Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ - LANDIÐ Atvinnuráðgjöf Vesturlands skilar árangn Starfsemi nýrra félaga á V esturlandi kynnt Stykkishólmi - Atvinnuráðgjöf Vesturlands hefur starfað í nokkur ár. Það eru sveitarfélög á Vestur- landi og Byggðastofnun sem standa að henni. Markmið ráðgjaf- arinnar er að efla atvinnulífið í kjördæminu með beinum eða óbeinum hætti. Forstöðumaður at- vinnuráðgjafarinnar er Ólafur Sveinsson. Hann segir að mark- miðinu sé best náð með því að veita hjálp til sjálfshjálpar. Það þýðir að nauðsynlegt er að þeir sem leita eftir aðstoð vinni sjálfir að fram- gangi mála sinna. Atvinnuráðgjöfin vinnur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og sveitarfélög á Vesturlandi. Auk þess vinnur Atvinnuráðgjöf Vest- urlands að stærri verkefnum sem þjóna kjördæminu í heild. Atvinnuráðgjöf Vesturlands kynnti fyrir Snæfellingum og Dala- mönnum á miðvikudaginn 11. októ- ber afkvæmin sín. Að tilstuðlan At- vinnuráðgjafarinnar hafa verið stofnuð á einu og hálfu ári þrjú fyr- irtæki á fjölbreyttu sviði. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi Símenntunarmiðstöðin hóf störf í febrúar 1999. Þar er við stjórnvöl- inn Inga Sigurðardóttir. A fundin- um í Stykkishólmi fór hún yfir hvað fólki á Vesturlandi stæði til boða varðandi endurmenntun. Gef- inn hefur verið út góður bæklingur um námsframboð. Reynt er að verða við þörfum íbúanna og eins að vekja löngun þeirra til að læra meira og meira sér til gagns og ánægju. Vesturland eignarhaldsfélag Stefán Kalmannsson lýsti starf- semi eignarhaldsfélagsins Vestur- land sem stofnað var í desember í fyrra. Tilgangur þess er að fjár- festa í nýjum fyrirtækjum á Vest- urlandi og þeim sem eru að endur- skipuleggja rekstur sinn og stuðla að nýsköpun á svæðinu. Hlutaféð er 71,4 milljónir króna og eiga sveitarfélögin 28%, fagfjárfestar 32% og Byggðastofnun 40%. Fram að þessu hefur Vesturland hf. lagt fram hlutafé í eitt fyrirtæki og til skoðunar eru tvö önnur fyrirtæki sem hafa óskað eftir hlutafé frá fé- laginu. Upplýsinga- og kynningar- miðstöð Vesturlands Að lokum sagði Hrafnhildur Tryggvadóttir frá Upplýsinga- og kynningarmiðstöð Vesturlands, en félagið hóf starfsemi í vor með upplýsingamiðstöð í Borgarnesi. Að því félagi standa sveitarfélögin Morgunblaðið/Gunnlaugur Amason Frá kynningarfundi Atvinnuráðgjafar Vesturlands sem var haldinn í Stykkishólmi. Á myndinni eru starfsfólk atvinnuráðgjafarinnar og for- svarsmenn félaganna sem Atvinnuráðgjöfin hefur haft forgöngu um að stofna á stuttum tima. á Vesturlandi 70% og ferðaþjón- ustuaðilar 30%. Félagið er sam- starfsvettvangur ferðaþjónustuað- ila á Vesturlandi og er markmiðið að auka ferðamannastrauminn á svæðinu, lengja ferðamannatíma- bilið og koma á framfæri upplýs- ingum til ferðamanna. Ólafur Sveinsson er ánægður með hvernig til hefur tekist með stofnun félaganna og eins fyrstu skref þeirra. Þarna eru Vestlend- ingar að beina kröftum sínum í sömu áttir og er það mikilvæg for- senda til að ná árangri og styrkja byggð á svæðinu. Eitt eiga félögin sameiginlegt, höfuðstöðvar þeirra eru í Borgarnesi. