Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 34

Morgunblaðið - 25.06.2000, Side 34
34 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ SUMARNÁMSKEIÐ ÍSLENSKA ARKITEKTASKÓLANS Við höfnina í Árósum. Rými í borginni Reykjavík stendur aldrei í stað heldur er í sífelldri mótun eins og lifandi fyrirbæri og krefst athygli okkar og umhyggju. Guja Dögg Hauksdóttir segir hér frá verkefni arkitektanema að takast á við gleymda, niðurnídda eða áður ónumda staði innan borgarmarka Reykjavíkur Reykjavík á það sameiginlegt flestum öðrum borgum að vera af- urð skipulags og tilviljana. Hún birtist okkur sem óvænt stefnumót yfirvegaðra hugsjóna og skyndi- ákvarðana, lituð af þeim menning- arstigum og þjóðfélagsmyndum sem íbúar hennar hafa lifað frá upphafi. Hún er í senn fortíð okkar og nútíð, hið besta og hið versta sem við höfum gengið í gegnum. Hér eru saman komnir frumkvöðl- arnir Ingólfur Amarson (súlurnar í merki borgarinnar) og Skúli Magn- ússon (innréttingarnar í Aðal- stræti), sjálfstæðið og konungsrík- ið (Alþingishúsið með kórónu- skreytingu Danakonungs á fram- hliðinni), trúin á menninguna (Há- skólabyggingin) og lífið (sund- laugarnar). Rýmið Borgin er byggð upp af húsum en ekki síður rýminu á milli hús- anna, torgum, götum og görðum. Þessi sameiginlegu svæði allra íbúanna gegna ýmsum hlutverkum og eru undirorpin sífelldum breyt- ingum á tíðaranda, þörfum og kröf- Yfirlitsmynd af höfuðborginni þar sem sjá má nokkra þeirra staða sem hópamir tóku fyrir. í lok markaðsdags í Róm. um fólksins. Þau skila okkur áfram á hraða hversdagsins, leyfa okkur að njóta frístunda í einveru eða með öðrum, í misjöfnu veðri árs- tíðanna, ár eftir ár. Reykjavík sprettur úr sérstöku landslagi og gróðurfari, návígi við hafið og ríkjandi vindáttir. Þetta eru skilyrði sem aftra okkur á stundum að nota útirýmin á eins heimilislegan máta og tíðkast í heitari löndum þar sem torg og stræti virka nánast eins og dag- stofur íbúanna, en krefjast kannski einmitt því meiri útsjónarsemi og vilja til að móta þau og nota. Það færist sífellt í vöxt að hundsa duttl- unga veðurguðanna og nota opin- ber rými borgarinnar undir við- burði og samkomur, fólk lítur orðið á það sem fastan lið í tilverunni að ganga niður Laugaveginn á Þor- láksmessu með kyndlum og kór- söng, skokka meðfram ströndinni eftir vinnu eða hittast á kaffihúsi við Austurvöll. Með því móti auk- ast tengsl borgaranna við borgina og hún verður lifandi hluti af þeim. Skynjun Eins og allar aðrar borgir er Reykjavík ekki eingöngu fast efni, steypa og gler, fyrirkomulag um- ferðaræða og bílastæða, heldur fljótandi sviðsmynd eða rammi ut- an um flókið samspil daglegs lífs fólksins í borginni sem og sér- stakra atburða og hefða, nýjunga og afreka framtíðarinnar. Borgina, byggingar hennar og rými, má sem heild skrifa og lesa á mörgum svið- um, ekki síst þeim sem tengjast huglægari þáttum tilverunnar, heimspeki og sjálfsímynd. Við skynjum ekki vélrænt, eins og hljóðnemi eða ljósmyndavél, heldur í sífelldri víxlverkun ytra áreitis og þess sem við berum innra með okkur. Skynjun rýmis er háð sam- spili upplifunar núsins og minninga eða fortíðar hvers og eins. Túlkun rýmisins getur ákvarðast af hugar- ástandi, birtu dagsins, árstíðinni, hvort við erum ein eða í samfylgd annarra. Forsenda birtu er myrk- ur, hið létta sker sig úr í nærveru þyngdar. Rými sem eru mótuð á forsendum hins mannlega mæli- kvarða, þ.e. miðuð við stærð mannslíkamans og beina skynjun meðfæddra skynfæra hans, ýta