Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 47

Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 47 Amerísku heilstidýmirnar Lýst eftir fjöl- miðlavarðhundi ENN geysist blaða- maður DV, Páll Ás- geir Ásgeirsson, skap- heitur fram á rit- völlinn. Af Fjöl- miðlavaktinni, fjöl- miðladálki DV í byrjun síðustu viku, beinir hann spjótum sínum að Morgunblað- inu. „Á skítugum skónum“ er yfirskrift pistils þar sem höf- undur kvartar yfir því að Morgunblaðið skorti tilfínnanlega strangt aðhald og auk- ið eftirlit. Sjálfur riddarinn af sorpinu grípur nú fyrir vit sér sök- um gríðarlegs óþefjar sem honum þykir stafa frá ýmsum vistarverum Morgunblaðshússins, einkum þeim sem hann telur að „flækingum“ Athyglivert er, segir Jakob Frímann Jakob Frímann Magnússon Magnússon, að hug- myndin um íslenskan fjölmiðlavarðhund skuli komin frá starfandi blaðamanni á DV. hafi verið hleypt inn í til að létta á sér. I gegnum réttláta reiði blaða- mannsins má greina umvöndunar- tón sem beint er að ritstjórum og ábyrgðarmönnum Morgunblaðsins. Viðbrögð Páls og annarra DV manna við harðri gagnrýni á vinnu- brögð blaðsins að undanförnu eru öll á einn veg: Það hlýtur að vera sjálft Morgunblaðið sem stendur á bak við þetta og þá aðeins til að klekkja á keppinautnum! Jakob Frímann er skv'. eldri kenningu Páls aðeins „leigupenni“ og þá væntanlega líka Sturla Böðvarsson ráðherra, Magnús Guðmundsson framkvæmdastjóri, Ingimar Sig- urðsson deildarstjóri, Ingibjörg Guðmundsdóttir félagsfræðingur og aðrir sem nýverið hafa tjáð sig í Morgunblaðinu um vinnubrögð DV. Niðurstaða DV manna er sumsé sú að ekkert sé athugavert við þau vinnubrögð blaðsins sem hvað harðast hafa verið gagnrýnd úr ýmsum áttum undanfarnar vikur en hins vegar sé hina alvarlegu og raunverulegu bresti að finna hjá Morgunblaðinu. Síðan er Mogga fundið allt til foráttu í sama dálki DV degi síðar, m.a. birtingu minn- ingargreina. Eftir höfðinu dansa limirnir Skýringu á því sem er að gerast hjá DV þessa dagana væri að lík- indum hægt orða með einni setn- ingu: Eftir höfðinu dansa limirnir. Sérhönnuð snapsaglös Hversu undarlegt sem það má virðast má líkja næststærsta dagblaði landsins, DV, við höfuðlausan her um þessar mundir. Stofnandinn og rit- stjórinn, Jónas Krist- jánsson, hefur selt hlut sinn í blaðinu og á í köldu stríði við eig- endur blaðsins sem virðast vilja hann út þrátt fyrir að gerður hafi verið samningur um annað. Hann er því búinn að loka að sér, skilar sínum oft á tíðum kostulegu leið- urum en lætur sig að öðru leyti furðu lítið varða um það sem fram fer á síðum blaðsins. Sýnishorn af andrúmsloftinu sem hann starfar í birtist í hvössum leiðara um heimsókn Jórdaníukon- ungs í maí sl. þar sem opinberast megn óánægja ritstjórans með að fyrrum meðeigendur hans í Frjálsri fjölmiðlun og að núverandi meðreiðarsveinar forseta Islands skuli ítrekað hrifsa af honum rit- stjórnarvöldin og fresta t.d. birt- ingu á því sem þeir telja sér eða skjólstæðingum sínum ekki henta: „Leiðara á borð við þennan ber að birta á heimsóknartíma en ekki eft- ir hann af kurteisisástæðum," segir ritstjórinn súr í broti þann 30. maí sl. Undir venjulegum kringum- stæðum mundi þessi krafa ritstjór- ans verða að teljast fullkomlega sjálfsögð og eðlileg. Við hlið Jónasar hefur verið sett- ur annar ritstjóri, ungur Sauð- krækingur, sem virðist margt hent- ara en að stýra samstarfsmönnum sínum eða eggja þá til afreka. Við þessar aðstæður verða aðrir starfsmenn blaðsins eðlilega eins og börn sem alast upp á heimili þar sem þeim er hvorki veitt aðhald né eðlileg tilsögn. Slík börn fyllast öryggisleysi, valda usla og verða til vandræða. Þau þekkja ekki muninn á réttu og röngu og taka