Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 11
V
w
w
ý
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Dr. Ragnar Sigbjörnsson, prófessor og forstöðumaður Rannsóknarstofnunar Háskóla íslands í jarðskjálftafræðum.
birtar í fjölmiðlum. Auk þess voru
teknar saman það sem Ragnar
kallar sértækar íeiðbeiningar. Þær
leiðbeiningar hafi einkum verið
nánari ábendingar til þess að auð-
velda viðkomandi húseigendum
framkvæmd úrbóta. „Allir þeir sem
í úrtakinu voru fengu sendar sér-
tækar leiðbeiningar, ásamt þeim al-
mennu, en eins og gefur að skilja
eru slíkar sértækar leiðbeiningar
einkamál hvers og eins á sama hátt
og sjúkraskrár lækna.“ Bendir
hann á að það hafi síðan verið í
valdi hvers og eins að fara eftir
leiðbeiningunum.
Ragnar segir að einnig hafi verið
haldnir fundir með sveitarstjórnar-
mönnum til þess að kynna þeim
verkefnið og niðurstöður þess, en
jafnframt hringt í þátttakendur og
þeir beðnir um að skýra frá því
hvort þeir hefðu farið eftir þeim
leiðbeiningum sem þeim hafi verið
gefnar. I ljós kom, segir Ragnar,
að það höfðu flestir gert að öllu
leyti eða að hluta.
Þess ber að gera að SEISMIS-
verkefninu var hrundið af stað að
frumkvæði prófessors Þorsteins I.
Sigfússonar hjá Háskóla íslands og
heimamönnum í héraði. „Ber þar
sérstaklega að nefna Friðjón Guð-
röðarson sýslumann, fremstan
meðal jafningja," segir Ragnar.
Verkefnið var mótað í samráði við
jarðvísindamenn, almannavarna-
nefndir í héraði, Samtök sunn-
lenskra sveitarfélaga, Verkfræði-
stofu Suðurlands og Almannavamir
ríksins, en fjármagnað að verulegu
leyti af Viðlagatryggingu íslands
og Rannsóknarráði Islands. Einnig
var við verkefnið leitað fanga hjá
erlendum sérfræðingum bæði í
Japan og Bandaríkjunum. Voru
niðurstöður þess kynntar á alþjóð-
legri ráðstefnu í París 1998.
Þátttakendur ánægðir
með verkefnið
Ragnar segir að nú þegar Suður-
landsskjálftinn sé að ríða yfir sé
ekki úr vegi að fylgja verkefninu
eftir og kanna m.a. hvort fólk hafi
farið eftir þeim ráðleggingum sem
þeim hafi verið gefnar og meta
hvort þær hefðu skilað árangri. Þá
sé ástæða til að bera saman þá sem
fóru eftir leiðbeiningum verkefnis-
ins og þá sem ekki fóru eftir þeim.
Telur Ragnar að með því að fara út
í slíka rannsókn nú í kjölfar jarð-
skjálftanna megi leggja mat á það
hvað forvarnir á borð við þær sem
verkefnið hafi lagt áherslu á geti
haft mikinn sparnað og jafnvel fjár-
hagslegan ávinning í för með sér.
Þegar Ragnar er spurður um
ástand húsa á svæðinu eftir jarð-
skjálftana á Suðurlandi að undan-
förnu kveðst hann þess fullviss að
verr hefði farið hefði umrætt verk-
efni um viðbúnað og vamir gegn
jarðskjálftum ekki komið til. Segir
hann í þessu sambandi að ýmsir
þátttakendanna hefðu hringt til
hans síðustu daga og þakkað þær
ábendingar sem þeir hefðu fengið á
sínum tíma. Dæmið um bakaraofn-
inn sem fyrr var minnst á sé aðeins
eitt af mörgum. Hann segir enn
fremur að húsin á svæðinu hafi
reyndar staðist ótrúlega vel þá
áraun sem þau hefðu orðið fyrir í
jarðskjálftunum og það sama mætti
segja um brýr á svæðinu, svo sem
Þjórsárbrú, en hún hefði ekki stað-
ist álagið hefðu svokallaðar jarð-
skjálftalegur ekki verið settar und-
ir hana. Þær voru hannaðar af
Einari Hafliðasyni hjá Vegagerð-
inni og dr. Bjama Bessasyni hjá
Rannsóknarmiðstöðinni.
Ragnar tekur fram í umræðu um
þetta efni að vafamál sé hvort rétt
sé að gera við þau hús sem illa hafi
farið út úr jarðskjálftanum, einkum
þegar um er að ræða eldri hús
byggð úr óbentri steinsteypu eða
hlaðin. Minnir hann á í þessu sam-
bandi að ævilengd húsa í „verk-
fræðilegu hönnunarsamhengi,“ eins
og hann orðar það, sé að jafnaði
ekki nema rétt rúm fimmtíu ár.
„Viðhald á gömlum húsum er dýrt
og þegar við bætast skemmdir
vegna jarðskjálftans er matsatriði
hvort það borgi sig ekki að byggja
nýtt í staðinn.“
Fylgir jarðskjálfti í kjölfarið
á Norðurlandi ?
Ragnar fjallar að síðustu í sam-
tali við blaðamann um áhrif jarð-
skjálftans á Suðurlandi á önnur
jarðskjálftasvæði á landinu. „Sagan
hefur kennt okkur að jarðskjálftar
á Suðurlandi og jarðskjálftar á
Norðurlandi fylgjast gjaman að.
