Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 340. TBL. 88. ÁRG. FIMMTUDAGUR19. OKTÓBER 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Minniháttar óeirðir þrátt fyrir vopnahlé Israela og Palestínumanna Dreg'ur úr spennu á sjálfstjórnarsvæðunum Betlehem, Jerúsalem, SÞ. AFP, AP. Palestínsk fjölskylda ekur á asnakerru framhjá ísraelskum bryndreka á Gaza-svæðínu í gær. Reuters PALESTINUMENN efndu til óeirða á nokkrum stöðum á Vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu í gær, en þó var Ijóst að dregið hefði úr spennu á sjálfstjómarsvæðunum í kjölfar vopnahlésins, sem leiðtogar ísraela og Palestínumanna sömdu um á fundi sínum í Egyptalandi á þriðjudag. Heimastjórn Palestínumanna gaf löndum sínum í gær „ströng fyrir- mæli“ um að virða vopnahléð og binda enda á mótmæli og óeirðir. En stjórnin þrýsti einnig á ísraela að draga herlið sitt á brott frá sjálf- stjórnarsvæðunum til að draga úr spennu. ísraelskar öryggissveitir hand- tóku í gær átta Palestínumenn, sem grunaðir eru um aðild að hinum hrottalegu morðum á tveimur ísra- elskum hermönnum í borginni Ram- allah á Vesturbakkanum fyrir elnni viku. Fjölmiðlar í ísrael skýrðu frá því að einn hinna handteknu væri maður sem mynd náðist af þar sem hann sneri frá líkunum með blóði drifnar hendur á lofti og sigurbros á vör. Fréttamyndin birtist á forsíðum dagblaða um víða veröld. I gærkvöld höfðu ekki borist fregnir um að neinn hefði beðið bana í óeirðum dagsins, en á þeim þremur vikum sem átökin hafa staðið hafa að minnsta kosti 112 menn látið lífið. Einn Palestínumaður lést á sjúkra- húsi í Jórdaníu í gær, en hann varð fyrir skotum frá ísraelskum land- nemum á Vesturbakkanum íyrr í þessum mánuði. Á sérstökum fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í gærkvöld sök- uðu ísraelar og Palestínumenn hverjir aðra um að bera ábyrgð á átökunum. Áheyrnarfulltrúi Pal- estínumanna hjá SÞ hafði óskað eftir að boðað yrði til fundarins til að ræða ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs. Israelar sögðu hins vegar að fundur- inn gæti grafið undan þeim árangri sem náðist á leiðtogafundinum í Egyptalandi. Fundurinn heldur áfram í dag og búist var við að alls- herjarþingið fordæmdi ísraela fyrir að beita Palestínumenn ofurefli. Sharon hafnar hugmynd Baraks um þjóðstjórn Harðh'numaðurinn Ariel Sharon, leiðtogi Likud-flokksins, sleit í gær viðræðum við Ehud Barak, forsætis- ráðherra ísraels, um myndun þjóð- stjómar. Ríkisstjóm Baraks hefur ekki meirihluta á þingi og útlit er fyr- ir að hann neyðist til að boða til kosn- inga þegar þing kemur saman að nýju í lok mánaðarins, en forsætis- ráðherrann á enn í viðræðum um stjómarsamstarf við nokkra aðra flokka. Palestínumenn höfðu lýst því yfir að ef Sharon tæki sæti í ríkis- stjóm væri úti um friðarferlið. Júgóslavía Líkur aukast á stjórnar- myndun Belgrad. AP. SÓSÍALÍSKI þjóðarflokkur Svartfjallalands (SÞS) til- kynnti í gær að hann væri reiðubúinn að ganga til við- ræðna um þátttöku í ríkis- stjórn Júgóslavíu. Líkur hafa því aukist á því að hinum ný- kjörna forseta landsins, Vojisl- av Kostunica, takist að mynda ríkisstjórn án þátttöku Sósíal- istaflokks Slobodans Milosevic, fyrrverandi forseta. Kosningabandalag þeirra flokka sem studdu Kostunica í kosningunum í september, DOS, á flest sæti á júgó- slavneska þinginu, en hefur þó ekki meirihluta. SÞS, sem áður var hliðhollur Milosevic, gæti myndað meirihluta með stuðn- ingsmönnum forsetans fyrr- verandi, en leiðtogar flokksins hafa nær útilokað það. „Það er nauðsynlegt að stjórn sam- bandsríkisins sé viðurkennd á alþjóðavettvangi, svo landið fái aftur inngöngu í alþjóðlegar fjármálastofnanir og önnur samtök," sagði Predrag Bulat- ovic, varaformaður SÞS, í gær. Kostunica hefur ekki tekist að fá stjómvöld í Svartfjalla- landi, sem ásamt Serbíu mynd- ar Júgóslavíu, til að taka þátt í stjórnun sambandsríkisins. Hugsanleg þátttaka SÞS í rík- isstjórn Júgóslavíu gæti reynd- ar flækt samskiptin við stjórn- völd í Svartfjallalandi, því SÞS er þar í