekki, hvemig á því stendur. Auðvitað er afstaða mín til listar sprottin úr myndrænni hugsun. En mér finnst eitthvað vanta í myndina, þegar manneskjuna vantar. Það er eins og Cézanne segir, að and- lit mannsins megi ekki vanta, það sé aðal- atriðið í myndlistinni. Þegar ég mála myndir af öðra en fólki, er það aðeins hvíld, eins og þegar maður slappar af eftir erfiði, léttir sér upp, losar sig við alla ábyrgðartilfinningu og ímyndar sér að það sé sunnudagur. Éinu sinni var ég í Borgarfirði, hjá Húsafelli. Þar var einhver andblær þjóðsagna, öræfa og einvera, sem greip mig sterkt. Langjökull eins og endalaus skáhöll lína, þar sem him- inn og jökull mættust. Mér fannst þessi lína ganga í gegnum allt lands- lagið. Ég málaði myndir, sem vora byggðar á endurminningu um þessa línu. Ég eyðilagði þær allar, en kannski hafa þessar línur haldizt í sjávarmyndum mínum, því að venju- lega hef ég skáhalla línu bak við bát- inn. Bæði hef ég kynnzt henni úr náttúranni og auk þess veitir hún fjöri í myndina. Mér finnst Austfirðir, einkum Seyðisfjörður, hrikalegri en aðrir staðir, sem ég hef séð. Kannski að Oræfum einum undan skildum. Þar er ómögulegt að komast frá fjöllun- um. Þau rísa yfir mann. Stundum er ekki einu sinni hægt að sjá tindana. Ég hef hvergi séð skemmtilegri norðurljós en á Austfjörðum, þau dansa við tindana, eins og jörðin hverfi til himins. Þegar ég les Norð- urljós eftir Einar Benediktsson, dettur mér alltaf Seyðisfjörður í hug. Fjöllin fyrir austan hafa orkað þann- ig á mig, að það er eins og þau séu að hálfu leyti draumur og að hálfu vera- leiki. Veturinn á Seyðisfirði var ákaf- lega harðneskjulegur, allt hvítt í kringum mann, landið, fjöllin og fjörðurinn fyrir neðan - allt nema himinninn. En maður sá hann sjaldnast, nema með erfiðismunum. Það, sem ég man sérstaklega eftir úr Öræfum, era sandarnir. Þegar horft er til Öræfa frá Lómagnúpi, virðist landið vera eyðimörk, samt glyttir á græna bletti. Þar er byggð. Og svo þegar komið er til bæja, fær maður mikla smæðarkennd. Fluga á sveimi í baðstofuloftinu leiðir hug- ann að þessari smæð og eykur á hana. Og svo er það birtan, það er eitthvað ójarðneskt við hana. Hún er íol, kannski endurskin frá jöklunum. Ég sagði einhverju sinni við bónda í Öræfum: „Það er fallegt hérna.“ Hann svaraði: „Já, það er ósköp frjálst." Endurminningin um Öræfin er lík endurminningu um draum. Ég fór stundum upp í hlíðarnar of- an við sandana og horfði yfir ótelj- andi árkvíslarnar. Stundum sást líka ofurlítil rönd af hafinu. Það var eitt- hvað af dauðanum í þessum sandi. En ég fann ekki til neins óhugnaðar, þegar ég horfði yfir þetta ójarðneska land. Þegar ég kom í Öræfin, minntist ég loka Njáls sögu. Fannst vel við eigandi, að slíku snilldarverki skyldi einmitt ljúka á þessum stað, þar sem við eram minnt á eilífðina. Það getur varla verið tilviljun. Þar renna líf og dauði í einum farvegi, án þess gi’eint verði á milli. M. HELGI spjall * TEFÁN Jón Hafstein, fyrr- um ritstjóri Dags, skrifar grein í Dag sl. miðvikudag, þar sem hann fjallar um forsetaembættið, stöðu þess og embættisfærslu núverandi forseta Islands. í sjálfu sér er eðlilegt að fjallað sé um forsetaembættið á þeim tíma- mótum, þegar fyrsta kjörtímabili Ólafs Ragnars er að Ijúka og hann hefur verið sjálfkjörinn til þess að gegna embættinu næstu fjögur ár. Og vafalaust verður það gert að einhverju marki á næstu vikum. í