Morgunblaðið - 26.08.2000, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000 21
Vann Grett-
isbikarinn í
annað sinn
Hvammstanga - Um sfðustu helgi
fór fram keppni um Grettisbik-
arinn við Byggðasafnið á Reykjum
við Hrútafjörð. Var keppnin liður í
dagskrá Grettisdags-Bændadags,
sem var síðasti liður í sumarhátíð-
inni Bjartar nætur, sem haldin er
árlega í Húnaþingi vestra.
Dagurinn hófst með söguskoðun
á Bjargi í Miðfirði og guðsþjónustu
á Melstað. Hópur fólks fór því
næst í táknræna ferð úr Miðfirði
yflr í Hrútafjörð eftir fáförnum
vegi úr Vesturárdal, en oft segir
frá ferðum Grettis sterka milli
þessara sveita.
Við Byggðasafnið á Reykjum fór
fram skemmtidagskrá, þar sem
m.a. var keppt í kálfaþrautabraut,
sem gestir úr Búðardal unnu, kúa-
dómum og kúadelluveðbanka, þar
sem menn veðjuðu á merkta reiti í
kúagirðingu. Hápunktur dagskrár-
innar var árleg keppni aflrauna-
manna um Grettisbikarinn. sem
Gísli Jón Magnússon, júdókappi
frá Stað, stjórnaði. Keppt er í
nokkrum þrautum, steinalyftu, þar
sem steinar eru 55, 90 og 112 kfló
og er þeim lyft upp á olíutunnur,
þá er dreginn Trupper-jeppabif-
reið, fengist við stærstu traktors-
hjólbarða og bændaganga, sem er
kapphlaup með tvo 30 h'tra brúsa.
Alls kepptu átta um bikarinn og
hlutskarpastur varð Siguij'ón Þor-
steinsson á Reykjum, en hann var
handhafi bikarins frá síðasta ári.
íöðru sæti var Reynir Guðmunds-
son og í þriðja Jakob Hermanns-
son.
Gestum var einnig boðið að
skoða Byggðasaftiið, meðal annars
sýninguna Refsingar á íslandi, en
sú sýning var opnuð í Hillebrands-
húsi á Blönduósi fyrr í sumar.
Gönguferðir
um Þingvelli
NÚ UM helgina eru síðustu forvöð
að taka þátt í hefðbundinni sumar-
dagskrá þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Laugardaginn 26. ágúst gefst
kostur á gönguferð um eyðijörðina
Arnarfell við Þingvallavatn. Farið
verður frá þjónustumiðstöð kl. 13 og
ekið að afleggjaranum að Arnarfelli
þaðan sem lagt verður upp kl. 13.30
og gengið á fellið. Gera má ráð fyrir
að ferðin taki ríflega 3 klst. Það er
nauðsynlegt að vera vel skóaður og
sjálfsagt að taka með sér nestisbita.
Sunnudaginn 27. ágúst verður
einnig lagt í gönguferð kl. 13. Þá
verður gengið meðfram gjábarmi
Snókagjár, niður Langastíg og um
Stekkjargjá. Byrjað verður við
þjónustumiðstöð og í göngunni
einkum rætt um jarðfræði og nátt-
úrufar Þingvallasvæðisins. Búast
má við að gangan taki um 2 klst.
Guðsþjónusta verður í Þingvalla-
kirkju kl. 14 og eftir messuna geng-
ið um þingstaðinn forna í fylgd stað-
arhaldara. Sú ganga hefst við
kirkjuna og tekur ríflega 1 klst.
Þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins
er ókeypis og öllum opin.
----------------
Göngudagur
FÍ og SPRON
BOÐIÐ verður upp á gönguferð
milli eyðibýla á Þingvöllum sunnu-
daginn 27. ágúst. Leiðsögumaður í
þessari ferð verður Þór Vigfússon,
kennari á Selfossi, sem gjörþekkir
Þingvallasvæðið og búsetusögu þess.
Meðal viðkomustaða á þessari
göngu má nefna Selkot en þar var
búið fram til 1953, Svartagil, þar sem
búið var fram til 1970 og Hrauntún.
Brottför er frá BSÍ og Mörkinni 6
kl. 11 á sunnudagsmorgun og áætluð
heimkoma síðdegis. Létt hressing
verður í boði að göngu lokinni og á
göngudegi F.í. og SPRON er allt
frítt; rúta, fararstjórn og hressing en
þátttakendur þurfa sjálflr að sjá um
nesti til hádegisverðar.
Sigurvegararnir (f.v.) Reynir Guðmundsson, Siguijón Þorsteinsson og
Jakob Hermannsson.
Keppnisandinn var mikill -
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
hlaupið með brúsana.
Ökkar árlega p®i§&§áMfíJÚMk er byrjuð með
gfæsibrag. Stútfull gróðurhús af pottaplöntum og
nú bjóðum við leirpotta á betra verði en sést hefur
á Íslandi.
Byltfngnrkennt verð
Begonía
Stofuaskur
Drekatré
Jukka
Burkni-
Rifblaðka
Gróour
mold
Friðarlilja
jKam Æf
12 lítrar
ALLT A SAMA STA6
Uppiý s i n g a s í m ?: 5800 500