Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Niðjamót Egners Morgunblaðið/Jón Svavarsson „Leikhópnum tekst gegnumsneitt vel að teikna og lita hinar kunnuglegu persónur," segir í dómnum. I sálarhrói fj öldamor ðingj a LEIKLIST ISæjarleikliúsið, Leikfélag Mosfellssveitar ALLTí PLATI Höfundur: Þröstur Guðbjartsson. Leikstjóri: Herdís Þorgeirsdóttir. Búningar: Harpa Svavarsdóttir. Förðun: Hrefna Vestmann. Laugar- dagurinn 21. október 2000. HANN virðist ætla að verða lang- lífur, samsetningui- Þrastar Guð- bjartssonai’ upp úr verkum Egners og Lindgrens. Varla líðui- svo leikár að Ailt í plati sé ekki á fjölum ein- hvers áhugaleikfélags. Ekki veit ég hvað veldur. Líklega er stykkið ein- faldara í uppsetningu en þau verk sem það sækir efni sitt í, en sem leik- húsverk stendur það þeim, eðlilega kannski, alllangt að baki. Grunnhugmyndin er ógalin: Að stefna saman vinsælustu persónum úr Hálsaskógi, Kai-dimommubæ og jöxlunum á Jens greyinu. Þær hittum við fyrir tilstilli frökenar L. Lang- sokks sem reynist vera göidrótt ofan á aðra gamalkunna hæfileika sína. Kunningjamir úr sagnaheimi Egners segja okkur hvemig þeim hefur reitt af síðan síðast og era flestir merki- lega vansælir; refurinn óhress með mataræðið og ræningjarnir flúnir frá nýjum skyldustörfum. Sumt af þess- um endurfundum er hnyttilega sam- ansett og fyndið hjá Þresti en út- heimtir samt að fólk þekki framverkin. Hins vegar verður ansi þvingað hjá honum að koma að söngvunum sem allir þekkja og elska í þessu nýja samhengi en til þess virð- ist þó leikurinn að miklu leyti gerður. Tæplega er hægt að segja að um söguþráð sé að ræða og endirinn rennur út í sandinn: Allt í plati. Vel má samt skemmta sér við þessa endurfundi í Bæjarleikhúsinu. Leikhópnum tekst gegnumsneitt vel að teikna og lita hinar kunnuglegu persónur. Leikstjórinn, Herdís Þor- geirsdóttir, hefúr greinilega lagt alúð við þennan þátt. Síður tekst henni upp með hreyfingu leikaranna um sviðið. Of mikið var um tilgangslítil ferðalög persónanna sem dró úr áhrifamætti sýningarinnar, þó ætlun- in sé vafalaust að gera hana fjöraga og lifandi. Eins saknaði ég betri tengsla flestra persóna við áhorfend- ur. Bæði í söngvum og víða í töluðum texta er beinlínis gert ráð fyrir að persónumar tali við salinn en hér ávörpuðu söngvarar frekar hinar persónumar eða töluðu við sjálfar sig. Hvort sem um er að ræða ákvörð- un eða yfirsjón þá þótti mér leikstjór- inn með þessu neita sér um eitt besta vopnið til að halda athygli áhorfenda og skila þeim verðskuldaðri skemmt- an. Herdís hefur víða komið auga á skemmtilegar lausnir í sviðsetning- unni, svo sem notkun handbrúða fyrir Karíus og Baktus, og aldrei hef ég áð- ur séð ullarsokka notaða jafh mark- visst til að túlka hræðslu eins og þeir Hérastubbur og bakaradrengurinn gera hér. Mikið mæðir á Rannveigu Eir Erl- ingsdóttur í hlutverki Línu, veislu- stjóranum á niðjamóti Egners. Hún stendur sig með prýði og hefur ráð allra í hendi sér á áreynslulausan hátt. Mikki refur er að vanda fyrir- ferðarmikill og fór Magnús Guðfinns- son frábærlega með hlutverkið, væri enn betri ef hann stæði oftar kyrr og horfði framan í áhorfendur. Lilli klifurmús er einkennilega ut- anveltu í verkinu en Guðbjörg Páls- dóttir gerði vel og söng afar fallega. Ekld má gleyma hinu harmræna ljóni en Bogi Eggertsson var óborganlega sorgmæddur. Ef þetta var helsta trompið í fjölleikahúsi Jespers þá var ekki von að vel gengi. Soffía frænka var í öraggum höndum Sigríðar Kristjánsdóttur sem sýndi að það þarf hvorki hávaða né æðiber í botni til að sýna vald og kraft. Leikmynd er einföld og falleg, bún- ingar vel úr garði gerðir og förðun óvenju listilega hugsuð og útfærð, jafnt á dýram og mönnum. Tónlist var vel flutt og era margir ágætir söngvarar í