Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Eiginmaður minn, KRISTJÁN ÞORLÁKSSON fyrrv. hvalveiðiskípstjóri frá Súðavík, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, lést laugardaginn 21. október. Útförin mun fara fram frá Súðavíkurkirkju og verður auglýst síðar. Ingibjörg Sigurgeirsdóttir. + Eiginkona mín og móðir okkar, SIGURLAUG AÐALSTEINSDÓTTIR, lést á heimili sínu, Norðurbrún 32, Reykjavík, fyrsta vetrardag, laugar- daginn 21. þessa mánaðar. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtudaginn 26. október. Athöfnin hefst kl. 13.30. Eggert Jónsson, Tómas Guðni Eggertsson, Eiríkur Áki Eggertsson. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT ÁSGEIRSDÓTTIR, Engihjalla 17, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 27. október kl. 15.00. Ásgeir Óskarsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Óskar Örn Óskarsson, Jóna Jónsdóttir, Þröstur Óskarsson, Aðalheiður D. Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR RÓSINKARSSON, Laxagötu 7, Akureyri, sem lést miðvikudaginn 18. október, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 26. október kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamlegast bent á dvalarheimilið Hlíð. Sigríður Helgadóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Fóstursystir okkar og frænka, FANNEY S. GÍSLADÓTTIR frá Grímsstöðum, Reyðarfirði, áður Túngötu 32, Reykjavík, sem lést 'á Landspítala Landakoti miðviku- daginn 18. október, verður jarðsungin frá Reyðarfjarðarkirkju laugardaginn 28. október kl. 13.30. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskapellu, miðvikudaginn 25. október kl. 13.30. Bóas Haflgrímsson, Ingibjörg Þórðardóttir, Ingibjörg Malmquist, Garðar Jónsson og aðrir aðstandendur. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi, GUNNAR ÓSKARSSON, Asparfelli 6, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut föstudaginn 6. október sl. Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, þriðjudaginn 24. október, kl. 15.00. Jakobína Kristjánsdóttir, Henný Ósk Gunnarsdóttir, Vala Kolbrún Reynisdóttir, Gunnar Þór Berg Traustason, óskírður Traustason. RAGNA KRISTÍN ÞÓRÐARDÓTTIR + Ragna Kristín Þórðardóttir fæddist í Bolungar- vík 11. maí 1938. Hún lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 12. októ- ber síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogs- kirkju 20. október. Við viljum minnast Rögnu K. Þórðardótt- ur sem var fyrrverandi kennari okkar. Hún tók vel á móti okkur þegar við vorum litlir krakkar hjá henni í skólastofunni í Heyrnleysingjaskól- anum. Fundum við svo vel hvað henni þótti vænt um okkur og það var gagnkvæmt af okkar hálfu. Hún kenndi okkur, árgangi 1964, í nokk- ur ár, það voru Guðrún, Júlía, Ragna, Þórhallur, Halldór Örn, Georg Bragi, Elsa, Heiðrún og Guðbjörn. Okkur leið vel hjá henni og hún vildi okk- ur vel. Við viljum þakka henni þolin- mæði og þá miklu virð- ingu sem hún sýndi okkur alla tíð. Hún átti gott með að komast inn í samfélag okkar heyrnleysingjanna og talaði opinskátt við okkur um lífið og til- veruna og er það nokk- uð sem við teljum okk- ur búa að enn þann dag í dag. Það hefur ekki verið auðvelt að taka að sér kennslu heyrnarlausra barna sem voru bara á fimmta árinu þegar skólaganga hófst. Fyrsta árið var jú erfitt, það þurfti að kynnast hverju barni fyrir sig, við vorum villingar og kunnum engan aga. Ragna byrjaði á því að kenna okkur mannasiði og var mjög þolinmóð, ekki veitti af þolinmæð- inni í okkar hópi. Sorglegt að hún hætti árið 1977 í Heyrnleysingjaskólanum. Við sökn- uðum hennar ákaflega þegar hún hætti í skólanum og okkur vantaði alltaf Rögnu í skólanum á meðan við vorum þar. Hún kallaði einn af nemendunum nöfnu sína, en sú skildi ekki orðið- „nafna“ og var piiTuð. Þangað til móðir hennar fór að útskýra hvað þýddi og varð hún þá stolt af að eiga hana fyrir nöfnu. Við biðjum góða guð að blessa minningu okkar góða kennara Rögnu Þórðardóttur. