Morgunblaðið - 26.08.2000, Blaðsíða 68
Ciscg Systems
P A R T N E R
SILVER CERTIFIED
TæknivaS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTII
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Arnaldur
UA með
mestan
kvóta
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa
hf. er kvótahæsta sjávarútvegsfyrir-
tæki landsins miðað við úthlutun
aflamarks innan fiskveiðilög-
sögunnar í upphafi nýs fiskveiðiárs,
með rétt um 20.000 tonn í þorskígild-
um eða 5,82% af heildarúthlutun
aflaheimilda. Kvóti stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækja landsins hefur
minnkað töluvert frá síðustu fisk-
veiðiáramótum, m.a. vegna minni
þorskveiðiheimilda og minni ugp-
hafsúthlutunar i loðnu. Kvóti ÚA
hefur hins vegar aukist töluvert frá
síðustu úthlutun en félagið samein-
aðist Jökli hf. og Hólmadrangi hf. á
Hólmavík á árinu. Sé kvótanum utan
lögsögu á þessu almanaksári bætt
við er Samherji með mestan heildar-
kvóta íslenskra útgerða eða 23.900
þorskígildistonn.
Frystitogarinn Arnar HU frá
Skagaströnd er sem fyrr kvóta-
hæsta skip landsins með ríflega
6.140 tonna kvóta eða um 1,94%
heildarúthlutunarinnar. Athygli
vekur að línuskipið Tjaldur SH frá
Rifi er nú í öðru sæti yfir kvótahæstu
skip landsins með 6.048 tonna kvóta.
■ ÚA með mestan/24
' Veisla á trénu
Ekið á karlmann í bifreiðageymslu í Kópavogi
Nú er sá tími ársins þegar íslendingar geta sótt sér ávexti í faðm náttúr-
unnar með því að eta ber af trjám og lyngi. Rifsberin eru orðin þroskuð á
runnunum í garðinum hjá honum Orra í vesturbæ Reykjavíkur.
Grunur um tilraun
Tillaga landlæknis um gagnagrunn
á aðalfundi Læknafélags fslands
Upplýst sam-
-þykki taki gildi
um áramót
MIKLAR umræður um gagna-
grunnsmálið hafa verið á aðalfundi
Læknafélags íslands, sem nú fer
fram á ísafirði.
Sigurbjörn Sveinsson, formaður
Læknafélags Islands, sagði í sam-
taii við Morgunblaðið að umræður
um gagnagrunninn hefðu verið
fyrirferðarmiklar á fundinum í
gær.
M.a. lagði Sigurður Guðmunds-
>«on landlæknir fram tillögu um að
frá og með áramótum yrði farið
fram á upplýst samþykki sjúklinga
fyrir upplýsingum sem fara eiga í
gagnagrunninn, en gengið yrði út
frá ætluðu samþykki fram að þeim
tíma.
Sigurbjörn sagði að landlæknir
legði tillöguna fram sem einn fé-
lagsmanna í Læknafélaginu og
hún færi í starfshóp sem ynni úr
öllum tillögum sem varða gagna-
grunn á heilbrigðissviði. „Hvaða
örlög þessi tillaga fær þar er óljóst
en kemur fram [í dag],“ sagði Sig-
urbjörn, en í dag verður álykt-
unartillaga aðalfundar félagsins
um málið rædd og greidd um hana
atkvæði.
til manndráps
KARLMAÐUR á sextugsaldri var í
gær úrskurðaður af Hæstarétti til
að sitja í gæsluvarðhaldi til 3. októ-
ber nk., en hann er grunaður um til-
raun til manndráps. Manninum er
gefið að sök að hafa vísvitandi ekið
niður mann í Kópavogi sl. sunnudag.
Með dómi sínum staðfesti Hæsti-
réttur úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Síðdegis á sunnudaginn var lög-
reglan í Kópavogi kölluð að bíla-
geymslu í Hamraborg þar sem bif-
reið hafði verið ekið á mann. Þegar
lögreglan kom á staðinn lá maður-
inn á gólfi bílageymslunnar. Vitni
sögðu að bíl hefði verið ekið í átt að
manninum þar sem hann var á gangi
ásamt tveimur konum. Þær náðu að
forða sér en maðurinn lenti á bflnum
með fyrrgreindum afleiðingum.
