Morgunblaðið - 26.08.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 23
VIÐSKIPTI
Kværner með
1,5 milljarða
ihagnað
• HAGNAÐUR norska stórfyrirtækis-
ins Kværner á fyrri hluta ársins nam
155 milljónum norskra króna sem
samsvarar um 1.500 milljónum ís-
lenskra króna.
Búist var við aö hagnaöurinn yröi á
bilinu 60-90 milljónir norskra króna.
Olíu- og gasiönaðarhluti fyrirtækis-
ins er eini angi þess sem skilar verri
niöurstöðu en í fyrra. En þaö er ein-
mitt sá hiuti fyrirtækisins sem
stjórnin telur æskilegt aö sameinist
Aker Maritime, fyrirtæki í meiri-
hlutaeigu Kjell Inge Rökke. Þetta
kemur m.a. fram í Dagens Nærings-
liv.
Að mati stjórnar Kværner yröu
veruleg samlegðaráhrif af samein-
ingu fyrirtækjanna eöa um 250 millj-
ónir norskra króna sem samsvarar
tæpum 2,5 milljörðum íslenskra
króna. Stjórnin hyggst gera hluthöf-
um Aker Maritime annaö tilboð sem
birt veröur í næstu viku.
MP3 semur
við Sony
• NETMÚSÍKFYRIRTÆKIÐ MP3.com
hefur náð samkomulagi um greiöslu
skaðabóta til Sony Music Entertain-
ment vegna óleyfilegrar notkunar á
lögum Sony og nema skaöabæturnar
tuttugu milljónum dala. f samningn-
um felst einnig aö MP3.com fær leyfi
til þess aö nota tónlist sem Sony gef-
ur út en héöan í frá þarf þaö að
greiða gjald í hvert skipti er viö-
skiptavinur MP3.com pantar Sony-
diska eöa vistar lög sem Sony hefur
gefiö út. Talið er aö samningurinn sé
á svipuðum nótum og samningar þeir
sem MP3.com hefur þegar gert viö
Time-Warner, EMI og Bertelsmann.
„Með þessum málalokum fæst stað-
fest að þeir sem eiga höfundarrétt af
tónlist skuli fá greitt lyrir notkun
hennará Netinu," segir Al Smith, aö-
stoðarframkvæmdastjóri Sony.
Ný þjónustuáætlun Eimskips
Flutningsgeta félags-
ins til Evrópu eykst
Á NÆSTU vikum taka gildi breyt-
ingar á þjónustuáætlun Eimskipafé-
lagsins í flutningum til og frá Evrópu.
Við þessar breytingar hefur félagið
haft það að leiðarljósi að bjóða áfram
upp á bestu fáanlegu þjónustu í flutn-
ingum til og frá íslandi, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Eimskip.
Flutningsgeta félagsins til Evrópu
eykst þegar tekin verða í notkun
stærstu og fullkomnustu skip, sem fé-
lagið hefur verið með í rekstri til
þessa.
Áætlun skipa í Amerílmsiglingum
og í strandsiglingum við ísland verð-
ur óbreytt.
Ný skip tekin í notkun
Tekin verða í notkun tvö fullkomin
gámaflutningaskip með 1.457 gáma-
eininga flutningsgetu. í byrjun sept-
ember kemur fyrra skipið, sem hefur
hlotið nafnið Goða-
foss, inn í áætlun. Á
sama tíma verður
tveimur leiguskipum
skilað. Undir lok
október kemur seinna
skipið, Dettifoss, inn í
áætlunina en Brúar-
foss og Hansewall
fara úr áætlun á sama
tíma. Eftir 23. októ-
ber verður siglt alfar-
ið eftir nýrri áætlun.
Mánafoss mun
áfram sinna strandsiglingum við ís-
land en breytingar verða á skipakosti
á Ameríkuleið og Suðurleið en þjón-
ustan verður óbreytt.
Tvær siglingaleiðir til Evrópu
Suðurleið, þ.e. siglingar frá
Reyþjavík til Vestmannaeyja, Rotter-
dam og Immingham,
verður óbreytt. Ný
leið sem fær heitið
Norðurleið, sameinar
Strandleið og
„gömlu“ Norðurleið-
ina sem þá leggjast af.
Skip á þeirri leið
munu sigla frá
Reykjavík og koma
við á Grundartanga,
Eskiflrði, Þórshöfn í
Færeyjum, Rotter-
dam, Hamborg, Árós-
um, Gautaborg og Fredrikstad. Sigla
síðan aftur til Þórshafnar og Reykja-
víkur.
Þar sem skipin koma ekki inn í sigl-
ingakerfið á sama tíma, munu gamla
siglingakerfið og það nýja verða
keyrð samhliða í september og októ-
ber.
Raunávöxtun Lífíðnar 13,3%
SAMKVÆMT endurskoðuðu milli-
uppgjöri lífeyrissjóðsins Lífiðnar
hinn 30. júní síðastliðinn er hrein
eign til greiðslu lífeyris liðlega 15,9
milljarðar samanborið við rúmlega
14,5 milljarða í árslok 1999 og hefur
eign sjóðsins því vaxið um 9,6%. Líf-
eyrissjóðurinn Lífiðn er níundi
staersti hfeyrissjóður landsins.
