Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sólstafur vorsins BOKMENNTIR Skáldsaga UM LOFTIN BLÁ Höfundur: Sigurður Thorlacius. Myndskreyting: Erla Sigurðardótt- ir. Hönnun: Árni Pétursson, Odda hf. Prentvinnsla: Oddi hf. Út- gefandi: Islendingasagnaútgáfan / Muninn bókaútgáfa 2000. UPPHAFSORÐ bókar: „Loks- ins, eftir langan og dimman vetur, var komið vor, vor í lofti og sjó, vor í rótum og sprotum, vor í huga og hjarta" bjóða lesanda inn í morgun- ljómann, umvefjandi — hlýjan; bjóða að fótskör þess sem situr með strenghörpu lífsins og leikur, svo að himinn og jörð eignast takt í gleðidansi. Já, það er hrifnæm sál, er réttir þér hér hönd, leiðir þig um lífsins höll — bendir þér á undrin mörg — fræðandi, manandi til skoðunar, eins og orðin séu slegin til hljóms við undirtón stefsins: Skoðaðu með mér dýrðina alla! Sögusviðið er litað af æskuslóð höfundar, þar sem úthafsaldan hjal- ar við standberg landsins, eða þá þau takast á. Lífríki fjörunnar er lýst, flögrað um hólma og sker und- ir leiðsögn kollu og blika, og les- andinn skynjar náttúrufræðina á nýjan, ferskan hátt. Hann kynnist far- og staðfuglum, kynnist lifnað- arháttum þeirra, baráttunni til lífs. Já, hér er ekki aðeins blíðustrokum lífsins lýst, heldur bent á hremm- ingarnar líka, bent á, að eins og fuglinn nærist á svifi og skel, kvisti og laufi, eins nærast önnur dýr á þeim sjálfum, selur, refur og rán- fuglar loftsins, nú ekki er mann- skepnunni gleymt. Náttúruöflin reiða líka hramm í æstri öldu, eða byrgja skjá og nísta að beini með ísnálum vetrar. Líf og dauði takast á. Að ná sáttum við þá staðreynd er lífsspeki þroskans. Eins og áður segú- lætur höfund- ur sögu kollu og blika spinna þráð- inn, stundum annað fiðurfé, en með því að færa hugsanir þeirra, kennd- ir og þrár í spariföt mennskra orða dylst ekki, að höfundur stendur við kennarapúltið á tali við nemendur um undrið sem við köllum líf, oft mjög nærgöngull, leikur sér með orð og dæmisögur, t.d. í frásögninni um svartbakinn, fuglavininn mikla! í sparifötum orða, sagði eg. Lestu upphátt og hlustaðu: „í Hvaley, þar sem reyrgresið angar og gleym-mér-ei-ar festast við buxnaskálmar og pilsfalda lítilla vegfarenda. í Hvaley, þar sem lundinn flýgur við snasir og krían hamast gargandi á eftir kjóum og hröfnum. I Hvaley, þar sem tága- mura og blálilja vefja sig í silfur- gi-áum, gylltum og heiðbláum breiðum um malarkamba og fjöru- sand. I Hvaley, þar sem veiðibjall- an svífur á þöndum vængjum yfír kletta og víkur, en óðinshaninn snýst og dansar við sefgræna tjarn- arbakka. I Hvaley, þar sem móðir náttúra heldur stórfenglega hátíð skaparanum til dýrðar og býður litlum börnum' að skoða viðhafnar- búning lífsins á björtum vordegi." Svo tala aðeins skáld, sem kunna mál og stíl. Vel sé því þeim er færa okkur söguna nú, því hinar prent- anirnar tvær eru löngu horfnar af söluborðum. Dóttir höfundar minnist föður og sonar í formála, segir fjölskylduna helga útgáfuna minning þeirra, fag- urkeranna beggja, og getur þess, að til verksins hafi BSRB lagt skerf til minningar um Sigurð, fyrsta formann sinn. Víst var við hæfí að fela listakon- unni Erlu skreyting bókar. Myndir hennar bera að auga fegurð og hlýju vorsins, eru sannkallað bók- arskraut. Prentvillur sárafáar, meinlausar. Hönnun og prentverk allt lofa meistarann. Þökk og aftur þökk fyrir frá- bæra, kærkomna bók. Sig. Haukur Við kynnum La Strada® fimmtudag til laugardags La Strada framleiðir fatnað fyrir konur á öllum aldri á góðu verði, m.a. gallabuxur, jakka, pils, buxur, vesti og skyrtur. Stœrðir 38-48 15% kynningar- afsláltur Fimmtud. til laugard Strandgötu 11, sími 5651147 Myndlist í Slunkaríki o g Edinborg Fyrirlestur um grafíska hönnun ISLUNKARÍKI og í Ed- inborgarhúsinu á Isa- firði hefjast Iaugardag- inn 21. október kl. 16 sýningar á verkum Högna Sigurþórssonar og Svisslendingsins Stef- ans Rohners. Stefan mun sýna verk sín í