Flestum ef ekki öllum er nú kunn-
ugt um jarðskjálftann á Suðurlandi
árið 1912 en ekki svo margir muna
eftir jarðskjálftanum 1910. Sá jarð-
skjálfti átti upptök sín djúpt norður
af Tjörnesi og er hann sá stærsti
sem mælst hefur í kringum ís-
land.“
Ragnar bendir á að meginjarð-
skjálftasvæði á íslandi séu á
Suðurlandsundirlendinu og undan
strönd Norðurlands og segir að
þegar orka leysist úr læðingi á öðr-
um staðnum magni það orkuna á
hinum. „Þegar aukin jarðskjálfta-
virkni er hér fyrir sunnan gerist
alla jafna eitthvað fyrir norðan.
Kannski ekki alveg strax en að
jafnaði áður en langt um líður.“
Ragnar vill með þessu ekki vekja
ugg meðal Norðlendinga en telur
þó ástæðu til að benda á þetta
þannig að þeir hafi allan varan á og
taki leiðbeiningar um varnir og við-
búnað gegn jarðskjálftum ekki síð-
ur til skoðunar en Sunnlendingar.
Hluti þeirra leiðbeininga er birtur
hér fyrir neðan á opnunni.
festir í hlaðna milliveggi. Mælt er með
að festa þá þannig að ekki sé hætta á
að þeir falli niður. Til dæmis með því
að festa þá upp í steinsteypt loft eða
burðarsperrur í tréþaki. Oryggislæs-
ingar (bamalæsingar) á skápum
koma í veg fyrir að hlutir, svo sem
glös og leirtau, falli niður á gólf.
Hættuleg efni og þunga hluti skal
ávallt setja í neðstu hillur á skápum
með öryggislæsingum ef þörf krefur.
Þvottavél og þurrkara ber að festa
tryggilega. Þvottavél sem færist úr
stað eða veltur getur rofið vatnslögn
og valdið vatnsskaða. Vanda skal
frágang festinga þar sem þurrkari
stendur uppi á þvottavél.
Baðherbergi
Hætta í baðherbergi stafar einkum
af glerbrotum. Speglar, glerhurðir á
sturtuklefum, flöskur fyrir snyrtivör-
ur og lyf geta brotnað. Æskilegt er að
nota umbúðir úr plasti og „óbijótan-
legt“ gler eftir því sem við verður
komið.
Komið snyrtivömm og meðulum í
glerumbúðum þannig fyrir að þessir
hlutir geti ekki dottið, t.d. í tryggilega
festum skáp með öryggislæsingu
(bamalæsingu).
Stofa, borðstofa
og sjónvarpsherbergi
Hillur og skápa ber að festa tryggi-
lega í burðarveggi. Munir í hillum
skulu staðsettir þannig að þeir geti
ekki fallið á þann sem situr nálægt
þeim, t.d. fyrir framan sjónvarp. Setj-
ið þunga hluti ávallt í neðstu hillumar.
Æskilegt er að hurðir í skápum séu
með öryggislæsingu (bamalæsingu),
einkum ef glermunir eru geymdir í
þeim. Stór málverk og myndir á
veggjum ber að hengja á króka eða
jámfestingar. Nauðsynlegt er að
gæta að hvort festing í veggnum er
næg og hvort vírinn eða þráðurinn í
myndinni er nógu sterkur. Ganga
skal þannig frá, til dæmis með
öryggislykkju, að þráðurinn losni
ekki af króknum eða myndin hristist
ekki af festingunni.
Ljósakrónur skal festa tryggilega
og nota skal öryggislykkju til að
vama því að þær geti losnað af krókn-
um. Sjónvarpstæki og tölvur er æski-
legt að festa sem og hljómflutnings-
tæki en þau síðamefndu er æskilegt
að hafa neðarlega í hillum.
Gangar
ogforstofur
Tryggið að útgönguleiðir séu greið-
ar. Forðist að setja hluti á ganga eða í
forstofu þar sem þeir geta valdið slys-
um eða lokað útgönguleiðum.
Geymsla og bílskúr
Hillur í geymslum skal festa þannig
að þær velti ekki. Enn fremur skal
ganga frá hlutum í geymslu þannig að
Morgunblaðið/RAX
Mikilvægt er að tryggja að útgönguleiðir í hiisum geti verið greiðar.
þeir detti ekki og torveldi að nálgast
búnað sem þarf að nota í kjölfar jarð-
skjálfta.
Ganga skal þannig frá hlutum í bíl-
skúr að ekki sé hætta á að þeir detti á
bíl sem er inni í bílskúmum. Ekki er
ráðlegt að hengja hluti fyrir ofan bíl-
inn. Skápa og hillur skal festa tryggi-
lega og setja skal þunga hluti, hættu-
leg efrd og málningu í neðstu
hillumar. Notið öryggislæsingar
(bamalæsingar) ef nauðsyn krefur.
Mælt er með því að láta bfla að jafn-
aði standa úti fremur en inni í bílskúr,
einkum í þeim tilvikum þar sem bfl-
skúrinn er ekki traustlega byggður.
Enn fremur skal forðast að láta bfla
standa nálægt húsi þar sem hætta er
á að þeir geti skemmst vegna hmns.
Viðbúnaður
Mælt er með því að heimilisfólk
kynni sér leiðbeiningar um viðbrögð í
jarðskjálfta frá Almannavömum
rfldsins, sem m.a. er að finna í síma-
skránni. Þá er m.a. mælt með því að
heimilisfólk sem hefur aldur til viti
hvar aðalrofi fyrir rafmagn er stað-
settur og viti hvar unnt er að loka fyr-
ir kalda og heita vatnið inn í húsið.
Auk þess er mælt með því að heimilis-
fólk kynni sér hvert á að tilkynna um
slys eða eldsvoða og kynni sér hvar
næsta hjálparstöð er en á neyðartím-
um eru það skólabyggingar á ömggu
svæði.