Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 27
NEYTENDUR
bætir við að skemmtilegast við
veiðina sé útiveran, nálægðin við
náttúruna og sú tilfinning að vera
einn með sjálfum sér þannig að
hægt sé að öskra af lífs- og sálar-
kröftum og enginn heyri. Þá segir
hann veiðieðlið segja til sín.
Ólafur Kr. er sama sinnis, úti-
vistin er aðalatriðið en hann segist
þó meira vera fyrir gæsaveiðina.
„Ég borða ekki rjúpu sjálfur og það
er kannski ástæðan fyrir því að ég
er ekki forfallin rjúpnaveiði-
skytta,“ segir Ólafur Kr.
Ungar konur
áhugasamar
Aðspurðir segjast þeir vera varir
við aukinn áhuga fólks á rjúpna-
veiði og þá sérstaklega merkja þeir
það að konur séu farnar að sýna
þessu áhuga. „Þetta eru aðallega
ungar konur sem eru farnar að
stunda rjúpnaveiði en þó veit ég
dæmi þess að konur allt upp í sex-
tugt séu einnig mjög áhugasamar,"
segir Leifur.
Að lokum er gott að brýna fyrir
veiðimönnum að skilja eftir leiðar-
lýsingu áður en haldið er af stað í
veiðiferðir en það getur komið sér
vel ef eitthvað skyldi fara úrskeiðis.
Leifur gefur lesendum að lokum
uppskrift að rjúpu.
Rjúpa ad
hætti Leifs
__________Nokkrar rjúpur___________
__________Smjör til steikingar ____
____________Pipar og salt__________
Vatn_______________
Smjörlíki
Hveiti
________________Soð________________
Rjómi
Fjöldi rjúpna skiptir ekki máli.
Það skal tekið fram að ekki á að
skola rjúpurnar fyrir steikingu því
þá tapa þær bragði. Takið hreinsuð
fóöm og hjörtu og snöggsteikið á
pönnu.
Saltið og piprið rjúpur að utan
og innan og snöggsteikið á pönnu.
Setjið rjúpurnar í ofnpott og inn
í ofn ásamt fóarni og hjörtum við
170 til 180 gráðu hita í um 30 mín-
útur.
Gott er að bæta örlitlu vatni á
pönnuna og nota soðið síðan sem
uppistöðu í sósu.
Hluti af soðinu er síðan sigtað
frá, búin er til vel þétt bolla úr
bræddu smjörlíki og hveiti og soð-
inu er síðan hrært út í. Örlitlum
rjóma er síðan bætt við og þá er
sósan tilbúin.
Gott er að bera ijúpurnar fram
með brúnuðum kartöflum, gulum
baunum, grænmeti og einiberjum.
Nýtt
Andlitsþjálf-
unartæki
DERMAL Tone-andlitsþjálfunar-
tækið er komið á markað.
Tækið er sagt styrkja andlits-
vöðva, slétta úr hrakkum og virka
á erfið svæði eins og á poka undir
augum og á undirhökur. Dermal
Tone andlitsþjálfunartækið er selt
hjá Sjónvarpskringlunni og hægt
er að panta í gegnum síma 515-
8000 og á netversluninni; www.-
sjonvarpskringlan.is.
Jjjmanparts
' HEIMSÞEKKTIR
GÆÐA VARAHLUTIR
fyrír iapanska
og kóreska bíia
Þegar þú verslar á Islandi er alltaf hægt að skila vöru sem reynist gölluð. Það er
óneitanlega erfiðara ef gjöfin er keypt á ferðalagi í útlöndum. Vöruverðið hér heima
er líka fyllilega samkeppnishæft við það sem gerist erlendis. Verslaðu á íslandi,
njóttu öruggrar neytendaverndar og efldu um leið íslenskt efnahagslíf.
Njóttu ferðarinnar - verslaðu af skynsemi
Fasteignir á Netinu