Mosfellsbæ. Það var ekki annað að sjá og heyra en böm jafnt sem fullvaxnir skemmtu sér í Bæjarleikhúsinu á frumsýningu, enda er alltaf gaman að hitta gamla kunningja, rifja upp nokkur upp- áhaldslög og láta galdra sig smá. Þorgeir Tryggvason KVIKMYIVDIR Háskólabfó, Laugar- ásbíó, Bwrgarbíó, Akurcyri THECELL★★★ Leikstjóri: Larsen Singh. Hand- ritshöfundur: Mark Protosovich. Tónskáld: Hovvard Shore. Kvik- myndatökustjóri: Paul Laufe. Aðal- leikendur: Jennifer Lopez, Vince Vaugh, Vincend D’Onofrio, Mari- anne Jean-Babtiste, Jake Weber, James Gammon. Sýningartími 105 mín. Bandaríkin. New Line Cinema. 2000. VÍSINDAHROLLURINN The Cell er athyglisverð frumraun ungs leikstjóra (Larsen Singh) og handritshöfundar (Marks Protoso- vich) sem koma með ferskan and- blæ inní staðnaða og klisjukennda fjöldamorðingjamyndina. Nýja- bramið er þó einkum að finna í skemmtilegum, sjónrænum tökum og myndbyggingu frekar en efninu sjálfu. Þar era reyndar nokkuð nýstárlegir hlutir í gangi líka. Barnasálfræðingurinn Catherine (Jennifer Lopez) er að þróa nýja tækni í vísindum sínum. Hún byggist á að komast í beint sam- band við undirmeðvitund annarrar persónu með háþróuðum búnaði í hugsanaflutningi. Catherine hefur verið að þróa aðferðina á ungum dreng með athyglisverðum, þó ekki alveg fullnægjandi árangri. Á sama tíma hefur fjöldamorðingi verið að láta að sér kveða í Los Angeles, þar sem líkin hlaðast upp. Lögreglan handsamar kauða (Vicent D’Onofrio) en þá er hann fallinn í dá vegna sérstæðs sjúk- dóms sem plagar hann. Lögreglan kemst því ekki á snoðir um hvar hann geymir síðasta fórnarlambið, sem hún telur að sé hugsanlega enn á lífi. Nú era góð ráð dýr og lögreglu- maðurinn Peter Novak (Vince Vaughn) hugkvæmist að fá geð- lækninn til liðs við sig og upp hefst kapphlaup við klukkuna. Engan > tíma má missa og Catherine hverf- j ur á vit hugarfylgsna morðingjans. \ Myndin hefst á glæsilegu, súr- \ realísku atriði, þar sem sáli er staddur í eyðimörk ásamt dreng- hnokka. Það kemur síðar í ljós að konan er á ferðalagi um undir- meðvitund drengsins og leikstjór- inn, tökustjórinn Paul Laufe og tónskáldið David Kitley ná að framkalla framandi og í senn heill- andi og ógnvekjandi umhverfi, sem , minnir á myndverk Hieronymusar- | Bosch og Salvadors Dali og sumar j myndir Davids Cronenberg. Þá i virðist fyrrum tónlistarmynd- bandaleikstjórinn Singh vera einn- ig undir áhrifum annars kollega síns, Kens Russel, efnið og efnis- meðferðin minnir talsvert á þá ágætu mynd Altered States. Útkoman er fyrst og fremst ein- stök, sjónræn upplifun. Kvik- myndagerðarmennirnir nota lit- ríka búninga og undarlega í bland j við regnvotan gráma óhugnaðar- I ins, tónlistin er áhrifamikil og | kemur oftlega í stað orða. Persón- urnar era hinsvegar heldur yfir- borðskenndar, aðrar en morðing- inn, sem er útskýrður á eftirtektarverðan og nýstárlegan hátt, og leikurinn er upp og ofan. Lopez er kraftmikil að venju og reynir jafnvel að leika með öðra en líkamanum og kemst bærilega frá sínu. Karlpeningurinn er mun slakari. Einkum Vaughn, sem virð- 1 ist ekki búinn að jafna sig á mis- | tökum endurgerðar Psycho eftir Van Sant. The Cell er því kaflaskipt ánægja sem sveiflast á milli ógn- vekjandi og stundum krassandi, óraunverulegum uppákomna með frábærum efnis- og kvikmyndatök- um og tónlist, yfir í gráma hvers- dagsleikans þar sem fátt nýtt ber fyrir sjónir. Sæbjörn Valdimarsson I Ný sending frá Ijra Buxna- og pilsdragtir, úlpur, blússur og toppar Strandgötu 11, sími 5651147 Stúlkan í vitanum TONLIST Ópera í tvcimur þáttum eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Böðvar Guðmundsson. 