Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 20

Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Setga sig í spor for- feðranna / A námskeiðinu Sagan í landslaginu sem haldið er í sumar skoða 11-14 ára börn ýms- ar minjar bæði á söfnum og úti í náttúrunni. Þannig fræðast þau um forna starfshætti og búsetuþróunina í Reykjavík. Eyrún Bald- ursdóttir hitti hóp krakka á Listasafni Sig- 7 urjóns Olafssonar og komst að því að þeir hafa brennandi áhuga á viðfangsefninu. „VIÐ heimsækjum nokkra staði sem búa yfir leyndardómum," út- skýrir Birgitta Spur forstöðumaður Listasafns Sigurjóns Ólafssonar sem staðsett er á Laugarnesi. „Laugarnes er einn þeirra en við höfum einnig farið á Seltjarnarnes- ið og ætlum út í Viðey á morgun. Allir þessir staðir hafa að geyma ákaflega margar minjar um búsetu fyrr á öldum.“ Á sumarnámskeiðunum Sagnn í landslaginu - náttúra, búseta, minj- ar og list eru böm á aldrinum 11-14 ái-a frædd um áhrif búsetu á lands- lag og hvernig lesa megi úr náttúr- unni þróun frá sjálfsþurftarbúskap að borgarsamfélagi. Þau skoða ýmsar minjar í söfnum borgarinnar og fræðast þannig um forna at- vinnuhætti. Einnig skoða þau nátt- úruna með rannsakandi augum, bera kennsl á tóftir og annað sem sýnir með áþreifanlegum hætti byggðarþróun í landinu. Samkvæmt Birgittu er reynt að gera börnunum ljóst hversu mikilvægt sé að hlúa að svæðum sem bera sögunni vitni. Að námskeiðinu standa Árbæjar- safn, Minjasafn Reykjavíkur, Nes- stofusafn, Viðey-staðarhaldari, Náttúrufræðistofnun íslands og Listasafn Sigurjóns Ólafssonar sem er í forsvari. Verkefnið er á dagskrá Reykjavík-menningarborg Evrópu árið 2000. Lækningaminjasafnið vakti sterk viðbrögð Námskeiðin eru hvert í fimm virka daga frá 9-16. Það fyrsta var í byrjun júní og það síðasta verður í ágúst. Mikið er um að vera á hverj- um degi og að sögn hópstjórans Sigríðar Birnu Valsdóttur eru krakkarnir mjög áhugasamir. „Þeg- ar þau skoða minjamar upplifa þau tenginguna við liðna tíma á mjög raunverulegan hátt.“ Alexander Kristinsson 10 ára tel- ur að það hafi verið frekar rólegt í Reykjavík í gamla daga. „Ég hefði alveg verið til í að búa á íslandi á þessum tíma en bara ekki við lækn- ingarnar,“ segir hann og vísar til þess þegar hópurinn heimsótti Læknaminjasafnið í Nesstofu. „Þær voru frekar óhugnanlegar í gamla daga og ég vil helst ekki segja frá því af því að þá mynduð þið fá ógeð.“ Ékki upplifðu þó allir lækn- ingaaðferðimar með þessum hætti og sumir höfðu meira að segja trú á ýmsum óhefðubundnum aðferðum. Viggó Helgi Viggósson 12 ára sagð- ist hafa fundið mikinn mun á sér eftir að hafa bragðað vallhumal sem Sigríður Bima sauð fyrir krakkana og þegar hann var spurður til hvers hann væri notaður var svarið: „Hann á að vinna gegn leti og svefnleysi." Gömlum vinnuaðferðum kynntust börnin m.a. á Árbæjarsafninu og gátu þau barið augum verkfæri sem notuð vom þegar sjálfsþurftarbú- skapur var við lýði. Sigríður Birna segir að þar hafi krakkarnir fengið að spreyta sig en þau saumuðu litla roðskinnskó og máttu taka með sér heim. I Árbæjarsafninu vom þau einnig frædd um þróunarsögu Reykjavík- ur á sýningunni Frá býli til Borgar. „Við höfum lært rosalega mikið um menninguna í Reykjavík í gamla daga. Fullt af því sem við höfum lært em hlutir sem ömmur okkar og afar vita ekkert um,“ sagði Vig- gó Helgi sem sýnt hafði fjölskyld- unni sinni roðskinnskóna. Um