Morgunblaðið - 26.08.2000, Side 58
58 LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KaffiLeihhnsið
Vesturgotu 3 ■■iiw.Maagajiiifli
í kvöld, lau. 26. ágúst kl. 22:00
Hljómsveitin Casino
hanastélstónleikar
MIÐASALA í síma 551 9055
Sýnt f Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
í kvöld lau. 26/8 uppselt
lau. 2/9
lau. 9/9
Miðapantanir f síma 561 0280.
Miðasölusími er opinn alla daga kl. 12-19.
Miðinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús.
Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn.
T EIKFÉLAG ÍSi.ANDK
r
L°8TAs1áSNK| 552 3°°o
THRILLER sýnt af NFVÍ
lau. 26/8 kl. 20.00. öriá sæti laus
lau. 2/9 kl. 20.00 nokkur sæti laus
Síðustu sýningar
PANODIL FYRIR TVO
fös. 1/9 kl. 20.00 laus sæti
530 303O
JÓN GNARR. Ég var einu sinni nörd
lau. 2/9 kl. 20 nokkur sæti laus
Miðasalan er opin í Loftkastalanum og Iðnó frá kl.
11-17. Á báðum stöðum er opið fram að sýningu sýn-
ingarkvöld og um helgar þegar sýning er. Miðar
óskast sóttir í viðkomandi leikhús. (Loftkastalinn/
Iðnó). Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir sýningu.
www.landsbanki.is
Fjöiskylduhótíð
Landsbanko
íslands
Hótíðin verður haldin í
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
í Laugardal í dag
laugardaginn 26. ógúst.
Garðurinn verður opinn
fró kl.l 0:00 til 18:00.
Samfelld skemmtidagskró
fró kl. 14:00 - 17:00.
Kynnið ykkur dagskrónna ó heimasíðu
bankans www.landsbanki.is
Landsbankinn
m
ónustuver 560 6000
Opið frá 9 til 19
FÓLK í FRÉTTUM
Tröllauknir
hrossabrestir
SJONVARP A
LAUGARDEGI
ÁBERANDI hafa verið margvís-
legir stórviðburðir að undanfömu
eins og sagt hefur verið frá í sjón-
varpi og öðrum fjölmiðlum að und-
anfömu. Ber þar
hæst flutninginn á
Baldri, tónverki
Jóns Leifs, þess sem
gleymdur var fyrir
utan hiklausa baráttu fyrir greiðsl-
um (Stef) til höfunda og tónskálda.
Vakti einurð Jóns í því máli heiftúð-
ug viðbrögð. Minna var hirt um á
þeim tíma að Jón var sjálfur tón-
skáld og ekki lítið. Við hlið sér hafði
hann lögfræðinginn Sigurð Reyni
Pétursson sem var nú heldur betri
en enginn í réttindamálinu. Þetta
var á þeim góðu áram þegar undir-
ritaður var ungur blaðamaður og
nokkuð handgenginn Jóni á meðan
á slagnum stóð. Aldrei minnist Jón
á eigin tónsmíðar. Stef var alls stað-
ar í fyrirrúmi svo eitthvað varð
undan að láta. Meira að segja fékk
Eisenhower, þáverandi forseti
Bandaríkjanna, skeyti frá Jóni þar
sem spurst var fyrir um hvort það
ætti að viðgangast að varnarliðið á
Keflavíkurvelli borgaði ekki Stef-
gjöld.
Eitthvað heyrðist af undirbún-
ingi flutnings á tónverki eftir Jón
frá Sinfóníunni. Sagt var að komið
hefði upp á æfingu vandamál með
nógu öflugan áslátt. Var Jón kallað-
ur til og spurt hvernig með ætti að
fara. Ekki væri til neitt tæki sem
gæfi slíkt bylmings-
högg og krafist væri.
Jón svaraði stutt og
laggott: „Smíðið það
bara.“ Nú era menn-
ingarvitar orðnir frjálslyndari og
nú eru smíðaðir brestir og slög við
hæfi til flutnings á verkum Jóns.
Þetta rifjaðist allt upp þegar sagði í
útvarpsfréttum að í væntanlegum
flutningi á Baldri yrði notaður
tröllaukinn hrossabrestur. Sjálf-
sagt hefur hann verið sérmíðaður.