upp á ýmsum óknyttum til að fá útrás fyrir van- sæld sína. Það undrast því enginn fréttir af því að eigendur blaðsins leiti nú logandi ljósum að kaupanda að þessu vandræðaástandi. En hann bara finnst ekki. Kann skýringin að vera sú að á spýtunni hangir e.t.v. ekki lengur hlutdeild í hagnaði af nýsköpunarstolti DV: kynlífsþjón- ustunnni sem blaðið auglýsir svo skilmerkilega á degi hverjum? Vantar fjórða valdið aðhald? Löggjafarvaldið í landinu fær sitt aðhald með alþingiskosningum á a.m.k. fjögurra ára fresti. Fram- kvæmdavaldið og dómsvaldið fá sitt aðhald með ýmsum hætti en hvað með fjórða valdið, eins og far- ið er að skilgreina fjölmiðlana í nú- Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14 tímasamfélaginu? Vantar fjölmiðl- ana e.t.v. raunverulegt aðhald í samræmi við þann áhrifamátt sem þeir hafa og þá ábyrgð sem á þeim hvílir, e.k. varðhund siðferðis í fjölmiðlum? Niðurstaða Páls Ás- geirs er á þann veg. Hann vill a.m.k. stórefla gæslu og eftirlit með því sem sleppur inn í stærsta dagblað landsins, Morgunblaðið, hvers daglegt upplag er reyndar að langstærstum hluta selt fyrir fram í áskrift. Næststærsta blaðinu, DV, er þannig nokkur vorkunn að þurfa að reiða sig á krassandi forsíður og fyrirsagnir til að koma megninu af daglegu upplagi sínu út í lausasölu. Freistingin til að leggja hrópandi blaðsölubarninu æsandi hálfsann- leik í munn getur þannig komið blaðamönnum og ritstjórum þeirra í koll. M.a. þess vegna er ekki hægt annað en að vera í grundvallar- atriðum sammála þeirri skoðun Páls Ásgeirs að efla beri eftirlit með því sem prentað er og fjöl- faldað um menn og málefni í sam- félagi okkar. Sérstaklega verður slíkt að teljast aðkallandi ef tiltekinn fjöl- miðill reynist jafnaugljóslega laus við innra eftirlit og sá sem hefur Pál Ásgeir Ásgeirsson í þjónustu sinni. Það skal á engan hátt hallað á hina ágætu Siðanefnd blaðamanna þó því sé haldið fram að valdsvið hennar sé of skammt og að sú nefnd sé hugsanlega of nátengd blaðamannastéttinni til að geta tal- ist óháð stofnun og þarmeð tekist á herðar hlutverk hins óháða fjöl- miðlavarðhundar. Til þess skortir hana að óbreyttu t.a.m. frumkvæð- isrétt. Rétt er að benda á að vaxandi umræða um hert eftirlit og laga- setningar í þessum efnum hafa ver- ið sem eitur í beinum fjölmiðla- manna nágrannalandanna undan- farið, t.a.m. Bretlands. í því ljósi er það athyglivert að hugmyndin um íslenskan fjölmiðla- varðhund skuli komin frá starfandi blaðamanni á DV. Þar með kann Páll Ásgeir Ásgeirsson að hafa reist sjálfum sér minnisvarða, án þess að hafa beinlínis ætlað sér það. Höfundur er tónlistarmaður. Nettoií^ ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR KOSTABOÐ ALLT AÐ 30% AFSLÁTTUR Friform IHÁTÚNI6A (í húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420 Veður og færð á Netinu v^mbl.is ■ 6/7TA/V«£7 A/Ý7T Skipholti 35 • Sími: 588-1955 Iðnbúð 1,210Garðabæ sími 565 8060 sia Collection ESTEE LAUDER Nú geturðu látið greina húðlit þinn...fljótt, auðveldlega og nákvæmlega. Estée Lauder nýtir sér tölvutæknina til að lesa í húðlit eins og spákona í lófa. Litgreinirinn les á augabragði hvaða litur af Estée Lauder andlitsfarðanum fer hverri konu best. Líttu inn og láttu sannfærast! Estée Lauder býður viðskiptavinum sínum þessa þjónustu í Clöru Kringlunni í dag, fimmtud., föstudag og laugardag. Allt þetta fylgir ef keyptar eru vörur frá Estée Lauder fyrir 3.500 kr. eða meira. ACOL Sendum í póstkröfu Kringlunni, sími 568 9033 r tilboðsverð pr/m2 WOODSTOCK FRÁ » KETT-SOMMER : I PARKETI Opið: Mánudaga til föstudaga kl. 9 til 18. Laugardaga ( Sunnudaga frá kl. 11 til 15 (Málningardeild).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.