Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Besta nálg-
ast fremstu
skúturnar
SEGLSKÚTAN Besta hefur dregið
á keppinauta sína í siglingakeppn-
inni milli Paimpol og Reykjavíkur.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær tók áhöfn Bestu það
ráð að sigla mun vestar en keppi-
nautamir og dróst þar af leiðandi
aftur úr og var orðin næstsíðust um
tíma. Samkvæmt upplýsingum á
franskii heimasíðu keppninnar var
Besta hins vegar komin upp í fjórða
sæti í gærmorgun og stefndi á fullri
ferð fram úr skútunum sem þá vom í
öðm og þriðja sæti.
Franska skútan Graviinga var
enn í fyrsta sæti og stefnir því í bar-
áttu Bestu og Graviinga um foryst-
una, eins og í upphafí keppninnar.
Staðan í gærmorgun. Siglinga-
leið Bestu sést lengst til vinstri
og leið frönsku skútunnar næst
henni. Aðrar skútur sigla austar
íþéttum hóp.
Viðræður
á bláþræði
KJARADEILA Bifreiðastjórafé-
lagsins Sleipnis og Samtaka at-
vinnulífsins var á afar viðkvæmu
stigi í gær að afloknum 17 klukku-
stundalöngum fundi, sem stóð yfir
frá kl. 9 á föstudagsmorgun til kl.
2 aðfaranótt laugardags. Boðað var
til annars fundar kl. 14 í gær, laug-
ardag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru viðræðurnar á
bláþræði, en ríkissáttasemjari hef-
ur farið þess á leit við deiluaðila að
þeir greini ekki frá gangi við-
ræðna. Enn ber mikið á milli og er
það mat kunnugra að deilan fari í
enn harðari hnút slitni upp úr við-
ræðum að þessu sinni.
Með Morgunblaðinu í dag er dreift
blaði frá VISA, Visa-póstinum.
Morgunblaðið/Golli
Ráðherramir Sturla Böðvarsson og Charles J. Furey bragða á lambalæri úr trogi á Eiríksstöðum í gærmorgun.
f hlutverki þjóna em Einar Mathiesen sveitarstjóri og Gunnar Björnsson veitingamaður.
Upplifa víkingatímann
Haukadal. Morgunblaðið.
ÁHÖFN víkingaskipsins íslendings
upplifði víkingatímann áður en
skipið fór frá Búðardal í Vínlands-
för sína í gær. Skipverjar borðuðu
þjóðlegan íslenskan mat og kneif-
uðu öl úr homum við langeld í til-
gátubæ Eiríks rauða og Þjóðhildar
á Eirxksstöðum í Haukadal, en þar
er talið að Leifur heppni hafi fæðst.
Viðstaddir vora Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra, Charles J.
Furey, ferðamálaráðherra Ný-
fundnalands, Bjarni Tryggvason
geimfari og fleiri gestir.
Þessi athöfn var hin fyrsta í ný-
reistum skálanum, sem hannaður
er út frá rannsóknum fornleifa-
fræðinga á rústum Eiríksstaðabæj-
arins.
Áhöfn íslendings kom síðan ríð-
andi að skipshlið í nýrri smábáta-
höfn í Búðardal. Eftir athöfn þar
leysti samgönguráðherra landfest-
ar Islendings.
Eftir að skipa stjórn Persónuverndar sem ekki hefur tekið til starfa
Mjölverð á
uppleið
Veiði á
kolmunna
hefur
þrefaldast
KOLMUNNAAFLI er næni
þrefalt meiri það sem af er
þessu ári en á sama tíma í fyrra.
Ætla má að útflutningsverð-
mæti kolmunnaafurða það sem
af er árinu nemi rúmum 600
milljónum króna. Hlé hefur ver-
ið gert á veiðum þar sem skipin
eru farin á síld- og loðnuveiðar.
Markaðir fyrir mjöl og lýsi
eru enn veikir og segir Teitur
Stefánsson hjá Lýsi og mjöli að
verðþróunin hafi alls ekki verið
nægilega góð. „Verðþróunin
hefur verið beint niður en þó
eru nú einhver merki um að
mjölmarkaðurinn sé eitthvað að
jafna sig en því miður sjást eng-
in batamerki á lýsinu."
Verð hækkað
um 1.700 krónur
Samkvæmt vef Fjárfesting-
arbanka atvinnulífsins hefur
verð á „standard-mjöli“ hækk-
að um 1.700 krónur tonnið frá
því um mánaðamótin og er því á
hægri uppleið en verð á tonninu
er um 37.500 krónur. Lýsi hefur
að mestu staðið í stað en verðið
á lýsistonninu er um 18.600
krónur
Um þetta leyti á síðasta ári
var búið að landa 31 þúsund
tonnum, en nú er aflinn um 80
þúsund tonn. Aukning á veiðun-
um milli ára nemur því um 50
þúsund tonnum.
