Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Setga sig
í spor for-
feðranna
/
A námskeiðinu Sagan í landslaginu sem
haldið er í sumar skoða 11-14 ára börn ýms-
ar minjar bæði á söfnum og úti í náttúrunni.
Þannig fræðast þau um forna starfshætti og
búsetuþróunina í Reykjavík. Eyrún Bald-
ursdóttir hitti hóp krakka á Listasafni Sig-
7
urjóns Olafssonar og komst að því að þeir
hafa brennandi áhuga á viðfangsefninu.
„VIÐ heimsækjum nokkra staði
sem búa yfir leyndardómum," út-
skýrir Birgitta Spur forstöðumaður
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar
sem staðsett er á Laugarnesi.
„Laugarnes er einn þeirra en við
höfum einnig farið á Seltjarnarnes-
ið og ætlum út í Viðey á morgun.
Allir þessir staðir hafa að geyma
ákaflega margar minjar um búsetu
fyrr á öldum.“
Á sumarnámskeiðunum Sagnn í
landslaginu - náttúra, búseta, minj-
ar og list eru böm á aldrinum 11-14
ái-a frædd um áhrif búsetu á lands-
lag og hvernig lesa megi úr náttúr-
unni þróun frá sjálfsþurftarbúskap
að borgarsamfélagi. Þau skoða
ýmsar minjar í söfnum borgarinnar
og fræðast þannig um forna at-
vinnuhætti. Einnig skoða þau nátt-
úruna með rannsakandi augum,
bera kennsl á tóftir og annað sem
sýnir með áþreifanlegum hætti
byggðarþróun í landinu. Samkvæmt
Birgittu er reynt að gera börnunum
ljóst hversu mikilvægt sé að hlúa að
svæðum sem bera sögunni vitni.
Að námskeiðinu standa Árbæjar-
safn, Minjasafn Reykjavíkur, Nes-
stofusafn, Viðey-staðarhaldari,
Náttúrufræðistofnun íslands og
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar sem
er í forsvari. Verkefnið er á dagskrá
Reykjavík-menningarborg Evrópu
árið 2000.
Lækningaminjasafnið vakti
sterk viðbrögð
Námskeiðin eru hvert í fimm
virka daga frá 9-16. Það fyrsta var í
byrjun júní og það síðasta verður í
ágúst. Mikið er um að vera á hverj-
um degi og að sögn hópstjórans
Sigríðar Birnu Valsdóttur eru
krakkarnir mjög áhugasamir. „Þeg-
ar þau skoða minjamar upplifa þau
tenginguna við liðna tíma á mjög
raunverulegan hátt.“
Alexander Kristinsson 10 ára tel-
ur að það hafi verið frekar rólegt í
Reykjavík í gamla daga. „Ég hefði
alveg verið til í að búa á íslandi á
þessum tíma en bara ekki við lækn-
ingarnar,“ segir hann og vísar til
þess þegar hópurinn heimsótti
Læknaminjasafnið í Nesstofu. „Þær
voru frekar óhugnanlegar í gamla
daga og ég vil helst ekki segja frá
því af því að þá mynduð þið fá
ógeð.“ Ékki upplifðu þó allir lækn-
ingaaðferðimar með þessum hætti
og sumir höfðu meira að segja trú á
ýmsum óhefðubundnum aðferðum.
Viggó Helgi Viggósson 12 ára sagð-
ist hafa fundið mikinn mun á sér
eftir að hafa bragðað vallhumal sem
Sigríður Bima sauð fyrir krakkana
og þegar hann var spurður til hvers
hann væri notaður var svarið:
„Hann á að vinna gegn leti og
svefnleysi."
Gömlum vinnuaðferðum kynntust
börnin m.a. á Árbæjarsafninu og
gátu þau barið augum verkfæri sem
notuð vom þegar sjálfsþurftarbú-
skapur var við lýði. Sigríður Birna
segir að þar hafi krakkarnir fengið
að spreyta sig en þau saumuðu litla
roðskinnskó og máttu taka með sér
heim.
I Árbæjarsafninu vom þau einnig
frædd um þróunarsögu Reykjavík-
ur á sýningunni Frá býli til Borgar.
„Við höfum lært rosalega mikið
um menninguna í Reykjavík í gamla
daga. Fullt af því sem við höfum
lært em hlutir sem ömmur okkar
og afar vita ekkert um,“ sagði Vig-
gó Helgi sem sýnt hafði fjölskyld-
unni sinni roðskinnskóna.
