Morgunblaðið - 19.10.2000, Side 62
62 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
KLOSETTIf) ER
APYFIRFYLLAST
Smáfólk
I HAVE PLAN5 FOR IMPR0VIN6 THE APPEARANCE OF THE PESERT.. ^ THE FIR5T THIN6 I PLAN TO PO 15 MOVE THI5 ROCK FROM HERE OVERTOTHERE.. M / UOHAT \ ( POVOU 1L Vthink?J . 1
www.snoopy.con j! I D i o /IBl '/Iv* - ■ ' - - JA -AÞ.-X X P |U....
10/2/00
Ég er með áætlun til aö betrumbæta Þaö fyrst sem ég hyggst gera er aö Hvaö finnst þér?
ásýnd eyðimerkurinnar færa þennan stein héðan og þangað
BRÉF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavfk • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Mál er að vakna,
ráðamenn
Frá Árna Helgasyni:
MIG langar til að þakka Þórarni
Tyrfingssyni fyrá’ greinar hans í
Morgunblaðinu síðast í september.
Það er ánægjulegt að sjá að hann
hefur komist að sömu niðurstöðu og
við bindindismenn: Því víðar sem
áfengi er á boðstólum þeim mun
meira verður tjónið sem það veldur.
Hins vegar er það misskilningur hjá
honum að enginn segi neitt til að
benda á þessar staðreyndir og vara
við ábyrgðarlausri og villimannlegiá
frjálshyggjunni. Eg minni aðeins á
skrif þeirra Árna Gunnlaugssonar,
Helga Seljans, Páls V. Daníelssonar
og Sigmundar Sigfússonar.
Og sem betur fer hafa ýmis félög
og söfnuðir bindindi í öndvegi. Næg-
ir þar að nefna aðventista, KFUM
og K, Hvítasunnusöfnuðinn og fleiri
kristna söfnuði. En mér hefur
stundum fundist þjóðkirkjan heldur
þegjandaleg og þar lítill skilningur á
því að betra er að byrgja bnmninn
áður en bamið dettur í hann en að
basla við að draga þá upp sem að
drukknun eru komnir. Ýmsh’
kirkjunnar þjónar virðast ekki hafa
gert sér ljóst að fordæmið er besti
kennarinn. Þar era þeir á sama róli
og flestir forystumenn ríkis og
sveitarfélaga. Skilningsleysi þessa
fólks, skammsýni og eigingirni eru
nú að koma þjóðinni í koll. Og ef
ekki linnir sífelldum áfengisaustri
ráðamanna og undirlægjuhætti
þeirra gagnvart þeim gróðalýð, sem
hagnast á sölu áfengis, er ljóst hvert
stefnir.
Þá er ekki hátt risið á íþrótta-
hreyfingunni. Gróðapungarnir koma
áróðri sínum á framfæri með
auglýsingum á íþróttaleikvöngum.
Svo virðist sem innflytjendur tóbaks
séu ekki jafnsiðblindir og þeir sem
áfengi flytja inn því tóbaksauglýs-
ingai- sjást ekki þegar sjónvarpað er
frá íþróttakappleikjum hérlendis.
En hvorki heyrist hósti né stuna frá
lögreglustjórum og dómsmálaráðu-
neyti - og á þó svo að heita að
áfengisauglýsingar séu bannaðar.
Eg hefi um ævidaga mína fylgst
með því hvernig áfengi hefur rústað
heimili, breytt fólki í stefnulaus flök,
slitið hjónabönd og sópað alls kyns
sora öðrum inn í mannlífið. A þetta
hafa valdhafar horft en hafa samt
stutt gróðalýðinn í því að fjölga
dreifingarstöðum þessa bölvalds,
lengja sölutíma og leitast við með
húskörlum sínum að bregða dýrðar-
ljóma yfir þetta vímuefni.