ljósi þess hvernig embættið hefur þróazt er eðlilegt að fjallað sé um forsetaembættið og embættisfærslu forseta með áþekkum hætti og gert er um aðrar opinberar stofnanir og þá sem í fyrirsvari eru á hverjum tíma. Hins vegar vekur athygli sú þunga gagn- rýni, sem birtist í grein Stefáns Jóns Haf- stein, ekki sízt vegna þess úr hvaða átt hún kemur. Höfundur greinarinnar hefur lengi notið trúnaðar í röðum vinstri manna og þá ekki sízt þeirra hópa, sem verið hafa kjarn- inn í stuðningsmannaliði núverandi forseta. Umfjöllun um forsetaembættið hefur breytzt á liðnum árum. Sú var tíðin, að það vora óskráð lög á öllum íslenzkum fjölmiðl- um að halda verndarhendi yfir embættinu og þeim, sem því gegndi hverju sinni. Þess vegna sást varla gagnrýni á fyrstu þrjá fpr- seta lýðveldisins, þá Svein Björnsson, Ás- geir Ásgeirsson og Kristján Eldjárn. Sveinn Björnsson lá að vísu undir harðri gagnrýni stjórnmálamanna að tjaldabaki á þeim tíma, sem hann gegndi embætti ríkisstjóra, en sú gagnrýni kom lítið upp á yfu'borðið, þótt hennar mætti að vísu sjá merki við for- setakjörið á Alþingi á Þingvöllum 17. júní árið 1944. Þetta er einn af þeim þáttum ís- landssögunnar, sem eftir er að fjalla um. Þótt harkaleg pólitísk átök yrðu í for- setakosningunum 1952 tók það ótrúlega stuttan tíma að jafna þau mál meðal þeiraa, sem harðast tókust á. Ásgeir Ásgeirsson sat á friðarstóli til æviloka. Kristján Eldjárn sigldi einnig lygnan sjó í sinni forsetatíð að mestu leyti. Þó varð hann fyrir gagnrýni í forystugrein í Morgunblað- inu, þegar hann á sínum tíma veitti Lúðvík Jósepssyni umboð til stjórnarmyndunar. Forsetinn tók þá gagnrýni óstinnt upp og lét vita af því með ótvíræðum hætti. Akvörðun hans að veita Gunnari Thoroddsen umboð til stjórnarmyndunar snemma árs 1980 var mjög umdeild. Það var fyrst á síðari hluta forsetatíðar Vigdísar Finnbogadóttur, sem finna mátti að hin gamla hefð , að halda verndarhendi yfir forsetaembættinu í opinberum umræð- um, var á undanhaldi. Segja má, að þar hafi breyttur tíðarandi bæði hér og annars stað- ar ráðið mestu. I öðrum löndum vora meiri og opnari umræður um þjóðhöfðingja og embættisfærslur þeirra orðnar algengar og spurt var hvers vegna hið sama mætti ekki eiga við hér. Þó kom gagnrýni á Vigdísi Finnbogadótt- ur lítið upp á yfirborðið. Á kvennafrídaginn svonefnda varð mikil spenna í stjórnarráð- inu þegar forsetinn dró í nokkra klukkutíma að undirrita lög. Þegar kom að undirskrift laganna um EES urðu samskipti æðstu stjórnenda ríkisins ævintýraleg, þótt sú saga sé enn ósögð. I umræðum manna á milli kom í ljós, að vaxandi gagnrýni var á þáverandi forseta á þeirri forsendu fyrst og fremst, að sú hóg- værð, sem einkenndi forsetaembættið í tíð þriggja fyrstu forseta lýðveldisins, væri að víkja. Vel má vera, að ósanngjarnt hafi verið að beina þeirri gagnrýni að forsetanum. Al- veg eins má ætla, að breytt fjölmiðlun hafi átt þar töluverðan hlut að máli. Alla vega er ljóst að vinsældir Vigdísar Finnbogadóttur meðal þjóðarinnar voru miklar eins og glöggt mátti finna á hálfrar aldar afmæli lýðveldisins á Þingvöllum árið 1994. Þótt átökin við kjör Ásgeirs Ásgeirssonar hafi verið hin hörðustu, sem um getur í sögu lýðveldisins, er Ólafur Ragnar Grímsson umdeildasti stjórnmálamaður, sem kjörinn hefur verið á forsetastól. Raunar má halda því fram, að umdeildari stjórnmálamann hafi ekki verið hægt að kjósa