Um ævisögur og annað
Reykjavíkurborg er á námskeið-
inu skoðuð með nokkuð nýjum
áherslum og em krakkarnir fengnir
til að ímynda sér hvernig umhorfs
var þar fyrir mörgum ámm. Flest
y^TA-2000
Sunnudagur 25. júní
\
REYKJAVÍK
Kappsigling lceland Skippers
KappsigHng frá Paimpol á Bretaníu-
skaga til Reykjavíkur með þátttöku
íslendinga. Eftir 1300 sjómílna sigl-
ingu frá Paimpol er áætlað að fyrstu
bátarnirkomi inn til Reykjavíkurí
dag. Siglt verðurfrá Reykjavík 5-júlí
en keppninni lýkurekki fyrren sigur-
vegarinn hefur náð aftur landi í
Paimpol.
HALLGRÍMSKIRKJA KL. 20
Kammerkórinn Jubilate
Hinn margverðlaunaði finnski
kammerkór Jubilate flytur kveðjur frá
menningarborginni Helsinki til
Reykjavíkur. Kórinn heldurtvenna
tónleika á íslandi, þeir síðari verða á
morgun í Reykholtskirkju.
LISTASAFN REYKJAVÍKUR KL. 14-16
HAFNARHÚS - Lífið við sjóinn
Samsýningu menningarborganna
þriggja, Reykjavíkur, Bergen og
Santiago de Compostella, ogeyjar-
innar Tatihou við strendur Normandí
lýkur í dag en þar er lögð áhersla á
fiskveiðar og siglingar á 20. öldinni
og mikilvægi þeirra fyrir efnahag og
afkomu hverrar borgar. í tilefni loka-
dagsins veröa harmonikkutónleikar
millikl. 14ogl6.
REYKJAVÍKURHÖFN. KL. 15
m/s Nordwest - Fólk og bátar í
norðri
Um borð er fljótandi farandsýning,
Morgunblaðið/Jim Smart
Hópurinn skoðaði ýmis söfn í Reykjavík. Hér eru þau í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.
Morgunblaðið /Amaldur
Þær Halldóra Magnúsdóttir, Elfa Marita Ágústsdóttir og Ester Viktors-
dóttir höfðu gaman af ratleiknum í Laugarnesi.
komust að þeirri niðurstöðu að lík-
lega hefði allt verið miklu rólegra
og minna um hávaða og mengun.
Þeim finnst áhugavert að fólk hafi
þurft að ganga allt sem það fór og
einnig að það þurfti að þvo þvottinn
sinn í laugum.
Krakkarnir heimsóttu mörg lista-
söfn í borginni, þau fóra einnig í
kirkjugarðinn og fundu leiði Vöku-
mannsins og annarra sem uppi vom
fyrir löngu síðan. Hvert þeirra átti
að velja sér leiði og skrifa ævisögu
þess sem þar hvíldi. „Faðir hans
Sigurðar var trésmiður og tók hann
við verkstæðinu eftir hans tíma,“
ritar einn framtíðarrithöfundurinn í
hópnum. „Hann kynntist konu
sinni, Guðrúnu Gunnarsdóttur sem
við skulum kalla Rúnu. Þau giftust
árið 1894. Uppáhaldsstaðurinn
þeirra var kærleiksstígur. Verk-
stæði Sigga gekk vel og hann var
frábær trésmiður. Þau eignuðust
fjögur börn, algjörir englar þau Só-
ley, Fjóla, Rósa og Fífill. Sigurður
Guðmundsson dó 1949.“
Á námskeiðinu er lögð áhersla á
að virkja hugmyndaflug og skap-
andi hæfileika þátttakenda og er
kynning og fræðsla samofin einföld-
um verkefnum og leikjum. í heim-
sókn sinni á Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar fóm krakkarnir niður í
fjöm og týndu steina sem þau svo
máluðu á grasinu framan við safnið.
„Við reynum að ná fram þeirri
mynd sem steinninn hefur þegar
mótað og notum litina til að leggja
áherslu á það sem fyrir er í stein-
um,“ segir Þuríður Sigurðardóttir
söngkona og myndlistarnemi sem
aðstoðar við námskeiðið. Þuríður
ólst upp í Laugarnesi en þar var
sleitulaust byggð frá fyrstu tíð. Hún
bjó í 36 fermetra húsi ásamt for-
Áætiað er að fyrstu bátarnir í Sigl-
ingakeppninni Paimpol komi til
Reykjavíkur í dag
sýning með einstöku safni báta frá
Noróurlöndunum, Eistlandi ogHjalt-
landseyjum. í dag flytur Ágúst
Georgsson frá Sjóminjasafni íslands
fyrirlestur um síöasta skipasmiðinn í
Engey en að þvi loknu verðurgengið
um sýninguna undir leiðsögn Pár
Stolpe, sýningarstjóra frá Sjó-
minjasafninu í Stokkhólmi. íslenskur
túlkur verður á staðnum.
