Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 73

Morgunblaðið - 24.10.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 73 n A ÁRA afmæli. í dag I V/ þriðjudaginn 24. október verður sjötug Ursula van Balsun, Ný- býlavegi 102, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Þorleifur Bragi Guðjóns- son. BRIDS llmsjón (iuðmundur l’áll Arnarson Þú ert í vestur og átt að spila út gegn sex tíglum suðurs. Norður er höfund- ur sagna og byrjar á spaða, en styður svo tígulsögn makkers og þá fer suður beint í ásaspurningu: Norður gefur; allir á hættu. Vestur ♦ K8 v G54 ♦ G1064 ♦ 10973 Vestur Norður Austur Suður - lspaði Pass 2 tfgiar Pass 3 tíglar Pass 4grönd* Pass Sspaðar *Pass Bgrönd** Pass D 6tíglar** Pass Pass * Spurning um lykilspil (RKCB) og norður sýnir tvo „ása“ af fimm og drottninguna í tígli. ** Áskorun í alslemmu, sem norður hafnar. Hvert er útspilið? Augljóslega eiga NS öll lykilspilin, þvi annars myndi suður ekki reyna við alslemmu. Spaðakóng- urinn þinn er á slæmum stað, en þú lumar á óvænt- um slag í tígli, sem suður veit ekki af. Þess vegna gæti verið góð hugmynd að koma út með spaðaátt- una og neyða sagnhafa til að taka ákvörðun í litnum strax, áður en hann veit hvemig í trompinu liggur: Noj-ður * ADG96 v A7 ♦ K872 + 82 Vestur Austur * K8 ♦ 7542 v G54 ♦ D98632 ♦ G1064 ♦ - +10973 ♦ D54 Suður ♦ 103 v K10 ♦ ÁD953 ♦ ÁKG6 Suður mun vissulega gruna þig um græsku, en því skyldi hann hætta slemmunni fyrir stungu? Spaðaáttan gæti vel verið ein á ferð og þá væri fárán- legt að tapa slemmunni með þvi að svína. Svo lík- lega drepur sagnhafl með ás og spilar trompinu og byrjar á kóngnum til að ráða við öll trompin í aust- ur. Líkur á fjórlit í vestur em aðeins 5% og því er spilamennska suðurs rök- rétt, þótt hún leiði beint til taps. Ef suður hefur lág- markskurteisi til að bera mun hann hrósa þér fyrir útspilið, að vísu með sam- anbitnum vömm. Arnað heilla inssynir. Eiginkona Yngva er Rósa María Tómasdóttir og em þau til heimilis að Grundargerði 7d, Akureyri. Eiginkona Arna er Laufey Guðrún Baldursdóttir og era þau til heimilis að Háhlíð 10, Akureyri. Hlutavelta Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson Þessar ungu stúlkur héldu hlutaveltu til styrktar Húsa- víkurdeild Rauða krossins. Þær heita Sylvia Víðisdótt- ir, Sunneva Birgisdóttir, Þórdís Erla Ólafsdóttir og Berglind Björnsdóttir. SKÁK Umsjón lielgi líss Grétarsson Hvítur á Ieik. Á þriðja alþjóðlega mót- inu í Þórshöfn er lauk fyrir skömmu var teflt í hinum glæsilegu húsakynnum Nor- ræna hússins. Draga má þá ályktun af taflmennsku þátt- takenda að vistarverurnar hafi gefið þeim innblástur til fjörugra fléttna en þær urðu ótal margar á mótinu. Stað- an kom upp á milli sviss- neska stórmeistarans Vad- im Milov (2.626), hvítt, og norska alþjóðlega meistar- ans Leif Erlend Johannesen (2.422). 41.Hf4! og svartur gafst upp þar sem hann endar í svikamyllu eftir t.d. 41...Dxd5 42. cxd5 Hxd6 43. Hxí8 Rxf8 44. Hxg7 + Kh8 45. Hd7 + og hvít- ur fær auðunnið tafl. Meistaramót læknanema hefst kl. 20:00 24. októ- ber í félagsheim- ili Taflfélagsins Hellis, Þönglabakka 1, Mjódd. Þetta mun vera í fyrsta skipti sem mótið er haldið. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin og léttar veitingar verða í boði Félags læknanema. Viktor Davíð Sigurðsson tekur við skráningum á mótið með tölvupósti: vds@hi.is. UOÐABROT TIMBURMENNIRNIR Heim er ég kominn og halla’ undir flatt, því hausinn er veikur og maginn. Ég drakk mig svo fullan, - ég segi það satt, - ég sá hvorki veginn né daginn. En vitið kom aftur að morgni til mín og mælti og stundi við þungan: „Bölvaður dóni’ ertu’ að drekka’ eins og svín! Það drafaði í gær í þér tungan. Og gerirðu þetta, þá getur þú séð ég get ekkert átt við þig lengur, því sjónin og heyrnin og málið fer með og minnið úr