Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000 55
+ Alma Ellertsson
fædd Steinhaug,
fæddist í Alvdal í
Noregi 21. ágúst
1919. Hún lést á öldr-
unardeild Landspít-
alans á Landakoti 6.
októbcr síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Kópavogs-
kirkju 13. október.
Til moldar oss vígði hið
miklavald,
hvert mannlíf, sem jörðin
elur.
Sem hafsjór er ris með
faldviðfald
þau falla en Guð þau telur,
því heiðloftið sjálft er huliðstjald,
sem hæðanna dýrð oss felur.
(E.B.)
Mér koma oft í hug erindi úr ljóði
Einars Benediktssonar, er ég heyri
andlát nákominna ættingja og vina,
sem maður hefur þekkt svo langa
hríð að það tekur mannsævi manns
sjálfs. Þá er eins og
renni upp sú staðreynd,
að allir sem fæðast
hljóti og að deyja.
Fráfall góðs vinar
eða skyldmennis vekur
söknuð og trega, sem
læknast íljótlega í
sannri trú svo og vekur
það virðingu og þökk
fyrir allt það er maður
varð aðnjótandi í við-
kynningu við hinn
framliðna.
Þetta gildir um
vinkonu mína og minn-
ar fjölskyldu Ölmu
Ellertsson, sem fædd var í Alvdal í
Österdal í Noregi 21. ágúst 1919. Á
stríðsárunum 1940-1945 kynntist hún
eiginmanni sínum; Sveini Ellertssyni
og fluttu þau til Islands fljótlega að
stríðinu loknu. Sveinn var mjólkur-
fræðingur. Þau hjónin dvöldu í
Reykjavík í nokkur ár, en 1954 gerð-
ist Sveinn mjólkurbústjóri á Blöndu-
ósi þar sem þau hjón undu sér vel á
bökkum Blöndu. Sveinn lést 14. apríl
1983. Fljótlega eftir að ég ásamt fjöl-
skyldu minni fluttist til Blönduóss
1959 tókst góð vinátta með þeim
hjónum og bömum þeirra, og hefur
sú vinátta haldist í gegnum árin.
Þegar horft er til baka er margs að
minnast frá okkar samverustundum.
Alma var glaðlynd og manni leið jafn-
an vel í hennar návist. Oft heimsótt-
um við, kunningjar hennar, þau hjón-
in 17. maí á þjóðhátíðardegi Norð-
manna og sungum fyrir hana m.a.
þjóðsönginn og þá var oft kátt á
Húnabraut 1, en þar byggðu þau
hjónin sér vinalegt heimili.
Margt ferðalagið fórum við saman
og geymi ég minningar pkkar sam-
verustunda bæði á ljósmyndum og
kvikmyndum.
Elsku Alma mín. Ég kveð þig nú og
þakka allar þær góðu samverustund-
ir sem fjölskyldur okkar áttu saman.
Hjartanlegar samúðarkveðjur
sendi ég bömum, tengda- og bama-
bömum og bið þau að minnast að:
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
(E.B.)
Sigursteinn Guðmundsson.
ALMA
ELLERTSSON
GISLIFRIÐRIK
JOHNSEN
+ Gísli Friðrik
Johnsen fæddist í
Vestmannaeyjum 11.
janúar 1906. Hann
lést á sjúkrahúsinu
Sólvangi 8. október
siðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Hafnarfjarðarkirkju
16. október.
Frændi minn og vin-
ur Gísli Friðrik John-
sen er látinn hálftíræð-
uraðaldri.
í hugann koma
minningar löngu lið-
inna daga í Vestmannaeyjum þar
sem hann fæddist og dvaldi mestan
hluta ævi sinnar. Gísli Friðrik verður
mér minnisstæður sem ljúfur og við-
kvæmur listamaður með glöggt auga
fyrir fegurð náttúrunnar. Snemma
hóf hann sem áhugamaður að stunda
ljósmyndun, sótti myndefnið víða,
einkum í landslag og fuglabyggðir.
