Morgunblaðið - 25.06.2000, Síða 36
36 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ
AVANAEFNAVAND-
INN Á ERINDI
VIÐOKKURÖLL
Á ÍSLANDI aukast
vandamál vegna
ávanaefna eins og í
öðrum vestrænum
löndum. Gömlu fjend-
urnir áfengi og tóbak
sækja í sig veðrið á
sama tíma og ólögleg
ávanaefni skjóta okk-
ur skelk í bringu.
Samfélagsleg vanda-
mál vegna harðra og
mjúkra ávanaefna (e.
hard and soft drugs) á
Vesturlöndum eru ný
af nálinni, eða 40-50
' ára gömul. Áhugi okk-
ar á því hversu al-
menn ávanaefnaneysla
er, ræðst af þeim alvarlegu fylgi-
kvillum, sem hún veldur. Annars
vegar heilsumissi, félagslegri
hnignun og sálarkröm notandans
þegar verst lætur, auk þess sem
notkun ávanaefna auðveldar út-
breiðslu sýkinga. Hins vegar er
notkun ávanaefna tengd glæpum.
Talið er að 5 milljónir manna deyi
árlega í heiminum vegna reykinga
og áfengisdrykkju á sama tíma og
tvö hundruð þúsundir deyja af
völdum ólöglegra ávanaefna (tölur
frá Sameinuðu þjóðunum).
Við töldum rétt að segja frá
ávanaefnum á þessum vettvangi
þar sem við trúum því að án virkr-
ar þátttöku almennings verði áv-
anavandanum ekki komið í bæri-
legra horf. Vonandi tekst okkur að
vekja þig, lesandi góður, til áhuga
og umhugsunar um lausnir í þess-
um mikilvæga málaflokki. Sterkur
pólitískur vilji er risinn til þess að
taka á þessum málaflokki á ísl-
andi.
Hvað eru ávanaefni?
Notkun efna sem hafa áhrif á
hugarástand manna hefur fylgt
manninum frá því að sögur hófust.
Slík efni eiga það sammerkt að
vera ákaflega vandmeðfarin og
hafa ávanahættu í för með sér.
Ekkert þeirra er fullkomið. Hvert
þeirra um sig getur aukið á lífs-
fyllingu notandans en ávanabind-
ing getur valdið heilsumissi og fé-
lagslegri eymd. Ávanaefni eru
markaðsvörur sem hafa áhrif á
starfsemi heilans. Pau eru notuð
sem fylling í félagslegar hefðir.
Trúarleg markmið með neyslu
ávanaefna þekkjast, en þeim lækn-
isfræðilegu hefur verið útrýmt
með nýjum og betri lyfjum.
Helstu lögleg og ólögleg ávana-
efni, nafngiftir þeirra og notkun.
Eftir því sem við á er heiti virka
efnisins eða gælunafni, skotið inn-
an sviga. Flest ávanaefni má
brúka á marga vegu. Hversu
slæmar sem afleiðingar ávanaefnis
annars eru, versna þær til muna
þegar fólk tekur að sprauta efninu
í æð. - Orðið eiturlyf yfir ólögleg
ávanaefni er ónákvæmt. Trúlega
eru áfengi og tóbak líka eiturlyf.
Heitið ólöglegt ávanaefni ýtir ekki
undir fordóma og fyrirlitningu á
notendum þess.
Ávanaefni eru leyfð og bönnuð
(sjá töflu 1). Vímuefni eru öll þessi
efni að undaskildum koffíni og nik-
ótíni. Neysla á koffíni er samofin
daglegu lífí. Flest erum við trúlega
með ávana í koffín. Það er líka
skaðlausast af þessum efnum.