Slunka- ríki en Högni setur upp í Edinborgarhúsinu. Stefan Rohner hefur mikið notað ljósmyndina í list sinni í gegnum tíð- ina en ekki verða þó ein- göngu slík verk á sýning- unni í Slunkaríki því hann mun einnig sýna „Multiple“, það eru margfolduð þrívíð verk. Högni Sig- urþórsson nam myndmiðlun við Listaháskólann í Berlín, HdKB, vet- urinn 1993-1994. Vorið 1998 út- skrifaðist hann úr skúlptúrdeild MHI. Hann var myndmenntakenn- ari við grunnskóla Önundarfjarðar 1998-2000 og rekur nú fyrirtæki á sviði grafískrar hönnunar með að- setur á Flateyri. Sýningin hefst kl. 16 og eru allir velkomnir. Slunkaríki er opið fímmtudaga til sunnudags kl. 16- 18. Edinborgarhúsið er opið alla virka daga frá kl. 13-18, sýningam- ar standa til 12. nóvember. STEFAN Sagmeister, grafískur hönnuður frá New York, heldur fyr- irlestur um verk sín og viðhorf til grafískrar hönnunar á Kjarvalsstöð- um föstudaginn 20. október kl. 13.30. ! Hann kemur til landsins í boði FÍT, Félags íslenskra teiknara, og Form 1 ísland, sem nú gengst fyrir hönnun- * arsýningunni Mót á Kjarvalsstöðum. „Stefan Sagmeister hefur farið óhefðbundna og sérstæða leið graf- ískrar hönnunar. Hann blandar sam- an með sérstæðum hætti myndmáli og táknum austurs og vestur. Ferill hans spannar vinnu fyrir hljómlista- menn og hljómsveitir, meðal þeirra eru Lou Reed, David Byme og Roll- s ing Stones. Einnig hefur hann unnið | fyrir bókaútgáfur og stórfyrirtæki * víðsvegar um heim. Hann starfaði nokkur ár við hönn- un í Hong Kong en hefur stærstan hluta ferils síns unnið í New York. Um tíma vann hann með Tibor Kalman. Sagmeister hefur rekið eig- ið hönnunarfyrirtæki," segir í frétta- tilkynningu. Skálholtsútffáfan sendir frá sér fjölda bóka fyrir jólin Bænabók karla, sögur af englum og kristin íhugun í ÁR gefur Skálholtsútgáfan út eftir- taldar bækur. Barna- og unglinga- bókina Einn dagur þúsund ár eftir Elínu Jóhannsdóttur og Brian Pilk- ington. Þetta er ævintýri um nútíma- strákinn Snorra, sem fyrir tilviljun finnur leið til að ferðast fram og aftur um tímann. Hann eignast vinkonu, Eddu, frá árinu 1000. Brian Pilking- ton myndskreytir. Bænabók karla er skrifuð af 45 ís- lenskum karlmönnum úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Henni er ætl- að að veita innsýn í bænalíf karl- manna á öllum aldri og vera leiðbein- ing við bænir og hvatning til bænaiðkunar. Helgi Þorgils Friðjóns- son; myndlistannaður myndskreytir. Ákall úr djúpinu - um inntak og iðkun kristinnar íhugunar er þýdd bók eftir Wilírid Stinissen. A hrað- fara öld nútímans þrá margir kyrrð og frið og að eignast d,júpa reynslu af Guði. Margt leitandi fólk hefur þann- ig róið á mið austurlenskra dul- hyggjufræða. Þessi bók fjallar um margar hliðar kristinnar íhugunar og djúphygli. Jón Rafn Jóhannesson þýddi. Englar hér, englar þar, englar allsstaðar er bók með sögum af engl- um. Uppsgretta bókarinnar er Bibl- ían sjálf. í þessari bók eru englar hver öðrum ólíkir. Eitt eiga þeir þó sameiginlegt, að vera sendiboðar Guðs, þjónar Guðs. Höfundur bókar- innar er Bob Hartmann, Hreinn Há- konarson þýddi en myndskreytingar eru eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdótt- ur, myndlistarmann. Sálmabók bamanna er safn bama- sálma og söngva til notkunar í kirkjustarfi, skólastarfi og á heimil- um. I bókinni eru 150 sálmar og söngvar. Kynningarsnælda er vænt- anleg með bókinni. Fjórtán jólasögur eru valdar og þýddar af Hreini S. Hákonarsyni. Hver saga í bókinni dregur fram nýj- ar og gamlar hliðar á jólunum. Sög- urnar veita innsýn í heim bama og unglinga og vekja upp ýmsar spurn- ingar. Bókin hæfír bömum írá 10 ára aldri en einnig öllum unnendum góðra frásagna á jólum. Lítið kver um kristna trú er eftir Karl Sigurbjömsson, biskup íslands. I þessu litla kveri leitast hann við að varpa ljósi á meginatriði kristinnar trúar. I bókinni em 50 stuttir kaflar. Viðfangsefni era meðal annars Faðir