Ef ráðamenn sjá ekki fyi-r en síð-
ar að sömu aðferðum verður að
beita í baráttunni gegn öllum vímu-
efnum - áfengið er þar stórfelldast-
ur tjónvaldur - mun langt að bíða
gróandi þjóðlífs með þverrandi tár.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
ASI o g nektin
Frá Guðjóni Rögnvaldssyni:
ÞANN 8. júní sl. hófst verkfall hjá
Bifreiðastjórafélaginu Sleipni eins
og alkunna er. Tveimur dögum síðar
samþykkti sýslumaðurinn í Reykja-
vík lögbannsbeiðni Samtaka at-
vinnulífsins á verkfallsvörsluaðgerð-
ir Sleipnis gegn ákveðnum
fyrirtækjum. Samtök atvinnulífsins
ætluðu sér aldrei að semja við
Sleipni heldur láta dómstóla ónýta
verkfallið. Þegar þetta lá fyrir fórum
við tveir Sleipnisfélagar í aðalstöðv-
ar ASÍ og hittum þar fyrir skrifstof-
ustjóra ASÍ. Við spurðum hann
hverju það sætti að ÁSI léti svo al-
vai'legt mál ekki til sín taka. Svarið
var á þá leið að Bifreiðastjórafélagið
Sleipnir hefði ekki óskað eftir neinni
aðstoð þar. ASÍ gerði enga athuga-
semd, hvorki í ræðu né riti við þetta
tilræði SA við verkalýðshreyfing-
una. Við töldum þetta hins vegar
stórmál sem jafngilti afnámi samn-
ingsréttar launþega almennt ef
þessu yrði ekki mótmælt af heildar-
samtökunum. Þetta mál skildu ýms;
ir formenn félaga, bæði innan ASI
og utan, sem eiga miklar þakkir
skildar fyrir góðan stuðning við okk-
ar málstað. Flóabandalagsfélögin
öll, nema Verkamannafélagið Hlíf,
vildu hins vegar ekkert af þessu vita
enda nýlega búin að semja um lítið
sem ekki neitt til handa sínum fé-
lagsmönnum og þar með gengin í lið
með Samtökum atvinnulífsins. Þessi
félög voru auk þess upptekin við að
leysa upp sambönd og stofna önnur
til þess að halda utan um enn önnur
sambönd. Enn fremur vora þau upp-
tekin við að reka og ráða í ný emb-
ætti sambandanna.
Nú nýlega brá svo við að ASI for-
ystan fékk nýtt áhugamál þótt skrít-
ið sé. Þann 10. október sl. kom skrif-
stofustjóri ASÍ fram í sjónvarpi þar
sem hann sagði ASI vera að berjast
fyrir réttindamálum erlendra nekt-
ardansmeyja á næturklúbbum borg-
arinnar. Hvaða félag dansmeyja inn-
an ASÍ óskaði eftir aðstoð ASÍ við
þá réttindabaráttu? Er þetta
kannski lýsandi dæmi um breyttar
áherslur hjá ASÍ? Mun þing ASÍ
staðfesta þessa nýju stefnu? Hvað
finnst almennu launafólki um þessi
vinnubrögð forystumanna verka-
lýðshreyfingarinnar? Ef til vill telur
ÁSÍ forystan þetta sér betur sam-
boðið en stuðningur við sína eigin fé-
lagsmenn og ef til vill veitir þetta
henni meiri ánægju.
Nektardansmeyjar sem lent hafa í
hremmingum vegna óprúttinna
vinnuveitenda eiga alla mína samúð
en ég tel mig og mitt félag eiga
a.m.k. sama rétt og þær til aðstoðar
frá ASÍ af sambærilegu tilefni.
ASÍ forystan virðist nú orðin eins
og keisarinn í sögunni frægu, ekki í
neinu, nektin algjör og ASI þing
fram undan.
P.S. Kannski þingið verði haldið í
Súlnasal.
GUÐJÓN RÖGNVALDSSON
bifreiðastjóri, Eyjabakka 3,109
Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda biaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.