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Fyrir hönd bekkjarsystkina úr Heyrnleysingj askólanum, Guðrún Olafsdóttir, Ragna Magnúsdóttir, Júlía Hreins- dóttir, Elsa Stefánsdóttir, Heið- rún Dúadóttir, Þórhallur Arn- arson, Guðbjörn Sigurgeirsson, Halldór Örn Oddsson og Georg Bragi Einarsson. GUÐRIÐUR FRIÐRIKKA ÞORLEIFSDÓTTIR Það var fastur punktur í tilverunni að heim- sækja ykkur. Hver árstúl hafði sinn sjarma. Á vorin heimalningar undir Só- ló eldavélinni, sumrin heyskapur, haustin kartöflutínsla. Þá var gott að hvíla sig í eld- húsinu hjá ykkur og fá kökur og mola úr dós- inni góðu. Afi spilaði á harmonikkuna og þú hafðir alltaf eitthvað á prjónunum sem hefur hlýjað mörgum litlum höndum og fótum um dagana. Á jóladag var oft kátt á hjalla, + Guðríður Friðr- ikka Þorleifsdótt- ir, fyrrum húsfreyja í Viðfirði, fæddist að Hofi í Norðfirði 4. nóvember 1908. Hún lést í Fjórðung- ssjúkrahúsinu á Nes- kaupstað 14. október síðastliðinn og fór út- fór hennar fram frá Norðfj ar ðar kirkj u 21. október. Elsku amma, nú hef- ur þú fengið hvfldina. Það eru forréttindi að eiga minning- ar um þig og afa í Naustahvammi. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG S. GUÐMUNDSDÓTTIR, Sólbakka, Bíldudal, lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar föstudaginn 20. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Fyrir okkar hönd og annarra ástvina, Börn hinnar látnu. + Bróðir minn og mágur, SIGURSTEINN EINARSSON frá Hömrum í Þverárhlíð lést á Sjúkrahúsinu á Akranesi fimmtudaginn 12. október. Útförin hefur farið fram. Fyrir hönd aðstandenda. Hinrik Einarsson og Ingibjörg Gísladóttir. + Elskuleg móðir mín, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR KRISTÍN SIGURÐARDÓTTIR, frá Felli, Grindavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð sunnudaginn 22. október. Margrét Valdimarsdóttir, Jóhann Sigurðsson, Halldór Kristjánsson, Guðný Guðjónsdóttir og fjölskyldur. gengið í kringum jólatréð og, amma, þú kunnir svo mikið af lögum og leikjum. Þú skemmtir þér ekki síður en við barnabömin. Þegar þið fluttuð svo á Mýrargötuna, fylgdi harmo- nikkan, prjónamir og dósin góða og langömmubörnin nutu góðs af. Berðu Þórarni afa kveðju okkar. Guðni afi, Guð styrki þig Við kveðj- um þig með einni af þeim mörgu bænum sem þú kenndir okkur. Láttu nú ljósið þitt logavið rúmiðmitt. Hafðuþarsessogsæti, signaði Jesús mæti. (Ók. höf.) Páll, Ingvar, Stefanía, Ólína Freysteinsbörn. Elsku amma. Margar minningar streyma upp í kollinn á okkur þegar við hugsum um þig. Það fyrsta sem kemur upp í hug- ann er þegar þú sast hjá okkur og kenndir okkur „Faðir vorið“ og bæn- irnar eins og O jesú bróðir besti og Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (H. Pét) Líka öll kvæðin og vísurnar sem við sungum og dönsuðum við á eld- húsgólfinu í Naustahvammi, t.d. „Dansi , dansi, dúkkan mín“ og ,jVdam átti syni sjö“. Við munum líka eftir öllum sögun- um sem þú sagðir okkur, frá því að þú varst lítil stelpa á Hofi. Eins þeg- ar þú bjóst í Viðfirði og ýmsu öðru sem hafði gerst í lífi þínu. Þú sagðir svo vel frá að maður lifði sig inn í sögurnar. Allir bfltúrarnir með ykkur afa inn í Seldal og Fannadal eru ógleyman- legir, þá sögðuð þið okkur sögur frá bæjunum og fólkinu sem átti og á enn þar heima. Það var alltaf gott að koma í heim- sókn í Breiðablik eftir að þið fluttuð úr Naustahvammi. Hjá ykkur vai- okkar athvarf eftir að skóla lauk á daginn og við biðum eftir tónskóla og sundæfingum. Þið voruð alltaf svo góð við okkur þegar við komum, gáf- uð okkur að borða í hádeginu og þeg- ar við komum á öðrum tímum feng- um við mola eða eitthvert annað góðgæti. Segja má að þótt þið afi haf- ið flutt út í Breiðablik þá bjuggum við samt hjá ykkur. Þú kenndir okkur öllum að prjóna auk þess sem þú prjónaðm á okkur sokka og vettlinga sem eiga eftir að koma að góðum notum í mörg ár í viðbót. Alltaf gátum við komið til ykkar og beðið um, ef eitthvað vant- aði. Elsku amma, takk fyrir allt sem þú hefur kennt okkur. Þú átt alltaf eftir að vera í huga okkar og fallegar minningarnar verða í hjörtum okkar. Þín barnabörn, Laufey, Þórfríður Soffía og Ægir Guðjón Þórarinsbörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.