Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 14

Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR KR-ingar eiga gctða „ÉG tel að KR-ingar eigi góða möguleika að hafa betur gegn Bir- kikara í Evrópukeppninni, en til þess þurfa þeir bæði að leika fast og vera sókndjarfir. Það er talsverður munur á knattspyrnunni á Möltu og á íslandi. Hér eru knattspyrnumenn líkamlega sterkari en á Möltu eru menn með meiri boltatækni," sagði Velemir Sarg- ic frá Júgóslavíu og knattspyrnuþjálfari í Keflavík um möguleika vesturbæjarliðs KR í Evrópukeppninni. Velemir þjálfaði yngri flokkana í Keflavík í nokkur ár en fór þá til Möltu þar sem hann var lands- liðsþjálfari ung- mennalandsliða í tvö Björn og hálft ár og þekkir Blöndal því vel til þar á bæ. Hann er nú kominn aftur til Keflavíkur og tekinn við fyrra starfi. Velemir sagði að Birkikara væri bæði öflugasta og ríkasta félagslið- ið á Möltu um þessar mundir og væri yfirburðalið. Liðið hefði tekið þátt í Toto-keppninni undanfarin þrjú ár en aldrei komist áfram. Birkikara hefði styrkt lið sitt veru- lega fyrir keppnina nú og væri helmingur leikmanna erlendur. Hann sagði að styrkur liðsins fæl- ist í sterkum miðvallarleikmönnum og góðum framherjum. Þar af væri leikmaður frá Nígeríu sem nú væri kominn með ríkisborgararétt á Möltu. Markmaðurinn sem væri frá Júgóslavíu væri einnig mjög góður. Veiki hlekkurinn væri vörnin. „Þeir leika ýmist með einn eða tvo menn í sókn og eru mjög góðir í skyndisóknum. Á þessu þurfa KR- ingar að gæta sín. Heimavöllurinn þeirra gæti orðið KR-ingum erfið- ur vegna veðráttunnar og sterkum stuðningsmannahópi sem styður sína menn af miklu afli. Það er mik- ill hiti á Möltu ojg hitastigið trúlega um 30 gráður. Eg ráðlegg KR-ing- um líka að velja sér hótel með loft- kælingu þegar þeir fara til Möltu,“ sagði Velemir Sargic ennfremur. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Velemir Sargic frá Júgóslavíu og knattspyrnuþjálfari í Kef lavík þekkir vel til á Möltu þar sem hann þjálfaði 12 og Vz ár áður en hann kom hingað til lands að nýju I febrúar. Oft er fjör í Eyjum Stórleikur 8. umferðar íslands- mótsins verður háður í Vest- mannaeyjum í dag kl. 14, en þá koma íslands- og bikarmeistarar KR þangað í heimsókn. Annað kvöld, mánudag, verða þrír leikir leiknir. Þá eigast við Keflavík - ÍA, Fylkir - Grindavík og Stjarnan - Breiðablik. Hásteinsvöllur, 8. umferð, sunnu- daginn 25. júní kl. 14. Dómari: Gylfi Þór Orrason. Aðstoðardómarar: Haukur Ingi Jónsson og Magnús Þórisson. ÍBV: Færeyski sóknarmaðurinn Allan Mörköre er meiddur og óvíst hvort hann verði búinn að ná sér þegar leikurinn hefst annað kvöld. KR: Allir Vesturbæingar tilbúnir í Eyjaferð. Fyrri leikir: Eyjamenn og KR- ingar hafa leikið 56 leiki frá því þeir mættust á fyrsta íslandsmótinu árið 1912. KR hefur unnið 28 leiki, ÍBV 16 en 12 háfa endað með jafntefli. KR hefur skorað 107 mörk en ÍBV 73. ■ ÍBV vann KR í fyrsta skipti árið 1971 eftir að hafa tapað 10 sinnum og gert 2 jafntefli í 12 fyrstu viðureign- unum. ■ ÍBV hefur unnið fjóra af síðustu fimm deildaleikjum liðanna en KR vann þann síðasta, 3:0, á KR-vellin- um í fyrra þar sem úrslitin réðust nánast á íslandsmótinu. ■ Aðeins tvö jafntefli hafa litið dagsins ljós í síðustu 18 viðureignum liðanna í efstu deild. Fylkir - Fylkisvöllur, 8. umferð, mánudaginn 26. júní kl. 20. Dómari: Pjetur Sigurðsson. Aðstoðardómarar: Erlendur Eir- íksson og Guðmundur Jónsson. Fylkir: Sævar Þór Gíslason laus úr leikbanni og allir leikmenn heilir. Grindavík: Sinisa Kekic laus úr leikbanni. Zoran Djuric er eitthvað meiddur en búist er við að hann verði tilbúinn á mánudaginn eins og aðrir leikmenn Grindvíkinga. Fyrri leikir: Fylkir og Grindavík