Morgunblaðið - 01.10.2000, Page 30
30 SUNNUDAGUR 1. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
hvaða stærð þeir nota. Kays hefur
fengið viðurkenningu fyrir að mynd-
ir og vörulýsing er eins og varan er
þegar hún er komin í hendurnar á
viðskiptavininum." Parf fólk að
kaupa pöntunarlistana eða fæ það þá
senda frítt? „Kays hefur þann hátt-
inn á að þegar listinn er sendur til
viðskiptavinarins í fyrsta sinn verð-
ur hann að greiða fyrir hann en fær
hann endurgreiddan eftir fyrstu
pöntun. Þetta á þó aðeins við um
Kays-listann, hina listana verður
fólk að kaupa í fyrsta skipti en fær
þá síðan fría ef pantað er.“
Eigfum tryggan hóp
viðskiptavina
Hvað gerist ef vara sem keypt er í
gegnum lista líkar ekki? „Hægt er
að skila fatnaðinum en ekki eru mik-
il brögð að því. Þau föt eru til sölu
hér í verslun sem við rekum. Við get-
um þó ekki tekið til baka vörur úr
Argos-listanum. Eg sé mig ekki í
anda að selja hér heilu sófasettin eða
aðra slíka hluti,“ segir Aðalbjörg.
Hverjir eru helstu viðskiptavinir
pöntunarlistanna? „Það er fólk á öll-
um aldri, bæði konur og karlar. Kon-
ur eru þó í meirihluta þeirra sem
kaupa eftir Kays-listanum. Jafnt
konur og karlar kaupa hins vegar úr
Argos-listanum. Við eigum mjög
tryggan hóp viðskiptavina og þegar
við erum að taka niður pantanir er
mjög gaman að sjá sömu nöfnin ár
eftir ár. Ef skoðað er hvar viðskipta-
vinir vörulistanna búa þá eru þeir
hlutfallslega fleiri í dreifbýlinu." Á
undanförnum árum hefur það færst
í vöxt að fólk hefur farið í sérstakar
innkaupaferðir til útlanda til að
kaupa föt og annan varning. Hefur
þetta ekki komið niður á sölu gegn-
um pöntunarlista? „Salan minnkaði
fyrst eftir að farið var að bjóða
skipulagðar verslunarferðir en nú
finnst mér eins og salan sé að aukast
aftur vegna breytts Kfsstíls. Vegna
tímaleysis finnst fólki þægilegt að
geta verslað á þennan hátt. Það hef-
ur gerst að fólk sem er að fara til út-
landa hefur pantað föt hjá okkur og
sótt þau þegar það hefur komið heim
og gefið börnunum. Þetta fólk hefur
ekki viljað eyða dýrmætum tíma sín-
um erlendis í búðaráp heldur viljað
skoða sig um,“ segir Björn. Á ekki
netverslunin eftir að taka við af
pöntunarlistunum? „Jú, ætli það
verði ekki einhvern tímann í fram-
tíðinni. Erlendis er áhrifa Netsins
ekki farið að gæta svo mjög í kaup-
um á fatnaði. Það virðist vera sem
karlmenn versli meira á Netinu enn
sem komið er og þá einkum diska,
bækur og þess háttar."
Snyrtivörur frá Boots
og Pinseeker-golfvörur
Tveim árum eftir að fyrirtækið
tók til starfa gerðist B. Magnússon
umboðsaðili fyrir snyrti- og lyfjafyr-
irtækið Boots eins og áður segir.