Ómálga börnum er rétt súkkulaði
og öldungar skilja við með kaffis-
ff>pa í munninum (hvort tveggja er
uppspretta koffíns). Koffín veldur
ekki fíkn, þótt ávani í
það þyki sterkur og
fráhvarfseinkenni
þess hvimleið. Fljótt
á litið virðumst við
aðeins hafa gagn og
ánægju af þessari
koffínneyslu, en fylg-
ifiskar gætu verið
tveir: Annars vegar
er mikil þörf fyrir
magalyf í okkar
heimshluta (kaffið
ertir magaslímhúð-
ina). Hins vegar að
heili okkar venst
strax í frumbernsku á
örvandi efni sem
veldur fráhvarfsein-
kennum. Allfarsæl neysla koffíns
gæfj vakið með okkur falska trú á
öryggi efna, sem hafa áhrif á heila-
starfsemina.
Segja má að með notkun á am-
fetamíni, dímu og kókaíni (með öfl-
ugustu vímugjöfum sem þekkjast)
sé verið að sækjast eftir margföld-
um örvandi áhrifum koffíns, enda
þótt víman sem fylgir ólöglegu
efnunum, geri hér einnig eðlismun
á. Kókaíni eða heróíni sem spraut-
að er í æð, eru trúlega hættulegust
þessara efna. - Til allrar óham-
ingju vita fæst okkar meira um
eiginleika og fylgikvilla þessara
efna, þegar við hefjum notkun
þeirra en smábarnið sem fær
fyrsta koffínskammtinn (súkkul-
aðimolann).
Ávanaefni
frá S-Ameríku
Nikótín (ávanaefnið í tóbaki) er
með allra eitruðustu efnum. Það er
unnið úr tóbaksplöntunni (Nico-
tiana tabacum) sem upprunalega
óx í Ameríku. I lok fímmtándu ald-
ar sáu Kólumbus og samferða-
menn hans indíána reykjandi tób-
ak. Trúlegt er að þeir fyrrtöldu
hafí tekið þennan sið með sér til
Evrópu. Á 16. öld var nikótín not-
að til lækninga. Reykingar valda
krabbameini og hjarta- og æða-
sjúkdómum.
Kókaín er unnið úr kókaplönt-
unni (Erythroxylon coca), sem vex
í austurhlíðum Andesfjalla, eink-
um í Perú og Bólivíu. Indjánar
þessara fjallahéraða hafa í alda-
raðir tuggið kókablöð sér til örv-
unar og til þess að auka úthald
sitt. Coca Cola innihélt kókaín
fram til ársins 1903, er það var
bannað. Framleiðendur komu þá
nýju ávanabindandi efni fyrir í
gosdrykknum (koffíni). Kókaín er
örvandi efni, staðdeyfandi og æða-
herpandi. Það dregur úr þreytu og
matarlyst. Það er mjög ávanabind-
andi og notkun þess á Vesturlönd-
um er stórt vandamál.
Ávanaefni,
uppsprottin í Asíu
Kannabisefni er samheiti yfir
maríjúana og hass. Bæði eru unnin
úr indverska (Mið-Asíu-)hampin-
um (Cannabis sativa). Asía er því
heimaálfa kannabisefnanna. Kann-
abis var notað sem lyf í Kína 3000
árum fyrir Kristsburð. 1000 árum
síðar hafði það borist til Indlands
og var kennt við guðinn Shiva.
Hugvíkkandi (psýkedelísk) verkun
stuðlaði að notkun kannabis við
trúarathafnir. Kannabisnotkun
hefur hvimleiða fylgikvilla og
kannabisreykingar hafa sömu
heilsufarshættu í för með sér og
aðrar reykingar. Minnistruflanir
Við verðum að gera þær
kröfur til stjórnvalda,
segja Björn Hjálmars-
son og Matthfas
Halldórsson, að
baráttan gegn notkun
og skaðsemi ávana- og
fíkniefna hafi ekki
fleiri fylgikvilla
(ókosti) en efnin sjálf.
af völdum kannabisefna aukast ef
áfengis er neytt samhliða.
Ópíöt (morfín og skyld efni) hafa
verið þekkt í meira en tvo tugi
alda í ASíu og verið notuð sem lyf.