vorið, trúarjátningin og ýmsar hátíðir kirkjuársins. Leyndardómur trúarinnar - bók um altarissakramentið eftir Jakob Jakob Ágúst Hjámarsson Karl Signrbjörnsson Ágúst Hjálmarsson prest við Dóm- kirkjuna í Reykjavík. Gerð er grein fyrir kvöldmáltíðarsakramentinu á aðgengilegan hátt, bakgranni þess og samhengi. Teknir íyrir ritningartext- ar sem varpa ljósi á það, fjallar um trúarlega túlkun kirkjunnar á því, hvemig kirkjan umgengst það og hvaða gagnsemd er að því. Þessi bók er skrifuð með almenning í huga. Við tvö - um hjónaband og sambúð er eftir Benedikt Jóhannsson sál- fræðing. Hér ritar Benedikt um sam- skipti nútíðarsambúðarfólks. Bent er á leiðir til að standa vörð um hjóna- bandið og heimilislífið. Fjallað um væntingar og tálsýnir, tjáskipti og tengsl og bent á leiðir fyrir fólk til að þróa samband sitt í hjónabandi eða sambúð. Jesús og bömin og Jesús kyrrir storminn era harðspjaldabækur fyrir yngstu bömin, lítríkar og hrífandi. Sé Drottni dýrð er kórabók fyrir blandaða kóra í útgáfuröðinni Söngvasveigur og inniheldur hún 60 kirkjuleg aðventu- og jólalög. Söngvasveigur er nótnabókaútgáfa íyrir barnakóra, kvennakóra og blandaða kóra. Safndiskur með lofgjörðaitónlist sem nefnist Drottinn er minn hirðir kemur út íyi-ir jól. Flytjandi er Þor- valdur Halldórsson ásamt hljóðfæra- leikurum. Elín Jóhannsdóttir og Karl Sigur- björnsson skrifuðu litla bók fyrir böm um bænina Faðir vor en Halla Sólveig Þorgeirsdóttir myndskreytti. Elín semur einnig aðventudagatal fyrir leikskóla sem nefnist Litli pabbi og stóri pabbi, en slíkt efni gefur Skálholtsútgáfan út árlega og dreifír til leikskóla í landinu. Myndskreyt- ingar efnisins era gerðar af Ólöfu Kjaran Rnudsen. Barnaefni fyrir sunnudagaskóla, starf með 7-9 ára börnum og 10-12 ára bömum kom út í haust. Elín Jó- hannsdóttir samdi efnið en fimm ís- lenskir myndlistarmenn mynd- skreyttu nýja biblíumyndaseríu, alls 30 biblíumyndir sem bömin fá í hend- ur í samverum vetrarins og safna í sérstaka bók. Myndlistarmennimir era þau Brian Pilkington, Búi Krist- jánsson, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Soffía Sæmundsdóttir, Signín Eld; jám og Ólöf Kjaran Knudsen. I tengslum við staif með 10-12 ára bömum og fyrir fermingarstarf var gefíð út spil sem nefnist Hvar í ver- öldinni - Spil um stelpur og stráka í ríkum löndum og fátækum eftir Önnu Ólafsdóttur fræðslufulltrúa Hjálpar- starfs kirkjunnar. Einnig er væntan- leg föndurbók sem nefnist Klippt og skorið sem hugsuð er til notkunar í kirkjustarfi með bömum. Vigdís Stef- ánsdóttir tók bókina saman. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, prestur fatlaðra, hefur útbúið hefti með efni og kennsluleiðbeiningum auk verk- efnabókai- fyrir fermingarfræðslu þroskaheftra barna. Nefnist efnið Jesús er vinur minn. Væntanleg er einnig bók um kærleiksþjónustu kirkjunnar. Kirkjuheimsóknarefni sem nefnist Klettamir í Kirkjuvík kom út fyiT á árinu. Um er að ræða plakatsýningu sem Brian Pilkington teiknaði og fylgir með saga sem gefur skólabömum innsýn í íslandssögu 1000 ára kristni. Elín Jóhannsdóttir samdi söguna og kennsluefni sem fylgir með í kennarahefti. Fyrir jól kemur út að nýju Bókin um englana eftir Karl Sigurbjöms- son, biskup, en bókin hefur verið ófá- anlegumtíma. 14. bókin í Ritröð Guðfræðistofn- unar Háskóla íslands - Studia Theo- logica Islandica - inniheldur ýmsar greinar. Þar má nefna þætti um séra Valdimar Briem, grein um konumar í Gamla testamentinu, um stjórnmála- viðhorf biskupasagna og Sturlungu, um Invocavit prédikanir Lúthers og viðhorf hans til breytinga innan Idrkjunnar, grein um Friðþæginguna fyrir syndú manna - hvað merkir það; grein um persónu Jesú í Tómas- arguðspjalli, grein um Saltarann og helgihaldið, og ritgerð um stofnun Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík og kirkjumálin í upphafi aldarinnar. w
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.