„Það var erfitt að koma þessum
vörum á markað í fýrstu. Fólk
þekkti ekki N7-snyrtivörurnar. Þær
voru ódýrar og fólk hélt að þær
væru eitthvað verri að gæðum þess
vegna,“ segir Aðalbjörg. „En á bak
við snyrtivörurnar liggja nákvæmar
rannsóknir og prófanir líkt og gert
er með húðlyfin sem fyrirtækið
framleiðir. Snyi'tivörunar frá Boots
seljast nú vel en þær eru einkum
seldar í lyfjaverslunum.“ Það kemur
fram í máli Björns að hann er mikill
áhugamaður um golfíþróttina og
fyrir tólf árum fengu þau umboð fyr-
ir Pinseeker-golfvörurnar sem eru
enskar. „Pinseeker er ekki með dýra
auglýsingastarfsemi, þeir geta því
boðið gæðavöru á mjög góðu verði,“
segir Björn. „Áhugi á golfi hefur
aukist mjög mikið á umliðnum árum
og við höfum selt mjög vel af þessum
golfsettum en þau fást hjá okkur og í
nokkrum golfklúbbum, einkum úti á
landi.“
Selja þekkt fæðubótarefni
Synir þeirra hjóna, þeir Bjarni
Vestmar og Birgir Vestmar, eru
miklir áhugamenn um fæðubótar-
efni, lyftingar og gott heilsufar og
vegna þess áhuga fór B. Magnússon
að flytja inn fæðubótarefni. „Þessi
efni eru frá EAS og PowerBar sem
eru einar mest seldu fæðubótarteg-
undirnar í heiminum. Þekktasta efn-
ið sem við seljum heitir Myoplex,“
segir Bjarni Vestmar sem sér um
fæðubótardeildina.
„Forstjóri EAS er Bill Philips
Eftir Hildi Einarsdóttur
AÞESSU ári eru liðin 20 ár
síðan fyrirtækið B.
Magnússon tók til starfa.
Starfsemin byrjaði á
neðri hæð heimilis eigendanna,
þeirra Aðalbjargar Reynisdóttur og
Björns Magnússonar á Sævangi 19 í
Hafnarfirði. Þá voru hjónin nýbúin
að byggja stórt einbýlishús og átti
fyrirtækið að vera „hobbý“ fyrir
frúna sem vantaði meira að gera
eins og þau orðuðu það í samtali við
blaðamann.
í upphafi byggðist rekstur fyrir-
tækisins á Kays-pöntunarlistanum,
þar sem fólk gat keypt sér lista með
myndum og upplýsingum um fatnað
og fleira, valið vöruna heima, sent
inn pöntun og fengið varninginn
sendan í pósti eða komið og sótt
hann til fyrirtækisins.
„Hér á landi voru þá þegar starf-
andi umboðsaðilar fyrir pöntunar-
lista,“ segir Björn. „Við vissum að
salan gekk vel og okkur langaði til
að fara inn á þennan markað. Okkur
var kunnugt um að margir höfðu
reynt að fá umboð fyrir Kays-pönt-
unarlistann hér á landi en ekki tek-
ist. Þegar ég var á ferðalagi í Bret-
landi ákvað ég að heimsækja
fyrirtækið og upp úr því fékk ég um-
boðið. Það má líka geta þess að B.
Magnússon var fyrsta fyrirtækið á
íslandi til að setja tollakerfi sitt inn
á einkatölvu sem sparaði ótrúlega
mikla vinnu,“ bætir hann við.
Verslað heima í stofu
Það kemur fram í máli Aðalbjarg-
ar að vörum úr Kays-listanum var
strax vel tekið og umsvifin jukust sí-
fellt sem varð til þess að Bjöm sagði
upp starfi sínu hjá Hraunvirki hf. og
fór að vinná hjá eigin fyrirtæki.
Þrem árum eftir stofnun B.
Magnússonar byggðu þau hús í
Hólshrauni 2 og fluttu starfsemina
þangað. „Þá voru erfiðir tímar og
lánin sem við höfðum tekið vegna
húsbyggingarinnar ruku upp úr öllu
valdi. Það sem bjargaði okkur var að
við gátum selt efri hæð hússins sem
nýttist okkur hvort sem var ekki og
við vorum heppin að fá góða
tækið orðið umsvifamikið í inn-
flutningi á fæðubótarefnum frá
einum stærsta fæðubótarefnafram-
leiðanda í heimi, EAS. Einnig fengu
þau umboð fyrir fleiri pöntunarlista,
þar á meðal lista sem nefnist Argos
en í honum er hægt að kaupa allt
milli himins og jarðar eins og hús-
búnað, raftækjavörur, leikföng,
búsáhöld og gjafavöru. Þessi listi er í
eigu sama fyrirtækis og er með
Kays-listann sem heitir Great Uni-
versal Stores og er breskt og á með-
al annars fyrirtæki eins og Bur-
berrýs og Seotch House.
