Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.10.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Dagur í lífi kennarans í skólastofunni er orkumikill hópur 9 ára barna, 20 alls. Þykir ekki stór bekkur, en vel stór þegar allir skyldu vera að verki snurðulaust. Vænst er þess að skólatíminn nýtist sem best. Börn- in eru í vinnunni og æfi sig í samviskusemi við verkefnin - með því móti fari þeim iram og verði nýtir þegnar í framtíðinni. Ailir ætlast til þess af þeim, bæði kennarinn, foreldrarnir og þjóðfé- lagið. Sjálf eru þau ánægðust og áhugasömust þegar verkefnin ganga vel undan, er þau sjá að þau ráða við þau með góðri einbeitingu. Nokkur metnaður í mörgum. Vinnuandi góður - þótt stundum sé truflun fyrirferðarmikilla einstakl- inga. Börnin eru ánægð með skól- ann sinn, þar ríkir góður andi og gott skipulag. Kennarar vinna eftir námskrá eins og til er ætlast. Skóladagurinn hefst á lestri - allir lesa upphátt. Börnin eru að fínpússa lestrarkunnáttuna, auka hraðann og æfa sig í skýrri fram- sögn. Reyna að leiklesa. Síðan merkja þau heimalestur, ákveðinn blaðsíðufjölda, í verkefnabók sína og skrá heimaverkefni af öðru tagi. Stinga svo í tösku bókum fyrir heimaverkefnin. Þessa dagana er 4. bekkur að æfa sig á gömlum samræmdum prófum. Við ætlum að læra eitthvað af þeim - rifja upp þekkt sannindi og átta okkur á einhverju óþekktu, enda fáir dagar þar til bekkurinn þarf að leysa samræmd próf sem enginn hefur séð. Tekið til við ís- lenskupróf, kennarinn flýgur milli borða og töflunnar - útskýrir, svar- ar spurningum og leiðbeinir við úr- lausnir. Undirbýr börnin undir að vinna slíkt próf upp á eigin spýtur. Þrjú þeirra skila lausnum sínum fyrst. Kennarinn fær hjálp þeirra til að sækja kassa með verkefna- bókurn og ritþjálfa: ritvélum sem við erum að læra á. Óvænt eru þessi gögn læst inni og kennarinn þeysist eftir lyklum. Þegar allt er komið í skólastofuna sækja börnin sér áhöld og bækur og koma sér fyrir. Mörg börn þurfa hjálp við að byrja að vinna og sumir ritþjálfarn- ir eru stríðnir. Unnið er af kappi, kennarinn vakii' yfir og útfyllir eyðublað fyrir þau sem ljúka æf- ingum. Nú þarf að safna mjólkur- miðum, senda tvö börn til að sækja drykki og skyr. Svo á að raða öllum gögnum aftur í kassana (sum börn kvarta: vilja vinna lengur), senda 4 nemendur með dótið á sinn stað og snæða nestið. Mjög lítill tími til að lesa úr framhaldssögunni á meðan, því að kennarinn þarf að minna börnin á að drífa sig eftir íþróttir, hangsa ekki í sturtunum, þurrka sér í hvelli og koma strax aftur. I frímínútunum fara þau í íþrótta- húsið. Tímann notar kennarinn til að skoða heimavinnu bekkjarins síðan í gær og ljósrita verkefni. Börnin koma flest hlaupandi úr íþróttum, móð og þyrst. Verða mörg að fá sér vatn að drekka þó að ekki sé matartími. Eitt þeirra biður um að mega hlaupa aftur út í íþróttahús því að húfan varð þar eftir, annað þarf að sækja íþrótta- dótið sitt sem gleymdist. Já, vel á minnst, koma þarf út þremur óm- erktum íþróttatöskum, sem hafa hangið á ganginum í vikutíma. Hverjir eiga þetta? Eftir nokkurt japl og jaml og skoðun innihalds ganga töskurnar út. Fjórar