Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 41
LISTIR
Ljósmynd á 20 km fresti
BÆKUR
1881 k in
LJÓSMYNDIR EFTIR
PÁL STEFÁNSSON
Hönnun: Páll Stefánsson og Erling-
ur Páll Ingvarsson. Litgreiningar:
Prentmyndastofan hf. Prentað í
Singapore.
Iceland Review, 2000.
98 bls. Verð kr. 4.200
PÁLL Stefánsson ljósmyndari hef-
ur veríð ötull við útgáfu á síðustu ár-
um og sent frá sér vandaðar bækur
með litljósmyndum af landinu. I þess-
ari nýju bók Páls, 1881 km, kveður við
nýjan tón í höfundarverki hans. I stað
úrvals mynda, þar sem hann raðar
saman því besta sem hann hefur náð á
ferðum um tiltekin svæði, eins og í
Land, eða úrvali mynda sem hann
hefur tekið í tilteknu mynda „for-
mati“, eins og í Panorama, hefur Páll
hér gert hreinræktað „konsept" verk
og pakkað því inn í þessa myndarlegu
bók með eldrauðum spjöldum.
Bókin birtir myndir úr einum leið-
angri þar sem Ijósmyndarinn setti sér
mjög strangar skorður. Á fjórum dög-
um ók hann hring í kringum ísland,
rangsælis þar sem „veðurspáin var
þannig." Ferðin hófst á Lækjartorgi,
núllpunkti þjóðvegakerfisins, og síð-
an nam Páll staðar á 20 km fresti og
tók ljósmynd, eða myndir, og er ein af
hverjum þessara skilyrtu áfangastaða
birt í bókinni. Ljósmyndarinn gekk
aldrei meira en 50 metra frá bifreið-
inni til að finna myndefni en gat not-
ast við hvert það mynda„format“ sem
honum þótti henta hverju sinni, hvort
sem þar voru panórama-myndir,
ferkantaðar eða 35 mm, aðdráttar-
eða víðlinsur. Ferðinni lauk hann fjór-
um dögum síðar, aftur í miðborginni.
Þegar ljósmyndarinn setur sér
skorður sem þessar lendir hann
stundum í birtu sem varia þætti eftir-
sóknarverð íyrir landslagsmyndir,
hann þarf að taka mynd með áhuga-
verða staði rétt fyrir framan eða
skammt fyrir aftan og þar getur verið
ákaflega fátt áhugavert að sjá. En það
eru einmitt þessar hömlur sem gera
bókina forvitnilega. Að sjá hvemig
þessi margreyndi landslags- og nátt-
úruljósmyndari tekst á við þjóðveg-
inn, súldina og manngert landslagið
umhverfis; hvemig hann tekst á við
hversdagsleika vegarins. Þetta er
landið sem flestir þekkja, landið
kringum veginn, ekld dularfullir töfr-
ar hálendisins eða falinna slóða; en
ljósmyndaranum tekst samt oft að
gæða þá staði þar sem hann nemur
staðar vissum töfram og draga fram
sérkenni þeirra þótt sérkenni ann-
arra séu þau hversu dæmigerðir þeir
era í raun.
Vegurinn sjálfur er leiðarminni í
myndunum og síendurtekinn; möl eða
malbik, beinn eða í beygju; hann
hverfur út við sjóndeildai’hringinn og
eftir honum brana bílar jafnt sem
reiðhjól. Við komum að mörgum
kirkjum og sumum myndrænum,
bóndabæir og slegin tún eru áber-
andi, í Langadal er ekið fram á
árekstur og ljósmyndarinn tók sjálfs-
mynd á Stöðvarfirði.
I verki sem þessu verða myndimar
vitaskuld missterkar jjósmyndalega
og í hönnuninni er líka leikið með það.
A sumum opnum skapa þrjár, fjórar
litlar myndir ræmu eða veg yfir síð-
umar en betri myndir fylla síður eða
heilar opnur. Þannig eru myndir eins
og af álftafjölskyldu á Dynjandisheiði
og netgirðingu i Mjóafirði sérlega
glæsilegar á meðan myndir eins og af
graslendi í Mýrdal og vegskilti í
Bitrufirði færa frásögnina aðeins
áfram - og lesandann eftir veginum.