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Frjósemi á Flúðum Hrunamannahreppi - Flúðir í Hrunamannahreppi eru eitt af fá- um kauptúnum á landinu þar sem fólki hefur fjölgað verulega á síð- ari árum. Þessar ungu mæður, sem eiga heima á Flúðum og í nágrenni, láta sitt ekki eftir liggja til að ibúatalan aukist. Þær voru að njóta veðurblíðunnar í lystigarði þegar fréttaritara Morgunblaðsins bar að fyrir skömmu og festi þær á mynd með barnaskara sinn. Fjölmennt á rjúpnaslóðum Þórshöfn - Heiðalöndin í nágrenni Þórshafnar eru jafnan fjölsótt af rjúpnaskyttum og svo var einnig nú í upphafi rjúpnavertíðar á sunnudaginn var. A Öxarfjarðarheiði voru veiði- glaðir menn víða að af landinu; heimamenn, Raufarhafnarbúar, Akureyringar og einnig frá suð- vesturhorninu. Að sögn lögreglunnar á Þórshöfn var ástand almennt nokkuð gott á rjúpnasvæðunum hvað varðaði ut- anvegaakstur og umgengni en lög- reglan mun fylgjast mjög grannt með því að akstur utan vega sé ekki stundaður. Ein rjúpnaskyttan var á veiðum án skotvopnaleyfis og því ekki gjaldgeng á svæðinu og lögreglan lagði hald á vopnin. Ekki var mikið um að menn væru með ólögleg vopn en þó var lagt hald á tvö ólög- leg skotvopn. Veiðin var almennt léleg og telja menn að miklu minna sé af rjúpu en í fyrra. Reyndar rjúpnaskyttur hér á heimaslóðum segja þó að málið sé að hafa gaman af veiðinni og láta sér nægja að veiða rétt það sem Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þó menn kvarti almennt yfir lít- illi rjúpnaveiði voru Arnþór Jó- hannsson og Hilmar Þór Hilm- arsson ánægðir með veiðina. dugar til eigin þarfa en ekki láta græðgina ná yfirhöndinni. Morgunblaðið/Áki Guðmundsson Eygló Antonsdóttir, nudd-, snyrti- og förðunarfræðingur, að störfum í nýju húsnæði snyrtistofunnar Dekurkróksins. Dekurkrókurinn í nýtt húsnæði Eigendur og framkvæmdastjóri Pakkhússins, Orri Ýrar Smárason framkvæmdastjóri og eigendurnir, Elvar Gunnarsson, Helga Jónsdótlir og Gunnar Guðmundsson. Bakkafirði - Nudd- og snyrtistofan Dekurkrókurinn hefur verið starf- ræktur á Bakkafirði síðan {júní 1998, hann hefur verið með þjón- ustu á Vopnafirði og Þórshöfn. Hann hefur nánast verið á götunni frá stofnun þar til nú í haust er hann flutti í nýtt og glæsilegt eigið húsnæði að Bæjarási 3 á Bakka- firði. Aðspurð sagði Eygló Antons- dóttir nudd-, snyrti- og fórðunar- fræðingur að mikil umskipti hefðu orðið hjá henni að flytja í nýja hús- næðið, þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið, Eygló sagði að af þessu tilefni væru í gangi opnunartilboð t.d. förðunarvörur frá No Name og ýmsar vörur frá Académie og M.D. Formulation. Pakkhús- ið, nýr veitinga- staður á Selfossi Selfossi - Nýr veitingastaður, Pakkhúsið, var opnaður á Selfossi laugardaginn 14. október. Pakk- húsið er í húsnæði á baklóð Ráð- hússins í gamla kaupfélagshúsinu, þar sem á árum áður var j>akk- húsafgreiðsla Kaupfélags Arnes- inga og dregur staðurinn nafn sitt af því. Pakkhúsið er barveitingastaður, tekur 101 gest í sæti og verður með allar almennar barveitingar. Stað- urinn verður opinn alla daga frá klukkan 18.00 en föstudaga og laugardaga verður opnað klukkan 15.30. Pakkhúsið er mjög snyrti- legur veitingastaður með fallegu yfirbragði og þess er krafist af gestum að þeir mæti snyrtilega klæddir. Aldurstakmark inn í Pakkhúsið er bundið við 20 ára ald- ur. Eigendur Pakkhússins eru Gunnar Guðmundsson kaupmaður og fjölskylda hans, framkvæmda- stjóri er Orri Yrar Smárason. „Það hefur lengi verið rætt að hér á Sel- fossi vantaði stað á borð við þenn- an og við horfum til aukinnar um- ferðar hér á staðnum og einnig á ört vaxandi íbúafjölda. Þá lítum við og til þeirrar miklu sumarhúsa- byggðar sem er hér í Árnessýslu og viljum líka þjóna henni,“ sagði Gunnar Guðmundsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.