Morgunblaðið - 14.06.2000, Síða 84
Heimavörn
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Banaslys á
Akranesi í
_ gærkvöldi
BANASLYS varð seint í gærkvöldi á
mótum Kirkjubrautar og Akurgerðis
á Akranesi.
Lögreglu barst tilkynning um at-
burðinn klukkan 22.30 í gærkvöldi.
Slysið varð með þeim hætti að bifhjól,
sem var á leið vestur Kirkjubraut,
lenti á bifreið sem ekið var af Akur-
gerði inn á Kirkjubraut. Ökumaður
bifhjólsins var látinn þegar lögregla
kom á staðinn. Ökumaður bifreiðar-
innar og farþegi sluppu ómeiddir.
Að sögn Ólafs Haukssonar, sýslu-
manns á Akranesi, er atburðarásin
ekki að öllu ljós en lögreglan á Akra-
nesi vinnur að rannsókn málsins.
Ólafur segir staðinn þar sem slysið
~,:'*~!?arð vera varasaman, hús hggi þétt að
götunni og því erfítt að sjá af Akur-
gerði inn á Kirkjubraut.
---------------
Hafnarfjörður
Fornleifum
eytt í Aslandi
ÁSLANDSHVE RFI í Hafnarfirði
^gr skipulagt yfir skráðar fomleifar
og hefur nokkrum þeirra verið eytt
eða raskað við framkvæmdir á svæð-
inu.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður hefur skrifað bæjaryf-
irvöldum bréf vegna þessa þar sem
fram kemur að vegna samkeppni um
skipulag í Áslandi hafi fornleifadeild
Þjóðminjasafnsins gert skrár um
fomleifar á svæðinu, m.a. um þær
sem nú hafí verið spillt. Skipulagsyf-
irvöldum í Hafnarfirði hafi vel mátt
vera kunnugt bæði um fornminjam-
ar og reglur sem um þær gilda en
eitt af markmiðum fornleifaskrán-
ingar sé að sporna gegn því að minj-
ar verði fyrir skemmdum af gáleysi
eða að nauðsynjalausu.
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
minjavörður segir að þarna hefðu
orðið mannleg mistök sem leitt hefðu
til þess að fomleifarnar hefðu rask-
ast við framkvæmdir.
■ Svæðið skipuiagt/14
Morgunblaðið/Porkell
Bakkelsið fór sýnlega býsna vel í forystumenn bifreiðastjóra og atvinnurekenda í kaffíboði ríkissáttasemjara í gærkvöldi. Ari Edwald, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins (t.v.), gæðir sér á kökusneið en Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis, situr kampakátur honum við hlið.
Lögbann á verkfallsaðgerðir Sleipnis gegn Hópbifreiðum og Hagvögnum
Lítið þokaðist á óformleg-
um sáttafundi í gærkvöldi
LÍTIÐ þokaðist á óformlegum við-
ræðufundi Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis og Samtaka atvinnulífsins í
húsakynnum ríkissáttasemjara í
gær, en þó var ákveðið að boða til
formlegs viðræðufundar á morgun.
Fjögur hópferðafyrirtæki hafa nú
fengið samþykkt lögbann á verkfalls-
aðgerðir Sleipnis og ein lögbannsað-
gerð til viðbótar var lögð fram í gær.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að menn
Dræm laxveiði í 1 • J
Dyrj LAXVEIÐI hefur v( dræm það sem af er sui veiðitímabilið er nú nýh Frá mörgum ám b fregnir að veiðin hafi s aldrei verið jafnlítil. M( þó eftir að veiðin au un veraoar ;rið mjög nálgast þjóðhátíðardaginn, en þá nri en lax- er stórstreymt. afið. Stærsti lax sem veiðst hefur í erast þær sumar er 17 pund. Honum var jaldan eða landað við Laxá í Aðaldal. >rm vnnast.
dst þegar ■ Með því / 13
hefðu komið saman til að ræða stöð-
una, en mikið bæri á milli. Erfitt
verkefni væri framundan, en það
væri mat sitt að rétt hefði verið að
boða tO formlegs sáttafundar í deil-
unni.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagði eftir fundinn í gær-
kvöldi - eða kaffiboðið eins og hann
kallaði hann - að ekki sæi fyrir end-
ann á þessari deilu. Þó hefðu menn
orðið ásáttir um að ræða máhn frek-
ar á fimmtudag.