sem forseta. Þess vegna þarf ekki að koma á óvart, þótt forsetinn hafi búið við það síðustu fjögur ár- in, að ákveðinn hluti þjóðarinnar hafi aldrei sætt sig við kosningu hans, gagnstætt því, sem átti við um Vigdísi Finnbogadóttur, sem einungis var kjörin með um þriðjungi atkvæða í upphafi. Það má velta því fyrir sér, hvort forsetinn hafi yfirleitt haft nokkurn áhuga á að ná sáttum við andsstæðinga sína, en það er líka vel hugsanlegt að það sé einfaldlega ekki hægt gagnvart þeim aldurshópum, sem fylgdust með stjórnmálaferli Ólafs Ragnars fram að forsetakjöri fyrir fjórum áram. Á síðustu tveimur áratugum hafa við og við heyrzt raddir um, að leggja ætti for- setaembættið niður og forseti Alþingis ætti að gegna embættisskyldum þjóðhöfðingja, þegar það ætti við. Þessum röddum hefur fjölgað en hins vegar má telja líklegt, að for- setaembættið sem slíkt skipti allan almenn- ing í landinu meira máli en svo að menn vilji afnema það. En jafnframt hefur tvennt gerzt; fjölmiðl- unin hefur orðið enn opnari og nú þykir ekk- ert athugavert við að gagnrýni birtist á for- setann. Að vísu hefur Morgunblaðið þá reglu, þegar aðsendar greinar berast blað- inu til birtingar um forsetann og málefni hans, að gerð er krafa um ákveðna kurteisi og tillitssemi í gagnrýni á forsetann og for- setaembættið. I sumum tilvikum sætta greinarhöfundar sig ekki við þá kröfu og verða þá frá að hverfa. En jafnframt hefur forsetinn sjálfur með málflutningi sínum kallað yfir sig gagnrýni og raunar hefur mátt skilja hann á þann veg, að hann telji ekkert athugavert við, að svolítið næði um forsetaembættið. Það kann að vísu að vera álitamál enda verður þá erf- iðara fyrir forseta að gegna því hlutverki að vera sameiningartákn þjóðarinnar.Ætla má að þetta sameiningartákn sé höfuðverkefni embættisins, þótt það hljóti að vera erfitt, þegar umdeildir stjórnmálamenn sitja í embættinu. Morgunblaðið hefur í forystugreinum gagnrýnt forsetann fyrir að gera tilraun til að færa út landamæri embættis síns, ef svo má að orði komast og blanda sér í umræður um þjóðfélagsmál á þann veg, að ekki hæfi forsetaembættinu. Aðrir hafa talið sig sjá merki slíkra tilrauna innan stjómkerfisins, þótt gagnrýni þess efnis hafi ekki komið upp á yfirborðið. En svo er líka ljóst, að sumir virðast ekki hafa neitt við það að athuga. Með breyttum tíðaranda, opnari fjölmiðl- un og þeim breytingum, sem orðið hafa á embættisrekstri forseta íslands er ekki ósennilegt að forsetaembættið muni liggja undir meiri gagnrýni en áður tíðkaðist og má segja, að það sé í takt við það, sem gerzt hefur í nálægum löndum. Það er svo annað mál, að ekki er endilega víst, að það verði forsetaembættinu til far- sældar. Ef marka má viðleitni úr ýmsum áttum til að koma á framfæri óvæginni gagnrýni á forsetaembættið er vel hugsan- legt að fjölmiðlarnir hafi mun íhaldssamari og varfærnari afstöðu til þessara mála, en sumir þjóðfélagshópar a.m.k. SÚ GAGNRÝNI, Grein Stefáns sem fram kemur 1 t/ grem Stefans Jóns JOnS . Hafstein í Degi sl. Hafstein miðvikudag, er hins vegar allt annars eðl- is en þær athugasemdir, sem hingað til hafa verið gerðar við núverandi forseta og for- vera hans í embætti. Gagnrýni Stefáns Jóns beinist að því, að forsetinn blandi saman embættisskyldum sínum og einkamálum. Slíkar athugasemdir hafa ekki áður komið fram um forseta Islands, þótt þær hafi heyrzt manna á meðal undanfarið. I grein sinni segir Stefán Jón m.a.: „Hér fer Ölafur Ragnar inn á nýja vegi með em- bættið og allt frá byrjun hefur honum farizt það óhönduglega. Vegna þess, að ein megin- regla hefur ekki verið í heiðri höfð; að halda einkamálum þess, sem gegnir embættinu og því sjálfu aðskildu eins og framast er kostur. Þess í stað er embættið persónugert úr hófi. Við þurfum vissulega að vera upplýst um persónulega hagi þess, sem gegnir forseta- embættinu. En hér er lengra gengið.