undir upplifun fleiri þátta samtím- is; hljóð fótataksins á stéttinni, ilm- ur konunnar sem gengur framúr, hitinn sem eykst þegar ský dregur frá sólu. Við hægari yfirferð gefast fleri tækifæri til óvæntra sam- skipta. Þessi frumskilyrði manns- ins hafa lítið breyst. Dýrt gaman að byggja illa og ódýrt Arkitektarnir og kennararnir Fredrik Lund frá Gautaborg og Regin Schwaen frá Kaupmannahöfn héldu fyrirlestra um eigin hönnun og vinnuaðferðir á námskeiðinu og jafnframt notuðu þeir tækifærið til að reifa viðhorf sín um stöðu arkitektúrs 1 samfélagi nútímans. Dagur Eggertsson og Guja Dögg Hauksdóttir komu að máli við þá. Morgunblaðið /Amaldur Regin Th. Schwaen frá Danmörku og Fredrik Lund frá Noregi voru meðal leiðbeinenda á sumamámskeiðinu. Á síðustu árum hefur starf arkitekta tekið töluverðum stakkaskiptum og áherslumar færst yfir á hinar tækni- legu hliðar greinarinnar. Þetta hefur haft margvísleg áhrif á byggingar- listina. Fredrik Lund: „Ef litið er á sam- félag nútímans er margt sem bendir til þess að það ríki meiri hræðsla við að hleypa yngra fólki að. Þetta stafar kannski af ótta almennings við hið óþekkta og það sem ég kalla hús- varðarhugsunarhátt. Ég lít á þetta sem afar neikvæða þróun. Ef við vilj- um tryggja framþróun greinarinnar verður samfélagið að taka þá áhættu að hleypa ungu og fersku fólki að. Svo dæmi séu tekin, hafa arkitekta- samkeppnir þróast frá því að vera vettvangur góðra hugmynda til þess að vera keppnir um að komast í gegn um viðamikil rýmisprógrömm. Þetta gerir það að verkum að samfélagið missir af tækifærum sem gera kleift að láta snjalla hluti verða að veru- leika. Ástæða er til að spyrja hvers vegna samfélagið sé að þróast í þessa átt. Okkur ber öllum skylda til að spoma við þessu. Við nemendur mína segi ég alltaf: „Þið verðið sjálfir að sækjast eftir því að komast í þær aðstæður sem loera af sér góðan arkitektúr.““ Regin Schwaen: „Þetta er alveg hárrétt að mínu mati, en ég myndi vilja bæta því við að það eru margir samfélagslegir þættir sem stjóma þessu ástandi líka. Þegar fólk fjár- festir í byggingum bindur það oft lán sín til 20 til 30 ára. Það gerir það að verkum að fólk sýnir lítinn áhuga á að hugsa lengra en þetta langt fram í tímann. Það hefur svo aftur áhrif á val fólks á efnum og aðferðum til húsbygginga. Afleiðingin er gífur- legur óstöðugleiki í þróun arkitekt- úrs. Fyrir starfsgrein sem miðlar af reynslu fortíðarinnar og vinnur úr menningu samtímans, er það mikið vandamál að geta ekki skipulagt rými og umhverfi okkar til lengri frambúðar. Það getur hver og einn gert sér það í hugarlund að við þess- ar aðstæður er það erfitt að stuðla að framvexti hæfileikaríkra einstak- linga (arkitekta). Þetta á að sjálf- sögðu bæði við um nemendur og starfandi arkitekta." Fredrik Lund: „Þetta er áhuga- vert, vegna þess að ef hugsað er til lengri tíma við skipulag umhverfis- ins verður að byggja sterkari hús. Það er nefnilega mjög dýrt gaman að byggja illa og ódýrt. Það held ég að fólk og samfélagið í heild geri sér ekki nógu vel grein fyrir.“ Hvaða möguleika sjáið þið í að setja á stofn arkitektaskóla á Is- landi? Regin Schwaen: „Það sem vekur athygli mína mest er hvað náttúran og umhverfið er óspillt hér á Islandi. í Danmörku er allt landslagið meira og minna gert af manna höndum. Við þróun umhverfisins eru byggingar staðsettar handahófskennt í lands- laginu og samhengið er á góðri leið með að glatast. Hér á íslandi gætu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.