Morgunblaðið - 19.10.2000, Page 28

Morgunblaðið - 19.10.2000, Page 28
28 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tugir jiúsunda vinna við björgunarstörf í Sviss og á Italíu Þjóðflokkaerjur í Nígeríu Gífurlega mikið starf fram undan Piacenza, Mflanó, Cremona. AP, AFP. ÍBÚAR NV-ítalíu tóku að tínast til heimila sinna í gær. Vatnsyfirborð i ánum í Alpadölunum var komið í eðlilegt horf eftir að stytt hafði upp. Ibúar austurhluta Pó-hásléttunnar bættust hins vegar í hóp þeirra ríf- lega 40.000 ítala sem hafa þurft að rýma heimili sín undanfarna daga þegar flóðbylgjan færðist austur á bóginn. Til að koma í veg fyrir að Pó flæddi yfir bakka sína í byggð létu yfirvöld í gær rjúfa stíflugarða á óbyggðum svæðum hásléttunnar, í Reggio Emilia héraðinu, minnug flóða þar 1951 sem kostuðu 91 manns lífið. Annars staðar unnu herinn og sjálfboðaliðar að því að styrkja varnargarða. Það dugði þó ekki til í bænum Cremona þar sem Pó flæddi um hús sem voru reyndar, að sögn yfirvalda, byggð í óþökk þeirra á vatnasvæði Pó. Yfirvöld vöruðu einnig við hætt- unni á því að vamargarðar brystu í Emilia-Romagna héraðinu en ein- göngu örfáir af 12.000 íbúum þess yfirgáfu heimili sín, þrátt fyrir að- varanir stjórnvalda. Enn hætta á aurskriðum í Aosta-dalnum Mörg þúsund sjálfboðaliðar unnu við björgunarstörf í gær. Gífurlega mikið starf er fram undan við hreinsun húsa og endurreisn í þeim bæjum sem verst hafa orðið úti. I Aosta-dalnum, þar sem á annan tug manna létu lífið í flóðuni og aurskriðum um helgina, lést maður sem var við björgunarstörf, er aurskriða féll á hann. Yfirvöld óttast fleiri aurskriður þar um slóðir. Yfir þrjátíu manns hafa alls látist í nátt- úmhamförunum í N-Ítalíu og Sviss og enn er á annan tug manna sakn- að. Nokkur lík fundust í bænum Gondo í Sviss, sem liggur við landa- mæri Ítalíu. Einn þriðji hans jafnað- ist við jörðu í aurskriðu um helgina. I Aosta-dalnum fannst lík fjöl- skylduföður. Aður höfðu sonur hans og eiginkona fundist en aurskriða féll á heimili þeirra á laugardag. Áfram var unnið að því að leita þeirra sem saknað er. Jóhannes Páll páfi II sendi öllum fómarlömbum flóðanna samúðar- kveðjur í gær og forseti Italíu, Carlo Azeglio Ciampi, heimsótti Aosta- dalinn og Tórínó. Hann flaug á stað- inn í þyrlu enda enn erfitt yfirferðar á flóðasvæðum. Aðalleiðin milli Frakklands og Ítalíu, yfir Alpana, var enn lokuð í gær en brautarspor milli Sviss og Italíu var opnað og sömuleiðis leiðin milli Mílanó og Bologna. Yfir 1.000 ferðamönnum, mörgum erlendum, sem lokuðust inni í bæjunum Zermatt og Saas Fee í svissnesku Ölpunum, var bjargað til byggða í þyrlu í fyrrinótt. Verksmiðjur opnaðar á ný Verkamenn í verksmiðjum Fiat- verksmiðjunnar í Tórínó hófu störf í gær. Yfirvöld þar óttast um sam- keppnishæfi héraðsins nú eftir flóð- in en talið er að viðskiptatap ein- göngu nemi 2,6 milljónum Banda- ríkjadala. Alls er tjón af völdum flóðanna er metið á mörg hundruð milljónir dala í hvoru landinu um sig. ítölsk menningarverðmæti hafa þó sloppið mjög vel, þrátt fyrir að vatn hafi fiætt inn í margar kirkjur, sem hafa listaverk að geyma. Italski forsætisráðherrann, Giuli- ano Amato, sagði í gær að ríkis- stjórnin myndi leggja sem svarar 66 milljónum dala til að hjálpa fórnar- lömbum flóðanna. Barnakuldaskór Hokotex filma, Vatnsfráhrindandi ~oppskórinn SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 Opið frá kl. 10-18 Opið lau. til kl. 16 l)ppskó rinn VELTUSUNÐI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 Opið frá kl. 10-18 Opið lau. til kl. 14 Póstsendum samdægurs fbúar Tórínó hreinsa heimili sín. Austurbakki Tilkynning um rafræna skráningu hlutabréfa í Austurbakka hf. Þann 3. nóvember 2000 verða hluLabréf í Austurbakka hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hlutabréf félags- ins, sem eru útgefin í pappírsformi í samræmi við heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. 