Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ ÚRVERINU Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands íslands Sjómenn eru tilbúnir í harðar aðgerðir Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, við setningu 22. þing sambandsins. SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasam- bands Islands, segist ekki sjá annað en sjómenn verði enn einn ganginn að fara í harðar aðgerðir til að þvinga útvegsmenn í viðræður um nýjan kjara- samning. Petta kom fram í ávarpi hans við setn- ingu 22. þings Sjómannasambands Islands sem hófst í gær. „Útvegsmenn vilja einfaldlega ekki við okkur tala, jafnvel ekki um það sem kalla má mjúk mál og þeir hafa samið um við aðrar stéttir. Hvað þá um þyngri mál eins og til dæmis verðmyndunarmálin. Hvem dag sem útvegsmenn draga að gera kjara- samninga við sjómenn eru þeir að græða peninga og því ekki furða að þeir séu ófúsir til viðræðna," sagði Sævar í samtali við Morgunblaðið. Sævar segist sannfærður um sjómenn séu til- búnir til að grípa til aðgerða til að knýja fram kjarasamninga. ,Auk þess tel ég að um það sé góð samstaða innan allra samtaka sjómanna. Við höf- um alltaf fundið ásættanlega lendingu í þessum efnum og ég veit að það verður einnig nú.“ Úrskurðarnefndín liðónýt í ávarpi sínu sagði Sævar að fyrirkomulag um verðmyndun á fiski væri óviðunandi. Astandið hafi versnað frá því að lög um úrskurðarnefnd sjó- manna og útvegsmanna voru sett árið 1995 en lögin hafi átt að koma í veg fyrir þátttöku sjómanna í kvótakaupum. „Sjómenn eru látnir taka þátt í kvótakaupum nú sem aldrei fyrr. Það hafa verið sett lög sem banna þátttöku sjómanna í kvótakaup- um og tvisvar hafa verið sett lög til að reyna láta út- gerðarmenn fara eftir þeim. Það er ljóst að út- skurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna er liðónýt og ég vil leggja hana af. Hún átti að hjálpa okkur að verðmynda fisk með eðlilegum hætti og stytta bilið milli markaðs og beinna viðskipta. Reyndin er hinsvegar sú að þetta bil hefur breikkað allt frá því nefndin var sett á laggimar árið 1995. Hún hefur því ekki skilað nokkrum árangri.“ I setningarávarpi sínu gerði Sævar skýrslu auð- lindanefndar að umtalsefni. Sagðist hann sjálfur vera hlynntur hinni svokölluðu fymingarleið, frem- ur en veiðileyfagjaldi, þegar kæmi að gjaldtöku fyrir aflaheimildir. Hann sagði að á undanförnum ámm hafi forystumenn LIU lagt áherslu á að sjó- menn og útgerðarmenn þurfi að vera samstiga í baráttunni gegn auðlindaskatti. Þeim hafi hinsveg- ar margoft verið bent á þeir bæm sjálfir ábyrgð á umræðunni um auðlindaskatt, með kvótabraski þar sem margir þeirra hafi innheimt auðlindaskatt af sjómönnum. Sævar sagðist ekki sjá annað en forystumenn LÍU hafi tekið nýja stefnu í afstöðu sinni til auðlindagjalds. „Þar bjóða þeir stjómvöld- um til viðræðna um hóflegt auðlindagjald. Og að hætti þeirra sem telja sig valdið hafa fylgja því skil- yrði. Sjómenn eiga að borga hluta gjaldsins en út- gerðarmenn eiga eftir sem áður að hafa allan ráð- stöfunarrétt, svo sem að leigja sjómönnum aðgang að kvótanum og að sjálfsögðu eiga þeir að geta selt aflahlutdeild varanlega og þar með dregið fjármuni út úr sjávarútveginum eins og hefur verið að ger- ast að undanfömu. Jafnframt vilja þeir hafa það tryggt að þeir geti áfram veðsett sameign þjóðar- innar eins og verið hefur nú í nokkur ár. Úndan- farinn áratug hafa margir útgerðaimenn þverbrot- ið bæði lög og kjarasamninga með því að láta sjómenn borga auðlindagjald. Þetta hafa þeir gert undir handleiðslu forystumanna LÍÚ. Nú bjóðast þessir sömu menn til að semja við stjómvöld um auðlindagjald til eigenda auðlindarinnar gegn því skilyrði að sjómenn verði látnir borga brúsann ef lagt verður auðlindagjald á aflaheimildir, enda liggur það í augum uppi að ef einhverjum er út- hlutað tilteknu verðmæti til yfirráða þá dettur eng- um í hug nema forystumönnum LÍÚ að ætlast til þess í fullri alvöm að aðrir en þeir sem verðmætun- um er úthlutað borgi afgjaldið," sagði Sævar. IaSM AUKAÁRSFUNDUR 2000 26. október 2000, kl. 17:15 að Kirkjusandi ____________________Dagskrá:____________________ Stjóm ALVÍB boðar til aukaársfundar fumutudaginii 26. október 2000 kl. 17:15 í húsnæði íslandsbanka við Kirkjusand, 5. hæð. 1. Fundarsetning. 