Svo var haldin menningarnótt,
hvað sem það nú er, og sótti mikill
mannfjöldi miðborg Reykjavíkur af
því tilefni. Þar skemmti fólk sér vel
við að gefa hvert öðru á lúðurinn og
komast ekki heim til sín innan
borgar á minna en þremur tímum.
Búið var að auglýsa strætó einhver
ósköp svo menn voru jafnvel famir
að halda að ein sérleiðin lægi til
himnaríkis. En strætó komst
hvergi hvað sem auglýsingum leið
og varð að bíða eftir að fólksfjöld-
inn minnkaði en fólksfjöldinn beið
aftur á móti eftir því að bflar kæm-
ust af stað. Þeir síðustu sáust sitj-
andi á útmignum tröppum að bíða
eftir strætó klukkan níu um morg-
uninn. Einhvem tíma sagði maður:
„Látið menninguna í friði.“ Aug-
Ijóst er að hann var ekki bænheyrð-
ur.
Og nú er gamla Gufan búin að fá
bólfélaga í Efstaleiti og er þá ekki
átt við þann sem var að fikta í raf-
magninu á dögunum heldur sjálft
sjónvarpið sem þrátt fyrir altt er
prýðisgóður miðfll. Það hefur rækt
starf sitt eftir bestu getu og á í fór-
um sínum mikið magn efnis sem
það er byrjað að endursýna. Sést
þar að Islendingar gengu alskapað-
ir til verka og voru einskis eftirbát-
ar. Tilurð þess tengist nokkuð því
að þrengt var að útsendingu Kefla-
víkursjónvarps svo einir sextíu
menn skrifuðu sig á lista (Það var
þá jöfn tala og þingmenn) og vildu
íslenskt sjónvarp. Þetta gekk eftir
og var gæfuspor. Síðan hefur verið
hljótt um sextíumenningana enda
þykjast aðrir geta núna. í iyrstu
var nokkurt kapp á milli útvarps og
sjónvarps en nú vita allir að það
bæði eru nauðsynlegar og þarfar
stofnanir. Svo mun lengi verða því
það hæflr að stofnanir af þesu tagi
séu líka til undir ríki og Alþingi.
Indriði G. Þorsteinsson
Sixties í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld með nýja mannaskipan
Stökk-
breyttir
Sixties
TIMARNIR breytast og mennirn-
ir með eða í tilviki hljdmsveita
væri ef til vill réttara að segja
mannaskipanin með, því sumar
hljémsveitir eiga það til að verða
líkt og fyrirtæki sem einfaldlega
ráða nýja menn í þau störf sem
þarf að fylla. Ein slík er hljém-
sveitin Sixties en f dag er aðeins
einn þeirra meðlima sem voru á
fyrstu breiðskífu sveitarinnar eft-
ir. f kvöld gefst áhugasömum svo
tækifæri á því að heyra hvernig
sveitin hljémar eftir stökkbreyt-
inguna því nú er komið að þeim í
ténleikaröðinni „Svona er Sumar-
ið 2000“ sem haldin er í Þjéðleik-
húskjaliaranum.
„Nýjasti meðlimurinn heitir
Svavar Sigurðsson og er gítar-
leikari," segir Guðmundur Guð-
jénsson, trommari og langlífasti
meðlimur sveitarinnar. „Svavar
stofnaði þetta band með okkur á
sínum tíma. Jóhannes Eiðsson
söngvari tók við af Rúnari í okté-
Sixties eins og þeir eru í dag, búnir að losa sig við bítlajakkana.
—iiiii
isi i:\sk v oi’i.i! v\
Simi 5// 4200
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
lau 26/8 kl. 20 örfá sæti laus
fös 1/9 kl. 20 örfá sæti laus
Miðasölusími 551 1475
Miðasala opin kl. 15—19 mán—iau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
ber í fyrra og svo er Ingimundur
Óskarsson, fyrrverandi bassaleik-
ari Reggae On Ice, búinn að vera
með okkur í tvö ár.“
Jéhannes Eiðsson söngvari er
Ifklega þekktastur fyrir að hafa
sungið lagið „Kinn við kinn“ í
Landslaginu hérna um árið auk
þess að hafa verið meðlimur í
hljémsveitinni Loðinni rottu.
Það ætti ekki að koma neinum
á óvart að þegar jafn róttækar
mannabreytingar eiga sér stað
kléra sér margir í höfðinu og
setja upp undarlegan svip.
