Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Stefnt að slysalausum umferðardegi á morgun
Löggæslan efld og
lögreglumenn sýnilegir
Morgunblaðið/Kristján
Islcnsk verðbréf hf. hafa keypt tvœr efstu hæðirnar í norðurenda
nýbyggingarinnar að Strandgötu 3 á Akureyri og einnig rými á jarðhæ.
íslensk verðbréf hf. kaupa stóran
hluta húseignarinnar á Strandgötu 3
Starfsemin flutt
á næsta ári
Morgunblaðið/Kristján
Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn, Björn Jósef Arnviðarson sýslu-
maður og Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfírlögregluþjónn kynntu umferð-
ardag sem verður á morgun víða um landið en stefnt er að því að dagur-
inn verður slysalaus í umferðinni.
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIÐ ís-
lensk verðbréf hf. hefur fest kaup á
stórum hluta húseignarinnar á
Strandgötu 3 á Akureyri undir starf-
semi sína. Um er að ræða alls um 750
fermetra, rúmlega 110 fermetra
rými á jarðhæð og alla 2. og 3. hæð-
ina í norðurenda hússins, sem hvor
um sig er rúmlega 310 fermetrar að
stærð.
Sveinn Torfi Pálsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri íslenskra verð-
Fyrirlestur hjá
Samhygð
Sr. Solveig
Lára ræðir
um sorg
SAMHYGÐ, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð, verður með fyrsta
fyrirlestur vetrarins í kvöld, fimmtu-
dagskvöld, kl. 20 í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju.
Þar mun sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir fjalla um sorg og sorg-
arviðbrögð.
Sr. Solveig Lára hefur mikla
reynslu í úrvinnslu sorgartilfinninga
við missi og hefur um árabil leitt
sorgarvinnu í Seltjarnamessöfnuði
og flutt fyrirlestra um sorgarvinnu
hjá Nýrri dögun í Reykjavík og í
grunnskólum Reykjavíkur.
Eftir fyiirlesturinn verða almenn-
ar umræður og fyrirspurnir.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og
eru Akureyringar og nærsveitafólk
hvatt til að koma til þessarar sam-
veru í Safnaðarheimilinu í kvöld.
Að hálfum mánuðr liðnum, hinn 1.
nóvember, verður opinn sorgarhóp-
ur í Safnaðarheimilinu undir leið-
sögn prests. Er þar vísað til vegar á
vegi sorgarinnar og stuðningur
veittur. Þangað eru allir velkomnir.
bréfa sagði stefnt að því að flytja
starfsemi fyrirtækisins í nýja hús-
næðið í febrúar eða mars á næsta ári.
Fyrirtækið er nú til húsa á 2. hæð á
Skipagötu 9 en það húsnæði er í eigu
Sparisjóðs Norðlendinga, sem starf-
ar á 1. hæð hússins og Varðar - Vá-
tryggingafélags, sem er til húsa á 3.
hæð. Sveinn Torfi sagði að nokkuð
þröngt væri orðið um Sparisjóðinn
og Islensk verðbréf í núverandi hús-
næði og myndi Sparisjóðurinn flytja
hluta starfsemi sinnar upp á 2. hæð
við þessa breytingu.
Sveinn Torfi sagði að við þessa
breytingu myndi afgreiðsla ís-
lenskra verðbréfa flytjast á jarðhæð
nýja húsnæðisins en önnur starfsemi
verður á næstu tveimur hæðum.
„Aðgengi að afgreiðslunni verður
betra og við verðum jafnframt sýni-
legri við þessa breytingu.
Hjá íslenskum verðbréfum starfa
nú um 20 manns og hefur starfsfólki
verið að fjölga undanfarin misseri.
Sveinn Torfi sagði að fyrirtækið væri
að hefja starfsemi á Vestfjörðum á
næstu dögum en starfsmaður fyrir-
tækisins þar mun verða með aðstöðu
bæði í Bolungarvík og á ísafirði.
ÞORSKASTRÍÐ og kalt stríð er
heiti fyrirlesturs sem Guðmundur
J. Guðmundsson sagnfræðingur
heldur á vegum Háskólans á Akur-
eyri 21. október kl. 13:15 í stofu 16 í
Þingvallastræti 23 og er hann opinn
öllum.
