Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 46
MORGUNBLAÐIÐ
46 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
I Disappear
Metaliica
Lucky
Britney Spears
Music
Madonna
Rock Superstar
Cypress Hill
Dadada
Ding Dong & Naglbítarnir
Shackles
Mary Mary
Most Girls
Pink
Carmen Queasy
Maxim
I Have Seen It All
Björk
Could I Have This Kiss Forever
Whitney & Enrique
Rock DJ
Robbie Williams
Testify
Rage Against the Machine
Real Slim Shady
Eminem
Change
Deftones
Lets Get Loud
Jennifer Lopez
Psychic
Ampop
Spanish Guitar
Toni Braxton
Listinn er óformleg vinsældakönnun og byggist á vali gesta mbl.is.
0 mbl.is
SKJÁMiUHH
y
TQPP 50 XYi
UMRÆÐAN
Menntun náms-
ráðgjafa í tíu ár
NÚ Á haustdögum á nám í
námsráðgjöf í félagsvísinda-
deild Háskóla Islands tíu ára
starfsafmæli og verður af því
tilefni efnt til samfagnaðar í
Hátíðasal Háskóla íslands.
Nám í námsráðgjöf er árs
viðbótarnám á meistarastigi
og er ætlað grunnskóla- og
framhaldsskólakennurum og
þeim sem hafa B.A.-próf í
sálfræði eða uppeldis- og
menntunarfræði. Námsráð-
gjafar sem útskrifast hafa
frá náminu eru nú hundrað
talsins.
Eitt meginmarkmið náms-
ráðgjafar er að hvetja ein-
staklinginn til að skoða sjálf-
an sig með tilliti til þeirrar stefnu
sem hann getur og vill taka á
náms- og starfsferli. Oft geta verið
hindranir í veginum sem náms- og
starfsráðgjafinn aðstoðar einstakl-
inginn við að yfirstíga eða krækja
fyrir. Þetta geta verið náms-
örðugleikar eða aðrir persónulegir
erfiðleikar.
Á afmælum er siður að setja af-
mælisbarnið í öndvegi og því árnað
heilla. Horft er til þess sem það
hefur áorkað og rýnt í framtíðina.
Ef litið er yfir þessi upphafsár í
menntun námsráðgjafa má staldra
við eftirfarandi: Stofnun námsins
átti sér langan aðdraganda og að
því komu margir aðilar. Vel tókst
til þó að ýmsu hafi verið breytt eft-
ir að starfsemin hófst. Lítil starfs-
þjálfun var lengi Akkillesarhæll
námsins og var gripið til ýmissa
ráðstafana til að bæta þar úr. Þar
rís hæst samningur frá 1997 við
Námsráðgjöf Háskóla Islands um
að allir nemar í námsráðgjöf væru
þar í þjálfun. Ávinningur Náms-
ráðgjafar Háskóla íslands er að fá
aukinn liðstyrk í nemunum. Ávinn-
ingur námsins er að skapa nemum
Arnfríður
Ólafsdóttir
Guðbjörg
Vilhjálmsdóttir
Háskólanám
Ljóst er, segja þær
Guðbjörg Vilhjálms-
dóttir og Arnfríður
Qlafsddttir, að nám sem
þetta er sá grunnur sem
fagstéttin hvílir á og til-
urð þess var nauðsynleg
forsenda þess að upp-
bygging í námsráðgjöf
gæti átt sér stað.
allt frá upphafi námsins tækifæri
til að þjálfa sig í faglegum vinnu-
brögðum á vettvangi samhliða
fræðilegu námi. Lengd starfsþjálf-
unar er nú nokkuð áþekk því sem
gerist víða í Englandi, en skipulag
námsins er svipað þar og hér ger-
ist. Til frekari þjálfunar námsráð-
gjafarnema hafa verkefni í fræði-
legu námskeiðunum tengst
starfsvettvangi í vaxandi mæli.
Þannig hafa nemar t.d. fylgt ein-
staklingum eftir í námstækninámi,
séð um námsráðgjafadaga, fyrst í
Reykholtsskóla og svo Borgar-
holtsskóla, gert leiðbeiningarkort
um skólakerfið og núna í
október var gerður sam-
starfssamningur við Samtök
iðnaðarins um upplýsinga-
veituna idnadur.is sem fellur
mjög að þeirri stefnu að
nemar fáist við raunveruleg
verkefni.
