Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 64
Ó4 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ •> í dag er fimmtudagur 19. október, 293. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn. Skipin Reykjavíkurhöfn: Isis kemur í dag. Brúarfoss og Helgafell fara í dag. Fréttir Kattholt. Flóamarkaður í Kattholti, Stangarhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14-17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laugar- dagakl. 13:30-17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-16:30 pennasaumur og búta- saumur, kl. 9:45 morg- unstund, kl. 10:15 leik- fimi, kl. il boceia, kl. 13 opin smíðastofa, kl. 13 pútt, kl. 9 hár- og fót- snyrtistofur opnar. Bóistaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8:30 böð- un, kl. 9-9:45 leikfimi, kl. 9-12 myndlist, kl. 9- 16 handavinna og fóta- aðgerð, kl. 13 glerhst, kl. 14 dans. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18-20. Kl. 9 kaffi og dagblöð, böðun, hárgreiðslustofan opin og einnig handa- vinnustofan, kl. 11:15 matur, kl. 13 opin handavinnustofan, kl. 14:30 sögustund, kl. 15:30 kaffi. Félagsstarf aldraðra Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11:10 leikfimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsst. Furugerði 1. Kl. 9 aðstoð við böðun, smíðar og útskurður og glerskurðarnámskeið og leii-munagerð, kl. 9:45 verslunarferð í Austur- ver, kl. 13:30 boccia. Félagsstarf aidraðra í Garðabæ. Opið hús í Holtsbúð 86 kl. 13:30. Akstur skv. venju. Mál- un og keramik kl. 13. Boccia kl. 10. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reylgavíkurvegi 50. Púttæfing í Bæjar- útgerðinni kl. 10-12. Bingó kl. 13:30. . Hana-nú, Kópavogi. Menningarreisan til Hafnarfjarðar sunnud. 22. okt. Rúta ki. 14 frá Gullsmára og kl. 14:10 frá Gjábakka. Heimsókn á vinnustofu listamann- anna Gests og Rúnu og Menningar- og Hsta- stofnunina Hafnarborg m.m. Upplýsingar og pantanir síma 564-5260 og 554-3400. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids i dag kl. 13. Undanfarin ár hefur Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni staðið fyrir fræðslu- fundum undir yfir- skriftinni „Heilsa og hamingja á efri árum“, sem fjalla um ýmsa sjúkdóma, sem helst þjá eldra fólk. Fræðslufund- (Matteus 7,13.) irnir verða haldnir þrjá daga. Dagskrá fyrsta dagsins er sem hér seg- ir: Laugardaginn 21. október kl. 13:30. Gigt- arsjúkdómar: Fyrirles- arar eru Helgi Jónsson og Arnór Víkingsson. Fræðslufundirnir verða haldnir í Ásgarði, Glæsi- bæ, félagsheimih Félags eldri borgara. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæfing- ar í Breiðholtslaug kl. 9:30, kl. 10:30 helgi- stund, umsjón Lilja G. Hallgrímsdóttir djákni, djáknanemar í heim- sókn, frá hádegi spila- salur og og vinnustofur opin, kl. 13 börn úr Ölduselsskóla í heim- sókn, veitingar í kaffi- húsi Gerðubergs. Mynd- listarsýning Bjarna Þórs Þorvaldssonar stendur yfir og af því til- efni syngur Gerðubergs- kórinn á morgun kl. 16:30 undir stjórn Kára Friðrikssonar, undir- leikarar Benedikt Egils- son á harmonikku og Unnur Eyfells á píanó. Á eftir söngdagskrá leikur og syngur Vina- bandið lög. Mánud. 23. okt. verður sameiginleg- ur haustfagnaður með Félagi eldri borgara í Reykjanesbæ í Stapan- um í Njarðvik. Skráning á þátttöku hafin og allar upplýsingar á staðnum og í síma 575-7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9-15, kl. 9:30 gler- og postulínsmálun, leikfimi kl. 9:05, kl. 9:50 ogkl. 10:45, kl. 13 klippimynd- ir og taumálun. Söng- fuglarnir taka lagið kl. 17. Guðrún Guðmunds- dóttir mætir með gítar- inn. Kvennadeild Reykjavík- urdeildar Rauða kross íslands. Basar með föndurvörum og heima- bökuðum kökum verður 5. nóv. og jólafundur 7. des. í Sunnusal Hótels Sögu. Föndurvinna er á hverjum miðvikudegi í Fákafeni 11 kl. 13. Allir velkomnir. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Matar- þjónusta er á þriðju- og fóstudögum. Panta þarf fyrir kl. 10 sömu daga. Fótaaðgerðastofan er opin kl. 10-16. Postu- línsmálun kl. 9, jóga kl. 10, brids kl. 13. Handa- vinnustofan opin kl. 13- 16. Prjónahópur kl. 13- 15. Hraunbær 105. Kl. 9- 16:30 bútasaumur, perlusaumur og korta- gerð, kl. 9:45 boceia, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 14 fé- lagsvist. Hæðargarður 31. Kl. 9- 16:30 opin vinnustofa, glerskurður, kL' 9 -17 hárgreiðsla og böð- un, kl. 10 leikfimi, kl. 13:30 bókabffl, kl. 15:15 dans. Hvassaleiti 56-58. Kl. 9 opin handavinnustofa, búta- og brúðusaumur, böðun, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 13 handa- vinna, kl. 14 félagsvist. Norðurbrún 1. Kl. 9 handavinnustofurnai' opnar, útskurður kl. 10, leirmunanámskeið kl. 13:30 stund við píanóið. Vesturgata 7. Kl. 9 fóta- aðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9:15-12 aðstoð við böðun, kl. 9:15-15:30 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 13-14 leik- fimi, kl. 13-16 kóræfing. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, kl. 9:30 glerskurður, fatasaumur og morgun- stund, kl. 10 boceia, kl. 13 handmennt, körfu- gerð og frjálst spil. Bridsdeild FEBK, Gull- smára. Spilað mánu- daga og fimmtudaga í vetur i Gullsmára 13. Spil hefst kl. 13, mæting 15 mínútum fyrr. GA-fundir spilafíkla eru kl. 18:15 á mánudögum í Seltj arnarneskirkj u (kjallara), kl. 20:30 á fimmtud. í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3-5, og í Kirkju Óháða safnaðar- ins við Háteigsveg á laugard. kl. 10:30. Félagsvist í Húnabúð, Skeifunni 11, í kvöld kl. 20. Þrjú kvöld í para- keppni. Kaffiveitingar. Allir vel- komnir. Hvassaleiti 56-58. Sviðaveisla verður hald- in föstud. 27. okt. kl. 19. Húsið opnað kl. 18:30. Matseðill: svið og rófu- stappa, saltkjöt, kartöfl- ur í jafningi, flatkökur, kaffi og konfekt. Skemmtiatriði Ómar Ragnarsson með gam- anmál og fleira, Ólafur B. Ólafsson leikur á harmonikku og píanó og stjómar fjöldasöng. Upplýsingar og skrán- ing í s. 588-9335 og 568- 2586. Kristniboðsfélag kvenna, Háaleitisbraut 58-60. Biblíulestur í dag kl. 17 hefur Benedikt Arnkelsson. Vesturgata 7. Fyrir- bænastund verður í dag kl. 10:30 í umsjón séra Hjalta Guðmundssonar dómkirkjuprests. Allir velkomnir. Á morgun kl. 14:30-16 leikur Ragnar Páll Einarsson á hljóm- borð fyrir dansi. AlHr velkomnir. Orlofsnefnd húsmæðra í Kópavogi. Myndakvöld með konum sem fóru til Færeyja í sumar kl. 20 í kvöld í Gjábakka, fé- lagsheimili eldri borg- ara í Kópavogi, Fann- borg 8. Eskfirðingar og Reyð- firðingar í Reykjavík og nágrenni halda sinn ár- lega kaffidag nk. sunnud. kl. 15 í Félags- heimiUnu Drangey, Stakkahlíð 17. Sjálfsbjörg, félags- heimiU, Hátúni 12.1 kvöldkl. 19:30 tafl. Aflagrandi 40. Kl. 9 vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 12 hádegis- matur, kl. 13 vinnustofa og myndmennt, kl. 15 kaffi. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 569 1166, sérblöð 569 1222, auglýsingar 669 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í iausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hvað er að gerast? ÞAÐ sem mig langar að vita er, hvað er að gerast í málum framhaldsskóla- kennara, hvort ríkið sé búið að gera eitthvað svo það verði ekki verkfall. Ég er í skóla og er tvítug. Ég er búin að vera að hugsa mikið um það hvort það verði verkfall. Það hefur mikil áhrif á námið hjá mér, því að við nemendur höfum yfir höfuð ekki hug- mynd um hvað er að gerast og vitum ekki hvernig framhaldið verður hjá okk- ur, ef verkfall verður. Flestir nemendur eru mjög óöruggir, vita ekki hvernig málum verður háttað ef verkfall verður, hvort námið verður metið eða kennt þegar verkfallið er búið. Ekki er hægt að einbeita sér mikið að námi þegar framhaldið er svona óljóst. Þar sem þetta skipt- ir miklu máli fyrir alla nemendur og þjóðina líka, ætti að vera fjallað aðeins meira um þetta í fjölmiðl- um og þrýsta aðeins á ríkið til þess að semja sem fýrst. Nám er líka vinna. Á að gera okkur atvinnulaus? Ein áhyggjufull. Blá bflastæði ÁRNI hafði samband við Velvakanda og vildi vekja athygli á þvi, að hjá Hag- kaupi í Skeifunni er búið að mála stæðin fyrir fatlaða blá. Hann þarf að nota stæði fyrir fatlaða og hon- um finnst þetta alveg frá- bært og vill benda fleirum á að gera slíkt hið sama. Fjölbýlishúsa- menningin á íslandi NOKKUR orð fyi'ir þá hógværu búseta, undan- tekningarlaust réttlausa, sem búa í fjölbýli. Ég hygg að hvergi nema hér tíðkist það að einn íbúðareigandi, jafnvel sá sem innheimtir gjöld í hússjóð og á skila- greinar á húsfundi, geti leyft sér að afkvæmið renni sér niður stigagang- inn á fótbretti, utan fleira. Ég hygg líka að hvergi tíðkist það nema hér, að einn íbúðareigandi, máske tveir, eða leigjendur, geti leyft sér að halda, trekk í trekk, hávaðasöm partý eftir klukkan tólf á mið- nætti án leyfis annarra í húsinu. Margt getum við molbúarnir í snjóhúsunum lært. Til að mynda, erlend- is fær viðkomandi, tillits- laus íbúi, hvort sem er eig- andi eða leigjandi, eftir- farandi viðvörun: 1. Talað við hann. 2. Aðvörun. 3. Flutningabffl... Guðrún Jacobsen, Bergstaðastræti 34. Kínverskt nudd og nálastunga MIG langar tíl að koma á framfæri upplýsingum um bata sem ég fékk eftir að hafa fengið kínverskt nudd og nálastungur um nokk- urt skeið. Ég var þannig á mig komin að ég gat ekki og hafði ekki getað skúrað gólfin heima hjá mér í nokkur ár vegna bakverkja og verkja sem leiddu niður í fætur, en strax eftir 3-4 tíma gat ég skúrað eitt herbergi og í dag tveimur mánuðum og 13-15 timum seinna get ég skúrað alla íbúðina. Núna get ég staðið lengi verkjalaus sem var ekki nokkur leið áður, sömuleiðis fer ég í langa göngutúra án þess að finna til í bakinu. Læknar höfðu úrskurð- að mig með brjósklos. Ég var einnig mjög slæm af verkjum í hálsi og upp í höfuð sem höfðu komið eft- ir hnykk sem ég hafði hlot- ið fyrir nokkrum árum, en sá verkur er horfinn líka. Natni og dugnaður þessa kínverska fólks við við- skiptavini sína er einstakur og byggist á reynslu ótelj- andi kynslóða. Og þess njótum við nú hér í Hamra- borginni okkar í Kópavogi. Ég þakka þeim hjálpina af öllu hjarta. Heiða. Tapað/fundid Gleraugu töpuðust GLERAUGU töpuðust á Landspítala við Hring- braut, fimmtudaginn 12. október sl., á leiðinni frá deild 11-B og út á bílaplan. Skilvís finnandi er vinsam- legast beðinn að hafa sam- band í síma 557 8999 eða 897 8299. Rautt Pro-Style- hjól hvarf frá Bústaðakirkju RAUTT Pro-Style 21 gírs hjól, hvarf frá Bústaða- kirkju, fóstudaginn 13. október sl. Ef einhver veit um afdrif þess, er hann vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 866 9512 eða 692 0776. Krossgáta LÁRÉTT: 1 skýli úr dúk, 4 félaus, 7 árstíð, 8 grimmur, 9 frí- stund, 11 kvenmanns- nafn, 13 sægur, 14 kæti, 15 hása, 17 málmur, 20 títt, 22 styggir, 23 logið, 24 deiia, 25 blossa. LÓÐRÉTT: 1 siður, 2 sáran, 3 kurf, 4 guðhrædd, 5 nauta, 6 sveigur, 10 andstyggð, 12 vætla, 13 ögn, 15 undir- ferlismaður, 16 tölum, 18 ófús, 19 auðvelda, 20 dkyrrðar, 21 tala. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 vandræðin, 8 mæðið, 9 lykta, 10 lóa, 11 nagga, 13 rændi, 15 frísk, 18 áttan, 21 ugg, 22 skarn, 23 aftra, 24 fagurgali. Ldðrétt: 2 auðug, 3 daðla, 4 ætlar, 5 iðkun, 6 smán, 7 gati, 12 gas, 14 ætt, 15 foss, 16 ítala, 17 kunnu, 18 ágang, 19 titil, 20 nóar. Yíkverji skrifar... IVIKUNNI var 24 ára íþrótta- kennari frá Hawaii, Angela Per- ez Baraquio, krýnd ungfrú Banda- ríkin. Það vakti athygli Víkverja að þessi bráðfallega stúlka er orðin 24 ára gömul, en hér á landi þekkist varla að svo gamlar stúlkur taki þátt í fegurðarsamkeppni. Víkverja hefur sýnst að þær íslensku stúlkur sem taka þátt í fegurðarsamkeppni séu flestar á aldrinum 18-22 ára. Æskudýrkunin í fegurðarsam- keppni virðist ekki hafa náð alveg sama stigi í Bandaríkjunum, en Bandaríkjamenn hafa iðulega krýnt fegurðardrottningar í landi sínu sem eru að verða hálfþrítugar. xxx UNDANFARNA tvo laugar- daga hefur Karl Th. Birgisson verið með útvarpsþætti á RÚV sem hann kallar „Fyrsti þriðjudagur í nóvember“. Þættirnir fjalla um liðnar forsetakosningar í Banda- ríkjunum og aðdraganda þeirra. Þetta eru bráðskemmtilegir og fróðlegir þættir. í fyrsta þættinum fjallaði Karl um forsetakosningarn- ar 1960 og sérstaklega baráttu John F. Kennedys fyrir því að verða útnefndur frambjóðandi Demókrataflokksins. í þættinum síðasta laugardag fjallaði Karl um forsetakosningarnar 1972 þegar Nixon vann með yfirburðum fram- bjóðanda Demókrataflokksins, George McGovern. McGovern tókst að ná útnefningu síns flokks ekki síst vegna stuðnings frá ungu fólki sem var andsnúið Víetnam- stríðinu, en honum tókst hins vegar einstaklega óhönduglega upp í kosningabaráttunni og fékk aðeins um 32% atkvæða í forsetakosning- unum og vann aðeins sigur í einu fylki af 50. Stórkostlegur sigur Nixons sner- ist hins vegar fljótt í hroðalegan ósigur því að sjúkleg tortryggni hans hafði í kosningabaráttunni leitt til þess að menn á hans vegum brutust inn í Watergate-bygging- una til að ná upplýsingum um kosn- ingabaráttu McGoverns, en það leiddi til þess að Nixon varð að segja af sér á miðju kjörtímabili. Eitt lykilatriðið í Watergate- málinu voru hljóðupptökur af sam- tölum forsetans og samstarfs- manna hans í Hvíta húsinu. Þegar þær voru loks afhentar kom í Ijós að hluti af samtölunum hafði verið þurrkaður út. í þætti Karls Th. Birgissonar var komið inn á þetta og leikið lag þar sem bandarískur tónlistarmaður velti því fyrir sér hvað hefði verið á upptökunum sem ekki mátti heyrast. Texti lagsins var á gamansömum nótum, en áður en honum lauk, og áður en upplýst var hvað tónlistarmaðurinn taldi að hefði verið á upptökunum, var dregið niður í laginu. Ástæðan var sú að RÚV þurfti að koma að auglýsingum. Þetta er auðvitað óþolandi tillitsleysi við hlustendur. Þeir sem ekki skilja að síðasta setningin í góðum brandara þarf að heyrast til að brandarinn njóti sín ættu ekki að vinna við útvarp. XXX AÐ er oft ótrúlegt að sjá hvað skemmdarfýsn fólks getur verið mikil. Víkverji átti nýverið leið um strætisvagnaskýli í Reykja- vík. Búið var að brjóta og skemma tímatöflu þar sem hægt er að fá upplýsingar um ferðir strætisvagn- anna. Óhagræðið fyrir farþega er augljóst af þessu svo ekki sé minnst á kostnað SVR við að lag- færa skemmdirnar. Virðingarleysi fyrir eignum samfélagsins er því miður allt of algengt hér á landi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.