Bretar og Islendingar hafa háð
fjögur þorskastríð á öldinni sem er
að Ijúka. í þessum fyrirlestri verð-
ur fjallað um áhrif þessara átaka á
valdajafnvægið milli vesturveld-
anna og Sovétríkjanna á Norður-
Atlantshafi og stöðu íslands innan
UMFERÐARDAGUR verður á
morgun, föstudaginn 20. október,
um nánast allt land og er stefnt að
slysalausri umferð þennan dag.
Lögreglumenn á Norðurlandi verða
snemma á ferðinni. Þeir munu
leggja áherslu á umferð við skóla
sem og á Ijósabúnað, bílbeltanotkun
og aðra öryggisþætti sem snúa að
umferð í myrkri og vetrarumferð
svo og of hraðan akstur. Rætt verð-
ur við ökumenn og reynt að beina
athygli þeirra að því að það er fyrst
og fremst undir þeim komið að um-
ferðin gangi slysalaust fyrir sig.
Björn Jósef Arnviðsson, sýslu-
maður í Eyjafjarðarsýslu, Daníel
Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á
Akureyri, og Ólafur Ásgeirsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn kynntu
átakið á fundi á lögreglustöðinni á
Akureyri í gær og kom fram í máli
sýslumanns að hvarvetna um Norð-
urland yrði Iöggæsla efld þennan
dag og lögreglumenn myndu kapp-
kosta að vera sýnilegir. Þeir myndu
hafa afskipti af ökumönnum, á já-
kvæðum nótum, og gera þeim grein
fyrir ábyi'gð sinni sem ökumanna í
umferðinni.
Jákvætt og gott samband
við ökumenn
Daníel sagði að allur mannafli lög-
reglunnar á Akureyri yrði nýttur og
yrðu menn mikið á ferðinni alveg frá
því snemma morguns. Til að byrja
með verður áhersla lögð á umferð
við skóla og á fjölförnustu umferð-
aræðum. Einnig yrði hugað að um-
ferð til bæjarins, en margir sækja
vinnu til Akureyrar frá ná-
grannabyggðarlögum. Haldið verð-
ur áfram af fullum þunga fram til
kvölds.
Gangbrautarverðir verða með
endurskinsmerki og afhenda þeim
börnum og fullorðnum sem eru end-
urskinsmerkjalaus og einnig munu
olíufélög taka þátt í deginum með
því að athuga sérstaklega þurrku-
blöð á bifreiðum viðskiptavina
Atlantshafsbandalagsins. Fyrirlest-
urinn byggist m.a. á skjölum utan-
ríkisráðuneytisins sem nýlega voru
gerð opinber og varpa um margt
nýju ljósi á landhelgisdeilur Breta
og íslendinga, einkum 50 og 200
mílna stríðin, og tengsl þeirra við
kalda stríðið.
Hefur líka rannsakað
manngerða hella
Guðmundur J. Guðmundsson er
cand. mag. í sagnfræði frá Háskóla
íslands og hefur í nokkur ár verið í
sinna, ljósabúnað, mæla frostþol og
veita sérstakan afslátt. Loks fá þeir
sem fylla tankinn ókeypis rúðu-
sköfu. „Við munum leggja áherslu á
að vera í góðu og jákvæðu sambandi
við ökumenn og ætlum okkur að
taka sem flesta tali,“ sagði Daníel.
Nota beltin en kunna
ekki á stefnuljósin
Ólafur sagði að umferðarhraði á
Akureyri hefði minnkað, langflestir
ækju um á löglegum hraða og þá
væru Akureyringar til fyrirmyndar
varðandi notkun á bílbeltum, hún
væri mikil og almenn og einhver sú
mesta á landinu. Hins vegar gengi
illa að venja bæjarbúa á að nota
stefnuljós bifeiða sinna og væri
skortur á notkun stefnuljósa löstur
sem tími væri kominn til að venja
sig af. Þótt umferðarhraði sé ekki
mikill í bænum sjálfum sagði Ólafur
að víða væri ekið greitt í nágrenni
hans, sérstaklega í Öxnadal, en þar
væri umferðarhraði einhver sá
ritstjórn tímarita Sögufélags Sögu
og Nýrri sögu.
Ásamt því að rannsaka þorska-
stríð 20. aldar hefur hann rann-
sakað manngerða hella á íslandi,
ýmsa þætti í miðaldasögu, einkum
bresk og írsk áhrif á íslenska menn-
ingu, og auk þess verið meðhöfund-
ur að kennslubókaflokki í mann-
kynssögu.
Guðmundur hefur starfað sem
grunnskólakennari en einnig verið
stundakennari við Kennaraháskóla
Islands.
mesti á landinu samkvæmt mæling-
um. Mikilvægt væri að gera þar
breytingu á.
