Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Ný hönnun frá Mora, MORATEMP kemur skemmtilega á óvart
TCflGI
■r——ini»~iiiir"—M
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 564 1088 • Fax: 5641089 • tengi.is
VIÐSKIPTI
s ••
Oendurskoðað 9 mánaða árshlutauppgciör Ossurar hf.
Hagnaður 610 milljón-
ir króna fyrir afskriftir
SAMKVÆMT óendurskoðuðu níu
mánaða árshlutauppgjöri Össurar
hf. er hagnaður fyrir afskriftir 610
milljónir króna og í endurskoðaðri
áætlun er nú gert ráð fyrir 762
milljóna króna hagnaði fyrir af-
skriftir fyrir árið í heild.
I tilkynningu frá Össuri hf. er
heildarvelta samstæðunnar á tíma-
bilinu janúar til september 2.827
milljónir króna eða um 170% hærri
en á sama tíma í fyrra. Helstu
ástæður veltuaukningarinnar eru
að rekstrarniðurstöðu Flex-Foot
gætir í rekstri félagsins frá 1. apríl,
sala á nýjum vörum, sem settar
voru á markað á tímabilinu, hefur
gengið vel, auk þess sem sölukerfi
félagsins í Bandaríkjunum hefur
náð fullum afköstum og afslættir
voru lækkaðir til dreifiaðila 1. júlí,
sem hækkar sölutekjur fyrirtækis-
ins, auk þess sem bandaríkjadollar
hefur hækkað á tímabilinu.
Rekstrarkostnaður samstæðunn-
ar á tímabilinu janúar til septem-
ber er 2.289 milljónir króna. Þar af
var þróunarkostnaður 136 milljónir
og er hann allur gjaldfærður á
tímabilinu.
Fjármagnsliðir eru neikvæðir
um 142 milljónir fyrir tímabilið jan-
úar til september og munar þar
mestu um vaxtagreiðslur og geng-
ismun af 14 milljóna dollara lang-
tímaláni sem tekið var í lok júní
vegna kaupanna á Flex-Foot. I til-
kynningu Óssurar segir að þó svo
að gerðir hafi verið framvirkir
samningar á móti lántöku í sam-
ræmi við gengiskörfu samstæðunn-
ar, sé ljóst að gengissveiflur hafa
áhrif á nettóhagnað samstæðunnar.
Nettóhagnaður samstæðunnar
eftir skatta fyrir tímabilið janúar
til september er 260 milljónir
króna eða 105% hærri en á sama
tíma í fyrra. Að teknu tilliti til
óreglulegrar afskriftar viðskipta-
vildar vegna kaupanna á Flex-Foot
að upphæð 3.688 milljónir, er nett-
ótap ársins í lok september 3.415
milljónir króna.
Alls voru útistandandi 277,2
milljónir útgefinna hluta í félaginu
hinn 30. september síðastliðinn.
Salan í sameinuðu
félagi farið vel af stað
Sölustarfsemi Össurar hefur far-
ið vel af stað í Bandaríkjunum en í
lok júní var sölustarfsemin samein-
uð á einum stað. Innri vöxtur fé-
lagsins á heimsvísu fyrstu níu mán-
uði ársins er 15% talið í
bandaríkjadollurum.
Félagið rekur fjórar söluskrif-
stofur í Evrópu, ef skrifstofur
sænsku fyrirtækjanna tveggja,
sem Össur hefur keypt, eru taldar
með. Unnið er að athugun á fyrir-
komulagi sölumála í Evrópu og er
niðurstöðu að vænta í byrjun næsta
árs.
Aætlanir félagsins gerðu ráð fyr-
ir að sala hæfist á tveimur nýjum
vörum á síðasta ársfjórðungi ársins
2000 en báðum þeim vörum hefur
seinkað þar til á öðrum árs-
fjórðungi 2001. Ekki er gert ráð
fyrir að þetta hafi áhrif á núver-
andi söluáætlun ársins 2000, að því
er segir í tilkynningu Össurar hf.
Nettótap samstæðunnar 3.754
milljónir króna á árinu
Fyrir áhrif kaupa félagsins á Pi
Medical A/B og Karlsson og Berg-
ström A/B í Svíþjóð, gerir endur-
skoðuð áætlun félagsins ráð fyrir
750 milljóna króna hagnaði fyrir af-
skriftir, eða tæplega 9% hækkun
umfram áætlun frá því í júlí síðast-
liðnum. Heildarvelta ársins er
áætluð 3.380 milljónir króna og er
það rúmlega 5% hækkun frá fyrri
áætlun.
„Tilkoma sænsku félaganna hef-
ur jákvæð áhrif á afkomu samstæð-
unnar á árinu. Veltuaukning sam-
stæðunnar mun nema 110 millj-
ónum króna og veltan mun verða
3.490 milljónir króna. Hagnaður fé-
laganna tveggja fyrir afskriftir
(EBIDTA) mun nema 12 milljónum
króna síðustu tvo mánuði ársins og
hagnaður fyrir afskriftir er því
áætlaður 762 milljónir króna. Við-
skiptavild félaganna verður afskrif-
uð að fullu á árinu og munu óreglu-
legar afskriftir félagsins hækka um
416 milljónir frá endurskoðaðri
áætlun í lok júní. Óregluleg afskrift
er áætluð 4.091 milljón í lok ársins
og nettótap samstæðunnar á árinu
mun því nema 3.754 milljónum
króna,“ segir í tilkynningunni.