Ökumaðurinn stöðvaði ekki bifreið
sína heldur forðaði sér af vettvangi.
Lögreglan hafði uppi á honum um
hálftíma síðar. Hann játaði við yfir-
heyrslur að hafa ekið á manninn en
bar við að hann hefði einungis ætlað
að skjóta honum skelk í bringu.
Ökumaðurinn hefur verið í vörslu
lögreglunnar síðan á sunnudag.
Maðurinn sem varð fyrir bílnum
er kínverskur og hefur búið hér á
landi um nokkra hríð. Maðurinn,
sem er á fimmtugsaldri, slasaðist
ekki alvarlega þegar hann varð fyrir
bílnum en lögreglan telur að mun
verr hefði getað farið. Talið er að at-
vikið megi rekja til skilnaðarmáls,
en á síðustu vikum hafa komið upp
átta atvik þar sem karlmaðurinn,
sem nú situr í gæsluvarðhaldi, er
grunaður um áreitni.
Borgarstjóri og formaður KSÍ
Stærri stúka í
Laugardal?
FORMAÐUR Knattspymusam-
bands Islands kynnti borgarstjóra í
gær hugmyndir um að ráðist verði í
framkvæmdir til að fjölga sætum í
stúku Laugardalsvallar í 10-12 þús-
und, en þar eru nú um 7 þúsund sæti.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur borgarstjóra varð nið;
urstaða fundarins sú að forysta KSI
ynni áfram að málinu, m.a. að athug-
un yrði gerð á því hvernig unnt yrði
að fjármagna framkvæmdimar.
Borgarstjóri sagði að á fundinum
hefði Eggert Magnússon, formaður
KSI, kynnt hugmyndir KSÍ um
þetta efni. „Þetta vom fyrstu hug-
myndir og spumingin var um að
heimila þeim að vinna áfram á þeim
grundvelli og skoða leiðir til að fjár-
magna þá uppbyggingu."
Borgarstjóri sagði að niðurstaða
fundarins hefði ekki verið önnur en
sú að ákveða að Eggert ynni áfram á
grundvelli hugmyndadraganna og
kannaði leiðir til að fjármagna fram-
kvæmdimar. Um það hvaða leiðir
væm þar taldar færar sagði borgar-
stjóri að nefndar hefðu verið hug-
myndir um að kanna möguleika á að
fá fleiri rekstraraðila inn í myndina.
„En það var ekkert ákveðið í þeim
efnum,“ sagði hún.
Nú em um sjö þúsund sæti í stúku
Laugardalsvallar en vegiia alþjóða-
reglna um knattspyrnumót er ekki
lengur leyfilegt að selja í stæði á al-
þjóðlega kappleiki. Af þeim sökum
geta aðeins um 7.000 áhorfendur
fylgst með landsleiknum við Dani
þann 2. september nk.
Hitaveita
enn í vanda í
Breiðholti
og Kópavogi
HEITAVATNSLAUST varð í
hluta Breiðholts og Kópavogs
um kl. 17 í gær og var vatns-
laust í um tvær klukkustundir.
Bilun kom upp í dælubmnn-
inum við Stekkjarbakka á
þriðjudag og hefur viðgerð
staðið yfir síðan, en á meðan
hefur heitu vatni verið veitt til
þessara hverfa um önnur rör.
Sigurður Guðmundsson,
stöðvarstjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur, sagði í samtali við
Morgunblaðið að í gær hafi ver-
ið gerð tilraun til að veita vatni
aftur um aðalæðina. Þá hafi
önnur bilun komið í ljós og olli
hún tímabundnu vatnsleysi.
Heitu vatni hefði því aftur verið
veitt um önnur rör til bráða-
birgða og sagði hann að viðgerð
við aðalæðina yrði haldið áfram.