Lögrégla á Ólafsfirði, Húsavík,
Siglufirði, Sauðárkróki og Blöndu-
ósi verður með sérstakt átak á
morgun og verða áherslur svipaðar
og á Akureyri, þ.e. eftirlit verður
aukið og rætt verður við ökumenn,
en stefnt er að því að lögreglan verði
sem sýnilegust á þessum stöðum,
bæði inni í bæjunum og eins á þjóð-
vegum. Hugað verður að umferð við
skóla bæjanna, ljósanotkun og bíl-
beltanotkun. Lögregla á Húsavík
mun einnig leggja áherslu á að öku-
menn verði viðbúnir fyrstu hálku og
á Sauðárkróki mun lögregla kanna
sérstaklega ökuhraða utan bæjarins
þegar líður á daginn en um kvöldið
verður aðaláherslan lögð á umferð
stórra ökutækja á Norðurlandsvegi,
frá Vatnsskarði og að Öxnadals-
heiði. Á Blönduósi heldur lögregla
uppi hefðbundnu eftirliti með hrað-
akstri í Húnavatnssýslum.
Morgunblaðið/Kristján
Óli G. Jóhannsson myndlistar-
maður við tvö af þeim verkum
sem hann sýnir í Danmörku.
Óli G. sýnir í
Óðinsvéum
ÓLIG. Jóhannsson myndlistar-
maður á Akureyri undirbýr þessa
dagana þátttöku í sýningu hjá Gall-
eri Thorso í Óðinsvéum í Dan-
mörku. Á sýningunni verða sjö stór
málverk sem öll hera nafnið For-
mæltu ekki steinvölunni.
Efnið er sótt til öræfa íslands og
eru öll verkin óhlutbundin. Boð um
þátttöku í sýningunni kom í kjölfar
einkasýningar Ola í Kaupmanna-
höfn, hjá Galleri Marius Vontos og
þátttöku í Art Copenhagen 2000.
„Viðtökurnar í Danmörku eru
kærkomnar og nú þegar hafa nokk-
ur myndverk selst. Nokkrir þekktir
listaverkasafnarar hafa fest sér
verk, þá aðallega fulltrúar fyrir-
tækja, svo sem Adera Group, AP.
Möller Concernen og Velux Kultur-
fond. f Kaupmannhöfn vinna þrír
listaverkasalar með málverkin mín,
í Galleri Marius Vontos, Galleri
Kellum og Galleri Sct. Gertrud,
sem og í Oðinsvéum í Galleri Torso.
fyrirlestur
HÁSKÓLINN
Á AKUREVRI
Titill:
Þorskastríð og kalt stríð.
Fyrirlesari: Guðmundur J. Guðmundsson,
sagnfræðingur.
Staður: Háskólinn á Akureyri,
Þingvallastræti 23, stofa 16.
Tími: Laugardagur 21.okt. kl. 13.15.
Mjólkursamlag KEA
Fjórtán mjólkurfræð-
ingar endurráðnir
FJÓRTÁN mjólkurfræðingar hjá
Mjólkursamlagi KEA á Akureyri,
sem sögðu upp störfum seinni partinn
í sumar, hafa verið endurráðnh', að
sögn Ágústs Þorbjörnssonar fram-
kvæmdastjóra MSKEA og MSKÞ.
Mjólkurfræðingamir fjórtán sögðu
upp störfum í kjölfar uppsagnar á
fjórum mjólkurfræðingum á Akur-
eyri og tengdust breytingum á
rekstrarfyrirkomulagi mjólkui'-
samlaga KEA, á Akureyri og Húsa-
vík. Ágúst sagði að unnið hafi verið að
lausn þessa máls innan fyrirtækisins.
„Hér eru jákvæðh' hlutir að gerast
og menn eru sammála um það að
vinna sameiginlega að framtíðarhags-
munutn fyrirtækisins." Undirbúning-
ur að stofnun sameiginlegs félags í
mjólkuriðnaði á svæðinu er í fullum
gangi, þar sem mjólkursamlögin
MSKEA ehf. og MSKÞ ehf., ásamt
félagi í eigu mjólkurbænda, Granh'
ehf., renna saman í eitt fyrh-tæki.
Ágúst sagði að dagsetning stofn-
fundar hafi ekki verið ákveðin en að
því stefnt að nýtt félag verði til sem
fyrst.
Fyrirlestur í Háskólanum á Akureyri
Þorskastríð og kalt stríð
i