Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 59
Símstöðvar
Símans búnar
undir númera-
flutning
NÆSTU kvöld geta orðið smávægi-
legar truflanir á símasambandi í ein-
stökum landshlutum í stutta stund í
einu vegna uppfærslu á hugbúnaði í
sjálfvirkum símstöðvum Símans.
Um er að ræða undirbúning fyrir
uppsetningu nýs kerfishugbúnaðar
(Local 7 frá Ericsson). Nýr kerfis-
hugbúnaður er m.a. nauðsynlegur til
að gera mögulegan númeraflutning á
milli símafyrirtækja, símkerfa og
símstöðvarsvæða, sem tekinn verður
upp í áföngum á næstu misserum
samkvæmt nýlegum reglum frá Póst-
og fjai-skiptastofnun. Jafnframt gerir
uppfærsla símstöðvakerfisins Síman-
um kleift að bjóða upp á margvíslega
nýja þjónustu í almenna símakerfinu
um allt land og verður hún kynnt
nánai- þegar þar að kemur.
Svæðissímstöðvamar í Breiðholti
og Múla hafa þegar verið uppfærðar
og urðu truflanir vegna þess litlar. A
miðvikudag var Miðbæjarstöðin upp-
færð, en henni tengjast sjálfvirkar
stöðvar Símans í vesturhluta Reykja-
víkur og á Seltjarnamesi. I kvöld
verður svæðissímstöð á Akureyri
uppfærð, en henni tengjast stöðvar á
Norðurlandi, allt frá Trékyllisvík til
Þórshafnar.
Stöð á Egilsstöðum verður upp-
færð á föstudag, 20. október, en
henni tengjast stöðvar á Austurlandi.
21. og 23. október verða skiptistöðvar
í Múla og Miðbæ uppfærðar og eiga
áhrif af þeirri uppfærslu að verða
hverfandi. Stöð á ísafirði, sem allir
Vestíirðir tengjast, verður jafnframt
uppfærð þann 23. Svæðisstöðin í
Kópavogi verður uppfærð 24. og hef-
ur það áhrif á Kópavog, Hafnarfjörð,
Garðabæ, Álftanes og Mosfellsbæ.
Hinn 25. verður stöð á Varmá upp-
færð, en henni tengist símakerfið á
Vesturlandi og Suðurnesjum. Loks
verður svæðissímstöðin á Selfossi
uppfærð 26. október.
Henni tengjast símstöðvar á öllu
Suðurlandi.
Hugsanlegar tmflanir vegna þess-
ara aðgerða munu einungis vara í ör-
fáar mínútur á hveiju svæði fyrir sig.
Síminn biður viðskiptavini sína vel-
virðingar á þeim óþægindum, sem
þessi nauðsynlega breyting kann að
valda en vonar jafnframt að þau verði
sem allra minnst.
hitakútar
úr ryðfríu stáli
30 ára frábær reynsla á
þúsundum íslenskra heimila
• 30/50/100/120/200 eða 300 lítra
• Blöndunar- og öryggisloki fylgir
• 20% orkusparnaður
• Hagstætt verð
ffff
Einar
Farestveit&Co.hf
Borgartúni 28, « 562 2901
www.ef.is
Fossberg-Iselco hefur fyrst íslenskra fyrirtækja leigt sérhannaðan og
innréttaðan bíl sem í senn er sýningar- og sölubíll, fullkomin verslun á
hjólum.
Verslun á hjólum
á leið um Austurland ■
FOSSBERG-fselco hefur leigt sér-
hannaðan og innréttaðan bíl sem í
senn er sýningar- og sölubfll, og
verslun á hjólum.
Á næstu vikum mun bfllinn fara
um landið allt, heimsækja hvert
þorp og hvern bæ þar sem fólki
gefst kostur á að kynna sér nýjung-
ar og kaupa vélar, tæki og tól, oft á
sérstöku kynningarverði, segir í
fréttatilkynningu.
Þótt bfllinn sé sölu- og sýningar-
bfll, má segja að hann sé verkstæði
á hjólum. Þegar komið er að verk-
stæði fer áhöfn bflsins í vinnugall-
ann, tekur fram vélar og verkfæri
og sýnir væntanlegum kaupendum
hvernig verkfærin virka, segir í til-
kynningunni.
Alls verða tveir starfsmenn Foss-
berg-Iselco í áhöfn bflsins og ávallt
fagmenn á sviði járniðnaðar. Þessa
vikuna verður bfllinn á ferð um
Austfirði.