Hönnun bókarinnar er mjög vel
lukkuð. Sterkrauður liturinn á kápu
og síðum milli kafla hefur mikið að-
dráttarafl og flæði myndanna er mjög
gott frá einni síðu til annarrar.
Það er ánægjulegt að sjá reyndan
ijósmyndara eins og Pál Stefánsson
takast á við verkefni sem þetta, „kon-
sept“ verk sem setur honum strangar
skorður þar sem ekki er mögulegt að
hafa sama jafnvægið í myndrænum
gæðum og í hefðbundnum ljósmynda-
bókum. En hann kemst vel frá því og
auðnast enn að víkka út á áhugaverð-
an hátt hvemig hann nálgast þetta
land og færir öðram til að njóta.
Einar Falur Ingólfsson
Hetjur hænsnakofans
KVIKMYIVDIR
Bíðhö 11 id, Háskóla-
bíð, Nýja bíð
Akureyri, Nýja bíð
Keflavfk
KJÚKLINGAFLÓTTINN
- CHICKEN RUN ★ ★★
Leikstjórar Peter Lord og Nick
Park. Handritshöfundur Karey
Kirkpatrick. Tónskáld. Leirbrúðu-
mynd. Islensk talsetning: Hilmir
Snær Guðnason, Helga Jónsdóttir.
Inga María Valdimarsdóttir, o.fl.
Bandarísk talsetning: Mel Gibson,
Miranda Richardson, Tony Hayg-
arth, Julia Sawalha, Jane Horr-
ocks, ofl. Sýningartími 85 mrn.
Bandarísk. DreamWorks. Árgerð
2000.
INNAN veggja Teweedy-fang-
elsisins dúsa ekki bófar og brota-
menn, heldur lífsleiðir hænsnfuglar
sem þrá frelsið úti fyrir. Það gengur
illa að láta drauminn rætast, allar
flóttatilraunir eru kæfðar í fæðingu.
Hið breska pútnabú byggist á
eggjaframleiðslu en Ginger
(Richardson), aðaluppreisnarsegg-
urinn, skynjar yfirvofandi vá í lofti.
Það kemur líka á daginn að til
stendur að breyta því í risavaxna
kjúklingabökuframleiðslu og nú eru
góð ráð dýr, eins gott að reyna að
komast í burtu áður en maður lend-
ir í bökunni. Ginger reynir að fá am-
eríska einfarann Rocky (Mel Gi-
bson), til liðs við sig, en yfirforingi
fangabúðanna/eggjabúsins er gam-
all jálkur sem tók þátt í síðari
heimsstyrjöldinn með Konunglega
breska flughernum, og er tekin að
glepjast af aldurs sökum.
Það er vel til fundið að færa
Flóttann mikla - The Great Escape,
í leirbrúðu- og teiknimyndaformið,
og lukkast vel í höndum þeirra Lord
og Park, sem hafa unnið til Óskars-
verðlauna fyrir stuttmyndir af þess-
ari gerð. Handritshöfundurinn Kar-
ey Kirkpatrick, blandar síðan inní
frásöguna léttu ívafi í anda Water-
ship Down. Það er þó baráttuandi
flóttamyndarinnar góðu sem svífur
yfir vötnunum með Rocky sem hinn
fiðraða Steve McQuinn, með hafna-
boltahanska-atriðinu, verst að þeir
slepptu mótórhjólastökkinu hans
fræga og var það minnisstæðasta af
mörgum góðum. Ginger er sam-
nefnari bresku þrautseigjunnar
sem kristallaðist í Richard Atten-
borough. Það er greinilegt að Katz-
enberg er að gera góða hluti hjá
teiknimyndadeild DreamWorks,
hins ört vaxandi fyrirtækis hans,
Spielbergs og Davids Gefen. Hann
var orðinn of áberandi fyrir Michael
Eisner, Disney-stjóra, sem hrakti
hann á braut úr músargarði og er
nú að byrja að súpa af því seyðið. Að
þessu sinni varð upprunalega útgáf-
an fyrir valinu hjá gagnrýnandan-
um og þar ber hæst óvænta þátt-
töku ofurstjörnunnar Mels Gibson,
sem gerir sína hluti vel að vanda.
Nú er svo komið að það þykir eftir-
sóknarvert að ljá teiknimyndafígúr-
um raddir sínar í kvikmyndaborg-
inni.
Sæbjörn Valdimarsson