Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Sérblöð í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
FRÉTTIR
KEA og Samheiji ræða um kaup á sjávarútvegsfyrirtækinu BGB-Snæfelli
máSmS^
iMim.
Ríkharður og Tryggvi gerðu 15 mörk
hvor í norsku deildinni / B12
Haukar féllu úr keppni í meistara-
deildinni í handknattieik / B6
Bæjarstjórnin hefur
áhyggjur af sameiningu
INGILEIF Ástvaldsdóttir, formað-
ur bæjarráðs Dalvíkurbæjar, segir
að bæjarstjórnarmenn í Dalvík hafi
áhyggjur af því ef forsjá 10.000
tonna kvóta færist frá bænum, en
stjómendur KEA og Samherja eiga
nú í viðræðum um að sjávarútvegs-
fyrirtækið BGB-Snæfell verði dótt-
urfyrirtæki Samherja.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
stjórnarformaður KE A, og Finnbogi
Jónsson, stjómarformaður Sam-
herja, áttu í gær fund með bæjar-
stjórn Dalvíkurbæjar þar sem farið
var yfir málið. Ingileif sagði eftir
fundinn að mönnum væri heldur
rórra nú en fyrir fundinn.
„Tilfinning manna eftir þennan
fund er góð. Við fengum svör við
þeim spurningum sem við vomm að
velta fyrir okkur. Bæjarstjómin
ályktaði ekki um málið en ég held að
ég megi segja að við höfum öll
áhyggjur af því að forsjá yfir 10.000
tonna kvóta skuli vera að færast úr
byggðarlaginu,“ sagði Ingileif.
Davíkurbær er ekki eignaraðili að
þeim fyrirtækjum sem nú eiga í við-
ræðum og Ingileif sagði að þetta mál
yrði því leitt til lykta án þess að bær-
inn kæmi þar að með beinum hætti.
Viðræðum lýkur í vikunni
Jóhannes Geir sagði að viðræðum
Samherja og KEA væri ekki lokið en
látið yrði á það reyna á næstu tveim-
ur dögum hvort samkomulag næðist.
Hann gæti ekki svarað hve stóran
hlut KEA myndi eignast í Samherja
ef þessi viðskipti gengju eftir, en fé-
lagið yrði væntanlega stærsti ein-
staki eigandinn í Samherja. Sam-
herji og KEA eru tveir stærstu
eignaraðilar í BGB-Snæfelli og eiga
samtals um 80% hlutafjár. BGB-
Snæfell ræður yfir rúmlega 10.000
tonna kvóta, en Samherji hefur yfir
að ráða rúmlega 20.000 tonna kvóta.
Banaslys á
Snæfellsnesi
NÍTJÁN ára stúlka lést þegar bíll
hennar valt skömmu fyrir hádegi á
sunnudag. Hún hét Elín Þóra Helga-
dóttir, til heimilis á Hraunsmúla í
Kolbeinsstaðahreppi. Slysið varð á
Hraunsmúlavegi, sem er afleggjari
út frá Ólafsvíkurvegi skammt frá
Kaldármelum. Tildrög slyssins eru
ókunn en málið er í rannsókn hjá lög-
reglu.
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Hjálmur sigmannsins
fannst eftir 100 mílna rek
HJÁLMUR, sem Friðrik Höskulds-
son, sigmaður í þyrlusveit Land-
helgisgæslunnar, tapaði við björg-
unarstörf á Breiðafirði sl. sumar,
fannst í Barðsvík nyrst á Hom-
ströndum mánuði síðar. Hafði hann
þá rekið kringum 100 sjómílna leið.
Friðrik sagðist hafa tapað hjálm-
inum þegar hann var við björgun-
arstörf um borð í Æskunni sem
fórst á Breiðafirði á liðnu sumri.
Var hann að aðstoða skipvetja við
að koma dælu í gang sem gekk
brösuglega og urðu þeir að yfirgefa
bátinn í skyndingu. Var þá enginn
tími til að setja á sig hjálminn og
hann hvarf með bátnum.
Mánuði síðar hafði ferðamaður
samband við Friðrik til að skila
hjálminum en hann var merktur.
Hafði hann fundist í Barðsvík sem
er nokkm sunnar en Látravík á
austanverðum Homströndum.
Friðrik sagði hjálminn ónýtan, leð-
urfóður væri ónýtt og sömuleiðis
fjarskiptabúnaður sem í honum er.
Hann varðveitir hins vegar hjálm-
inn í dag sem stofustáss.
Góss úr innbrot-
um á Islandi
sótt til Rúmeníu
Rannsóknai-lögi eglumenn frá lög-
reglunni í Reykjavík komu til lands-
ins um helgina með hluta þýfis sem
sent hafði verið til Rúmeníu. Þýfið er
úr ýmsum innbrotum sem rúmensk-
ur karlmaður hefur verið ákærður
fyrir. Munfrnir fundust á heimili
móður hans og systur í borginni
Braila, sem er u.þ.b. 200 km frá höf-
uðborginni, Búkarest.
Rúmeninn kom hingað í júní á
fólskum skilríkjum og óskaði eftir
pólitísku hæli hér á landi. Lögreglan í
Reykjavík handtók Rúmenann 17.