stjómarandstöðu. Rannsókn lestarslyssins fyrir utan Lundúni Brotinn brautarteinn sagður líkleg orsök Miklar sveiflur á mörk- uðum London, New York. AFP, AP. MIKLAR sveiflur urðu á hluta- bréfamörkuðum í Bandaríkjunum og Evrópu í gær. Dow Jones-vísi- talan í New York fór niður fyrir 10.000 punkta markið í fyrsta sinn síðan í mars sl. og endaði í 9975,02 punktum, en það er lækkun um 114,69 punkta eða 1,1% frá deginum áður. Dow Jones-vísitalan hafði lækkað um 433 punkta á fyrsta hálftíman- um eftir opnun í gærmorgun og far- ið alla leið niður í 9.668 punkta, en hún hefur ekki farið svo langt niður síðan í mars 1999. Vísitalan hækk- aði þó eftir því sem leið á daginn. Er þessi mikla lækkun í upphafi við- skipta fyrst og fremst rakin til lækkunar á gengi bréfa í IBM, en fyrirtækið birti í gær upplýsingar um afkomu sína á þriðja árs- fjórðungi. Nasdaq-vísitalan í New York, sem mælir gengi hátæknifyrir- Reuters Verðbréfamiðlari í Kauphöllinni í New York lætur bugast eftir miklar lækkanir á gengi í gær. tækja, lækkaði um rúmlega 5% á fyrstu mínútunum eftir opnun í gærmorgun, en fljótlega dró þó úr fallinu og við lokun hafði vísitalan lækkað um 1,3% frá deginum áður. Nokkrar lækkanir urðu einnig á mörkuðum í Evrópu í gær. FTSE 100-vísitalan í London lækkaði um 0,89%, Dax-vísitalan í Frankfurt um 0,75% og Cac 40-vísitalan í París um 2,14. Gengi evrunnar lækkaði einnig meira en dæmi eru um eftir hrunið við upphaf viðskipta á Wall Street, en jafnaði sig þegar gengi bréfa tók að hækka á ný í New York. ■ 23,9% lækkun/Cl Lundúnum. Reuters, AFP. FORSTJÓRI Railtrack, hins einka- rekna fyrirtækis sem sér um rekstur jámbrautarteinakerfis Bretlands, bauðst í gær til að segja af sér vegna lestarslyssins sem varð norður af Lundúnum í fyrradag, en brotinn járnbrautarteinn er meðal þess sem rannsakendur slyssins telja líklegt að hafi valdið því. Talsmaður Railtrack viðurkenndi í gær, að ástand járnbrautarteinanna á þeim kafla þar sem slysið varð, hefði ekki verið gott. I tilkynningu frá Railtrack segir, að rannsóknin beindist nú einkum að þeim möguleika, að brotinn jám- brautarteinn hafi valdið slysinu, sem varð þegar hraðlest á leið frá Lund- únum til norður-ensku borgarinnar Leeds lenti út af sporinu á 185 km hraða í hádeginu í fyrradag. „Það er greinilegt, að jámbrautar- teinn brotnaði," sagði Nicholas Poll- ard, talsmaður Railtrack. „Það gæti hafa gerzt við það að lestin fór út af sporinu, eða valdið því að hún fór út af,“ sagði hann. Lögregla útilokaði fljótt þann möguleika að um hryðjuverk hefði verið að ræða og leitin að orsökum slyssins beindist þá að þremur möguleikum - skemmdarverki, brotnum teinum eða bilun í lestinni. Railtrack fyrirskipaði í gær hraða- takmarkanir á lestammferð um járnbrautakafla þar sem aðstæðum svipar til slysstaðarins. Það sem af er þessu ári hafa 949 dæmi um brotna járnbrautarteina verið skráð í Bret- landi, sem er 20% aukning frá ár- unum 1995-1996, þ.e. áður en rekst- ur teinakerfisins var einkavæddur. Gagnrýni á afleiðingar einkavæðingar Viðbrögð við slysinu, sem varð fjórum að bana og er þriðja alvarlega lestarslysið í Bretlandi á jafnmörg- um árum, lýsa sér annars ekki sízt í því, að einkafyrirtækin sem sjá um rekstur alls brezka lestakerfisins sæta stórauknum þrýstingi af hálfu almennings að gera eitthvað róttækt sem bæti öryggi í lestarsamgöngum. í brezkum fjölmiðlum spruttu í gær fram nýjar vangaveltur um af- leiðingar einkavæðingar járnbraut- anna, sem kom til framkvæmda í áföngum á tveggja ára tímabili fram til 1996. Alla tíð síðan hafa Railtrack og öll hin einkareknu lestafyrirtækin mátt sæta gagnrýni fyrir slaka frammi- stöðu. Gagnrýnin hefur náð frá ör- yggi lesta og teina, svo sem van- rækslu í viðhaldi umferðar- stýringarkerfa járnbrautanna og lélegrar þjálfunar lestarstjóra, til óánægju með seinkanir, að margar lestir séu yfirfylltar og að far- miðaverð sé of hátt. Railtrack hefur þurft að bera hit- ann og þungann af gagnrýninni. MORGUNBLAÐK) 19. OKTÓBER 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.