Morgunblaðið - 19.10.2000, Qupperneq 70
MORGUNBLAÐIÐ
70 FIMMTUDAGUR 19. OKTÓBER 2000
Glæsileg Versace
snyrtítaska fyigir
kaupum á tveimur
hlutum í línunni.
Vertu velkomin.
HAGKAUP
Kringlunni
FOLKI FRETTUM
Rauði kross íslands
www.redcross.is
Orkumjólkin er sérþróuö meö þaö
fyrir augum að vera svalandi og
hressandi orkugjafi milli mála.
Uppistaðan er léttmjólk sem bætt
er með eggjum, D-vítamíni, •s5' "V
þrúgusykri ogtrefjum. ms"
Fullorðinsgælur
TOJVLIST
Geisladiskur
BABY
Baby, geisladiskur Röggu.
Fiutningur var í höndum
Ragnhildar Gísladóttur en Matt-
hildur aðstoðar í laginu „Matthiid-
ur“. Öll lög eru eftir Ragnhildi
Gísladdttur fyrir utan „Þei, þei, rd,
rd“ sem er þjdðlag. Addi 800 tdk
upp og sá einnig um forritun.
Vitund og Skífan gefa út.
imr
í Zimbabwe deyja tvö þúsund manns á viku úr
alnæmi. Með tveggja tima göngu á laugardaginn
28. október bjargar þú mannslífum!
Haust- og
vetrarlitirnir
„5ENSATI
TWIST"
eru kon
verslahi
ORKUMJÓLK
Skráðu þig í síma 570 4000
eða á www.redcross.is
TITILL þessarar plötu gefur
ýmislegt til kynna um innihaldið
því hér eru á ferðinni barnslegar
og einfaldar lagasmíðar; nútíma-
vögguvísur handa reifabörnum
tölvualdarinnar. Ahrif ýmissa tón-
listarmanna umlykja þessar laga-
smíðar og hvort þau eru tilkominn
fyrir slysni eður ei þori ég ekki að
dæma um. Líklega er um að ræða
blöndu af þessu tvennu. Söngurinn
minnir t.d. ískyggilega á söng tví-
buranna úr múm - þó má ekki
gleyma að Ragnhildur beitti fyrir
sig álíka mjóróma röddu og þær
systur fyrir árafjöld á Pílu Pínu-
plötunni. Ragga notar og mikið
eigið „bullmál“ í lögunum. Jón Þór
nokkur Birgisson, liðsmaður
hljómsveitarinnar Sigur Rósar er
einnig þekktur fyrir slíkt - engu
að síður beitti Ragga bullmáli á
sinni fyrstu sólóskífu, Rombigy,
sem út kom árið 1992, svo og á
skrokkapoppsplötu HumanBody-
Orchestra sem út kom í fyrra. Já,
hvort kom á undan, eggið eða
Ragga?
Onnur áhrif sem flökta þarna
nokkuð áberandi í kring eru komin
frá listamönnum eins og Björk,
Enyu og Plone (sveit sem hljóðrit-
ar fyrir bresku raftónlistarútgáf-
una Warp). Nútíma sveim- og
trippahoppsáhrif láta einnig kræla
á sér og asísk/japönsk minni eru
áberandi.
Platan er svífandi bæði og
draumkennd. Lögin líða létt og
áreynslulaust fram hjá manni og
útsetningar eru minimalískar og
berar. Eðli og inntak sveimsins (e.
ambient), en sú tónlistarlega nálg-
un hefur verið æði vinsæl síðustu
tíu ár eða svo, er að tónlist eigi
einfaldlega að vera fremur en að
áreita. Þó er ekki sama hvernig
með er farið og finnst mér Ragga
fara nokkuð flatt í meðhöndlun
sinni á forminu. Platan er nefni-
lega það mjúk og áreynslulaus að
hún verður næsta óeftirtektarverð,
og það á neikvæðan hátt. Margoft
hrökk ég upp við þögn, hafði þá
misst af plötunni, tók ekki eftir því
að ég hefði verið að hlusta á tón-
list.
Melódíur laganna eru og fremur
óspennandi, varla fugl né fiskur
Landssöfnun, , . Ý , .
_ Rauða kross Islands
gegn alnæmi í Afríku
28. október 2000
Alnæmi er atvarlegasta heilbrigðisvandamál sem
Afríkubúar standa frammi fyrír. Reynslan sýnir að
með markvissrí fræðslu er hægt að draga verulega
smiti og bjarga fólki þannig frá bráðum dauða.