Uppspretta þeirra er ópíumvalmúi
(Papaver somniferum), sem rækt-
aður er víða um lönd, en einkum í
Austurlöndum nær (Tyrklandi) og
fjær (Burma, Laos og Taílandi).
Öpíumreykingar náðu vinsældum í
Austurlöndum á 18. öld, en í
Evrópu og Ameríku tíðkast þær
nær eingöngu meðal innflytjenda
frá Asíulöndum og S-Ameríku.
Morfín var einangrað úr hráópíum
og framleitt hreint í upphafi nítj-
ándu aldar. Morfín og skyld efni
eru kröftugustu verkjalyf sem völ
er á. Auk verkjastillingar valda
þau vellíðan, eru róandi og svefn-
framkallandi. Afleiða morfíns,
heróín var þróað sem lyf sem átti
að taka morfíni fram. Heróín er
ólöglegt ávanaefni sem hefur vald-
ið verulegu heilsutjóni og afbrota-
bylgju á Vesturlöndum.
Ávanaefni sem fundin voru
upp á Vesturlöndum
Áfengi var róandi lyf og svefn-
lyf, eins langt aftur og sögur ná.
Það er mikið notað sem „félagsleg
smurolía" og verkar verkjastill-
andi. Trúlega mætti líta á Evrópu
sem heimaálfu áfengisgerðar og
notkunar. (Sbr. Hávamál.) Félags-
og heilbrigðisvandamál auk allra
afbrota sem tengjast áfengisneyslu
eru himinhrópandi í vestrænum
heimi. Öll önnur ávanaefni ættuð
frá Vesturlöndum eru misheppnuð
lyf sem svarti ávanaefnamarkaður-
inn hefur fært sér í nyt.
Líkt heróíni (sjá framar) fæddist
amfetamín í lyfjarannsóknum. Am-
fetamín er örvandi efni sem gerir
okkur betur vakandi og eykur ein-
beitingu. Sumir finna fyrir vellíð-
unarkennd. Það er mjög ávana-
bindandi. Það var talsvert notað
sem lyf á árunum 1940-65 en um
1970 stöðvuðust ávísanir lækna á
amfetamín, því það hafði of marg-
ar aukaverkanir. Það er hættulegt
ávanaefni.
Díma er afleiða amfetamíns og
nýliði í hópi harðra ávanaefna.
Fyrst var sótt um einkarétt á
dímu sem geðlyfi árið 1914. Hún
átti að auka samskiptafærni geð-
sjúkra. Hún var notuð sem slík í
Bandaríkjunum á árunum milli
1960-70 en reyndist ófullnægjandi
til lækninga. Díma er því úrelt
geðlyf sem hoftónlistarbylgjan
House á sér einar tólf útlistanir í
hinni Ensk-íslensku orðabók Arn-
ar og Örlygs sem gefin var út í
Reykjavík árið 1984. House music
(hoftónlist) finnst ekki í þessari
bók en house party (hofhátíð) er
sagt „partí sem stendur yfír í
nokkra daga (oft yfir helgi)“.
Landnámsmennirnir okkar blót-
uðu goðin í hofum sínum og svall-
veislur þeirra stóðu í nokkra daga.
blés nýju lífi í. Hratt vaxandi
dímunotkun veldur eðlilega ugg á
Vesturlöndum.
Lýsergíð fannst við lyfjarann-
sóknir árið 1938. Það var notað af
læknum, sálfræðingum og skáldum
á árunum 1950-60. Því var jafnvel
beitt til lækninga. Alvarlegar
aukaverkanir bundu enda á feril
lýsergíðs í læknisfræði. Það veldur
ofskynjunum, hefur psýkedelíska
verkun og hefur verið notað sem
ávanaefni. Það getur hugsanlega
valdið/útleyst geðveiki. Englaryk
hefur verið notað sem svæfingarlyf
fyrir dýr en menn hafa misnotað
það sem ávanaefni. Það veldur
langvarandi geðrænum breyting-
um og jafnvel geðveiki. Afar trú-
legt verður að telja að fleiri mis-
heppnuð lyf eigi eftir að verða að
ávanaefnum.
