Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Ekkert kynslóðabil LAUGARDALURINN er vin- sæll hjá fjölskyldufólki í borginni og börn og fullorðn- ir kunna að meta að koma þangað til þess að skoða dýr- in í Húsdýragarðinum og leika sér saman í tækjunum. Morgunblaðið/Ómar Greiðslubyrði lækkuð með end- urfj ár mögnun Salahverfí Kópavogi og Seljahverfí í Reykjavík liggja saman MEÐ endurfjármögnun er- lendra lána lækkaði Hafnar- fjarðarbær nettógreiðslubyrði lána sinna um 187 milljónir króna á árinu 1999. Þriðjngi minni hluti skatttekna rann í að borga af lánum 1999 en 1998. Skatttekjur bæjarins jukust um 3 þúsund kr. á hvem íbúa milli 1998 og 1999 og hlut- fall rekstrarkostnaðar af skatttekjum hækkaði um 2%. Frá 1996 hefur bæjarsjóður Hafnarfjarðar nær eingöngu sótt lánsfé á erlendan lána- markað. 1999 var unnið við að endurfjármagna óhagstæð eldri lán, sem eru í íslenskum kr. og er stefnt að því að Ijúka því verki á þessu ári, að því er fram kemur í ársskýrslu bæj- arins, sem nú hefur verið dreift í öll hús í bænum, og er auk þess aðgengileg á heimasíðu bæjarins, hafnaríj'ordur.is. Fram kemur að rekstur málaflokka án vaxta tók til sín 81% skatttekna árið 1999 en 79% árið 1998 og 77% 1997. Greiðslubyrði lána nettó nam 15% af skatttekjum 1999 en 22% 1998 og 24% 1997. í yfírliti með ársreikningnum kemur fram að nettógreiðslubyrði lána lækkaði úr 710,9 m.kr. ár- ið 1998 í 524,1 m.kr. 1999. Ný lán voru teltín að fjárhæð 1901 m.kr. þar af 686 m.kr. til end- urfjármögnunnar. I árslok voru heildarlang- tímalán 5.280 m.kr., þar af er- lend lán um 4.060 m .kr. eða 70%. „Vegna hagstæðra ytri skilyrða og góðs árangurs við endurfjármögnun urðu raun- vextir af langtímaskuldum bæjarsjóðs á árinu 1999 nei- kvæðir um 40 m.kr.,“ segir í ársskýrslunni. Alls voru skatt- tekjur bæjarins 1999 3.315 milljónir króna. 3.493 milljónir fóru til reksturs málaflokka en 967 milljónir komu á móti í tekjur þannig að nettókostnað- ur vegna málaflokka var 2.696 m.kr. og afkoma eftir rekstur þeirra 619 m.kr., en 636,8 m.kr. að viðbættum vöxtum af veltufé. 509,8 m.kr. runnu til greiðslu lána og voru 127 m.kr. eftir til ráðstöfunar í fram- kvæmdir. Fjárfesting nam hins vegar samtals 1.226 m.kr., eða 1.100 m.kr. umfram tekjur ársins. 540 m.kr. voru fjárfestar í fræðslumálum þai- af 320 m.kr. vegna einsetningar Engidals- skóla og 90 m.kr. vegna ein- setningar Setbergsskóla. Til byggingar íþróttamiðstöðva við Ásvelli var varið um 170 m.kr. Til framkvæmda við göt- ur og holræsi var varið um 400 m.kr. og til fasteigna- og lóða- kaupa var varið 224 m.kr. íbúum Hafnarfjarðar fjölg- aði um 542 á árinu 1999, úr 18.597 í 19.139. 