“ Og nokkru síðar segir hann um sama efni: „Hér er engin hefð fyrir því að meðhöndla ... einkamál fyrirmenna, sem væru þau kon- ungborin. Þvert á móti. Hér er rík og góð hefð fyrir því að meðhöndla einkamál fyrir- menna sem einkamál.“ Greinarhöfundur víkur síðan máli sínu að fjölmiðlum og gagnrýnir þá fyrir þeirra vinnubrögð í sambandi við forsetaembættið REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 3. júní og segir í því sambandi: „Ekki er forseta einum um að kenna.“ Og bætir við: „Ríkis- útvarpið verður að átta sig á því, að við bú- um við lýðræði en ekki Hello-ræði.“ Stefán Jón fjallar um embættisfærslu for- setans almennt og segir: „í forsetaembætt- inu hefur Ólafur Ragnar fetað dyggilega það einstigi, sem honum er ætlað, tekið sér hæfi- legt olnbogarými á réttum augnablikum og hvergi skjöplast. Þegar hann leitast við að tengja einkalíf sitt, embættið og vitund þjóðarinnar um það fatast honum. Þetta hef- ur verið vandamál frá upphafi." Hann segir, að forsetinn hafi í upphafi fyrir fjórum árum tengt fjölskyldu sína mjög við embættið. „Þá hlutverkaskipan valdi forseti sjálfur. Hún var ekki hafin yfir gagnrýni en var hluti af þeirri ímynd, sem Olafur Ragnar kynnti í undanfara kosninga. Að þeim loknum kom samt á óvart hve ræki- lega fjölskyldunni var blandað í embættis- verk. Ferill Vigdísar og Kristjáns Eldjárns hafði sýnt og sannað að engin þörf var á slíku. Þau héldu einkalífí sínu eins aðskildu frá forsetaembættinu og mögulegt var. Mörkin hér á milli hafa riðlast í meðförum Ólafs Ragnars ... Séð-og-heyrt-væðing em- bættisins á enga samsvörun í þeim gildum og venjum, sem embættið á að standa vörð um.“ Grein sinni lýkur Stefán Jón Hafstein með þessum orðum: „Látleysi og alþýðleiki hafa lengstum einkennt embættið öðra fremur. Forseti vor er þjóðkjörinn. Hann er fremstur meðal jafningja, er hvorki meiri né betri en aðrir í krafti embættis, sem hann þiggur frá fólk- inu. Enginn hefur falið Ólafi Ragnari Gríms- syni að breyta þessum megineinkennum for- setaembættisins. Enginn hefur óskað eftir því að fá að skyggnast í einkalíf, ástir og sorgir á Bessastöðum. Þar eru mörkin dreg- in við hluttekningu, þegar stormai' geisa stríðir og við það hvernig við samgleðjumst, þegar sólin skín. Allt þar umfram er óviðeig- andi.“ Hér hefur verið stiklað á stóra í grein Úr Krísuvíkurbjargi. Stefáns Jóns Hafstein. Búast má við, að hún verði forsetanum mikið umhugsunarefni m.a. og ekki sízt vegna þess, að hún kann að endurspegla viðhorf fleiri í hópi þeirra, sem Ólafur Ragnar hefur aðallega sótt stuðning til á opinberum ferli sínum. ^■^■■■■■■1 ÞAÐ ER áreiðanlega Imvnd fvrir- snuið mál að meta fœUlíT ^ „ímynd“ fyrirtækja - lcUKjd, H(5 ekki sé talað um einstaklinga t.d. í stjórnmálum. I Reykja- víkurbréfi fyrir viku var fjallað um ímynd fyrirtækja í tengslum við stuðning þeirra við menningarviðburði, íþróttastarfsemi og samfélagsþjónustu. Talið var að ímynd bæði Islandsbanka og Eimskipafélags íslands væri mjög sterk í menningarmálum og að hluta til ætti það við um Búnaðarbanka Is- lands á afmörkuðu sviði myndlistar. Nú hefur Morgunblaðið undir höndum niðurstöður Gallup-könnunar, sem gerð var fyrir u.