Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 57
Beinverndarátak í skól-
um um allt land
í TILEFNI alþjóðlega beinvernd-
ardagsins föstudaginn 20. október
nk. ætla skólar hvarvetna um
landið að efna til sérstaks bein-
verndarátaks. Yfirskrift bein-
Iverndardagsins að þessu sinni er
„fjárfestu í þínum beinum" og af
3 því tilefni ákvað félagið Beinvernd
I að reyna að ná til ungs fólks.
íþróttakennarar í 150 skólum
um allt land fengu sendan bækl-
inginn „Hollusta styrkir bein“
ásamt spurningablöðum um mjólk
og beinvernd sem ætluð voru til
dreifingar í 8. bekk. „Rannsóknir
hafa sýnt að það er á unglingsár-
um sem mataræði versnar og því
vildi Beinvernd vekja þennan hóp
til umhugsunar um þá góðu fjár-
festingu sem gott mataræði og
; hreyfing skilar beinunum," segir í
fréttatilkynningu.
Alla þessa viku hafa fjölmargir
skólar verið með sérstaka kynn-
ingu meðal nemenda í 8. bekk og
eins hafa nokkrir skólar skipulagt
sérstakt beinverndarátak á sjálfan
beinverndardaginn. Til að mynda
ætlar Öskjuhlíðarskóli að vera
með dagskrá fyrir alla nemendur
kl. 10.10, Austurbæjarskólinn í
Reykjavík verður með hreyfingu
fyrir nemendur í 8. bekk í íþrótta-
sal Vörðuskóla kl. 12.30 og kl.
11.00 á föstudagsmorgun ætlar Ár-
skóli á Sauðárkróki að fara í rat-
leik með 8. bekk og verður lagt
upp frá íþróttahúsinu. Nemendur
fá spurningar tengdar mjólk á
hverri stöð en ratleiknum lýkur
við Mjólkursamlagið þar sem þátt-
takendur fá óvæntan glaðning.
Fimmtudaginn 19. október mun
Beinvernd taka í notkun nýjan
upplýsingavef félagsins. Á vefnum
er að finna fræðslu og gagnlegar
upplýsingar um beinþynningu auk
þess sem þar er hægt að taka
svokallað áhættupróf með fljótleg-
um hætti. Niðurstöður þess gefa
vísbendingu um það hversu miklar
líkur séu á beinþynningu.
Fundur Kvenréttindafélags ís-
lands og Vestnorræna ráðsins
VESTNORRÆNA ráðið sem er
samstarísvettvangur þjóðþinga
Færeyja, Grænlands og Islands-
ráðið stóð í júní 1999 fyrir kvenna-
ráðstefnu í Færeyjum. Ráðstefn-
una sem nefndist „Vestnordisk
kvindepolitisk værksted" sóttu
tæplega 60 manns og var þeim
skipt upp í 6 vinnuhópa. Helstu
niðurstöður hópanna voru lagðar
fyrir þing Vestnorræna ráðsins í
ágúst 1999. Ráðið samþykkti allar
tillögurnar.
Föstudaginn 20. október kl. 16-
18 býður Kvenréttindafélag íslands
í samvinnu við íslandsdeild Vestn-
orræna ráðsins til opins fundar til
að meta árangur Færeyjaráðstefn-
unnar. Fundurinn verður haldinn í
sal Hallveigarstaða að Túngötu 14.
Boðið verður upp á léttar veit-
ingar. Fundurinn er öllum opinn en
KRFÍ hvetur sérstaklega alla sem
þátt tóku í Vestnordisk kvindepol-
itisk værksted til að mæta á fund-
inn.
Félag um
menningar-
fjölbreytni á
Vestfjörðum
NÝTT félag áhugafólks um menn-
ingarfjölbreytni verður stofnað á
Vestfjörðum á sunnudaginn kemur,
hinn 22. október. Stofnfundurinn
verður samtímis á Hólmavík, Isafirði
og Patreksfirði og verður hann
tengdur með fjarfundabúnaði.