Schengen-upplýsingakerfi
meðal forgangsverkefna
AÐ SÖGN Sigrúnar Jóhannesdótt-
ur, framkvæmdastjóra Tölvunefnd-
ar, bíða tvö stór verkefni afgreiðslu
Persónuvemdar, en sú stofnun mun
taka við verkefnum Tölvunefndar á
þessu ári. Verkefnin eru að meta
öryggiskröfur sem gerðar verða til
upplýsingakerfis vegna Schengen-
samstarfsins og að setja reglur um
lífsýnasöfn. Þessi tvö verkefni
myndu njóta forgangs hjá hinni
nýju stofnun. ísland getur ekki
gerst fullgildur aðili að Schengen-
samstarfinu fyrr en landið er búið
að setja upp upplýsingakerfi og
sérfræðihópur á vegum Schengen
er búinn að leggja mat á kerfið.
Samkvæmt lögum frá Alþingi
verður Tölvunefnd lögð niður og ný
stofnun, Persónuvernd, tekur við
verkefnum hennar. Ekki er búið að
skipa nýju stofnuninni stjórn og hún
er því ekki formlega tekin til starfa.
Ákveðið var þegar lögin um Scheng-
en-upplýsingakerfið vom samþykkt
í vor að Persónuvernd en ekki
Tölvunefnd myndi meta öryggis-
kröfur upplýsingakerfisins. Gagna-
safninu er ætlað að treysta eftirlit á
ytri landamærum Schengen-svæð-
isins og auka samvinnu lögreglu-
yfirvalda ríkjanna til að koma í veg
fyrir og uppræta brotastarfsemi.
í öðrum Evrópulöndum hefur
víða átt sér stað mikil umræða um
þetta kerfi, en í gagnasafninu verð-
ur að finna upplýsingar um afbrota-
menn. Samkvæmt ákvæði Scheng-
en-samningsins verða í
upplýsingakerfinu skráðar upplýs-
ingar um kenninafn og eiginnafn
með vísun til hugsanlegrar sér-
skráningar falskra nafna, sérstök
varanleg líkamleg einkenni, fyrsti
bókstafur annars eiginnafns, fæð-
ingarstaður, fæðingardagur og -ár,
kynferði, ríkisfang, hvort viðkom-
andi er vopnaður, hvort viðkomandi
er ofbeldishneigður, ástæða fyrir
skráningu og aðgerðir sem farið er
fram á.
Aðrar upplýsingar verða ekki
skráðar í upplýsingakerfið jafnvel
þótt þær gætu komið að gagni við að
ná því markmiði sem stefnt er að
með skráningu í kerfið. Kostnaður
við hönnun þessa upplýsingakerfis
er áætlaður 244 milljónir króna.
Inni í þeirri tölu er hönnun hugbún-
aðar og kaup á tækjabúnaði.
Sigrún sagði að það væri gríðar-
mikið verkefni að fara yfir öryggis-
kröfur vegna þessa upplýsingakerf-
is og sama ætti raunar við um það
verkefni að semja reglur um
lífsfynasöfn.
I vetur kom hingað sérfræðinga-
hópur á vegum Schengen til að meta
starf íslands við að ljúka afgreiðslu
mála sem lúta að Schengen-sam-
starfinu og eru á verksviði íslenskra
stjórnvalda.
Eitt af því sem hópurinn gagn-
rýndi var að ekki væri búið að ljúka
vinnu við gerð upplýsingakerfisins.
Sambærilegar athugasemdir voru
gerðar við stjórnvöld á öðrum Norð-
urlöndum. Island er enn aðeins
áheyrnarfulltrúi að Schengen-sam-
starfinu þar sem ísland uppfyllir
ekki lágmarkskröfur sem gerðar
eru til þátttökuþjóðanna.
Áfram mikil skjálftavirkni
VIRKNI var áfram mikil á jarð-
skjálftasvæðinu á Suðurlandi í
fyrrinótt og segir Vigfús Eyjólfs-
son jarðeðlisfræðingur að um 600
smáskjálftar hafi orðið frá mið-
nætti á föstudag til hádegis í gær.
Stærsti skjálftinn varð í Bláfjöllum
um kl. 4:30 aðfaranótt laugardags,
2,5 á Richter.Virknin er stöðug, en
hún hefur nokkuð færst úr Tung-
unum vestur að Miðdalsfjalli.
Kortið er fengið af vef Veður-
stofunnar, http://www.vedur.is/ja/
skjalftar/svest.html, og uppfærist
sjálfvirkt á hálftíma fresti. Dökk-
rauðir punktar tákna nýjustu
skjálftana og dökkbláir þá elstu.
Elstu skjálftarnir urðu 48 tímum
fyrir útgáfu kortsins um hádegi í
gær.
-225* -ZZ* -215* -21* -2DÆ* -20* -105*
644*
642*
64*
636*
636*
-225* -22* 215* -21* -205* -20* -195*
ísn, v. r"V ? ' •',<r
O 10 20 %
m . jþd > y
644
642
64*
" ■*■' .............*»-....
636
V*ðurstofa islands
2000-06-2413:46
:7llllir
0 4 8 121620»
Aldur(klst) leae