vistinni gengur." Ég lofaði vitinu betran og bót, að bragða’ ekki vín þetta árið. En svo er ég hræddur, ef margt gengur mót, að mig fari að langa í tárið. Páll Ólafsson. STJÖRNUSPÁ eftir Franrcs Drake SPORÐDREKI Þú vilt umfram allt vera sanngjarn en bjartsýni þín er fullmikil og skemmir stundum myndina. Hrútur (21. mars -19. apríl)' Þú neyðist til að vinna upp á nýtt hluti, sem þú hélst að væru löngu tilbúnir. Ekki láta þetta fara í skapið á þér heldur kláraðu þá bara. Naut (20. apríl - 20. maí) Það eru margar listsýningar í gangi svo þú hefur úr nógu að velja til að auðga anda þinn. Mundu að skoða verkin opnum huga og gefa öllum tækifæri. Tvíburar . ^ (21. maí - 20. júní) ’A A Gefðu gaum að minnstu smá- atriðum, því það er aldrei að vita nema eitthvert þeirra geymi lykilinn að gátunni. Vertu viðbúinn lausninni. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Nú er lag að dusta rykið af gömlum hugmyndum og hrinda þeim í framkvæmd. Það mun færa ný tækifæri, sem þú átt að nota þér til aukins þroska. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) ** Flýttu þér hægt að kveða upp dóm um menn og mái- efni. Fæst er eins og virðist í fljótu bragði svo það skiptir sköpum að þú gefir þér næg- an tíma. Meyja « (23. ágúst - 22. sept.) vOfL Ekkert fæst án fyrirhafnar og því stoðar lítt að sitja með hendur í skauti og bíða þess að hlutirnir gerist af sjálfu sér. Drífðu þig af stað. VÖg~~ (23. sept. - 22. okt.) Aðstoð annarra kann að koma fyrir lítið og vera hindrun í raun. Sinntu því ekki heldur haltu þínu striki og láttu álit annarra lönd og leið. Sporðdreki ™ (23. okt.-21.nóv.) Það er forpokun að vilja ekki einu sinni íhuga nýjar hug- myndir. Ef þú óttast breyt- ingar ættir þú að leita þér hjálpar til þess að lifa þær af. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) íU) Gættu þess að ganga ekki of langt því þú átt á hættu að upp um þig komist og málið verði þér til mikilla vand- ræða. Sanngirni er iykilorð dagsins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) æÍÍ Það er sjálfsagt að velta til- gangi lífsins fýrir sér. En fyrst og fremst er okkur ætl- að að lifa okkur sjálfum í sátt við meðbræður okkar. Vatnsberi , . (20. jan. -18. febr.) Sýndu sveigjanleika og vertu opinn fyrir hugmyndum ann- arra. Gefðu líka öðrum tíma til þess að melta það sem þú hefur til málanna að leggja. Fiskar mt (19. feb. - 20. mars) Það er rangt að skeyta skapi sínu á samferðamönnum, þegar ástæður erfiðleikanna eru innra með manni sjálf- um. Líttu í eigin barm. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Full búð af nvium vörum Afmælistilboð. Höldum upp á 3ja ára afmæli. Háaleitisbraut 68, sími 553 3305. Pantaðu jólamyndatökuna tímanlega Ljósmyndastofan Mynd sími: 565 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs sími: 554 30 20 Peysur - bolir - buxur Mikið úrval Hiá Svönu Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 & lau. frá kl. 10-14. Kvenfataverskm, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996. 25-40% afsláttur Opið virka daga frá kl. 11-18 Laugardaga frá kl. 11-16 ^Antíkbúðm Aðalstræti. Landlæknisembættið Að lifa með astma Astmi er algengur sjúkdómur og reynist alvarlegur þegar meðferð er ófullnægjandi. Helstu einkenni astma eru mæði, surg fyrir brjósti og hósti. Þau geta komið í köstum jafnvel að næturlagi. Leitaðu læknis ef þú verður þeirra var. • Forðist reykingar og hvers kyns mengun. • Forðist þekkta ofnæmisvalda og kynntu þér hvar rykmaurar leynast á þínu heimili. • Farðu gætilega eftir öndunarfærasýkingar því astmaköst koma þá gjarnan í kjölfarið. • Farðu árlega í inflúensubólusetningu. • Kynntu þér rétta notkun innúðalyfja og láttu meta árangur þinn þar að lútandi. Regluleg mæling öndunargetu metur best árangur astmameðferðar. Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.