2 í lögum nr. 131/1997 um raf- ræna eignaskráningu verðbréfa, sbr. ó. gr. laga nr. 32/2000 um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu raf- rænnar eignaskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000 um rafræna eignaskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð. Skorað er því á eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á joví að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Austurbakka hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til Austurbakka hf. á Köllunarklettsvegi 2, 104 Reykjavík, fyrir nefndan dag. Ennfremur er skorað á þá, sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings- stofnun (viðskiptabanka, sparisjóð eða verðbréfafyrirtæki). Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reiknings- stofnun, sem hefur gert aðildarsamning við Verðbréfaskrán- ingu Islands hf., umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Stjórn Austurbakka hf. Yfir hundr- að manns hafa fallið Lagos. AFP, AP. TALIÐ er að yfir hundrað manns hafi fallið í þjóðflokkaerjum í Nígeríu und- anfarna fjóra daga. Átökin eru á milli Jórúba og Hausa sem eru tveir af þremur stærstu þjóðflokkunum í Níg- eríu. Stjórnvöld sendu í gær hermenn á vettvang í Lagos, stærstu borg landsins, og girtu þeir helstu átaka- svæðin af. Átökin hófust á sunnudag eftir að næturvörður af ættbálk Hausa var myrtur í Ajamgbadi-hverfi í Lagos. Ættingjai- fói-narlambsins sökuðu meðlimi þjóðarráðs Odudua, her- skáira samtaka Jórúba-manna, um að bera ábyigð á ódæðinu og hópur Hausa lagði þá eld að húsum í hverf- inu í hefndarskyni. Ungir Jórúba- menn svöruðu með árásum á fólk af Hausa-þjóðflokknum í nokkrum hverfum borgarinnar, og síðan hafa meðlimir þjóðflokkanna tekist á. Margir íbúar Lagos-borgar hafa flúið heimili sín vegna ófriðarins og að sögn Rauða krossins hafa um 20 þús- und manns leitað skjóls í bækistöðv- um hers og lögreglu. Lík fómarlamba átakanna lágu eins og hráviði á götum borgarinnar í gær og starfsmenn heHsugæslunnar em sagðir of ótta- slegnir tH að flytja þau á burt. Eldar loguðu víða í húsum og bifreiðum í Lagos í gær og mörgum skólum og fyrirtækjum hefur verið lokað. Þúsundir látíst í þjóð- flokka- og trúarerjum Erjur mHli þjóðflokka og trúarhópa eiga sér langa sögu og djúpar rætur í Nígeríu. Þúsundir manna hafa beðið bana í slíkum átökum frá því Oluseg- un Obasanjo tók við forsetaembætti á síðast ári en herforingjastjórn hafði farið með völdin í 15 ár þar á undan. Obasanjo, sem er Jórúbi, hótaði í fyrra að lýsa stríði á hendur þjóðar- ráði Odudua en hann sakaði samtökin um að bera ábyrgð á óeirðum í Ketu- héraði sem kostuðu um 100 menn líf- ið, flesta þeirra Hausa. ------FH--------- Kapphlaup um græn- lenska vatnið Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. KAPPHLAUP er nú hafið á Græn- landi um réttinn til að tappa vatni á flöskur og selja úr landi en græn- lenska stjórnin hyggst bjóða 30 ára leyfi til fyrirtækja sem hyggja á vatnsútflutning. Em fyrirtækin sammála að vatnið sé verðmætari auðlind en bæði olía og gas sem talið er að sé undan ströndum Grænlands. Þrjú fyrirtækin keppast um vatnsút- flutninginn. Kaj Egede á Suður- Grænlandi hefur þegar hafist handa við að selja ís í drykki og til bjór- framleiðslu í Evrópu. Allann Idd Jensen i höfuðstaðnum Nuuk hyggst flytja vatn með tankskipum til Kan- ada og tappa því á flöskur þar. Grænlendingar binda mestar vonir við þriðja fyrirtækið, Greenland Water, eina fyrirtækið sem ætlar að tappa vatni á flöskur á Grænlandi. Það áætlar að um níutíu manns geti fengið vinnu við átöppunina. Að baki fyrirtækinu stendur m.a. Thorkild Simonsen, fyrrverandi borgarstjóri Árósa og innanríkisráðherra. Grænlenska landstjórnin vinnur nú að lagasetningu fyrir vatnsút- flutning en síðastnefnda fyrirtækið hefur gagnrýnt fyrstu drög þess, m.a. vegna þess að ekki er tekið tillit til hvort fyrirtækin skapi atvinnu í Grænlandi eður ei og vegna skorts á ákvæðum um umhverfisáhrif.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.