ævisögur og annað Reykjavíkurborg er á námskeið- inu skoðuð með nokkuð nýjum áherslum og em krakkarnir fengnir til að ímynda sér hvernig umhorfs var þar fyrir mörgum ámm. Flest y^TA-2000 Sunnudagur 25. júní \ REYKJAVÍK Kappsigling lceland Skippers KappsigHng frá Paimpol á Bretaníu- skaga til Reykjavíkur með þátttöku íslendinga. Eftir 1300 sjómílna sigl- ingu frá Paimpol er áætlað að fyrstu bátarnirkomi inn til Reykjavíkurí dag. Siglt verðurfrá Reykjavík 5-júlí en keppninni lýkurekki fyrren sigur- vegarinn hefur náð aftur landi í Paimpol. HALLGRÍMSKIRKJA KL. 20 Kammerkórinn Jubilate Hinn margverðlaunaði finnski kammerkór Jubilate flytur kveðjur frá menningarborginni Helsinki til Reykjavíkur. Kórinn heldurtvenna tónleika á íslandi, þeir síðari verða á morgun í Reykholtskirkju. LISTASAFN REYKJAVÍKUR KL. 14-16 HAFNARHÚS - Lífið við sjóinn Samsýningu menningarborganna þriggja, Reykjavíkur, Bergen og Santiago de Compostella, ogeyjar- innar Tatihou við strendur Normandí lýkur í dag en þar er lögð áhersla á fiskveiðar og siglingar á 20. öldinni og mikilvægi þeirra fyrir efnahag og afkomu hverrar borgar. í tilefni loka- dagsins veröa harmonikkutónleikar millikl. 14ogl6. REYKJAVÍKURHÖFN. KL. 15 m/s Nordwest - Fólk og bátar í norðri Um borð er fljótandi farandsýning, Morgunblaðið/Jim Smart Hópurinn skoðaði ýmis söfn í Reykjavík. Hér eru þau í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Morgunblaðið /Amaldur Þær Halldóra Magnúsdóttir, Elfa Marita Ágústsdóttir og Ester Viktors- dóttir höfðu gaman af ratleiknum í Laugarnesi. komust að þeirri niðurstöðu að lík- lega hefði allt verið miklu rólegra og minna um hávaða og mengun. Þeim finnst áhugavert að fólk hafi þurft að ganga allt sem það fór og einnig að það þurfti að þvo þvottinn sinn í laugum. Krakkarnir heimsóttu mörg lista- söfn í borginni, þau fóra einnig í kirkjugarðinn og fundu leiði Vöku- mannsins og annarra sem uppi vom fyrir löngu síðan. Hvert þeirra átti að velja sér leiði og skrifa ævisögu þess sem þar hvíldi. „Faðir hans Sigurðar var trésmiður og tók hann við verkstæðinu eftir hans tíma,“ ritar einn framtíðarrithöfundurinn í hópnum. „Hann kynntist konu sinni, Guðrúnu Gunnarsdóttur sem við skulum kalla Rúnu. Þau giftust árið 1894. Uppáhaldsstaðurinn þeirra var kærleiksstígur. Verk- stæði Sigga gekk vel og hann var frábær trésmiður. Þau eignuðust fjögur börn, algjörir englar þau Só- ley, Fjóla, Rósa og Fífill. Sigurður Guðmundsson dó 1949.“ Á námskeiðinu er lögð áhersla á að virkja hugmyndaflug og skap- andi hæfileika þátttakenda og er kynning og fræðsla samofin einföld- um verkefnum og leikjum. í heim- sókn sinni á Listasafn Sigurjóns Ólafssonar fóm krakkarnir niður í fjöm og týndu steina sem þau svo máluðu á grasinu framan við safnið. „Við reynum að ná fram þeirri mynd sem steinninn hefur þegar mótað og notum litina til að leggja áherslu á það sem fyrir er í stein- um,“ segir Þuríður Sigurðardóttir söngkona og myndlistarnemi sem aðstoðar við námskeiðið. Þuríður ólst upp í Laugarnesi en þar var sleitulaust byggð frá fyrstu tíð. Hún bjó í 36 fermetra húsi ásamt for- Áætiað er að fyrstu bátarnir í Sigl- ingakeppninni Paimpol komi til Reykjavíkur í dag sýning með einstöku safni báta frá Noróurlöndunum, Eistlandi ogHjalt- landseyjum. í dag flytur Ágúst Georgsson frá Sjóminjasafni íslands fyrirlestur um síöasta skipasmiðinn í Engey en að þvi loknu