1998 hafði fjölgað um 394 á íbúaskrá bæj- arins og um 275-295 manns hvert áranna þriggja þar á undan. Borgarstjóri segir að víða þurfí að bæta göngutengsl Fjármagn frá fyrirtækjum? Reykjavík INGIBJORG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir koma til greina að leita til fyrirtækja í borg- inni um að hlaupa undir bagga með ríkinu við fjár- mögnun göngubrúa og undirganga í Reykjavík. Borgarstjóri sagði á borg- arstjórnarfundi á fimmtu- dag að gera þyrfti gang- skör í að bæta göngutengsl víða á höfuðborgarsvæðinu en ársframlag til slíkra framkvæmda á vegaáætl- un hrykki vart fyrir einni göngubrú. Gerð göngubrúar yfir Miklubraut á móts við Framheimilið kom til um- ræðu á borgarstjórnar- fundinum. Olafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lagði áherslu á mikilvægi þess að framkvæmdum verði flýtt vegna göngubrúar- innar. Hann fagnaði því að skipulags- og umferðar- nefnd borgarinnar hefði sett gerð brúarinnar fram- arlega í forgangsröð slíkra verkefna en átaldi þó seinagang málsins. Borgarstjóri tók undir með Olafi að nauðsynlegt væri að bæta öryggi gang- andi vegfarenda á þessu svæði, hins vegar hefði aldrei verið gert ráð fyrir því í aðalskipulagi Reykja- víkur að þarna kæmi göngubrú og það hafi held- ur ekki verið tekið sér- staklega til umfjöllunar í borgarráði eða borgar- stjórn þegar deiliskipulag Miklubrautar í heild var þar til sérstakrar skoðun- ar. Það hafi í raun ekki verið fyrr en íbúar í hverf- inu vöktu máls á þessu í upphafi árs 1999 sem horfst hafi verið í augu við að orðið hafi að bæta þessi göngutengsl. Þarf að Ieita nýrra leiða við fjármögnun Borgarstjóri sagði að gerð göngubrúarinnar á móts við Framheimilið væri ekki á vegaáætlun og sagði að borin von væri að fjármunir fengjust þar til þess að gera göngubrúna eins og skorið hefði verið við nögl á umliðnum árum. Hún sagði að bæta þyrfti göngutengsl víða á höfuð- borgarsvæðinu. Auk þess sem gera þyrfti göngubrú yfir Miklubraut á móts við Framsvæðið, þyrfti göngu- brú yfir Kringlumýrar- braut á móts við Kringluna og betri göngutengsl yfir Hringbrautina, göngut- engsl við Stakkahlíð og víðar Ingibjörg Sólrún kvaðst þeirrar skoðunar að nóg væri komið af því að borg- arsjóður lánaði ríkinu fyrir framkvæmdum af þessum toga og því þyrfti að finna aðrar leiðir til fjármögnun- ar. „Mér dettur helst í hug í þessu sambandi að það yrði þá að leita til fyrir- tækja til þess að hlaupa undir bagga í þessu efni,“ sagði borgarstjóri og bætti við að kannski væri lag að leita til tryggingafélag- anna í borginni. Morgunblaðið/Golli Salahverfi (t.v.) og Seljahverfi liggja orðið nánast saman, en ekki er gert ráð fyrir neinum vegtenginum á milli hverfanna. Samgöngum milli hverfa ábótavant Kópavogur/Breiðholt SALAHVERFI í Kópavogi og Seljahverfi í Reykjavík eru nánast að renna saman í eitt hverfi þdtt samgöngur á milli hverfanna séu fremur bágbornar. Mikil uppbygging hefur átt sér stað í Salahverfí síð- ustu misseri, eins og alls staðar í austuhiuta Kdpa- vogs, og er nú svo komið að aðeins faeinir metrar skiija að hús í Salahverfi og Selja- hverfi. Samgöngur á milli hverf- anna eru hins vegar ekki gdðar því engar götur liggja á milli þeirra. Ef t.d. íbúi í Lækjarseli hyggst aka að Jörsöium, en aðeins nokkrir metrar skila göturnar að, þarf hann að keyra niður á Breiðholtsbraut, fara þaðan um Reykjanesbraut inn á Fífuhvammsveg, sem liggur upp að Jórsölum. Á þessari leið eru a.m.k. þrenn gatna- mdt með umferðarljósum. Samkvæmt upplýsingum frá borgarskipulagi Reykja- víkur