2. Breytingar á samþykktum. 3. Kynning á nýrri Qárfestingarstefnu. 4. Önnurmál. Áfundinum verða lagðarfram tillögur um breytingar á samþykktum ALVÍB. Þeim sjóðfélögum sem vilja kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins er bent á að hægt er að nálgast samþykktimar á eftirfarandi hátt. 1. Reglugerðin er fáanleg l\já VÍB, Kirkjusandi. 2. Hægt er að fá reglugerðina senda. Hafið samband við VÍB í síma 560-8900. 3. Hægt er að fletta upp á reglugerðinni á vefnum, slóð www.vib.is, undir lífeyrismálum. Sjóöfélagar eru hvattir til aö mœta áfundinn. REKSTRARAÐILI: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími: 560-8900. Veffang: vib.is. Netfang: vib@vib.is Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra Meiri von um sátt í sjávar- útvegi ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, segir skýrslu auðlindan- efndar gefa vonir um meiri sátt um sjávarútveginn en verið hefur. Þetta kom fram í ávarpi hans á 22. þingi Sjómannasambands íslands í gær. Ami sagði skýrsluna geta markað upphafið að lyktum þeirra erfiðu deilna um sjávarútveginn sem ís- lenskir stjómmálamenn og í raun þjóðin öll hafi staðið í á undanförnum árum. „Þetta er mjög mikilvægur áfangi sem gefur tilefni og tækifæri til að snúa umræðu um sjávarútvegs- mál í jákvæðari farveg en hún hefur verið. Við þurfum að leita leiða til auk- innar hagkvæmni í greininni og horf- ast í augu við tækniþróunina og gjör- breytt skilyrði á fjármagnsmarkaði." Ami sagði að ef sú von hans að deil- um um sjávarútvegsstefnuna linnti gengi eftir, væra viðfangsefni fram- tíðarinnar þó næg, svo sem nýjungar í viðskiptaumhverfinu, fjárfestingar, umhverfismerkingar og menntamál. „Ég er ekki að biðja um drottins dýrðar koppalogn í sjávarútvegsum- ræðunni, hún á alltaf að vera öflug. En það er komið að því, að við öll beit- um óskiptum kröftum að þeim málum sem gera íslenskum sjávarútvegi sem best kleift að takast á við verkefni framtíðarinnar.“ Minnkandi vægi sjávar- útvegsins af hinu góða Sagði Árni að nú væri mikið rætt og ritað um hið nýja hagkerfi. I því byggi fyrirtæki á mikilvægustu auð- lind íslendinga í framtíðinni, auðnum sem býr í hugviti og menntun. Hann sagði að breytingar á vægi sjávarút- vegs væra af hinu góða og styrktu undirstöður efnahags landsins. „En þrátt fyrir þessar breytingar þá sjá- um við því miður ekki í fyrirsjáanlegri framtíð að hlutfall hans fari hratt minnkandi hvað varðar gjaldeyrisöfl- un íyrir þjóðarbúið. Grandvallaratriði er því áfram að sjávarútvegur sé sem arðbærastur. Og þótt hlutur hans minnki hlutfallslega, verður hann eft- ir sem áður mjög mikilvægur og þarf að búa við góð skilyrði og skila okkur miklu,“ sagði ráðherrann. Bætur til innfjarðar- rækjubáta Verður metið ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegs- ráðherra, segir að meta þurfi hvort úthlutað verði bótum til innfjarðar- rækjubáta á Norðurlandi en eins og greint var frá í Morgunblaðinu í gær hefur Hafrannsóknastofnunin lagt til að ekki verði stundaðar neinar rækjuveiðar á Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfanda og Öxarfirði í vetur, m.a. vegna mikillar fiskgengdar á svæð- inu. Árni segir að ekki komi þó til úthlutunar bóta á yfirstandandi fiskveiðiári. „Við höfum unnið eftir ákveðinni vinnureglu hvað þetta varðar og hef ekki borið hana saman við stöðu umræddra báta. Það verð- ur gert þegar úthlutað verður fyrá- næsta fiskveiðiár. Inníjarðarbátar hafa fengið bætur vegna skerðingar í innfjarðarrækju, til að mynda bát- ar í Húnaflóa sem fengu bætur á þessu fiskveiðiári," segir Ámi. Heimsendir gíróseðlar - greiöslukortaþjónusta S: 535 1823/535 1825 Happdrætti HJARTAVERNDAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.