Morgunblaðið - 01.10.2000, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
líiiHÐ'
HAND
REPAIR
Þýskar fSrðunarvörur
Ekta augnahára- og augnabrúnalitur,
er samanstendur af litakremi og geli
sem blandast saman, allt í einum
pakka. Mjög auðveldur í notkun, fæst
í þremur litum og gefur frábæran
árangur. Hver pakki dugir í 20 litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskari), Þessi (svarti) gamli
góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roll-on“ eða borið á
með spaða frá
Frábærar vörur á frábæru verði
UL'Oiatoi io', tryiy. S.A.
Útsöluslaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Libía, Mjódd, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek,
Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Álfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1, Borgarapótek, Álftamýri,
Fína Mosfellsbæ, Gallerí Föröun Keflavík, Sauðárkróks Apótek, Stykkishólms Apótek, Fínar Linur,
Vestmannaeyjum, Árnesapótek, Selfossi.
IRiíSD = lilElSD
Með því að nota Thi.W naglanæringuna færðu
þínar eigin neglur sterkar og heilbrigðar svo
þær hvorki klofna né brotna.
/«7»i\d handáburðurinn
— teygjanlegri, þéttari húð. Á
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA
Fást i apótekum og snyrti- ÍÍjjk
vöruverslunum um land allt. .. J_' :
Ath. naglalökk frá 77?«.\D fást í tveimur stærðum
Allar leiðbeiningar á íslensku
Nýjung
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317
100 þúsund
bækur á
markaði
Bóka-
vörðunnar
ÁRLEGUR haustbókamarkaður
hefst hjá Bókavörðunni, Vestur-
götu 17 í Reykjavík, þriðjudaginn 3.
október kl. 10.
Bókavarðan keypti fyrir nokkru
fornbókaverslunina Bókina hf. sem
lengi hefur starfað í Reykjavík og
eignaðist við þau kaup um 80 þús-
und bóka lager, sem bættist við
álika bókalager Bókavörðunnar.
Á þessum bókamarkaði, sem
stendur þessa viku aðeins, verða
t.d. ljóðabækur, bæði þjóðskálda og
leirskálda og annarra, seldar á 100
kr. stk., allar ævisögur íslenskar,
bæði stjórnmálamanna, listamanna,
grasalækna og alþýðumanna og
-kvenna, seldar á 100 kr., þýddar
skáldsögur á sama, allar erlendar
vasabækur á 50 kr., en þær skipta
þúsundum sem til eru. Auk þess
verða allar bækur í öðrum flokkum;
fágætar bækur, héraðasaga og ætt-
fræði, erlendar frumútgáfur, leik-
rit - erlend sem innlend, saga lands
og heims og stjóramála, guðspcki,
andatrú, almenn trúmál og dul-
speki, ritgerðasögn um sögu Is-
lands, náttúrufræðibækur, bland-
aðar fagurbókmenntir, þ.á m.
matreiðslubækur og bækur um
íþróttir og tómstundir, seldar með
50% afslætti dagana sem markað-
urinn stendur.
Þessi bókamarkaður er sá stærsti
sem fyrirtækið hefur efnt til og
aldrei hefur verið meira úrval á
boðstólum og betra verð nánast
óhugsandi, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Mynda-
sýning frá
Færeyjum
MYNDAKVÖLD eru fastur liður í
félagsstarfí Utivistar og eru þau
haldin einu sinni í mánuði yfir vetr-
artímann. Fyrsta myndakvöldið er
nk. mánudagskvöld, 2. október, og
verður sú breyting gerð með þessu
myndakvöldi að það hefst fyrr en áð-
ur eða kl. 20 og jafnframt er ekki
gefið kaffihlé.
Myndakvöldin eru í Húnabúð, fé-
lagsheimili Húnvetningafélagsins,
Skeifunni 11. Er fyrsta myndakvöld-
ið tileinkað Færeyjum en þangað var
farin fyrsta sumarleyfisferð þessa
árs um hvítasunnuna. Kristján M.
Baldursson, fararstjóri í ferðinni,
sýnir myndir frá þeim stöðum sem
heimsóttir voru og fer auk þess vítt
og breitt um eyjamar sem hafa upp
á ótrúlega margt að bjóða ferða- og
útivistarfólki.
Allir eru velkomnir meðan
húsrými leyfir, en aðgangseyrir er
600 kr. og eru kaffiveitingar inni-
faldar. Auk myndasýningarinnar frá
Færeyjum verða næstu Útivistar-
ferðir kynntar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Samtök holl-
vina Reykja-
víkurflugvall-
ar stofnuð
HÓPUR fólks sem vill beita sér fyrir
því að Reykjavíkurflugvöllur geti í
framtíðinni áfram gegnt hlutverki
sínu sem örugg og hagkvæm þjón-
ustumiðstöð hyggst stofna með sér
félagsskap, Hollvini Reykjavíkur-
flugvallar, í næstu viku.
Hörður Sverrisson, ritari Félags
íslenskra einkaflugmanna, hefur haft
forgöngu fyrir hópnum, en hann seg-
ir að breiðfylking Reykvíkinga muni
standa að stofnun samtakanna.
„Hinn þögli meirihluti borgarbúa
lætur sér annt um flugvöllinn og vill
hafa hann áfram í Vatnsmýrinni. Það
er kominn tími til að staðreyndir
málsins verði dregnar fram í dags-
ljósið, en ekki aðeins upphrópanir
andstæðinga flugvallarins sem sumir
hafa haft uppi fullyrðingar andstæð-
ar raunveruleikanum," segir hann.
Tilgangur samtakanna er að kynna
almenningi flugvöllinn, mikilvægi
hans sem aðalflugvallar íslensks inn-
anlandsflugs, millilandaflugs til Fær-
eyja og Grænlands og fleira.
Mýrarhúsaskóli
Hafði ekki
gert úttekt
HERDÍS Storgaard, framkvæmda-
stjóri Arvekni, segir það rangt sem
kom fram í máli Regínu Höskulds-
dóttir, skólastjóra Mýrarhúsaskóla, í
Morgunblaðinu í fyrradag að hún
hafi fyrir skömmu gert úttekt á
ástandi skóla og lóðar. Herdís segist
aldrei hafa gert úttekt á Mýrarhúsa-
skóla. Hún hafi hinsvegar komið í
skólann fyrir um tveimur árum að
beiðni Slysavarnadeildar kvenna á
Seltjarnarnesi og bent á ýmislegt
sem betur mætti fara. Það hafi þó
ekki verið formleg úttekt enda ekki á
hennar færi. Um atvikið í Mýrar-
húsaskóla á miðvikudag segir Herdís
að hún hafi verið kölluð til eftir slys-
ið. Við athugun á handriðinu hafi hún
talið að um tæringu væri að ræða.
Hún hafi síðan bent á leiðir til úrbóta
en ekki yfirfarið fyrri skýrslu um ör-
yggismál í skólanum. Herdís segir að
ljóst að viðhald handriðsins hafi ekki
verið sem skyldi. Það sé á ábyrgð
sveitarfélaga að hafa reglubundið
eftirlit með ástandi skólahúsnæðis.
Starfsfólk skólanna þurfi einnig að
hafa augun opin fyrir slysagildrum.
SPAR SP0RT
r-ILA
KlLMANOCÍ
TOPPMERKI A LAGMARKSVERÐI
NÓATÚN17\ Wf
Káppa CaSðll LUHTA
S. 511 4747 Pllllill
>/ \l \ ! \ ^
JCTAÍ^
WflfW