„Sixties er náttúrulega bara
vinnustaður í rauninni. Við höf-
um aldrei verið í neinu sem heitir
„metnaðarfullar pælingar“, gera
frumsamin lög og svoleiðis, fyrr
en nú. Við höfum verið að spila
minna og við erum farnir að gefa
okkur tíma til þess að semja og
við erum komnir með um tíu lög.
Þetta er mjög samheldur og géð-
ur hépur f dag, allir tilbúnir til
þess að æfa og svona.“
Því er lagið þeirra „Ekki snúa
við“, sem er að finna á safnplöt-
unni „Svona er Sumarið 2000“,
einskonar forskot á það sem
koma skal en samkvæmt Guð-
mundi má jafnvel búast við þvf að
hljémsveitin gefi út nýja breið-
skffu, fulla af frumsömdu efni,
næsta sumar.
MYNDBÖND
Furðu-
skepnur
Mannætueðlurnar
(Komodo)
Spennumynd
%
Leikstjóri: Michael Laniteri. Hand-
rit: Hans Bauer og Craig Mitcheil.
Aðalhlutverk: Paul Gleeson og
Kevin Zegers. (90 mín.) Bandaríkin,
1999. Myndform. Bönnuð innan
12 ára.
ÞAÐ ER erfítt að átta sig á því
hvers kyns kvikindin, sem herja á
grandalausa vegfarendur í þessari
mynd, eiginlega
eru. Þau eru kennd
við Komodo-eðlur
og eru eins konar
krókódflar með
risaeðluhausa.
Ekki er heldur út-
skýrt að mínu viti
hvaðan eðlurnar
koma, utan atriðis í
byrjun sem sýnir
svartamarkaðsbraskara pranga
grunsamlega stórum eggjum inn á
félaga sinn. Sá hendir eggjunum út í
mýri þar sem honum finnst þau lykta
illa. Komodo-ungar komast þá á legg
og ráðast á foreldra hins fimmtán
ára gamla Patricks sem skaddast
andlega við að sjá það. Nokkru síðar
ákveður sálfræðingur nokkur að fara
með Patriek aftur á vettvang áfalls-
ins, í þeirri von að geta læknað hann
af sálarkrísunni. Þannig er hér á ferð
eins konar risaeðlulegur sálfræði-
tryllir, þar sem handritið er algert
aukaatriði en tæknibrellumar aðal-
atriði. Ef einhver hefur áhuga á því
að virða fyrir sér ólíkar tækniútgáfur
af mannætueðlum gæti sá haft gam-
an af þessari mynd, en aðrir ekki.
Heiða Jóhannsdóttir
Afdrifaríkur
helgileikur
(Inside Out)
Allt á hvolf
Gamanmynd
Leikstjéri: Neal Sundström. Aðal-
hlutverk: Tobie Cronjé, Philip
Moolman. (90 mín.) Suður-Afríka
1999. Skífan. Öllum leyfð.
ÞESSI léttgeggjaða suður-afríska
gamansaga segir frá Hazel Levin,
leikkonu af gyðingaættum sem berst
í bökkum. Hún er á
leið til Höfðaborg-
ar til að slá í gegn
þegar bíldruslan
hennar gefur sig í
einhverju stór-
furðulegu
krummaskuði sem
hefur að geyma
ennþá furðulegri
íbúa. Hún neyðist
til þess að staldra við í bænum, sem
heitir Eden, og kemst fljótt að því að
bærinn ber nafn með rentu því
þorpsbúar eru einstaklega trúræknir
og íhaldssamir. Hún vill því koma sér
burt sem fyrst en þegar atvinnan í
Höfðaborg bregst og henni býðst í
sömu andrá tækifæri til að leikstýra
árlegum helgileik þorpsbúa ákveður
hún að slá til. í íyrstu líst henni ekk-
ert á blikuna, þykir þorpsbúar
„sveitó“ og vita hæfileikalausir en
þegar hún fer að kynnast þeim betur
sér hún að þetta eru bestu skinn þótt
eilítið þurfi að hrista upp í þeim og
setja allt á hvolf í íhaldssömu og for-
dómafullu smábæjarsamfélaginu.
Það er góð meining í þessari mynd.
Hún er sárameinlaus og ætti að
gleðja þá sem leiðir eru á Hollywood-
pakkanum, en þó - kannski ekki
nógu mikið því sagan verður á köfl-
um fram úr hófi væmin og klisju-
kennd - sem er mesta synd.
Skarphéðinn Guðmundsson