Rauði kross íslands gengst fyrir landssöfnun
28. október til að berjast á móti þessum mikla
vágesti. Þetta góða fólk ætlar að ganga i hús
og safna framlögum meðal landsmanna.
Okkur vantar fleiri sjálfboðaliða.
Átt þú stund aflögu?
Morgunblaðið/Kristinn
„Hér eru á ferðinni barnslegar og einfaldar lagasmíðar; nútímavöggu-
vísur handa reifabörnum tölvuaklarinnar," segir Arnar Eggert Thor-
oddsen m.a. í dómi sínum um plötu Röggu, ISuby.
einhvern veginn. Lagið „Itzy dot“
hljómar t.d. eins og múmstelpurn-
ar séu að syngja yfir lagi eftir En-
yu og eins gæti lagið „April“ verið
úr kistu írsku sófasveimssöngkon-
unnar. Hvorugt kann góðri lukku
að stýra.
Best tekst Röggu upp er hún
nuddar sér upp við nýmóðins raf-
takta í laginu „Mamma Lisa“ en
botninum er hins vegar náð í lög-
um eins og „Móle zantsie" og „Sól“
en þar minnir undirleikurinn helst
á geldan svuntuþeysara frá níunda
áratugnum.
Því var gaukað að mér að Ragga
hefði hugsað sér Baby sem barna-
plötu fyrir börn (í því tilfelli myndi
hún líklega virka best á aldurinn
eins til tveggja). Þessi staðhæfing
kann að hljóma- furðulega en er
það samt ekki í ljósi þess að dæmi
eru um barnaplötur sem eru leynt
og ljóst ætlaðar fullorðnum (Abba-
babb-plata dr. Gunna og vina hans,
Lög unga fólksins með Hrekkju-
svínunum). Ragga fellur þó í þá
gryfju, hvort sem henni líkar það
eða ekki, að búa til plötu sem er
fyrst og fremst fyrir fullorðna.
Maður hefur nefnilega óþægilega á
tilfinningunni að Ragga sé á ein-
hvern hátt að reyna að halda í nýj-
ustu stefnur og strauma í tónlist,
og þá í einhvers konar jaðartónlist.
Ef það er raunin er sú tilraun
hvorki sérlega beysin né sannfær-
andi, í besta falli fínasta einka-
flipp.
Það eitt að hafa sig í að gera
þessa plötu er aðdáunarvert og
hugmyndin er vissulega ágæt -
platan sjálf skilur hins vegar
ósköp lítið eftir, plata sem auðvelt
er að dást að en fullerfitt að elska.
Arnar Eggert Thoroddsen
SVALANOI ORVKKUR
ÖG KRESSANOi
ÖRKUGJAFI
Tónlist á
tölvuöld
í GÆR hófst fyrsta alþjóðlega
raf- og tölvutónlistarhátíðin sem
haldin hefur verið hér á landi.
Hún mun fara fram að mestu í
tónlistarhúsi Kópavogs, Salnum,
og ber hún hcitið ART 2000.
Hátíðin er umfangs- og efnis-
mikil enda hrópar málefnið á
slíka afgreiðslu. Tölvubyltingin
er án efa ein mikilvirkasta bylt-
ing sem orðið hefur á háttum
mannkynsins og ekki þarf að
fjölyrða um hinn stóra þátt
tónlistar á menningu og hugar-
starfssemi jaðarbúa. Á hátíð-
inni er ætlunin að setjast á
rökstóla og ræða tengsl þess-
ara tveggja hluta auk þess sem
tónlistarlegar uppákomur verða í
forgrunni.
Meðal gesta verða Paul Lansky,
tónskáld og forstöðumaður tón-
listardeildar Princeton háskóla,
Clarence Barlow, tónskáld og
listrænn stjórnandi Instituut voor
Sonologie í Haag og Jack Veese,
forstöðumaður Music Technology
deildar Yale háskóla. Af öðrum
gestum er rétt að nefna norska
sveimtæknólistamanninn Bio-
sphere og einnig mun íslenska
raftilraunasveitin Stilluppsteypa
kíkja á klakann í tilefni hátíðar-
innar.
Allar nánari upplýsingar er
hægt að sækja á slóðina
www.musik.is/art2k/art2k.html.
Fréttir á Netinu
ýg> mbl.is
_ALLTAf= eiTTH\^\£f NÝTT
ART 2000,18. -28. október,
í tóniistarhúsi Kópavogs