Meginþunginn er á fræði-
legt nám og höfum við
ástæðu til að telja að þar
séum við í engu eftirbátar
annarra þjóða. Um margt
njótum við þess hér í námi í
námsráðgjöf að hafa sýn
bæði til Evrópu og vestur til
Norður-Ameríku. Því til
stuðnings má geta þess að
kennararnir sjö sem kenna í
náminu eru menntaðir í sex
ólíkum löndum. Þá hafa heimsótt
okkur kennarar frá Norður-Amer-
íku og aukið enn frekar á fjöl-
breytnina í náminu. Ljóst er að
nám sem þetta er sá grunnur sem
fagstéttin hvílir á og tilurð þess var
nauðsynleg forsenda þess að upp-
bygging í námsráðgjöf gæti átt sér
stað. En sú staðreynd að einungis
um 60% þeirra sem stunda náms-
ráðgjöf hafa þessa sérmenntun og
flestir þeirra starfa hér á höfuð-
borgarsvæðinu, segir okkur að
gera þarf átak í fjarkennslu á
þessu sviði. Það er ánægjulegt að
nú hillir undir að fjarnám í náms-
og starfsráðgjöf geti orðið að veru-
leika. Annað stórt átak sem er í
sjónmáli er að bjóða upp á frekara
framhaldsnám, þannig að rann-
sóknir á þeim veruleika sem náms-
ráðgjafar kljást við verði efldar. Til
þess að svo megi verða þarf að
bæta við námið þannig að því ljúki
með meistaragráðu.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir erlektor
við HÍ. Arnfríður Ólafsdóttir er
fortmiður Fólngs náms- og
starfsráðgjafa.
Tölvustærðfræði
FYRIR einu ári
birti Mbl. grein sem
ég samdi og nefndi
„Stærðfræðin, skólinn
og tölvan“. Tilefnið
var að framhaldsskól-
arnir hundsuðu nám-
skeið sem Tölvu- og
stærðfræðiþjónustan
efndi til fyrir kennara
á framhaldsskólastigi.
Þetta tómlæti var mér
óvæntur fengur því að
mér bauðst óverðug-
um að sitja námskeið-
ið og kynnast forritinu
MAPLE sem ég hafði
haft spurnir af en ekki
kynnst nánar. Ég var
að vísu ekki alveg ókunnugur þess-
ari tegund á notkun tölvunnar þar
sem ég hef um árabil notað forritið
MATHEMATIKA en það er hlið-
stætt MAPLE.
Ég er aftur á móti hissa og
hneykslaður á tómlætinu sem
framhaldsskólinn sýndi og sýnir
enn merkri nýjung, samtímis því
að yfirvöld menntamála tilkynna sí
og æ sín ódýru töfrabjargráð á
vanda skólanna: Þ.e. bara almenn
tölvueign og auðveldur aðgangur
að Vefnum.
Ekki vil ég hér end-
urtaka gömul skrif um
hnignun skólans í
höndum kennslufræða
„akademíunnar!“ En
sú er nú raunin og það
þrátt fyrir ævintýra-
legar framfarir í bún-
aði sem á stundum er
ofnotaður (misnotað-
ur) ellegar sniðgeng-
inn. Dæmi um hið
fyrra er hvemig
reiknidósir voru og
eru látnar leysa unga
nemendur undan æf-
ingu í almennum brot-
areikningi en um hið
síðara þegar fram-
haldsskólinn nýtir sér ekki gullið
tækifæri sem honum býðst til að
senda hluta kennaraliðsins á nám-
skeið í nýjung sem bersýnilega
mun fyrr eða síðar marka tímamót
í kennslu stærðfræðitengdra náms-
greina. Mig minnir að ég hafi látið
þess getið hve niðurlægjandi það
yrði fyrir kennarastéttina ef hópur
framhaldsskólanema þekkir þessi
forrit og notar þau af skynsemi á
verkefni sem eru óviðráðanleg
þorra kennaranna.
Ég rifja þetta upp einmitt nú
Nám
Sterkari hluti stærð-
fræðinema í fram-
haldsskólunum, segir
Jdn Hafsteinn
Jónsson, verður ofjarl
þeirra kennara sem
ekki þekkja sinn
vitjunartíma.
vegna þess að út var að koma
kennslubók í MAPLE ætluð nem-
endum á háskóla- og framhalds-
skólastigi, svo ekki fer hjá því að
sterkari hluti stærðfræðinema í
framhaldsskólunum verði ofjarlar
þeirra kennara sem ekki þekkja
sinn vitjunartíma hvað þetta varð-
ar.
Bókin, sem ber titilinn Tölvu-
stærðfræði, er hin glæsilegasta og
einkar aðgengileg til sjálfsnáms á
öllum stigum framhaldsskólans.
Höfundur hennar er Ellert Ól-
afsson en útgefandinn er Tölvu- og
stærðfræðiþjónustan ehf.
Bókin er enginn töfrasproti sem
kemur í stað hefðbundinna
kennslubóka né heldur gerir hún
stærðfræðinámið að átakalausum
leik öllum til jafnmikillar gleði.
Hún mun hins vegar „gera góðan
nemanda betri“ en hvort hún „ger-
ir góðan skóla betri“ fyrir aðra
nemendur en þá góðu, það fer eftir
kennurunum við hann.
, Brúðhjón
lur boröbiindður Glæsileg gjafavara - Briiðhjónalistar
L/l \
/\póen
VERSLUNIN
Lnngavegi 52, s. 562 4244.
Jón Hafsteinn
Jónsson
Höfundur er fyrrv. mennta-
skólakennari.