AKUREYRI - L2000
Lokadagur hinnar alþjóölegu leiklist-
arhátíðar L2000 sem haldin er á Ak-
ureyri.
www.tv.is/bii/L2000
wap.olis.is
Mánudagur 26. júní
REYKHOLTSKIRKJA KL. 21.
Kammerkórinn Jubilate
Síðari tónleikar hins margverðlaun-
aða finnska kammerkórs Jubilate,
sem flytur kveðjur frá menningar-
borginni Heisinki til Reykjavíkur.
REYKJAVÍKURHÖFN KL. 18
ms. Nordwest - Fólk og bátar í
norðri
Sýningin erfljótandi farandsýning
um borð í flutningaskipinu M/S
Nordwest - spennandi sýning með
einstöku safni báta frá öllum Norður-
löndum, Eistlandi og Hjaltlandseyj-
um. Flutningaskipið Nordwest heim-
sækir í sumar ellefu hafnir í sex
löndum. í dag verður leiðsögn um
sýninguna.
wap.olis.is.
eldrum sínum og fimm systkinum
og kveður þau krakkana löngum
hafa leikið sér í nátturúnni og velt
vöngum yfir því hvernig fornmenn
bjuggu. „Við vomm alltaf að leita að
gröf Hallgerðar langbrókar en hún
átti að vera grafin hér í vígðri mold.
Hún er sögð hafa verið borin til
grafar með gríðarlegt höfuðskraut
og það langaði okkur svo að finna,“
segir Þuríður sem enn hefur ekki
haft árangur sem erfiði við þá eftir-
grennslan.
Krakkarnir sáu ýmsar kynja-
myndir út úr steinunum og freist-
uðu þess að skerpa áherslurnar
með litunum. Sumir sáu út úr stein-
unum hjörtu og hús, aðrir karla en
einn sá tvær „partýtýpur" sem
hann skreytti með viðeigandi lita-
dýrð og glimmeri.
Eftir föndrið fóm krakkamir svo
í ratleik um Laugarnessvæðið. Við
hverja stöð vom þær Þuríður, Sig-
ríður Birna eða Birgitta og upp-
fræddu krakkana um kennileiti og
annað og notuðu þannig leikinn sem
kennslutæki.
Læra að skoða
„búsetulandslag"
Birgitta, forstöðumaður Lista-
safns Sigurjóns Ólafssonar, á hug-
mynd að námskeiðinu en það mun
vera nokkuð frábragðið þeim sem í
boði em um þessar mundir fyrir
unglinga. Hún segist lengi hafa haft
áhuga á hugmyndafræðinni sem
býr að baki hugtaksins búsetu- eða
menningarlandslag, þar sem lögð er
áhersla á að skoða minjar sem hluta
af stærri heild. Hún telur mikilvægt
að vernda þá staði sem bæði geyma
söguna og bera gamalli menningu
vitni og til þess að geta lesið í lands-
lagið verði að varðveita heildina en
ekki einstaka afkima þess. „Það er
mjög mikilvægt að fræða fólk um
þessa staði. Ef fólk veit aðeins
meira um aðstæður era minni líkur
á að hróflað verði við þessum svæð-
um. Það er viss ögmn í því að draga
unga fólkið inn í þessar vangaveltur
því þau skynja líka árekstra milli
borgarsamfélagsins og minjasvæða
fyrri tíma“
Krökkunum var tíðrætt um þá
ferð sem áætluð var daginn eftir.
Áfangastaðurinn var Viðey en þar
stóð til að fræðast um fornleifaupp-
gröft og rannsóknir á fomminjum
staðarins og höfðu þau fengið leyfi
til að mæla tóftir með tækjum forn-
leifafræðinganna. Viðeyjarferðin
verður jafnframt á lokadegi nám-
skeiðsins og þar verður einnig grill-
að.
Krakkarnir bentu á það væri
nauðsynlegt að segja frá því hvar
minjar em í landslaginu. „Ef það er
ekki búið að segja manni frá því þá
tekur maður ekki eftir þessu,“ sagði
eitt þeirra. Öll vora þau nokkuð viss
um að þau myndu horfa öðmm aug-
um á náttúmna í kjölfar námskeiðs-
ins og bjuggust við því að skima eft-
ir gömlum tóftum á ferðalögum með
fjölskyldunni um landið í sumar.