Hver eru áhrifin á heilann -
Hvers vegna notum við þau?
Losun dópamíns í stýrikerfi
ávana framkallar vellíðunarkennd
(euphoria), og er sameiginleg
verkun allra ávanaefna. Af um-
fangi ávanaefnaneyslu í vestræn-
um heimi hljótum við að spyrja
okkur þeirrar spurningar: Líður
okkur virkilega svona illa? - Vímu-
efni breyta gjarnan skynjun okkar
á umhverfinu og viðbrögðum við
því. Sum þessara efna verka örv-
andi og geta aukið afköst tíma-
bundið. Önnur verka slævandi og
svefnframkallandi. Ávanaefni
valda fráhvarfí, samsafni hvim-
leiðra upplifana eða einkenna sem
koma fram þegar neyslu þeirra er
hætt. Áframhaldandi notkun efnis-
ins bægir fráhvarfi frá og stuðlar
að langvinnri neyslu. Það tók
manninn tugi alda að finna og læra
að nota þau. Þetta eru glúrin efni
og slungin söluvara. Arðsemi
verslunar með þessi efni er svo
mikil að framboð þeirra er gríðar-
legt.
Ávanaefni eru erfið
við að eiga
Fyrir tilstilli nútíma verslunar-
og flutningatækni, eru þeir vand-
meðförnu gleðigjafar sem gjörvallt
mannkyn hefur sankað að sér í
aldanna rás, allir komnir á borð
Vesturlandabúa. Stjórnvalds-
ákvarðanir, framboð og eftirspurn
stýra verðlagi á ávanaefnum.
Kröftugar frumhvatir stýra þess-
um markaði. Hagnaðarvon og
fljótfærnisleg hamingjuleit eru
vatn á myllu framleiðslu, dreifing-
ar, sölu og neyslu allra ávanaefna,
löglegra sem ólöglegra. Sögulegar
hefðir hvers lands hafa ráðið því
hvaða ávanaefni eru lögleg og hver
ólögleg. (sjá töflu 1.) Slíkar
ákvarðanir eru breytingum undir-
orpnar. Stjórnvöld leitast við að
draga úr tjóni af völdum hættuleg-
ustu efnanna með því að banna
þau alfarið. Sæst er á önnur
ávanaefni (áfengi, tóbak) þótt
reynt sé að draga úr umfangi
neyslu þeirra með því að takmarka
aðgang að þeim (aldurstakmörk,
sérstakar verslanir) og með verð-
stýringu (háum neyslusköttum).
Enda þótt opinber tóbaks- og
áfengissala dragist saman við
þetta, er ekki þar með sannað að
neyslan í landinu minnki. Smygl
og heimagerð á efnunum kemur
ekki fram í opinberum tölum.
ísland takmarkar áfengisfram-
boð og sölu nokkuð umfram það
sem tíðkast í öðrum löndum og
beitir hærri neyslusköttum. Land-
aneysla unglinga er þekkt vanda-
mál. Brugg og heimagert áfengi er
uppistaðan í áfengisneyslu fjórð-
ungs þeirra sem neyta áfengis á
íslandi. Bjórinn var á íslandi áður
en hann var leyfður árið 1989 enda
þótt það hafi ekki komið fram í op-
inberum tölum.
Ávana- og fíkniefnastefna Is-
lendinga og Bandaríkjamanna er
keimlík en gjörólík þeirri hol-
lensku. Bretar sitja þar mitt á
milli. I nýlegri skýrslu sem unnin
var fyrir landlæknisembættið er
því haldið fram að ólíkar stjórnar-
stefnur í ávana- og fíkniefnamálum
ráði litlu um heildarneyslu ólög-
legi’a ávanaefna. Þessi ályktun var
studd eftirfarandi rökum:
1. Notkun kannabisefna er
áþekk í Hollandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum. Hún fer vaxandi í
öllum þessum löndum.
