Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 37
LISTIR
Auður Sigríður
Jónsdóttir Halldórsdóttir
Árni Sveinn
Bergmann -Einarsson
Bókaútgáfan Hólar
Nærmynd af
Nóbelskáldi
og fleiri
bækur
BÓKAÚTGÁFAN Hólar sendir frá
sér tíu bækur á þessu hausti.
Nærmynd af Nóbelskáldi nefnist
bók um Halldór Kiljan Laxness í
augum samtímamanna. Fjölmargir
einstaklingar rifja þar upp kynni sín
af Halldóri, þeirra á meðal börn hans
María, Einar og Sigríður.
Af öðrum sögumönnum má nefna
Jón Gunnar Ottósson, Magnús
Magnússon, Árna Bergmann, Svein
Einarsson, Matthías Johannessen,
Jón á Reykjum, Gunnar Eyjólfsson.
Þættirnir eru ýmist frumsamdir af
sögumönnum sjálfum eða skrifaðir
sem viðtöl af Guðrúnu Guðlaugsdótt-
ur, Valgeiri Sigurðssyni, Ingu Huld
Hákonardóttur, Vilborgu Auði ís-
leifsdóttur, Sigurði Á. Friðþjófssyni,
Kristjáni Guðlaugssyni og Auði
Jónsdóttur, barnabarni Nóbel-
skáldsins. Jón Hjaltason sagnfræð-
ingur ritstýrir.
í órólegum takti, skáldsaga Guð-
rúnar Guðlaugsdóttur. Þetta er nú-
tímasaga um ástir og örlög sem
spinnast af komu kúrdísks flótta-
manns til íslands.
Barna- og unglingabækur Hóla
eru þrjár að þessu sinni; Bestu
barnabrandararnir og Spurninga-
bókin og gamla ævintýrið um
Búkollu er myndskreytt í nýjum
búningi Kristins G. Jóhannssonar
myndlistarmanns.
Rauðu djöflamir eru bók um
þekkta knattspyrnumenn í sögu Ma-
nchester United eftir Agnar Frey
Helgason og Guðjón Inga Eiríksson.
Stoke City í máli og myndum eftir
Guðjón Inga Eiríksson.
Kæri kjósandi er framhald gam-
ansagnaútgáfu Hóla.
Gamansögur af íslenskum al-
þingismönnum. Ritstjórar eru Guð-
jón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason.
Undir bláhimni er úrval skag-
firskra ljóða sem Bjarni Stefán Kon-
ráðsson hefur tekið saman.
Minningar úr Menntaskólanum á
Akureyri er rit, á sjötta hundrað síð-
ur, þar sem 45 gamlir nemendur MA
lýsa vist sinni í skólanum. Ritnefnd
skipuðu þeir Pétur Halldórsson, Kri-
stján Kristjánsson og Jón Hjaltason.
Minningar úr Menntaskólanum á
Akureyri er gefin út í samvinnu við
skólayfirvöld en tilefnið er 120 ára
afmæli skólans nú í haust.
netJN'rel
listen.to/iceblue
Missa brevis flutt
í Hveragerðiskirkju
KIRKJUTÓNLEIKAR verða í
Hveragerðiskirkju nk. sunnudag kl.
20. Kh-kjukór Hveragerðis- og Kot-
strandarsókna stendur fyrir tónleik-
unum.
Kórinn hefur undanfarin ár verið
að sækja í sig veðrið í flutningi
kirkjutónlistar umfram hefðbundinn
messu- og athafnasöng undir stjórn
Jörg E. Sondermann organista.
Fyrirferðarmest á efnisskrá tón-
leikanna er haustverkefni kórsins á
þessu hátíðarári, „Missa brevis" í F-
dúr eftir Josef Haydn og fær hann
til liðs við sig strengjasveit og ein-
söngvara.
Á efnisskrá er að öðru leyti fjöl-
breytt kh-kjutónlist, t.a.m. Kirkju-
sónata í C-dúr fyrir tvær fiðlur, selló
og orgel eftir W.A. Mozart, Nun
beut den Flur, aría úr „Sköpuninni"
eftir Joseph Haydn, Quia respexit
humilitatem, aría úr „Magnificat"
eftir J.S. Bach, „Orgelsónata nr. 1 í
Es-dúr“ eftir J.S. Bach og fleiri verk
sungin og leikin. Einsöngur: Martha
R. Halldórsdóttir og Birna
Ragnarsdóttir. Orgelleikur: Guðný
Einarsdóttir og Jörg E. Sonder-
mann. Strengjasveit: Ingrid Karls-
dóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir
og Gyða Valtýsdóttir.
Maruja Torres
hlýtur Plánetuna
Barcelona. Morgunblaðið.
MARUJA Torres, rithöfundur og
blaðamaður, hlaut Plánetuna
(Planeta), ein virtustu bókmennta-
verðlaun Spánar, á sunnudaginn.
Verðlaunin hlaut Torres fyrir nýj-
ustu skáldsögu sína, Meðan við lif-
um (Mientras vivimos), sem rituð
er til minningar um spænsku
skáldkonuna Carmen Kurtz sem
hlaut Plánetuna árið 1956, en Torr-
es er einnig vel kunnur dálkahöf-
undur í dagblaðinu E1 País.
Meðan við lifum segir frá þrem-
ur konum af sinni kynslóðinni hver
og er Kurtz fyrirmynd einnar
þeirra, Carmenar. Úmfjöllunar-
efnið er siðmenning og tíðarandi í
aldarlok. Torres var einungis tæpt
ár að skrifa bókina en í fyrra gaf
hún út minningar sínar frá löngum
blaðamannsferli, Kona í stríði, sem
vöktu mikla athygli. Hún hefur
starfað við E1 País frá árinu 1981.
Plánetan hefur verið veitt 49 sinn-
um og nema verðlaunin um 22
milljónum króna.
Merkjavara og tískufatnaði
á 50—80% lægra verði
Verðdæmi: ntl áður
Kookai DRAGTIR 6.900 +4^55
Obvious JAKKAFÖT 9.500 29^00
SKYRTUR 990
Tark BUXUR 2.900
Levi's PEYSUR 1.900 ^r9tfÖ
Diesei GALLABUXUR 3.500 j&SÖÚ
DÚNÚLPUR 3.900
Skór HÆLASKÓR frá 990
GRÓFIR frá 1.900
STÍGVÉL frá 2.900
:
Nike ÚLPUR 5.900 JPhSÖÖ
SKÓR fré 1.900
Adidas SKÓR frá 1.900
.
liliiiii
ÞOKKUM FRABÆRAR MOTTOKUR
OUTLET
Diesel
Adidas
Casall
D.C.
Everlast
Fila
Nike
Osiris
Puma
Freshjive
Sparks
SpíeWak
Stussy
Levis
CK Jeans
G-star
4-you
Aíl Saints
DKNY
French-
connection
Hudson
Lloyd
Matinique
Obvious
Parks
Paul Smith
Van Gils
Kookai
Morgan
InWear
Imitz
Nice Girl
Part II
Tark
Bronx
BullBoxer
Roobins
Shelly's
Vagabond
Zinda
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10
OUTLET 10
Opið:
mán.-fim. 11.00-18.00
fös. 11.00-19.00
lau. 11.00-17.00
+++merki fyrir minna+++
Faxafeni 10
s. 533 1710
NYTT KORTATIMABIL