Morgunblaðið - 25.06.2000, Qupperneq 48
MORGUNBLAÐIÐ
Í*í8 SUNNUDAGUR 25. JÚNÍ 2000
Dýraglens
2R«rjjtmIiXnI>ií>
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Grettir
Hundalíf
Ljóska
Kringlunni 1103 Reykjavik • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
RUV - örygg-
istæki íþrótta-
manna?
Frá Ævari Rafni Kjartanssyni:
Eftir alvarlegasta jarðskjálfta á
Islandi síðan 1912 sýndi ríkis-
sjónvarp allra landsmanna, á
venjulegum fréttatíma sínum,
Englendinga og Þjóðverja sparka
bolta milli sín.
Á meðan þjóðin panikeraði, hús
höfðu eyðilagst og fólk á barmi
taugaáfalls leitaði örvæntingarfullt
upplýsinga sýndi ríkiskassinn okk-
ur það að tíðindaleysið á vestur-
vígstöðvunum í sparkleiknum
skipti þá meira máli en hlutskipti
þeirra í öryggismálum þjóðarinn-
ar.
Þessum sömu öryggismálum og
eru alltaf notuð til að réttlæta til-
vist ríkisrekins sjónvarps.
Annar öryggisbúnaður stóð ekki
undir væntingum. Útsendingar út-
varps, gsm-kerfið og almanna-
varnanefnd með sinni blaðsíðu í
höfuðborgarsímaskránni fá fall-
einkunn í vandræðagangi sínum en
ríkiskassinn sást skýrt og greini-
lega.
Það var komið eitt-núll fyrir
Englendinga.
Mér létti stórlega.
Verandi ekki mikill sófaíþrótta-
kappi hefur það oft farið í taugarn-
ar á mér að allt íþróttasprikl virð-
ist vera eina efnið sem fær að tæta
sundur áður útgefna dagskrá í
hvert sinn sem spriklararnir vilja
vera lengur að.
Eins og svo margir aðrir hef ég
borið þann harm minn í hljóði og
hugsað með mér að ég geti svo
sem lesið fréttir í Morgunblaðinu í
fyrramálið.
En fyrr má nú rota en dauðrota!
Það eru liðnir rúmar 3 klst. frá
jarðskjálfta á bilinu 6-6,6 á richter
og aðalfréttatími ríkissjónvarpsins
lítilsvirðir hlutverk sitt og fólkið í
landinu með þögn frá fréttastofu
og mönnum í sparkleik.
Hvað á þetta að þýða? Fundu
þeir ekki fyrir skjálftanum?
Ríkissjónvarpið nýtur þeirra
forréttinda að allir sem eiga sjón-
varp eru skyldugir til að greiða af-
notagjöld. Meðal rakanna fyrir
þessari skattheimtu er öryggis-
hlutverk ríkiskassans. Það er ekki
nóg að segjast bara horfa á Stöð 2.
Það er ekki einu sinni hægt að
kaupa læsingu fyrir ríkisómyndina
og komast þannig hjá þessari lög-
bundnu innheimtu. Ó, nei, aðrir
mega keppa á frjálsum markaði en
sennilega veit ríkisfyrirbærið sem
er að þar á það enga lífsvon. Því er
það bara sett í lög að allir skuli
greiða. Þetta er jú öryggistæki.
Hneykslun mín og reiði var slík
að ég gat ekki á mér setið og
hringdi í fréttastofu sjónvarpsins
einhverjar mínútur yfir sjö og
spurði hvort það ætti virkilega að
taka boltasparkið fram yfir nátt-
úruhamfarirnar. „Það lítur út fyrir
það,“ var svarið, að vísu með þeim
upplýsingum að sennilega kæmu
einhverjar fréttir kl. 19.45, sem
ekki gerðist.
Á sama tíma tjaldaði Stöð 2 af
sinni amerísku dramatík öllu sem
til var; hálfklipptum myndskeið-
um, beinum útsendingum frá Suð-
urlandi og það sem mest er um
vert fréttamennsku af því sem var
að gerast á Islandi, ekki í boltaleik
í Belgíu.
En það sjá ekki allir Stöð 2.
Við stjórnendur RÚV vil ég
segja þetta og tel mig mæla fyrir
munn margra: Það getur vel verið
að þið ræktið hlutverk ykkar sem
öryggistæki fyrir íþróttamenn en
íslensku þjóðinni brugðust þið.
Svei ykkur og allri ykkar íþrótta-
maníu. Þessi þjóðhátíðardags-
skömm líður fólki seint úr minni
og þið ættuð að sýna þó þann
manndóm að hunskast frá störfum
eða það sem betra er; að leggja
þessa stofnun niður.
ÆVAR RAFN
K JARTAN SSON,
Hverfisgötu 54, Hafnarfirði
Betra blað
Smáfólk
m P06 HA5 60NE
' TO WEEPLE5 TO 5ELL
50UVENIR5 AT THE
.OLVMPIC 6AME5.
THAT 5TUPIP P06Í
HOUJ UJILL HE
KNOU) LUHICH
UJAVT0 6O?
Hundurinn minn er
farinn til Nálaborgar
til að selja minjagripi
á Ólympíuleikunum
Sá heimski hundur!
Hvemig veit hann
hvaða leið á að fara?
rLET5 5EE NOIO..NEEPLE5
15 IN THE UIE5T..THE MOON
15 ALUJAV5 OVER HOLLYUJOOR
ANP HOLLYUJOOP15 IN THE
UJE5T..50...
Látum okkur sjá... Nálaborg er í
vestur.. tunglið er alltaf yfir
Hollywood, og Hollywood er í
vestur.. þannig að..
Frá Helga Steingímssyni:
ÞETTA er skrifað 22.6. '00 - til þess
eins að hvetja þá sem að Morgun-
blaðinu standa að gefa frá sér fréttir
á þeim tíma sem þær verða til. Að
lesa stríðsfyrirsagnir um jarðskjálfta
heilum þrem dögum síðar í Morgun-
blaðinu er ekki bara þvi til hneisu,
heldur mér, því ég er áskrifandi.
Morgunblaðið gerir eflaust vel við
sitt starfsfólk - og er það vel. Morg-
unblaðið vill vissulega að fréttir ber-
ist fjótt og vel - og er það gott.
Er ekki tími til kominn fyrir Morg-
unblaðið, eftir að það hætti að taka
afstöðu til stjórnmála, að beina at-
hyglinni að áskrifendum sem vilja
stundum fá að vita hvað er að gerast
- þegar það er að gerast.
Gefið blaðið út, því það er gott, alla
daga vikunar, og sannfærist um að sú
ritstjórnarhefð sem ríkt hefur mun
sýna og sanna að áskrifendur þurfa
ekki að lesa bara eftirmál og afganga
heldur það sem er að gerast í nútíma-
þjóðfélagi, - þegar það gerist.
HELGISTEINGRÍMSSON,
Jörfabakka 18, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.