Að stofnuninni stendur það fólk
sem á undanförnum árum hefur
staðið fyrir Þjóðahátíð Vestfirðinga
en það hefur til þessa aðeins sinnt
þessum málum sem áhugasamir ein-
staklingar en ekki formleg félaga-
samtök. Nú er meiningin að bæta úr
því og skapa farveg fyrir þann mikla
fjölda fólks sem hefur sýnt áhuga á
málefnum sem tengjast erlendu að-
komufólki, til að koma að uppbyggi-
legu starfi.
Ætlunin er að félagið haldi áfram
því starfi sem áhugahópurinn hefur
unnið að, þ.á m. að halda Þjóðahátíð
Vestfirðinga sem haldin hefur verið í
tilefni af degi Sameinuðu þjóðanna
gegn kynþáttafordómum. Til þess fá
hin nýju samtök gott veganesti en
nýlega barst átta þúsund dollara
framlag frá Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna, UNESCO,
vegna næstu hátíðar.
Félaginu hefur verið valið nafnið -
Rætur og er með því bæði vísað til
þess að hverjum manni sé dýrmætt
að varðveita uppruna sinn, en einnig
þess að vestfirskt samfélag standi á
góðum grunni einmitt vegna þess
hve rætur þess liggja víða, segir í
fréttatilkynningu.
Eftir stofnfundinn verða tónleikar
undir yfirskriftinni Nýbúar njóta sín
í Hömrum á Isafirði en þeir eru liður
í menningarvikunni Veturnætur sem
nú stendm- yfir á Vestfjörðum.
Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins
Hvatt til ávaxtaneyslu
NÝLOKIÐ er átaksvikunni Evrópa
gegn krabbameini, sem haldin var í
16 Evrópulöndum samtímis.
Markmið hennar var að hvetja til
aukinnar neyslu ávaxta og græn-
metis. Að vikunni stóðu hérlendis
heilbrigðisráðuneytið, Manneldis-
ráð og Krabbameinsfélagið og segir
í frétt frá þeim að með því að auka
neyslu þessarar fæðu megi draga
úr líkum á ýmsum sjúkdómum. Hjá
íslenskri erfðagreiningu hefur
iengi tíðkast að ávaxtakarfa standi
starfsmönnum til boða daglangt og
í mötuneytinu er annars vegar boð-
ið upp á salatbar og hins vegar
heita máltíð. Ásta Bjarnadóttir
starfsmannasljóri segir það stefnu
fyrirtækisins að bjóða holla fæðu og
stuðla að heilbrigði starfsmanna.
Aðalfundur Foreldra- og styrkt-
arfélags Greiningarstöðvarinnar
AÐALFUNDUR Foreldra- og
styrktarfélags Greiningarstöðvai--
innar verður haldinn fimmtudaginn
19. október kl. 20.30 í húsnæði Grein-
ingarstöðvarinnar, Digranesvegi 5,
4. hæð, Kópavogi.
Að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum mun María Játvarðar-
dóttir, félagsráðgjafi á Greiningar-
stöð, flytja erindi sem hún nefnir
„Félagsleg réttindi barna með fötlun
og aðstandenda þeirra".
1
I
Þar sem gæði og gott verð fara saman...
Allar vörur á lágmarksverði „outletverði
Ferðatölvutaska ársins kr. 5.900,-
létt, handhæg með fjölda hólfa.
Vatteraður Apollo jakki
með hettu í kraga, 4 litir kr. 6.900,-
Kuldagallar, fullorðinna
verð aðeins kr. 7.500,-
Jakki, vatns & vindheldur
og öndun, hetta
í kraga kr. 9.900,-
Raftæki í úrvali á frábæru verði.
Frakki með leðurkraga
-með lausu fóðri. kr. 12.900,-
Falleg trégjafavara
á heildsöluverði í úrvali
Benzjakkinn vinsæli,
vatteraður mittisjakki
með leðurkraga. kr. 6.900,-
asasws’'"
"t Nýja
markaðstorgið
Kuldagallar barna frá kr. 3.500,-
Grófur Fleece
vendijakki kr. 3.900,-
•ssssgr
Ódýr gufustraujárn
verð aðeins kr. 2.390,-
Kabín flugtaska kr. 4.900,-
í húsi Fálkans, Suðurlandsbraut 8, sími: 533 50 90
m