er ekki gert ráð fyrir neinni vegtengingu milli hverfanna samkvæmt aðal- skipulagi. Upp kom hug- mynd um tengingu milli hverfanna á sínum tíma en hætt var við hana vegna mdt- mæla íbúa. Bæjarstjóri Seltjarnarness hefur áhyggjur af fólksfjölgun Ríkið og sveitarfélög vinni að farsælli lausn Seltjarnarnes MIKIL verkefni liggja fyrir sveitarfélögum á höfuðborg- arsvæðinu á næstu árum í kjölfar mikillar fólksfjölgunar og lýsti Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, yfir áhyggjum vegna þessa á aðalfundi Samtaka sveitarfé- laga á höfuðborgarsvæðinu í gærdag. Hann sagði mikilvægt að ríkið og sveitarfélögin ynnu sameiginlega að því að finna farsæia lausn á þeim vanda sem skapast gæti vegna fólks- fjölgunarinnar. Samkvæmt nýju svæðis- skipulagi fyrir höfuðborgar- svæðið, sem nú er í vinnslu, er gert ráð fyrir að íbúum á svæðinu muni fjölga um 60 þúsund á næstu 24 árum og að stofnkostnaður vegna helstu framkvæmda á svæðinu verði um 131 milljarður. „Ríkið þarf að vera samst- iga okkur ef okkur á að takast byggja hér upp samfélag fyrir alla þessa íbúa,“ sagði Sigur- geir. „Síðan er það aftur á móti annað mál hvort það er ekki orðið tímabært að sveit- arfélögin héma á höfuðborg- arsvæðinu ásamt ríkisvaldinu taki upp alvöru viðræður um það hvaða hlutverki sveitarfé- lögin eigi að gegna í byggða- þróun í landinu í framtíðinni. Ég hef haft af þessu nokkr- ar áhyggjur. Við sjáum bara núna upp á síðkastið að sveit- arfélögin hér eru að sækja um þjóðvegaframkvæmdir í þétt- býli og það virðist vera tölu- vert mikil fyrirstaða hjá ríkis- valdinu í þeim málum, en ég held að það sé rétt að það komi fram hér að sveitarfé- lögin eru með sameiginlega stefnu í samgöngumálum og hafa komið fram þar sem einn aðili, enda eru sveitarstjórn- armál í þessum málaflokki ekki pólitísk - þau eru lífs- nauðsyn fyrir svæðið.“ Rfldð og sveitarfélög myndi sér framtíðarsýn Sigurgeir sagðist óttast að á höfuðborgarsvæðinu myndi skapast svipað ástand og þar skapaðist eftir síðar heims- styrjöld í kjölfar þjóðflutning- anna. „Ég horfi með hryllingi til þess ef sveitarfélög og ríkið verða ekki samstiga í þeirri þróun sem virðist vera sýnileg að óbreyttu ástandi. Af sögu- sögnum man maður eftir því þegar þjóðflutningarnir miklu um og eftir síðustu heims- styrjöld hófust hingað á höf- uðborgarsvæðið og ég held að enginn vilji upplifa aftur það neyðarástand sem ríkti þá hér á svæðinu. Hér var engin þjónusta til að taka á móti þessu fólki hvorki af hálfu sveitarfélaganna eða ríkinu og ég segi það satt að ef að við eigum að taka á móti 50 til 60 þúsund íbúum hér á þessu svæði án þess að menn séu samstiga í því þá óttast ég að hér muni ríkja svipað ástand. Ríkið og sveitarfélögin hér á höfuðborgarsvæðinu þurfa að mynda sér einhveija fram- tíðarsýn um uppbyggingu svæðisins. Við höfum ekki verið að sækjast eftir íbúum utan höfuðborgarsvæðisins til okkar. Við höfum þvert á móti, margoft bæði í ræðu og riti, látið í ljós áhyggjur okkar út af þessum þjóðflutning- um.“ Laugardalur Hafnarfjörður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.