úlpur og ein peysa eru líka í vanhirðu en verða að bíða eigenda um sinn. Þetta tekur annars of langan tíma. Börnin smátínast inn og kennarinn gefur nokkrum sinnum fyrirmæli um vinnu, sömu fyiúrmælin. Full- Rúna Gísladóttir löng að þessu sinni til að skrá þau á töflu. I stofuna okkar er komin ágæt tölva og prentari. í dag á að heíja notkun hennar og nemendum ætlað að vinna sjálfstætt eft- ir lýsingu á blaði, enda fengin nokkur tölvu- reynsla í fyrravetur. Eitt barnanna sest og eftir nokkrar útskýr- ingar kennara hefst það handa. Strandar strax og kennarinn þarf að sinna því leng- ur. Lái því svo enginn þótt það skilji ekki tölvumálið: File, Word, Symbol, Arial Narrow, Bookman Oldstyle, Albertus Medium. Þessi orð birtast ásamt mörgum öðrum áþekkum. Hin börnin nítján í kennslustofunni eru Kennsla Hvar stöndum við, spyr Rúna Gísladóttir, þegar álag á kennarann verð- ur of mikið? ýmist að ljúka við íslenskuna frá síðustu kennslustund eða byrjuð á stærðfræði sem er næsta verkefni enda misfljót að vinna. Nokkur raða sér fyrir aftan kennarann, engin þolinmæði til að bíða í sætun- um eftir hjálp. Tvö þurfa að fara á klósett - stuttu síðar nokkur fleiri. Kennarinn skipar biðröðinni í sæti, brunar milli barna við borðin, hendist aftur að tölvunni, sér að mörg bíða, þeytist aftur af stað til að hjálpa og safnar samtímis ís- lenskuprófunum, sem allir hafa nú lokið við. „Krakkar mínir, við eig- um 7 mínútur í síðari nestistímann okkar, en því miður - enginn tími í framhaldssögu vegna tölvutrufl- ana!“ Blaðið festist í prentaranum. Næsta blað: Hluti textans kemur brenglaður - forritið skilar ekki öll- um leturgerðum sem voru reyndar. Kennarinn reynir með hraði að koma þessu í lag og prenta út nýtt blað, en - prentarinn er óvirkur. Best að kljást við hann í frímínút- unum (stytta matartímann). Börnin fara út. Eftir 5 mínútur áttar kennarinn sig: Tölvan hefur ruglað hann í ríminu. Utivarsla á skóla- velli er hálftími á viku: Hádegis- frímínúturnar í dag! Kennarinn brunar fram, - hlaup bönnuð á göngunum - skellir sér í útifatnað og út! Á leiðinni út hugsar hann: Er þetta hægt? Ómanneskjulegar kröfur! Eftir útigæslu er kennarinn heppinn. Hittir tölvufræðing skól- ans á göngunum, losnar því við að leita hans til að fá hjálp við tölvuna. Enda enginn tími til þess, ekki heldur til að matast. Enskutími eftir frímínútur - unnið af kappi - lærð ný orð og þau skráð. Loks komið að síðustu kennslu- stund: Lífsleikni. Oft spinnast góð- ar umræður í þessum tímum. í dag ætlum við að setja upp leikþátt úr efni síðasta kristinfræðitíma. Við rifjum upp hluta sögunnai' um Móse og Áron, sem leiddu ísrael úr Egyptalandi. Leikarar í aðalhlut- verk valdir - færri fengu en vildu. Öllum hinum fengið hlutverk. Far- aó er túlkaður mynduglega, svo og Móse og Aron. Israelsþjóð þrælar (leikhópur). En hirðmenn Faraós (annar hópur) hálfmóðgaðir að leikslokum: Hlutverk þeirra var svo lítið. Kennarinn þarf að minn- ast þess þegar næst á að leika eða túlka. Álla kennslustundina er tölvufræðingurinn að koma lagi á tölvumálin. I dag fóru með millibilum þrjú börn úr bekknum í sértíma og tvö í tónlistarskóla. Kennarinn