2. sýning með Döru Steinunni Ármannsdótt- ur og Jökli Steinþórssyni í aðal- hlutverkum, ásamt Bergþóri Páls- syni, kór og hljómsveit Tón- menntaskólans í Reykjavík, undir sljórn Þorkels Sigurbjömssonar. Sunnudagurinn 22. október, 2000. NEMENDASÝNINGAR hafa ekki verið til umfjöllunar hjá tón- listargagnrýnendum, en sú undan- tekning, sem gerð er vegna afmæl- issýningar Tónmenntaskólans í Reykjavík, er fyrst og fremst vegna þess að um er að ræða fram- samið verk. Með óperanni Stúlkan í vitanum hafa Þorkell Sigurbjörnsson og Böðvar Guðmundsson skapað skemmtilega sýningu en samt sló það undirritaðan, eins og á frumsýningunni, að óhræsið, sem í gerð þeirra félaga er mannbreysk vera, skuli vera drepin fyrir allra augum og hefði ef til vill mátt hafa annan hátt á, þó börn séu nú á tím- um öllu vön úr sjónvarpi og kvik- myndum. Til viðbótar við það sem sagt var um framsýninguna í fyrri umfjöllun undirritaðs er rétt að geta þess að Þorkeli tekst aðdáunarlega vel að semja fyrir unga tónlistarfólkið í hljómsveitinni, þó stundum reyndi á inntónunina, sérstaklega í fiðlun- um. Kórarnir eru sniðuglega samd- ir, þar sem ýmist er notast við ein- raddaða raddskipan eða stefjaða tvíröddun. Yfirleitt var flutningurinn sann- færandi og á annarri sýningu óper- unnar vora aðalhlutverkin sungin og leikin af Dóru Steinunni Ar- mannsdóttur og Jökli Steinþórs- syni, en óhræsið var sem fyrr sung- ið og leikið af Bergþóri Pálssyni, með þeim tilþrifum í leik og söng sem einkenndi framsýninguna. Stúlkan í vitanum var vel sungin af Dóru Steinunni, með góðum framburði á texta og þó leikur hennar væri helst til varfærinn var öll framganga hennar borin upp af öryggi. Fallegasti og innilegasti þáttur verksins er samtal stúlkunn- ar og piltsins en þar átti Jökull sinn sólóþátt sem var mjög vel sunginn, bæði af Steinunni og Jökli. Það vantaði nokkuð á að Jökull næði að gera piltinn að þeirri und- irlægju gagnvart óhræsinu, sem hefði gert uppreisn hans og aðstoð við stúlkuna áhrifameiri. Dansþátt- urinn, bæði leikur hljómsveitarinn- ar og dansinn, var mun líflegri en á framsýningunni og kórarnir sömu- leiðis, þó sitthvað smálegt færi úr- skeiðis. Sýningin í heild var órórri en frumsýningin og á köflum nokkuð hikandi en einstaka kaflar tilþrifa- meiri, eins og til dæmis hjá kórnum og hljómsveitinni. Jón Ásgeirsson Nýjar bækur • Þróun hjúkrunar á Barnaspítala Hringsins 1980-1998 er ef'tir Herthu W. Jónsdóttur. Bókin er fyrsta bók sinnar tegund- > ar þar sem markvisst er skrifað um þróun hjúknmar innan tiltekinnar sérgreinar yfir ákveðið árabil. Ein- göngu er fjallað um tímabilið 1980 til 1998. í formála segir höfundur frá megináhugamáli sínu er hún hóf störf sem hjúkranarframkvæmdastjóri, en það var að stuðla að og finna leiðir til markvissrar og persónulegrar hjúkr- unar fyrir hvert einstakt bam og for- eldra þess. Ennfremur að auka fræðslu- og upplýsingastreymi milli j barna, foreldra og hjúkranarfólks þannig að fullur skilningur væri á hlutverki hvers og eins og stuðla á þann hátt að vellíðan allra í þi-íhyrn- ingnum bam - foreldri - starfsfólk. Bókin skiptist í fjóra meginkafla. Fyrsti kafli ber yfirskriftina Barna- spítali Hringsins, annar kaflinn sem er meginkafli bókarinnar heitir: Þró- un hjúkranar, þróun hjúkrunarferlis, einstaklingshæfðrar hjúkranar og fjölskylduhjúkrunaráBamaspítala I Hringsins. Þriðji kafli heitir: For- eldrar á sjúkrahúsum, hlutverk, staða og aðbúnaður og fjórði kaflinn » heitir: Bamahjúkranarfræðingurinn, hver var staða og hlutverk bama- hjúkranarfræðinga 1980 og hver er hún í lok 20. aldarinnar? í lokakafla bókarinnar horfir höfundur til fram- tíðar. Bókin er 175 síður oggefin út af Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Hún er til sölu á skrifstofu hjúkrun- | arforstjóra á Landspítala, á skrif- stofu FÍH, Bókabúð Máls og menn- 1 ingar ogí Bóksölu stúdenta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.