verðurgengið um sýninguna undir leiðsögn Pár Stolpe, sýningarstjóra frá Sjó- minjasafninu í Stokkhólmi. íslenskur túlkur verður á staðnum. AKUREYRI - L2000 Lokadagur hinnar alþjóölegu leiklist- arhátíðar L2000 sem haldin er á Ak- ureyri. www.tv.is/bii/L2000 wap.olis.is Mánudagur 26. júní REYKHOLTSKIRKJA KL. 21. Kammerkórinn Jubilate Síðari tónleikar hins margverðlaun- aða finnska kammerkórs Jubilate, sem flytur kveðjur frá menningar- borginni Heisinki til Reykjavíkur. REYKJAVÍKURHÖFN KL. 18 ms. Nordwest - Fólk og bátar í norðri Sýningin erfljótandi farandsýning um borð í flutningaskipinu M/S Nordwest - spennandi sýning með einstöku safni báta frá öllum Norður- löndum, Eistlandi og Hjaltlandseyj- um. Flutningaskipið Nordwest heim- sækir í sumar ellefu hafnir í sex löndum. í dag verður leiðsögn um sýninguna. wap.olis.is. eldrum sínum og fimm systkinum og kveður þau krakkana löngum hafa leikið sér í nátturúnni og velt vöngum yfir því hvernig fornmenn bjuggu. „Við vomm alltaf að leita að gröf Hallgerðar langbrókar en hún átti að vera grafin hér í vígðri mold. Hún er sögð hafa verið borin til grafar með gríðarlegt höfuðskraut og það langaði okkur svo að finna,“ segir Þuríður sem enn hefur ekki haft árangur sem erfiði við þá eftir- grennslan. Krakkarnir sáu ýmsar kynja- myndir út úr steinunum og freist- uðu þess að skerpa áherslurnar með litunum. Sumir sáu út úr stein- unum hjörtu og hús, aðrir karla en einn sá tvær „partýtýpur" sem hann skreytti með viðeigandi lita- dýrð og glimmeri. Eftir föndrið fóm krakkamir svo í ratleik um Laugarnessvæðið. Við hverja stöð vom þær Þuríður, Sig- ríður Birna eða Birgitta og upp- fræddu krakkana um kennileiti og annað og notuðu þannig leikinn sem kennslutæki. Læra að skoða „búsetulandslag" Birgitta, forstöðumaður Lista- safns Sigurjóns Ólafssonar, á hug- mynd að námskeiðinu en það mun vera nokkuð frábragðið þeim sem í boði em um þessar mundir fyrir unglinga. Hún segist lengi hafa haft áhuga á hugmyndafræðinni sem býr að baki hugtaksins búsetu- eða menningarlandslag, þar sem lögð er áhersla á að skoða minjar sem hluta af stærri heild. Hún telur mikilvægt að vernda þá staði sem bæði geyma söguna og bera gamalli menningu vitni og til þess að geta lesið í lands- lagið verði að varðveita heildina en ekki einstaka afkima þess. „Það er mjög mikilvægt að fræða fólk um þessa staði. Ef fólk veit aðeins meira um aðstæður era minni líkur á að hróflað verði við þessum svæð- um. Það er viss ögmn í því að draga unga fólkið inn í þessar vangaveltur því þau skynja líka árekstra milli borgarsamfélagsins og minjasvæða fyrri tíma“ Krökkunum var tíðrætt um þá ferð sem áætluð var daginn eftir. Áfangastaðurinn var Viðey en þar stóð til að fræðast um fornleifaupp- gröft og rannsóknir á fomminjum staðarins og höfðu þau fengið leyfi til að mæla tóftir með tækjum forn- leifafræðinganna. Viðeyjarferðin verður jafnframt á lokadegi nám- skeiðsins og þar verður einnig grill- að. Krakkarnir bentu á það væri nauðsynlegt að segja frá því hvar minjar em í landslaginu. „Ef það er ekki búið að segja manni frá því þá tekur maður ekki eftir þessu,“ sagði eitt þeirra. Öll vora þau nokkuð viss um að þau myndu horfa öðmm aug- um á náttúmna í kjölfar námskeiðs- ins og bjuggust við því að skima eft- ir gömlum tóftum á ferðalögum með fjölskyldunni um landið í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.