ágúst sl., vegna gruns um að hann
hefði framið nokkur innbrot í skart-
gripaverslanir, hljómtækjaverslun á
höfðuborgarsvæðinu og tvö innbrot á
Höfn í Hornafirði. Lögreglan lagði
hald á þýfi, skai-tgripi o.fl., sem Rúm-
eninn hugðist senda úr landi, á póst-
húsi í Reykjavík. Hann var úrskurð-
aður í þriggja vikna gæsluvarðhald,
sem var framlengt í október um einn
mánuð. Ákæra var þá og gefin út á
hendur manninum fyrir innbrotin.
Ólík starfsaðstaða
Upplýst var að manninum tókst að
senda hluta þýfisins til Rúmeníu, að-
allega skartgi-ipi og myndbands-
upptökuvélar. Að beiðni lögreglu hér
og fyrir milligöngu alþjóðadeildar
ríkislögreglustjóra lagði rúmenska
lögreglan hald á muni sem líklegt var
talið að hefðu komið héðan. Tveir
rannsóknarlögreglumenn frá lög-
reglunni í Reykjavík fóru utan 16.
október og sneru aftur sl. laugardag
með þann hluta þýfisins sem sannan-
lega hafði komið héðan. Verið er að
vinna úr gögnum, sem fengust ytra.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík nutu íslensku
rannsóknarlögreglumennimir góðs
liðsinnis rúmenskra starfsfélaga
sinna, en skrifræði tafði störf þeirra
þó nokkuð. í ljós kom að mikill mun-
ur er á starfsaðstöðu og búnaði lög-
reglu hér á landi og í Rúmeníu. Ólík-
ur aðbúnaður lögregluliða í Rúmeníu
og á íslandi. Lögi-eglumenn þar fá
lágt kaup og þurfa auk þess að kosta
skriffæri sín og pappír sjálfir. Þeir
hafa auk þess mjög takmarkaðan að-
gang að ökutækjum og þurfa því að
nota eigin ökutæki í starfi án þess að
fá fyrir það sérstaka greiðslu.
„Lögreglumennirnir ytra voru
mjög hrifnir af vinnu og búnaði okkar
manna og höfðu mikinn áhuga á að fá
að kynnast hvernig löggæslumálum
er háttað hér á landi. Vonandi eigum
við möguleika síðar til aðstoða félaga
okkar ytra með einhverjum hætti,“
sagði Ómar Smári Armannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn við. Frétta-
vef Morgunblaðsins: „Þrátt fyrir tak-
markaða möguleika og lág laun
virðist ríkja mikill áhugi á meðal lög-
reglumanna ytra á starfi sínu og þeir
reyna greinilega að gera sitt besta við
erfiðar aðstæður. Merki um upp-
byggingu löggæslunnar í Rúmeníu er
greinileg miðað við það sem áður var
og starfsfólk hennar horfir augsýni-
lega vongott fram á veginn."
Aukin alþjóðleg samvinna
Að sögn Ómars Smára segir fengin
reynsla lögi'eglunnar að í framtíðinni
munu lögreglumenn hér bæði þurfa
að starfa við ýmsar aðstæður erlend-
is vegna mála, sem koma upp hér og
teygja anga sína út, og jafnframt geta
tekið á móti erlendum lögreglumönn-
um er þurfa að rannsaka afbrot fram-
in þar hér á landi. Nýleg dæmi eru
morðmál á Leifsgötu og fíkniefnamál
er teygðu anga sína til Spánar, Hol-
lands, Danmerkur og víðar.
Ung stúlka
varð fyrir
slysaskoti
UNG stúlka varð fyrir slysa-
skoti úr haglabyssu á Fjarð-
arheiði þar sem hún var á
rjúpnaveiðum ásamt þremur
piltum um hádegið á sunnu-
dag. Skotið hljóp í framan-
vert lærið á stúlkunni af
stuttu færi og er hún talsvert
slösuð. Hún var flutt með
sjúkraflugi á slysadeild Land-
spítalans-Háskólasjúkrahúss í
Fossvogi.
Ungmennin eru á aldrinum
16-20 ára. Þau höfðu haldið
til rjúpnaveiða um morguninn
en einn piltanna hafði skot-
vopnaleyfi. Skotið hljóp úr
byssu hans þegar ungmennin
ætluðu að halda heim á leið
en þoka var þá að skella á.
Haglabyssan er einhleypt en
pilturinn taldi sig ekki hafa
spennt hamarinn á byssunni.
Hann tjáði lögreglu að slíkt
gerði hann aldrei nema þegar
hann væri í þann mund að
hleypa af.
Létu lögreglu
vita í farsíma
Ungmennin voru með far-
síma og gátu því látið lög-
reglu vita en lögreglan á
Seyðisfirði fékk tilkynningu
um slysið um hádegisbilið í
gær. Einn piltanna hljóp jafn-
framt að bifreið þeirra sem
var á vegi nokkuð frá slys-
staðnum. Hann fylgdi lækni
til baka að staðnum þar sem
stúlkan lá. Þrátt fyrir mikla
þoku gekk vel að finna stað-
inn en læknirinn var kominn
á staðinn um klukkustund
eftir slysið. Stúlkan var þá
orðin nokkuð köld.
Björgunarsveitir komu að
skömmu síðar og fluttu stúlk-
una til Egilsstaða. Þaðan var
hún flutt með sjúkraflugi til
Reykjavíkur um klukkan
hálfþrjú. Piltarnir fengu
áfallahjálp.
IÐJUDOGUM
Heimíli