Hann var eldheitur Úteyingur og
stundaði lundaveiði í Hellisey og oft
gátum við á góðri stund rifjað upp
lundaveiðisögur og vangaveltur um
lundakónga og -prinsa sem veiðst
höfðu á lundatímanum
og hann fest á filmu.
Gísli Friðrik hóf
snemma að lita svart-
hvítu ljósmyndirnar,
löngu áður en lit-
myndatækni var notuð.
í þessari list sinni gat
hann sameinað Ijós-
myndatæknina og mál-
aralistina og oft urðu
ljósmyndir hans listi-
lega fagrar, bæði mótif
og litameðferð. Hann
blandaði saman lands-
lagi og skýjamyndum
og litaði saman svo að
úr varð sterk heild með sérstakan
blæ listamannsins. Byggðasafn og
Listasafn Vestmannaeyja eiga
margar myndir eftir Gísla Friðrik og
víða á heimilum Vestmannaeyinga
eru litljósmyndir Gísla Friðriks
augnayndi. I endurútgefinni „Sögu
Vestmannaeyja" eftir Sigfús M.
Johnsen, fv. bæjarfógeta og föður-
bróður Gísla Friðriks, er að finna
nokkur eintök af myndum Gísla sem
ekki hafa komið út fyrr. Gísli stund-
aði um árabil útgerð með mági sínum
Ástþóri Matthíassyni á Sóla og fetaði
AUÐUR GUÐRÚN
ARNFINNSDÓTTIR
+ Auður Guðrún
Arnfinnsdóttir
fæddist í Ytri-
Lainbadal í Dýrafirði
23. desember 1905.
Hún lést á Hjúkrun-
arheimilinu Eir 4.
október síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Háteigs-
kiriqu 12. október.
Það var dýrmætt að
fá að sjá mömmu í sum-
ar sem leið þótt hún
væri orðin hrum og
nokkuð gleymin. Hún
þekkti mig vel og surði
mig: Hvar hefur þú verið? Rétt eins
og ég hefði skroppið frá í nokkra
daga. Þótt ég hafi verið lengi erlendis,
þá var samt skammt á milli okkar.
Móðir geymir barn nærri sér í hugan-
um og bam á sína móður innra með
sér hvert svo sem leiðir liggja.
Mamma átti stundum erfiðar
stundir í lífinu, en hún fól sig og sína
góðum Guði, og trúin veitti henni
innri styrk. Ökkur systurnar bar hún
á bænarörmum og stöðugt þjónaði
hún í kærleika meðan kraftar entust.
Ég vil nota þetta tækifæri til að
þakka systrum mínum
og þeirra bömum fyrir
að hafa dyggilega ann-
ast um mömmu og tekið
upp minn hlut með sín-
um meðan ég hefi búið í
fjarlægu landi.
Enn er ég í fjarska,
bundin af ábyrgð gagn-
vart öðmm, en mamma
verður ávallt nærri mér
í huga mínum. Ég minn-
ist fóma hennar fyrir
mig og börn mín og
bamaböm og blessa
minningu hennar.
Mánudaginn 9. októ-
ber var haldið upp á
þakkargjörðarhátíð hér í Kanada. Á
sunnudaginn 8. október kom fjöl-
skylda okkar saman á heimili okkar í
Winnipeg. Þá minntumst við mömmu
og þökkuðum Guði fyrh’ líf hennar.
Maðurinn minn, Ingþór, böm okk-
ar, Þóra, Stefán, Heiða og Harpa, og
bamabömin senda einnig sínar
kveðjur heim og minnast ömmu, lang-
ömmu og tengdamóður með hlýhug.
Verið öll Guði falin og megi
mamma hvíla í Guðs friði.
Kærar kveðjur,
Guðmunda Gunnur (Mumma).
þannig í fótspor föður síns Gísla J.