2. Heróínneysla er svipuð í Hol-
landi, Bretlandi og Bandaríkjunum
og fylgir alþjóðlegri uppsveiflu.
3. Neysla á kókaíni fer vaxandi í
heiminum. Hún er áþekk á meðal
skólafólks í Hollandi, á Bretlandi
og í Bandaríkjunum, en meðal full-
orðinna er hún trúlega almennust í
Bandaríkjunum.
4. Dímu- og amfetamínnotkun er
almennari meðal bandarískra
skólabarna en hollenskra. I báðum
löndum vex hún greinilega.
Niðurlag
Margsannað er að bönn eru ekki
til neins meðan fólkið okkar vill
ekki fara eftir þeim. Áfengisbann-
árin í Bandaríkjunum (1919-1933)
og á íslandi (1912-1922) sýndu að
ógjörningur var að útrýma áfeng-
inu. Reynsla margra landa sýnir
að ólöglegum ávanaefnum verður
heldur ekki útrýmt. Vaskasta
framganga tollþjónustu og ávana-
efnalögreglu á Vesturlöndum kem-
ur aðeins 5-10% ólöglegra ávana-
efna í hendur yfirvalda. Oftrú á
strangan lagabókstaf og fram-
fylgni hans er slæm, þegar fengist
er við svarta ávanaefnamarkaði.
Slík trúarbrögð hafa alvarlega
ókosti: Glæpahneigð vex, kostnað-
ur við löggæslu margfaldast og
heilsufari ávanaefnaneytenda (áa)
hrakar.
Við verðum því að gera þær
kröfur til stjórnvalda að baráttan
gegn notkun og skaðsemi ávana-
og fíkniefna hafí ekki fleiri fylgi-
kvilla (ókosti) en efnin sjálf. Auk
þess verður almenningur að gera
sér ljóst að án þátttöku hans í
þessari baráttu er um óleysanleg-
an vanda að ræða. Látum af for-
dómum, vöndum uppeldi barna
okkar, tökumst í hendur og ráð-
umst að rót vandans sem er fólg-
inn í ístöðuleysi, neyslusemi,
nautnaþrá og vanlíðan okkar
sjálfra. Hvað skyldi valda þeim?
Björn er barnalæknir og Matthías er
aðstoðarlandlæknir.
Flokkur og heiti ávanaefnis Notkun
Lögleg
■ Áfengi (etanól) bjór, léttvín, brennd vín, líkjörar, kokteilar
* tóbak (nikótín) sígarettur, píputóbak, munntóbak (skro), neftóbak
■ koffín kaffi, te, kakó, svartir gosdrykkir, súkkulaði
Ólögleg
- mjúk ávanaefni (tetrahýdrókannabínól)
■ hass Reykt, tuggin, borðuð í geimköku (space cake).
■ maríhúana drukkin í vatns-/mjó!kursoði (bhang/bahang eða
- hörð ávanaefni ganja)
■ heróín sogið í nef („snorting”), sprautað undir húð („skin-
■ kókaín (coke) popping”) og f æð („mainlining") sogið í nef, reykt (crack-cocaine), sprautað undir húð
■ amfetamín (speed) og í æð reykt, tekið í nef, sprautað í æð eða undir húð
■ dfma** Hugmynd að þessu til inntöku(duft /töflur)
nýyrði kom við rýni í efnafræðilega töflur, hylki eða mixtúra (drykkur) til inntöku
skammstöfun dfmu: MDMA; 3,4 töflur til inntöku
metýlendíoxýmetýlamfetamín. Lyfhrif þess eru athafnasöm víma (dínamíts/dínamós - vfma). Díma finnst ekki í orðabók Menningarsjóðs. Díma er sett í töflur og vökva (E-töflur og vökvi). (ecstacy) ■ lýsergíð (LSD, sýra) ■ englaryk (PCP, phencyclidine) reykt
Matthías
Halldórsson