í tilkynningu frá Lífiðn segir að
heldur hafi hægt á vexti sjóðsins en
það megi rekja til lakari ávöxtunar
hlutabréfa á fyrstu sex mánuðum
þessa árs samanborið við árið 1999.
Hins vegar sé áfram útlit fyrir að
ávöxtun hlutabréfa verði góð fyrir
árið í heild. Raunávöxtun Lífiðnar
frá og með júlí 1999 til og með júní
2000 er 13,4% og 13,3% að teknu til-
liti til rekstrarkostnaðar. Hrein
raunávöxtun árið 1999 var 14% og
lækkunin nú skýrist, eins og áður
segir, af lakari ávöxtun hlutabréfa-
safns.
Fjöldi greiðandi sjóðfélaga er nú
4.820 samanborið við 4.594 í árslok
1999. Fjöldi lífeyrisþega er 366 sam-
anborið við 387 í árslok 1999 en um
fækkun er að ræða í öllum hópum líf-
eyrisþega að eftirlaunalífeyrisþeg-
um undanskildum. Heildariðgjöld á
fyrri hluta ársins námu 546 milljón-
um króna og útlit er fyrir að heildar-
iðgjaldagreiðslur í sjóðinn verði í
fyrsta sinn á annan milljarð fyrir ár-
ið í heild.
Tele Danmark
hlutað sundur
• TIL stendur að skipta Tele Dan-
mark upp í sex sjálfstæö fyrirtæki aö
því er kemurfram í grein í Politiken.
Sérfræöingar segja aö meö því aö
hluta félagið niöur ætli aöaleigandi
Tele Danmark, bandaríska fyrirtækið
SBC Communication, aö leysatil sín
hagnaö með því aö selja á hluta-
bréfamarkaði þá hluta fyrirtækisins
sem hæst verð fæst fyrir. Ákveöið
hefur veriö að þessar breytingar
gangi í gegn um næstu áramót.
„Það er ijóst að miklar breytingar
munu veröa á þessum markaði á
næstu árurn," segir Henning Dyre-
mose, forstjóri Tele Danmark og bæt-
ir við aö meö þessum breytingum
veröi Tele Danmark beturí stakk búið
til þess að ná aö vaxa. Dyremose
dregur heldur ekki dul á aö til standi
að skrá einhver af hinum sex nýju fyr-
irtækjum á hlutabréfamarkaö en seg-
ir aö það muni þó ekki verða strax.
Ulrik Biilow, forstjóri Sonofon,
sem er aðalkeppinautur Tele Dan-
mark, segist gjarnan vilja fá aö vita
hver muni kaupa Tele Danmark. „Þaö
kemur sér vel fyrir hluthafa félagsins
aö því veröi skipt upp en með því
veröa til afmarkaðri rekstrareiningar
sem auðveldara verður aö selja. Og
ég held aö megintilgangurinn með
þessu sé einmitt sá aö selja. Þaö má
allt eins gera ráð fyrir aö fleiri félög
muni fara þessa leiö, eins ogtil aö
mynda Telia í Svíþjóð," segir Bulow.
Dyremose segir hins vegar að ekki
standi til aö SBC Communication,
hyggist selja bréf sín í félaginu eftir
skiptingu þess. „SBC ætlar aö vera í
fremstu röö fjarskiptafyrirtækja í
Evrópu og stefnir aö því að styrkja
stööu sína en ekki veikja hana.“
Hann segireinnigaö hin nýjufyrir-
tæki sem veröi til meö skiptingu Tele
Danmark muni sækja stíftfram bæöi
á heimamarkaöi ogannars staöarí
Evrópu, Tele Danmark sé þegar oröiö
alþjóölegtfyrirtæki enda komi um
48% af veltu félagsins erlendis frá.
Mazda 323 F
Fyrir oLÖeins
19.884
Opið laugardaga frá kl. 12-16
Skúlagötu 59, slmi 540 5400 www.raesir.is
Ísafjðríur: Bllatangi thf. Akurtyri: BSA hf. Egilsstaðir: Bilasalan Ftll Stlfoss: Bttri bilasalan Vtstmannatyjar: Bifreiðavtrkstœai Muggs Akranes: Bilis Ktflavík: Bilasala Ktflavíkur Hornafjðrður: Vélsmiðja Hornafjarðar
‘Mazda 323 f. Ver& 1.550.000 kr. Meöalgrei&sla á mánu&i m.v. 10.8.2000, 500.000 kr. útborgun/uppítöku, bílalán í 84 mánu&i, 8,3% vexti og 5% ver&bólgu.
kr.
á- ittánuöi*
verður
Míizíífl 323 F
pinn híll
• ABS hemlalæsivörn.TCS spólvörn
• Útvarp, geislaspilari og fjórir hátalarar
• Framsætisbak sem breyta má í hentugt borb
• Upphitabir og rafstýrbir hlibarspeglar
• Þriggja ára eba 100.000 km ábyrgb