Johnsen útgerðarmanns. En i dýpsta
eðli sínu var Gísli Friðrik listamaður
og bóhem. Hann hafði sérstakt dá-
læti á fuglafræði og fuglaljósmyndun
og eitt sumar fór hann sérstaklega
um Vestfirði til þess að fylgjast með
og ljósmynda í smáatriðum erni og
fálka. Hann hafði yndi af ferðalögum
og lestri ferðabóka og oft var gaman
að ræða við hann um fjarlæga staði.
Gísla Friðrik var hlýtt til allra
samferðamanna sinna, vildi vel og af
honum stóð ákveðinn hlýr ljómi ljúf-
mennis. Þau Friðbjörg, eiginkona
hans, sem var í senn stoð hans og
stytta, áttu hlýlegt heimili á Faxastíg
4 þar sem fjölskyldan undi löngum.
Þeim Friðbjörgu varð þriggja barna
auðið og komust tvö til fullorðinsára.
Ævikvöldinu eyddu þau í Hafnarfirði
í nánd við Hrafn og Ásdísi, börn sín,
og fjölskyldur þeirra, en Friðbjörg
lést fyrir um hálfum áratug.
Hafðu þökk, kæri frændi minn,
fyrir viðkynnin og minninguna. Ég
er viss um að þú ferð á vit eilífra
lundaveiðibrekkna og sólarlaga, Ijós-
mynda sem enginn nema skaparinn
geta litað á festinguna.
Guð blessi minningu þína.
Sigfús J. Johnsen.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minning-
argreinum fylgi á sérblaði
upplýsingar um hvar og hve-
nær sá, sem fjallað er um, er
fæddur, hvar og hvenær dá-
inn, um foreldra hans, systk-
ini, maka og börn, skólagöngu
og störf og loks hvaðan útfór
hans fer fram. Ætlast er til
að þessar upplýsingar komi
aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
greinunum sjálfum.
Legsteinar
í Lundí
SÓLSTEINAR víð Nýbýlaveg, Kópavogl
Simi 564 4566
p* niinxi
H
H
H
H
' '■ ..:'
H
Erfisdrykkjur
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR ÁGÚSTSSONAR
bifvélavirkja,
Dvergabakka 24.
Helga Eiríksdóttir,
Ágúst Magnússon, Sigríður S. Eiríksdóttir,
Lilja Magnúsdóttir, Jóhann Víglundsson,
Jenný Magnúsdóttir, Magnús Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegustu þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við
fráfall og útför ástkærs eiginmanns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR STEFÁNSSONAR.
Guðrún Metúsalemsdóttir,
Ragna Magnúsdóttir, Magnús Aðalbjörnsson,
Finnur Magnússon, Guðrún Stefánsdóttir,
Jóhanna Magnúsdóttir, Arngrímur Brynjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
BJARNA GUÐBJÖRNSSONAR
fyrrv. yfirvélstjóra
á rannsóknarskipinu
„Bjarna Sæmundssyni",
Byggðarholti 31,
Mosfellsbæ.
Kristín Hulda Óskarsdóttir,
Guðrún Bjarnadóttir, Loftur Loftsson,
Rakel Bjarnadóttir, Jóhann Karl Þórisson
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs sonar míns,
bróður okkar, mágs og frænda,
ÞÓRIS ÁGÚSTSSONAR
frá Blálandi,
Skagaströnd.
Guðný Hjartardóttir,
Sigríður Ágústsdóttir, Guðmundur Þ. Guðmundsson,
Kristinn Ágústsson, Guðfinna Þorgeirsdóttir,
Hallbjörn Ágústsson, Elín Helga Jóhannesdóttir,
Guðrún Ágústsdóttir, Jóel Friðriksson
og systkinabörn.
© ÚTFARARÞJÓNUSTAN
Persónuleg þjónusta
Höfum undirbúið og séð um útfarir
fyrir landsmenn í 10 dr.
Sími 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is utfarir@utfarir.is
’ • 'v Wi
[M
Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson
útfararstjóri útfararstjóri
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útf ararþ j ónustu.
Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni.
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Baldur
Frederiksen
útfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.elrf.is