Morgunblaðið - 25.06.2000, Page 28
28 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsstúlkurnar á Hressingarskálanum í Reykjavík 1936 hafa sent Gonidec mynd af sér. Engin nöfn fylgja.
s
Heimilisfólkið í Straumsfirði, sem hjúkraði Gonidec: Frá vintri: Ingi-
björg Friðgeirsdóttir frá Hofstöðum, skipbrotsmaðurinn Gonidec, Þór-
dís húsfreyja Jónsdóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir vinnukona.
Ur mynda-
albúmi
skipbrots-
mannsins
I farteski skipherrans á frönsku gólett-
unni Etiole sem hér var á dögunum var
m.a. að fínna ýmisleg persónuleg gögn úr
eigu Eugene Gonidec, sem einn komst af
þegar Pourquoi-Pas? fórst við Mýrar
1936. Elín Pálmaddttir fékk að skoða
þessi gögn um borð.
Þórdís húsfreyja í Staumsfirði sendir franska skipbrotsmanninum
þessa mynd af sér og ungri frænku sinni, Svölu Thorlacius, lögfræðingi,
með tilkynningu um nýtt heimilisfang í Borgamesi.
Gonidec hafði sagt sinu fólki að þetta væri síðasta myndin sem tekin var
af Pour quoi-pas? er það sigldi út frá Reykjavík.
Eugene Gonidec, eini skipveij-
inn af Pour quoi-pas, sem af
komst.
en hann hefur sennilega borðað á
Hressingaskálanum, þvi þarna er
mynd af starfsstúlkum Hressing-
arskálans, sem þær hafa sent hon-
um. Og þar er siðasta myndin sem
tekin var af Pourquoi-Pas?, þegar
AÐEINS einn maður af áhöfninni,
Eugene Gonidec, komst af þegar
rannsóknaskip dr. Charcots
POURQUOI-PAS? fórst við Mýrar
1936 með 39 manns og er sá
harmleikur vel kunnur. Mörgum
eldri Reykvíkingum er vel í minni
þegar þessi maður gekk einn á
eftir vörubílunum með kistunum
niður Túngötuna frá kaþólsku
kirkjunni og um borð í herskip
franska flotans sem flutti hann og
alla hina látnu félaga hans til
Frakklands.
Tvær gólettur franska flotans
eru nú í Reykjavíkurhöfn. Til ís-
lands hefur Yann Cariou, skip-
herrann á Etoile, haft meðferðis
ýmis persónuleg gögn úr eigu
Gonidecs sem lést fyrir nokkrum
árum. Fjölskylda hans hafði feng-
ið skipherranum þau þegar lá fyr-
ir að hann myndi sigla til íslands,
ef áhugi skyldi vera hér á að sjá
þau. Þetta eru merkilegar heim-
ildir og forvitnileg gögn sem
blaðamanni gafst færi á að skoða.
Þarna er m.a. skýrsla sem Goni-
dec skrifaði samkvæmt beiðni til
skipstjórans á Freygátunni
Marzin um aðdragann að slysinu
þegar Pourquoi-Pas? fórst 16.
september 1936 og er skýrslan
dagsett 21. september. Rekur
hann þar næstum tninútu fyrir
mínútu hvað gerðist. í lokin segir
hann að öll fjölskyldan á bænum
Straumsfirði hafi hlynnt að hon-
um á aðdáunarverðan hátt eftir
að ungur bóndasonur, Kristján
Þórólfsson, hafði bjargað honum á
land. Þegar hann vissi ekki hvað-
an á sig stóð veðrið og vildi ekki
úr blautu flíkunum hafði Þórdís
Guðjón Sigurðsson bóndi í Straumsfirði, Þórdís húsfreyja, Sigríður Þorsteinsdóttir vimiukona, Þórhallur Ólafsson, siðar læknir og 2 aðrir drengir í
Straumsfirði þegar slysið varð 1936.
húsfreyja hlýjað þurru skyrtuna
og strokið henni um vanga hans,
svo hann slakaði á, að því er Ingi-
björg Friðgeirsdóttir, sem þar var
en er nýdáin, hefur frá sagt.
í gögnunum sem Yann Cariou
skipherra hefur meðferðis eru
myndir og albúm Gonidecs, þar
sem má sjá að vináttan við þennan
skipbrotsmann hefur haldist, því
þar eru m.a. áletraðar myndir
sem fjölskyldan í Straumsfirði
hefur sent honum og við birtum
hér með. I Reykjavík bjó skip-
brotsmaðurinn í franska sendiráð-
inu og er mynd af honum fyrir
framan Næpuna í Þingholtunum,
Þessa mynd af bænum í Straumsfirði fékk Gonidec með áletruninni:
Með okkar bestu kveðjum frá fjölskyldunni 1
Straumsfirði, sem nú býr í Borgarnesi.
skipið sigldi út frá Reykjavík á
vald örlaga sinna.
Eftir hina hátíðlegur minning-
arathöfn í Notre Dame kirkjunni í
París var Eugene Gonidec sýnd
sæmd af franska flotanum. Hann
var sæmdur háum heiðursmerkj-
uin, sem þarna eru, og myndir
sýna þá athöfn. Hann var 29 ára
gamall þegar hann lenti í þessum
mannraunum, og lifði svo heima í
þorpinu sínu á Bretagne til hárrar
elli. En frændi hans sem ætlar að
koma hingað í tengslum við sigl-
ingakeppnina hefur áhuga á að
vita hver er á myndunum, m.a.
hvort litla stúlkan er á lífi.