þurfti að sjá til þess að tímasetningu allra væri haldið. Ótalið er ýmislegt sem segja þurfti og leysa daginn þenn- an. Hverja mínútu er keppst við og ábyrgðin er kennarans. Kröfurnar aukast alltaf fremur en hitt. í bekknum sem hér er sagt frá eru þrjú börn sem hafa verið í dönsk- um, norskum og bandarískum skóla. Öll þurftu töluverð auka- verkefni fyrstu vikur í bekknum, ekkert þeirra var komið jafnlangt og hann, hvorki í stærðfræði né öðru. Hvert stefnum við hraðbyri? Dagurinn sem hér er lýst er líkur öðrum dögum kennarans. Fundur og kennsluundirbúningur ótalinn. Kostir við kennarastarfið: Líflegt og skemmtilegt, heldur heilafrum- unum virkum. En hve lengi endist kennarinn? Heyi'st hefur af sveit- arfélagi í Noregi þar sem tveir kennarar starfa saman í 14-16 barna bekkjum. Óskaaðstæður það. Erum við á réttri leið eða gerum við ómanneskjulegar kröfur? Ham- ingja nýrrar kynslóðar er í veði. Áhyggjur kennarans eru viðbót- arálag: Duglegu börnin - og sjálf- stæðu - bjarga sér, en fá ekki næga athygli. Ekki heldur börnin með meðalgetuna. Seinfær börn fá oft töluverða aukahjálp - þó tæpast eins og skyldi. Börn með hegðunar- vanda fá ómælda athygli á kostnað hinna. Hve mörg börn verða útund- an þegar annir kennarans hlaðast upp? Og ... hvar stöndum við þegar álag á kennarann verður of mikið? Höfimdur er gruimskólakennari. FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 43 Þetta varðar Samsung örbylgjuofna af geröinni G2613C keypta milli 30.4. og 10.9. Við úrtaksprófun fundu eftirlitsmenn okkar framleiðslugalla, sem gæti komið fyrir í ofnum er keyptir voru á fyrrgreindum tima. Ekki má tengja ofninn við rafmagnsinnstungu sem ekki er jarðtengd, eins og fram kemur (leiðbeiningunum sem fylgja honum. Sé ofninn settur í samband í ójarðtengda innstungu, gæti straumur komist í ytri hlífina á eintökum sem hafa framleiðslugall- ann og þau yrðu þannig hættuleg að snerta. Ef þú átt örbylgjuofn af gerðinni G2613C skaltu hafa samband án tafar við Samsung viðgerðarverkstæði og láta það athuga ofninn þinn. Viljirðu frekari upplýsingar má hafa samband við okkur í síma +46 20 46 46 46. pi cr ELECTRONiCS Opinn fundur heilbrigðisnefndar Sjáifstæðisflokksins Hugmyndir um einkarekstur i heilbrigðisþjonustunni. Mánudaginn 23. október kl. 17-19 í Valhöll Frummælendur: Guðjón Magnússon læknir, rektor Norræna Heilbrigðisháskólans í Gautaborg. Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor, við Háskóla íslands. Sigurbjörn Sveinsson læknir, á Heilsugæslustöðinni í Mjódd. Fundarstjóri: ■ngibjörg Hauksdóttir hjúkrunarfræðingur. Síðan verða almennar umræður. Allir áhugamenn um heilbrigðismál eru velkomnir. Fundarstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. www.xd.is sími 5151700 SJALFSTÆÐISFLOKKURINN TILBOÐ á ölíum vörum í 3 daga 20% afsláttur fimmtudag, föstudag og iaugardag Opíð til kl. 16 Íaugardag C O L O N A L I andi - Komdu ó u a r t Kynning í dag í Lyfju, Setbergi og á morgun í Lyfju, Hamraborg frá kl. 13-18 20% ,afsláttur+ kaupaukar LYFJA Lyfja fyrir útlitið Setbergi Sími 555 2306 Hamraborg Sími 554 0102
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.