Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 2)
Jubilate syngur
kveðju frá Helsinki
FINNSKI kammerkórinn Jubilate
heldur tónleika í Hallgrímskirkju í
kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20 og í
Reykholtskirkju á morgun, mánu-
dagskvöld, kl. 21. í kórnum eru u.þ.b.
40 söngvarar undir stjórn Astrid
Riska sem stofnaði kórinn fyrir 31
ári. Hann hefur frá byrjun teldð virk-
an þátt í finnsku tónlistarlífi. A efnis-
skrá kórsins má finna allt frá gregor-
íönskum kirkjusöng til núk-
tímatónlistar, en sérstök áhersla er
þó lögð á finnska og norræna tónlist.
Kórinn hefur verið í samvinnu við
ýmsar finnskar hljómsveitir, þar á
meðal Sinfóníuhljómsveit finnska út-
varpsins, Fflharmóníusveit Helsinki-
borgar og kammersveitina Avanti. Af
erlendum hljómsveitum má nefna
Sinfóníuhljómsveit Jerúsalems og
Sinfóníuhljómsveit pólska útvarpsins.
Þannig hefur kórinn fengið tækifæri
til að vinna með stjórnendum á borð
við Gary Bertini, Jean Pierre Wallez,
John Alldis, Eliahu Inbal, Gennadij
Rozdestvenskij, Jukka-Pekka Sar-
aste og Esa-Pekka Salonen.
Kórinn hefur hlotið ýmis verðlaun,
Finnski kammerkórinn Jubilate
bæði á finnskum og alþjóðlegum
kóramótum, þ.á m. fyrstu verðlaun í
hópi kammerkóra á kóramóti EBU
1990 „Let the people sing“. Þar hlaut
kórinn einnig verðlaunin „The Silver
Rose Bowl“. Kórinn hefur nýlega lok-
ið upptökum á verki Jean Sibelius
fyrir blandaðan kór a eappella (BIS).
Jubilate hefur gefið út 14 plötur alls.
Astrid Riska, stjórnandi kórsins,
hlaut Astrid Riska-tónlistarverðlaun
Fazers árið 1989 og 1995 hlaut hún
aðalverðlaun sænska menningar-
sjóðsins í Finnlandi fyrir störf sín í
þágu tónlistarkennslu. Vorið 1997 var
Astrid Riska kjörin kórstjómandi ár-
sins í Finnlandi.
Með tónleikaferð sinni til Reykja-
víkur og Bergen flytur Jubilatekór-
inn kveðjur menningarborgarinnar
Helsinki.
Morgunblaðið/Ingimundur
Björk Jóhannsdóttir fyrir fram-
an verk sín á sýningunni Himinn
og jörð í Safnahúsinu.
Himinn
ogjörðí
Safnahúsinu
Borgames. Morgunblaðið.
í SAFNAHÚSINU í Borgarnesi
stendur nú yfir myndlistarsýning
Bjarkar Jóhannsdóttur sem hún
nefnir Himinn og jörð. Þar sýnir
hún fjörutiu vatnslitamyndir.
I myndröðinni Himinn og jörð
segir í sýningarskrá að hún hafi
tvöfalt gildi. Annars vegar á hún
að minna okkur á að án himinsins
og jarðarinnar værum við ekki til.
Án föður og móður er ekkert barn.
Hins vegar eru á myndunum text-
ar til þakklætis þeim tveim sem
við eigum allt okkar undir; föður
og móður, himni og jörðu. Einn
myndatextinn hljómar þannig: Og
vindarnir björtu strjúka mjúklega
lautir og dældir, vegna gleði sinn-
ar lýsa þeir allt upp. Allt lifnar og
ég finn dásamlega gleði streyma
um allt. Og vindurinn hvíslar að
mér kveðju sinni, Góði Guð. Og ég
gleðst vegna vissunnar um tilvist
þína, gæskuríki faðir minn.
Myndröðin Athafnalausir englar
á að minna okkur á hlutverk engl-
anna, segir í sýningarskrá. Þeir
eru sendiboðar Guðs og hafa það
hlutverk að hlusta á óskir okkar
og bænir. Við höfum fjarlægst Guð
svo mikið að við gleymum oft til-
vist englanna. Því eru þeir aðgerð-
arlausir á meðal okkar.
Björk Jóhannsdóttir stundaði
nám við kennaradeild Myndlista-
og handiðaskóla Islands. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar.
Allar myndirnar á sýningunni
eru til sölu. Sýningin stendur til
30. júní nk.
--------------
;aooo
Sunnudagur 25. júní
Leiklistarhátíð Bandalags ís-
lenskra leikfélaga á Akureyri
Kl. 10: Afrakstur úr leiksmiðjum á
götum úti. Kl. 13:15: Gagnrýni á sýn-
ingar laugardagsins. Kl. 14: Skaga-
leikflokkurinn, Akranesi sýnir Lifðu
- Yfir dauðans haf. Kl. 16: Litli leikk-
lúbburinn, Isafirði sýnir Fuglinn í
fjörunni. Kl. 20: Lokahóf og verð-
launaafhendingar í KA heimilinu.
Hátíðarklúbbur opinn um kvöldið í
veitingahúsinu Við Pollinn. Upplýs-
ingar í Kompaníinu, s. 462 2710.
Miðaverð á einstakar sýningar 900
kr., passi á allar sýningar 5.000 kr.
...~ í* . . •
Langbylgjan er
Ríkisútvarpið gegnir lykilhlutverki í almannavarna-
kerfi landsins. Langbylgjusendingar Ríkisútvarpsins
nást um allt land og langt á haf út.
Athugið hvort útvarpið ykkar er með langbylgju-
móttöku og hyggilegt er að eiga útvarp með
nýjum rafhlöðum ef rafmagn fer af.
Ef FM sendingar falla niður, stillið þá útvarpið á
langbylgju sem merkt er LW eða AM á tíðnum
189 kHz eða 207 kHz.
þ/óðareign íþína þágu