hafa aðeins einu sinni áður verið samtímis í efstu deild, árið 1996. Grindavík vann þá í Árbænum, 2:1, en Fylkir vann síðan í Grindavík, 4:2. ■ Sinisa Kekic, sem á markamet Grindvíkinga í efstu deild, skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið gegn Fylki í Árbænum, í sínum íyrsta leik með Grindavík. ■ Kristinn Tómasson skoraði þrennu fyrir Fylki í síðari leik lið- anna í Grindavík 1996. Keflavík - Keflavíkurvöllur, 8. umferð, mánu- daginn 26. júní kl. 20. Dómari: Egill Már Markússon. Aðstoðardómarar: Garðar Öm Hinriksson og Einar Sigurðsson. Keflavík: Kristján Brooks er búinn að ná sér eftir meiðsli og verð- ur með sem og aðrir leikmenn. ÍA: Uni Arge laus úr leikbanni og allir heilir nema Sigurður Jónsson á við smávægilega tognun í læri að stríða. Fyrri leikir: IA hefur unnið 40 af 69 viðureignum liðanna í efstu deild. Keflavík hefur unnið 19 og 10 hafa endað með jafntefli. IA hefur skorað 146 mörk en Keflavík 84. ■ Skagamenn hafa aðeins tapað tvívegis í 14 heimsóknum til Kefla- víkur frá 1983. Keflavík vann í fyrra, 2:0, og 2:1 árið 1994. ■ Skagamenn eiga líka ljúfar minningar frá fyrri tíð í Keflavík því þar tryggðu þeir sér íslandsmeist- aratitilinn með 2:1 sigri undir lok tímabilsins 1970. Stjarnan - hhéíé iða Stjörnuvöllur, 8. umferð, mánudag- inn 26. júní kl. 20. Dómari: Ólafur Ragnarsson. Aðstoðardómarar: Einar Örn Daníelsson og Eyjólfur M. Kristins- son. Stjarnan: Vladimir Sandulovic og Goran Kristófer Micic þjálfari í banni. Allir aðrir tilbúnir í þennan mikilvæga leik. Breiðablik: Marel Baldvinsson og Andri Marteinsson eru meiddir og Salih Heimir Porca er tæpur en verður líklega tilbúinn í leikinn. Fyrri leikir: Breiðablik hefur unn- ið 3 af 6 leikjum liðanna í efstu deild, Stjaman tvo og einn hefur endað með jafntefli. Breiðablik hefur skor- að 11 mörk en Stjaman 8. ■ Breiðablik hefur ekki tapað í Garðabæ í efstu deild, unnið tvisvar og síðast, árið 1996, gerðu liðin jafn- tefli, 3:3. Teitur vill breytingar hjá Norð- mönnum SLAKUR sóknarleikur norska landsliðsins á EM f knatt- spyrnu er vinsælt umræðuefni í norskum fjölmiðlum þessa dagana. Teitur Þórðarson þjálfari Brann hefur ákveðnar skoðanir í þeim efnum. Varnarleikur liðsins er mjög góður og við getum ekki horft fram hjá því. En það er virkilega kominn tími til að huga að sóknarleiknum. Það verður að gefa einstökum leikmönnum tækifæri til að nota þá hæfileika sem þeir búa yfir. Að mfnu mati ætti að ieggja meiri áherslu á að halda boltanum innan liðsins og setja í gang hraðar sóknir þegar tækifæri gefast." Þetta sagði íslenski þjálfarinn í við- tali við netmiðil Verdens Gang. Teitur bætti því við að norska liðið sé svarti sauður- inn á EM og önnur lið í úr- slitakeppninni hafi lagt áhersiu á að leika sóknarleik sem skemmti áhorfendum. „Noregur hefur ekki tekið þátt í þeirri veislu sem önnur lið hafa boðið upp á hvað varðar sóknarleik. Það virðist sem leikstíll iiðsins sé á góðri leið með að eyðileggja þá ímynd og stöðu sem norska knattspyrnan hefur skapað sér síðastliðinn áratug.“ Norski þjálfarinn Áge Har- eide, sem þjálfaði meistaralið Helsingborgar í Svíþjóð og er nú við stjórnvölin hjá danska liðinu Bröndby, segir: „Það er eins og við Norðmenn trúum því að Drilio liafi fundið upp knattspyrnuna á sfnum tíma. Eftir að Egil „Drillo“ Olsen kom Noregi á knattspymu- kortið höfum við ekki gert mikið til að þróa leikstíl okk- ar. Eg er ekki stuðningsmað- ur langspyrnustflsins og það er hægt að ná árangri með öðrum Ieikaðferðum.“ Fleiri norskir þjálfarar taka í sama streng og þeir Teitur og Har- eide. Það er því ljóst að erfið verkefni bíða Iandsliðs- þjálfarans Nils Johan Semb.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.