COMPACL
Compaq EY turnvél
Geisladrif & hljóðkort
10 Gb harður diskur
Windows 98 stýrikerfi
17" Compaq skjár
3 ára ábyrgð
Aukahlutir
Stœkkun úr 17“ í 19“ skjá
Epson Laser EPL 5700
3Com XL 10/100 netkort
Intel EtherExp Pro 10/100 netkort Kr.6.800.- m.vsk
*Sértilboðsverö meðan birgðir endast.
Vinnustöd
119.900.- verdm.vsk*
Kr.l 5.000,-m.vsk
Kr.44.900.- m.vsk
Kr.6.800.-m.vsk
Tæknival
650Mhz Intel PIII örgjörvi
64 Mb vinnsluminni
Prokaria semur
um heildarlausn í
upplýsingatækni
LÍFTÆKNIFYRIRTÆKIÐ Prok-
aria hefur gert saming við Nýherja
um kaup á öllum samskipta- og
tölvubúnaði og þjónustu varðandi
búnaðinn, sem tekinn verður í notk-
un þegar fyrirtækið flytur í nýtt hús-
næði á Gylfaflöt 5 á næstunni. Um
heildarlausn er að ræða þar sem
Nýherji sér um alia þætti upplýs-
ingatækninnar.
Prokaria er líftæknifyrirtæki, sem
notar nýjustu tækni við einangrun
og rannsóknir á erfðavísum úr örver-
um í íslenskri náttúru. Megináhersl-
an er á hveraörverur en aðrir vaxtar-
möguleikar eru á sviði flétta,
kuldakærra örvera og sjávarlífvera.
Markmið fyrirtækisins er að skapa
verðmæta þekkingu og þróa ný líf-
efni til nota í iðnaði, rannsóknum og í
lyfjaframleiðslu, en nafn fyrirtækis-
ins er dregið af örveruríkinu Prokar-
yota, sem býr yfir mestum erfðafjöl-
breytileika lífheimsins og hefur fram
til þessa verið mikilvægasta upp-
spretta mannkyns fyrir bæði lífhvata
oglyf.
Aðeins um 1% allra náttúrulegra
örverutegunda hafa verið einangrað-
ar fram til þessa og því er stærsti
hluti lífheimsins enn órannsakaður
og vannýttur. Prokaria hefur þróað
nýjar aðferðir til að rækta hærra
hlutfall óþekktra hveraörvera en
hingað til hefur verið mögulegt og
getur þannig nýtt mun fleiri tegund-
ir til hagnýtrar genaleitar en áður
var hægt með góðu móti. Fyrirtækið
notar DNA-raðgreiningu og líf-
tæknigagnagrunn til að finna og
þróa ný ensím og smásameindir úr
náttúrulegum örverum. Þessi efna-
sambönd eru ein af megin stoðunum
í þróun líftækninnar á komandi öld,
en hitaþolin ensím gegna mikilvægu
og sívaxandi hlutverki í fjölmörgum
iðnaðar- og rannsóknarferlum. Hjá
Prokaria starfa nú um 20 manns og
er búist við að þeim fjölgi talsvert á
næstunni.
í lagi að nota olíusjóðinn
Osló. Morgunblaðið.
ÝMSIR prófessorar við Óslóarhá-
skóla og helstu viðskiptaháskóla
Noregs hafa gagnrýnt norska fjár-
málaráðherrann fyrir að halda of fast
í olíusjóð Norðmanna og segja að
efnahagslífið þoh vel að hið opinbera
noti aðeins meiri olíupeninga. Þetta
kemur fram í Dagens Næringsliv.
Karl Eirik Schjptt-Pedersen,
fjármálaráðherra í ríkisstjóm Verka-
mannaflokksins, hefur í kynningu
sinni á fjárlagafrumvarpi fyrir næsta
ár, lagt þunga áherslu á að draga úr
útgjöldum ríkisins og halda áfram að
leggja tekjur af olíuframleiðslu
Norðmanna í olíusjóðinn svokallaða.
Markmiðið er að komast hjá fleiri
vaxtahækkunum Seðlabankans. 01-
íusjóðurinn hefur farið ört vaxandi
með háu olíuverði en honum er haldið
utan við fjárlög ríkisins.
Að mati viðskiptaprófessoranna er
ekki óeðlilegt að a.m.k. hluti þeirra
viðbótartekna sem hærra olíuverð
hefur skapað, verði notaður í þágu
þjóðarinnar. Þeir gagnrýna fjármála-
ráðherrann fyrir skammtímasjónar-
mið og að hann verði að hafa fleira í
huga en vaxtahækkun og þenslu í
efnahagslífinu.