Óskar sagði að verkafólk úr öðrum
stéttarfélögum tæki þátt í því með
vinnuveitendum að reyna að brjóta
niður verkfall Sleipnis. Hann segist
sakna stuðnings annarra verkalýðs-
félaga.
Flugleiðir sendu í gær frá sér til-
kynningu þar sem fram kom að
vegna hótana um aðgerðir verka-
lýðsfélaga hefði fyrirtækið ákveðið
að hætta akstri með farþega til og frá
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Enn-
fremur segir í tUkynningunni að
Flugleiðir telji sig í fullum lagalegum
rétti til að sinna akstrinum og að að-
gerðir tU að stöðva hann séu ólögleg-
ar. Þá segir að það að akstrinum sé
hætt muni ekki raska rekstri félags-
ins á KeflavUíurflugvelli, en fyrst og
fremst muni þetta hafa í för með sér
óþægindi fyrir þá farþega sem eigi
erfitt um gang, svo og barnafólk,
eldri borgara og fatlaða.
í bréfi sem Sleipnismenn sendu
öðrum verkalýðsfélögum í gær segir
að deila félagsins og atvinnurekenda
sé komin á alvarlegra stig en dæmi
séu um í áratugi. Þar segir ennfrem-
ur að atvinnurekendur hafi fundið
nýtt vopn tU þess að brjóta á bak aft-
ur lögmætar aðgerðir verkalýðsfé-
laga i verkfalli og hafi fjögur fyrir-
tæki fengið lögbann sett á
fullkomlega lögmætar aðgerðir
Sleipnis.
„Þetta þýðir einfaldlega að öll
vopn hafa verið slegið úr höndunum
á verkalýðshreyfingunni og við blas-
ii- gersamlega ný staða fyrir verka-
lýðshreyfinguna í heild,“ segir í bréf-
inu.
Aðspurður hvort kjaradeilan væri
komin á alvarlegra stig en dæmi
væru um í áratugi sagðist Ari
Edwald ekki finna þeim orðum stað.
Atvinnurekendur vildu aðeins að far-
ið væri eftir þeim lögum sem giltu
um framkvæmd verkfalla.
■ Fleiri fyrirtæki / 6
700 námsmenn á skrá Atvinnumiðstöðvar stúdenta
Heldur vandlátari á
störf en verið hefur
/■
ÞITT FE
Maestro HVAR SEM
ÞÚ ERT
ÞRÁTT fyrir gott atvinnuástand eru
enn um 700 námsmenn á skrá hjá At-
vinnumiðstöð stúdenta. Að sögn
Eyrúnar Maríu Rúnarsdóttur,
rekstrarstjóra Atvinnumiðstöðvar-
innar, skrá sig um 10 námsmenn á
hverjum degi nú í júnímánuði, sem
eru í leit að sumarstarfi.
Eyrún sagði að þessar skráning-
artölur væru svipaðar og á sama
tíma á seinasta ári. I Ijósi atvinnu-
ástandsins verði þó að telja að veru-
legur fjöldi námsmanna sé enn að
leita sér að sumarstarfi.
Það sem af er sumri hafa Atvinnu-
miðstöðinni borist beiðnir um 460
sumarstarfsmenn en alls hafa um
200 námsmenn verið ráðnfr í sumar-
störf á vegum miðstöðvarinnar. Ey-
rún sagði að eftirspurn atvinnurek-
enda eftir sumarstarfsmönnum væri
mjög svipuð og í fyrra.
Umönnunarstörf óvinsæl
Að sögn hennar virðast náms-
menn ekki leita eins stíft eftir at-
vinnu nú og á undanfömum árum.
Hún sagði að námsmenn virtust vera
nokkuð vandlátari á störf en verið
hefði og því væri erfiðara að ráða í
ákveðin störf.
„Við verðum vör við að umönnun-
arstörfin eru ekki vinsæl. Það hefur
gengið illa að manna sambýli og elli-
heimili en heldur betur að manna
gai’ðyi-kjustörfin.“
Eyrún sagði að enn væru góðir
möguleikar fyrir atvinnulausa náms-
menn að fá sumarstörf því atvinnu-
rekendur væru enn að leita eftir
starfsfólki. „Það er ekki öll von úti,“
sagði hún.