Samkeppnin mikil
„I Argos-listanum er að finna
mjög þekkt vörumerki. f þeim lista
er hægt að panta allt nema síma og
sjónvarpstæki því kerfin í þeim eru
annars konar og kostnaðarsamt er
að breyta þeim,“ segir Björn.
„Fyrir þremur árum fengum við
svo umboð fyrir sænskan lista sem
kallast Panduro en hann selur allt til
föndurgerðar.“ Er eitthvað sem hef-
ur breyst í starfsemi Kays-listans
síðan þið gerðust umboðsmenn fyrir
hann? „Úrvalið í listanum er orðið
meira og fatnaðurinn er vandaðri
því hörð samkeppni er á þessu sviði
og fyrirtækið kemst ekki upp með að
vera með annað en gæðavöru. Nú
fylgja listanum minni vörulistar eins
og listi þar sem hægt er að kaupa
fatnað í yfirstærðum og pöntunar-
listi fyrir ýmsan jólavarning svo
dæmi séu tekin. Það sem hefur líka
breyst er að hér áður fyrr bárust
pantanir nær eingöngu með pósti en
nú hringir fólk eða sendir okkur
tölvupóst," segir Aðalbjörg. Hverjir
eru helstu kostirnir við að kaupa af
pöntunarlistum sem þessum?
„Helstu kostimir eru þægindin en
þessi kaupmáti sparar tíma og fyrir-
höfn. Fólk verslar í rólegheitum
heima í stofu og eftir 1-3 vikur er
varan komin til þess. Einnig er vöru-
valið mikið. Svo er varan eitthvað
ódýrari en út úr verslun.
Helsti ókosturinn er auðvitað sá
að ekki er hægt að máta flíkina. Það
á ekki að koma að sök. Flestir vita
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
ÁSUNNUDEGI
► Aðalbjörg Reynisdóttir er fædd 16. október 1948 í Reykjavík. Hún
varð gagnfræðingur frá Hlíðadalsskóla 1964 og fór eftir það til náms í
Antvosskov-lýðháskólanum í Slagelse í Danmörku. Eftir námið vann
hún hjá Útvegsbanka Islands í þrettán ár en gerði hlé á útivinnu
vegna bameigna þar til hún stofnaði fyrirtækið B. Magnússon ásamt
eiginmanni sinum.
► Björn Magnússon er fæddur 23. júlí 1947 í Hafnarfirði. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskóla Islands 1968. Eftir það vann hann í
nokkur ár hjá íslenska Álfélaginu við bókhaldsstörf. Þá réðst hann til
P. Stefánssonar þar sem hann gegndi starfi íjármálastjóra í þrettán
ár. Þaðan fór hann til Hraunvirkis hf. og vann þar þangað til hann tók
til starfa við eigið fyrirtæki. Þau Aðalheiður og Björn eiga tvo syni,
Bjama Vestmar og Birgi Vestmar.
B. Magnússon selur meðal annars næringar- og fæðubótarefni frá ein-
um stærsta framleiðanda á þessu sviði, EAS. Hér má sjá Bjama Vestmar
kynna vöruna fyrir viðskiptavini.
granna,“ segir Aðalbjörg.
Fyrirtækið dafnaði smátt og
smátt, að sögn þeirra hjóna. Þau
fengu umboð fyrir hreinlætis- og
snyrtivörur Boots-lyfjafyrirtækis-
ins, þá aðallega snyrtivörulínuna
Sí7. Bjöm sem er golfáhugamaður
fékk umboð fyrir Pinseeker-golfvör-
urnar. Fleiri snyrtivöruumboð bætt-
ust við og nú síðustu ár hefur fyrir-
Iljónin Bjöm Magnússon og Aðalbjörg Reynisdóttir ásamt syni sínum Bjarna Vestmar.
Morgunblaðið/Porkell
MEÐALLTMILLI
HIMINS OG JARÐAR