þ.b. hálfu ári, sem gefur allt aðra mynd. Könnun þessi var gerð fyrir Lands- síma Islands. I henni var m.a. spurt: „Getur þú nefnt eitt fyrirtæki, sem þú manst að styður við menningarstarfsemi á íslandi?" í ljós kom, að 65,6% gátu ekki nefnt neitt fyrirtæki í þessu sambandi, sem er kannski athyglisverðasta niðurstaðan. En að öðra leyti nefndu 5% Landssímann, 4,2% Eim- skipafélagið, 2,1% nefndur Flugleiðir og 1,9% Landsbankann. Einungis 0,9% nefndu Islandsbanka og 0,5% SPRON, sem einnig kom við sögu í umfjöllun Morgunblaðsins sl. sunnudag. Það er alkunna, að niðurstöður í könnun- um byggjast mjög á því, hvernig spurt er. Hafi spyrjendur t.d. sagt að þeir væru að gera þessa könnun fyrir Landssímann gæti það haft áhrif á það hvað fyrirtækið fær stóran hlut í þessari könnun en Morgun- blaðinu er ekki kunnugt um hvort spurt var á þann veg. Þær athugasemdir gætu hins vegar ekki átt við um röðun annarra fyrir- tækja í könnun Gallup og þess vegna segja niðurstöður þessarar könnunar áreiðanlega mikla sögu um það, hvernig þessi mál blasa við hinum almenna borgara. Þannig kemur Landsbankinn miklu betur út úr þessari könnun en þau fjármálafyrir- tæki, sem hér voru nefnd fyrir viku. Bank- inn stóð m.a. að sýningu San Francisco- balletsins á Svanavatninu. Búnaðarbankinn kemst ekki á blað. Niðurstöður könnunar Gallup sýna, að varlega skyldi fara í að fella dóma um ímynd fyrirtækja, hvort sem er á þessu sviði eða öðrum. I Reykjavíkurbréfi sl. sunnudag var að því vikið, að forráðamenn fyrirtækja kvört- uðu undan því, að þess væri sjaldan getið hvaða fyrirtæki hefði gert kleift að efna til ákveðins viðburðar í menningarlífi. Sú nið- urstaða könnunar Landssímans að tæplega 66% aðspurðra gátu ekki nefnt neitt fyrir- tæki er vísbending um að þeir hafi nokkuð til síns máls. Og það er vel hægt að skilja það sjónar- mið fyrirtækjanna að ósanngjarnt sé hve lít- ið er fjallað um þátt þeirra í viðburðum sem þessum. Hvað sem líður niðurstöðum kannana um þetta efni er æskilegt að umræður fari fram um það, hvernig hægt er að efla stuðning at- vinnulífsins við menningarviðburði, íþrótta- starfsemi og samfélagsþjónustu. Nú orðið byggist þessi starfsemi að verulegu leyti á stuðningi atvinnulífsins. Raunar snýst þetta mál ekki bara um við- kvæmni fjölmiðla gagnvart því að veita fyr- irtækjum „ókeypis auglýsingu" með umfjöll- un um þeirra þátt. Listamennirnir, sem koma fram, eru afar viðkvæmir fyrir því að nöfnum fyrirtækja sé hampað um of. Þeir geta fengið á tilfinninguna, að sé farið yfir strikið í þeim efnum skapist sú ímynd af þeim sjálfum að þeir hafi verið „keyptir" af viðkomandi fyrirtæki. Hér kemur því tilfinningalíf margra aðila við sögu, sem þarf að vera í jafnvægi til þess að hægt sé að standa sæmilega að þessum málum. Morgunblaðið/Golli „Hér hefur verið stiklað á stóru í grein Stefáns Jóns Hafstein. Búast má við, að hún verði forsetanum mikið umhugsun- arefni m.a. og ekki sízt vegna þess, að hún kann að endurspegla viðhorf fleiri í hópi þeirra, sem Ólafur Ragnar hefur aðallega sótt stuðning til á opinberum ferli sínum.“ +

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.